Fréttir - Eyjafréttir - 11.06.1998, Qupperneq 2
2
Fréttir
Fimmtudagur I l.júní 1998
Verðkönnun ASI, BSRB og Neytendasamtakanna:
161 færsla i dagbók
I síðustu viku vonj færslur í dagbók
lögreglunníir 161. Það eru aðeins
fæiri færslur en í síðustu viku þrátt
fyrir að Sjómannadagurinn hafi
verið haldinn hátíðlegur víða um
Eyjuna.
Fimmmeðfíkniefni
Síðastliðna viku voru fimm teknir
með fíkniefni. Um var að ræða
hass, amfetamín og kókaín en ekki
var um mikið magn að ræða.
Athygli vekur að á aðeins einni
viku hafa sex verið leknir með
fíkniefni þannig að ljóst er að
eitthvað magn er af fíkniefnum í
unrferð í Vestmannaeyjum og
óskar lögreglan eftir upplýsingum
frá almenningi þannig að hægt sé
að stöðva þennan ófögnuð sem
fíkniefni eru.
Hraðbanki
skemmdur
Skemmdir á hraðbankanum í ís-
landsbanka voru tilkynntar á laug-
ardagsmorgun. Búið var að brjóta
hluta af hraðbankanum en ekki er
enn ljóst hverjum var svona illa við
hraðbankann. Lögreglan óskar eftir
upplýsingum um það hver hafi
verið þarna á ferð.
ASÍ, BSRB og Neytendasamtökin
tóku saman höndum og könnuðu
verð á 83 algengum vörum í 22
matvöruverslunum á Suðurlandi,
sunnanverðu Vesturlandi, Vest-
fjörðum auk fimm verslana á höf-
uðborgarsvæðinu sem teknar voru
til samanburðar. Alls voru því 27
verslanir í könnuninni, en tvær
verslanir á Akranesi, verslun
Einars Olafssonar og Verslunin
Traðarbakki neituðu að vera með.
Könnunin var framkvæmd í maí
síðastliðinn.
Þær vörur sem lágu undir í þessari
könnun voru algengar matvörur og
hreinlætisvörur. Ekki þykir þó
sanngjarnt að bera saman keðju-
verslanir, stórmarkaði annars vegar og
sjálfstæðar matvöruverslanir hins
vegar, þar sem keðjuversalnir og
stórmarkaðir ná yfirleitt hagstæðari
magninnkaupum sem ætti óneitanlega
að skila sér í verðinu til neytandans.
Hraðkaup í Borgamesi er með
lægsta verð á sunnanverðu Vestur-
landi af þeim Verslunum sem tóku þátt
í könnuninni. Á Suðrlandi er verð
lægst í Kjarval á Selfossi, en sú versl-
un er í eigu KÁ. Næst á eftir kemur
KÁ Selfossi sem er 2% dýrari en
Kjarval. Verðlag á Selfossi var borið
saman við aðra könnun sem gerð var
viku áður eða 20. maí og var ekki
hægt að merkja verðbreytingar að
undanskildum tómötum sem kostuðu
698 kr. viku áður, en kostuðu í þessari
könnun 398 kr.
Verslanirnar sem þátt tóku voru
stórmarkaðir, keðjuverslanir og
verslanir sem eiga í innkaupasam-
starfi. Af verslunum sem teljast til
ofannefndra verslana var verð
hagstæðast í Fjarðarkaupum og Sam-
kaupum. Þessar verslanir voru teknar
til samanburðar en þær voru einnig
lægstar í verðkönnun á höfuðborg-
arsvæðinu viku áður. Næst á eftir
koma Kjarval Selfossi og Hraðkaup í
Borgamesi en athygli vekur að verð á
flestum vörurn er örlítið lægra í
Hraðkaupum en Hagkaupum Grafar-
vogi sem nú heitir Nýkaup. Hagkaup
rekur hins vegar Hraðkaup.
