Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 21.05.1998, Síða 24

Fréttir - Eyjafréttir - 21.05.1998, Síða 24
Frétta- og auglýsingasími: 481-3310 * Fax 481-1293 í síðasta blaði Frétta var greint frá því að Þorsteinn Pálsson, sjávar- útvegsráðherra, hygðist ekki styðja frumvarp Árna Johnsen á alþingi, þess efnis að eigendur Sæbjargar VE fái aflaheimildir þær er þeir telja sig eiga rétt á. Ráðherra sagði að þær aflaheimildir yrði þá að taka frá öðrum skipum í Vest- mannaeyjum og m.a. þess vegna gæti hann ekki stutt frumvarpið. Sveinn Andri Sveinsson, forsvars- maður Sæbjargarmanna, segist undr- ast þessi ummæli ráðherra, þau hljóti að byggjast á misskilningi. Það sé Ijóst að úthlutun til Sæbjargar VE myndi þýða skerðingu á aflaheim- ildum allra þeirra útgerða á landinu sem hafa fengið úthlutun. þ.á.m. í Vestmannaeyjum. Sveinn Andri segir ennfrentur að sér sýnist málið ekki hafa fengið nægilega skoðun í ráðuneytinu og mat ráðherra sé byggt á fljótaskrift starfs- ntanna hans. Frumvarpið muni konta aftur fyrir þing í haust og til faglegrar umfjöilunar í sjávarútvegsnefnd þar sem menn hafi kynnt sér það rækilega. Sveinn Andri segist þess fullviss að þegar ráðherra hef'- skoðað málið ofan í kjölinn. muni hann mæla nteð samþykkt þess. Litadýrð var mikil á skóladegi í Hamarsskóla. Þar var m.a. minnst Heimaeyjargossins í leikriti þar sem þessir álfar sýndu með leikrænni tjáningu atburði fyrstu daga gossins. Sjá bls. 20. Starfsfólk óttast um framtfð HIV í morgun, 20. maí, komu menn frá heilbrigðisráðuneytinu til Eyja til þess að gera úttekt á starfsemi Heilbrigðisstofnunar Vestmanna- eyja (HIV) með það fyrir augum að gera endurbætur á húsnæðinu innanhúss. Bæði vegna viðhalds og hagræðingar innan stofnunar- innar. í framhaldi af heimsókn ráðuneytisfólksins varð uppi niikil umræða meðal starfsfólks stofnun- arinnar um að markmiðið með heimsókninni væri fyrst og fremst að skera niður og fækka stöðu- gildum. Starfsfólkið kallaði því til fundar með frambjóðendum til bæjarstjórnar í komandi kosning- um og vildi fá skoðanir þeirra á hreint í málefnum stofnunarinnar. Samkvæmt því sem fram kom á fundinum eru uppi hugmyndir hjá ríkinu um að veita 50 til 80 milljónum til HÍV vegna þessa verkefnis. Eru þar inni hugmyndir um að A og B deild verði sameinaðar á þann veg að flytja B deildina á neðri hæðina. Með viðeigandi raski sem starfsfólk mat á þann veg að á HÍV yrðu fyrst og fremst legudeildir og heilsugæsla, sem væri í samræmi við stefnu ríkisins í málefnum margra sjúkrahúsa á landsbyggðinni. „Ég óttast að þetta sé upphafið að einhverju miklu meira og endalokum þess að á HÍV verði rekin þjónusta fyrir Vestmannaeyinga. Við getum ekki verið án þessarar þjónustu vegna landfræðilegrar stöðu okkar og það verður að efla þjónustu HIV með það í huga svo þjónusta megi Vestmannaeyinga í Vestmannaeyj- um,“ sagði Steinunn Einarsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Starfsfólk og fulltrúrar framboðanna tóku afgerandi afstöðu með því að HÍV ætti að sjá um að þjónusta Vestmannaeyinga á þann veg að ekki þyrfti að leita til Reykjavíkur ef sinna þyrfti bráðaaðgerðum og að vilji væri fyrir því að stofnunin yrði byggð upp með það fyrir augum að geta frekar tekið að sér verkefni annars staðar að af landinu, ef verða mætti til þess að fá hæft starfsfólk og ná meiri nýtingu á skurðstofum. Gunnar Gunnarsson framkvæmda- stjóri HÍV bað starfsfólk ekki skjóta þessar milljónir á færi áður en málið fengi skynsamlega umfjöllun. „Þessi upphæð er til þessa ákveðna verk- efnis. Það hefur verið ákveðið að gera frumdrög að þessurn breytingum sem svo verða lögð fyrir stjóm HÍV, auk þess sem skipuð verði nefnd með full- trúa starfsfólks, auk hönnuðar og framkvæmdastjóra HÍV sem fara munu yfir tillögumar og meta þær af skynsamlegri yfirvegun. Það er engin ástæða til annars en að fullt tillit verði tekið til skoðana starfsfólks í þessu máli.“ Einnig kom fram að HÍV væri í mikilli niðumíðslu vegna skorts á fé til viðhalds, auk þess sem aldrei væri hægt að snúa sér að uppbyggingu stofnunarinnar, vegna þess að tími og orka færi einatt f málefni sem sneru að innviðum stofnunarinnar, hvort sem það væri vegna samskiptaörðugleika starfsfólks eða skipulagsmála innan Heilbrigðisstofnunarinnar. Sendibílaakstur innanbæjar. Vilhjálmur Bergsteinsson SEHðÍPEftðASÍLL V481-2943, nr 897-1178 FLUTNINGAR- VESTUANNAEYJUM Hajuag ÆmmMÍm X IjhmjJ MM ■r9givgcH BwW^w o w^bo som or# Vöruafgreiðsla Sidldlsgovegl 4 Siml 481 3440 Vöruafgreiðsla ■ Reykjavík UUasgota 1-3 Sinl 881 3030 Sýslumannsembættið: Ráðherravandiáhöndum Enn hefur ekki verið ráðinn nýr sýslumaður að embættinu í Vest- mannaeyjum. Þorsteinn Pálsson, dómsmálaráðherra, mun ráða í það starf en alls bárust átta umsóknir um starfið. Ráðherra mun nokkur vandi á höndurn og er undir þrýstingi frá ýmsum aðilum. T.d. ntun hart að honum lagt að ráða konu í starfið og hefur þá einkum komið upp nafn Áslaugar Þórarinsdóttur, deildar- stjóra hjá dóms- og kirkjumála- ráðuneytinu. Önnur kona sótti um, Sigríður B Guðjónsdóttir, skattstjóri á Vestfjörðum en eiginmaður hennar, Skúli S Ólafsson, sótti um prestsembættið hér og var það bundið því skilyrði að eiginkonan hreppti embætti sýslumanns. Vandinn er sá, hvað konumar tvær varðar. að margir aðrir umsækjendur ntunu taldir þeim hæfari. Þá mun og hart lagt að ráðherra að heimamaðurinn Jóhann Pétursson verði ráðinn. Og loks stendur ráðherra frammi fyrir því að Bjami Stefánsson, sýslumaður á Neskaup- stað, stendur starfinu næst, hefur rnesta reynslu. auk þess sem leggja á embættið á Neskaupstað niður. Munið öll góðu afmælistilboðin Sumarleikur L’OREAL & Vöruvals Þú kaupir eitthvað tvennt frá L’OREAL og festir kassakvittunina við þátttökuseðilinn Dregið verður um 3 gjafaöskjur frá L'OREAL rfdfal ofiob

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.