Alls voru sjö verslanir sem teljast
litlar sjálfstæðar verslanir og þar af
vom fimm á Vestfjörðum. Verslanir
utan Vestfjarða slanda sig betur, en
Vömval í Vestmannaeyjum er hag-
stæðust þessara verslana. Næst á eftir
Vömval kemur Grundaval á Akranesi.
Yfir 10% munur er á þessum versl-
unum og þeim sem em á Vestíjörðum,
en af litlum verslunum á Vestfjörðum
er Metta á Tálknaftrði með lægsta
verð.
Ef skoðaður er verðmunur keðju-
verslana, stórmarkað og þeirra sem
eiga í innkaupasamstarfi var Kaupfél-
ag Steingrímsfjarðar á Hólmavík með
110.2 meðalverð af verslununum 27.
en Fjarðarkaup í Hafnarfirði lægst eða
87,1. Hverakaup í Hveragerði var
með 96,6 meðalverð. KÁ Tanginn
var með 95,1 meðalverð og KÁ
Goðahrauni 94,7. Meðalverð kann-
aðra vörutegunda var 94,3 hjá KÁ
Selfossi og 92,5 í Kjarval á Selfossi og
101.2 í versluninni Hominu á Selfossi.
Athygli vekur að meðalverðið er
lægra í KÁ í Goðahrauni, en í KÁ
Tanganum.
Hlutfallslegur verðmunur milli lít-
illa sjálfstæðra matvömverslana er
hagstæðastur Vöruvali í Vestmanna-
eyjum, þar sem Búðin okkar á
Suðureyri er með 117,2 meðalverð en
Vömval 102,3. Þessar tölur sýna
hlutfallslegan verðmun þar sem
meðalverð úr öllum verslununum 27
er hundrað. Verð hverrar vöm er lagt
saman og deilt í með íjölda vara.
leíta að ætnngjum sínum hér á lan
Pæjumótumnæstu
helgi
Um helgina fer fram „Pæjumót"
ÍBV og því mikill fjöldi gangandi
vegfarenda í bænum og vill því
lögreglan biðja ökumenn að fara
varlega og þá sérstaklega í kringum
knattspyrnuvelli bæjarins.
Tvöumferðaróhöpp
Tvö umferðaróhöpp urðu síðast-
liðna viku en í bæði skiptin var um
lítið tjón að ræða.
Lokanir
Vegna vinnu í spennistöð við
Bessastíg verður lokað fyrir
rafmagn í eftirfarandi götum
frá kl 23.00 fimmtudaginn
11. júní og fram eftir nóttu.
Bessastígur frá Brimhóla-
braut að Boðaslóð.
Hólagata frá Kirkjuvegi að
Hásteinnsvegi.
Heiðarvegur frá Kirkjuvegi
að Hásteinnsvegi.
Illugagata bakhús nr. 17 að 45
milli Hraunslóðar og Kirkju-
vegar
KirkjuvegurJoe on the Hill
Enn á ný verða Vestur-Islendingar
á ferð á íslandi dagana 14. til 22.
júní í leit að ættingjum sínuni hér á
landi. Ferðin er á vegum Islend-
ingafélagsins í Utah. Þetta er þriðja
árið í röð sem Islendingafélagið
skipuleggur slíka ferð til Islands. I
fyrstu ferðinni fyrir tveimur árum
kom 40 manna hópur, en í fyrra
kom 16 manna hópur. I ár mun
koma 20 manna hópur.
Hópurinn kemur til íslands árla
sunnudaginn 14. júní og mun koma til
Vestmannaeyja daginn eftir og dvelja
þai ítvodaga. Þriðjudaginn 16. júní
flýgur hann til Akureyrar að
undanskilinni Olson fjölskyldunni
sem mun verða eftir í Eyjum
Islendingafélagið áformar næstu
ferð til íslands árið 2000 og er fólk
þegar farið að skrá sig í þá ferð. Þegar
Ólafur Ragnar Grímsson forseti kom
til Utah síðastliðið suntar ræddi hann
við marga Vestur-íslendinga um
væntanleg hátíðarhöld ársins 2000.
Vakti hann með þeim stolt og áhuga á
Islandi og gera menn ráð fyrir
fjölmennum hópi Vestur-Islendinga
árið 2000.
Hér á eftir fara nöfn forfeðra þeirra
sem verða munu á Islandi 14. - 22.
júní og tengjast Vestmannaeyjum.
Ættingjar eru vinslantlega beðnir að
hafa samband við hópinn á þeim
hótelum sem þau dvelja á hverju sinni.
Hafa skal samband við Tyler Sheperd,
en hann mun sjá um að samband
komist á milli frændfólks. Móðir
Tylers, Lil Shepherd sem verið hefur
fararstjóri undanfarin ár hefur orðið
vitni að mörgum gleðilegum
endurfundum og bendir á að þúsundir
mílna og ára geti ekki aðskilið
fjölskyldur. „Fjölskyldur eru eilífar,"
segir hún.
Fölskylda Reed og Lorinee Braith-
waite, Blance Hawkins, Marjorie
Shepherd, Diane Elsmore og Betty
Roinson: Gísli Gíslason f. 31. okt.
1844 í Skaftafellssýslu, eða Bjöms-
koti. Faðir hans, Gísli Brynjólfsson.
Móðir hans Þobjörg Þorsteinsdóttir.
Steinunn Þorsteinsdóttir (eða Johnson)
f. 22. sept. 1862 í Vestmannaeyjum.
Frændfólk sem vitað er um á Islandi
(að því að talið er) eru Margrét
Sigurðardóttir, gift Haraldi Emi
Sigurðssyni og búa þau í Garðabæ.
Brynjólfur Jónatanson, sem býr f
Vestmannaeyjum
Fjölskylda Helen, Karen, Leon
(Helgi) og Susan Olson: Ólafur
Helgason (Ole Helgi Olson) f. 23. júní
1870 í Holti Rangárvallasýslu. Kona
Ólafs var Þorbjörg Hólmfríður
Magnússon f. 6. apríl 1869 í Vest-
mannaeyjum.
Fjölskylda Tyler og Kellie Shep-
herds: Runólfur Runólfsson f. 10.
apríl 1852 í Vestmannaeyjum. Sig-
ríður Sigvaldadóttir f. 14 ágúst 1851 í
Skagafirði. Ketill Eyjólfsson (Kelly
Jameson) f. 9. okt. 1864 á Eyjarbakka,
Tjamar.
I Vestmannaeyjum mun verða hægl
að ná í tengilið á Gistiheimilinu
Brimhólabraut 1 (Isjakanum) sími:
481 -2920 eða 481-1389. Einnig má
hafa samband við Normu og Ronald
Svenson Mímisvegi 8 sími: 552-3306.
Þau eru bæði af íslenskum ætturn og
munu dvelja á Islandi næstu 18
mánuði.
Jóna og Sveinn
púttuðu best
Púttvöllur Félags eldri borgara í
gamla Isfélagshúsinu hefur notið
vaxandi vinsælda meðal félags-
manna.
Fyrir skömmu var efnt til fyrstu
keppninnar á vellinum og var hún
bæði fjölsótt og spennandi.
I fyrsta sæti í kvennaflokki varð
Jóna Magnúsdóttir sem náði tíu
fuglum. Næstar voru Jakobína sem
var í öðm sæti og Inga Halldórsdóttir
í því þriðja.
Keppnin var ekki síður spennandi
hjá körlunum en þar fór golfsnill-
ingurinn Sveinn Magnússon með
sigur af hólmi með tíu fugla. Á hæla
hans komu Pétur Sigurðsson og
Ágúst Helgason.
Kókumboðið gaf verðlaunin, fengu
karlamir Kók og konurnar konfekt
sem Kristrún Axelsdóttir afhenti.
(FRÉTTIR
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
íþróttir: Rútur Snorrason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinnæ Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293.
Netfang/rafpóstur. frenir@eyjar.is. Veffang: hnp//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu I Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn,_Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi,
Flugvallarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. í Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og í Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.