Fréttir - Eyjafréttir - 25.06.1998, Side 6
6
Fréttir
Fimmtudagur25. júní 1998
Tónleikar Skólahljómsveitar Peabodytónlistarskólans:
Sætindi fyrir hlustimar
Frá tónleikunum á laugardaginn.
Skólahljómsveit Peabodytónlistar-
skólans í Baltimore hélt tónleika í
sal Hvítasunnusafnaðarins síðastlið-
ið fóstudagskvöld undir stjórn Gene
Young við góðar undirtektir fárra
en þakklátra áheyrenda.
A efnisskrá tónleikanna voru Sin-
fónía no. 8 í B moll oft kölluð Ófull-
gerða sinfónían eftir Franz Schubert
sem hann samdi 1822, þá orðinn illa
þjáður af taugaveiki. Schubert er af
rómantíska skólanum, fæddur í Vín
árið 1797. Þekktastur er hann fyrir
ljóðasöngva sína sem hann samdi við
ljóð helstu skálda þýsku róman-
tíkurinnar, meðal annars Göthe og
Schiller. Eftir Schubert munu ligga
um sex hundruð Ijóðasöngvar.
Sinfóníur Schuberts ná aldrei þeirri
miklu dramatík sem einkennir verk
Ludwigs van Beethoven (fæddur
1770) en á tónleikunum var flutt sin-
fónía no. 6 í F dúr (pastorale) eftir
Beethoven sem er tilfinningahlaðin
lýsing sveita-lífs, þar sem náttúruöflin
gegna ekki minna hlutverki en ölvaðir
bændur og hiðingjar. Gafst
áheyrendum því á-gætt tækifæri til að
bera saman þessi tvö rómantísku
tónskáld. Schubert leggur meiri
áherslu á allt um lykjandi melódíur og
einingu kennda og hug-mynda á
meðan Beethoven túlkar ofsa eða
mildi náttúruaflanna og verald-legri
og mannlegri nautnir.
Þriðja verkið sem flutt var, reyndar
númer tvö á efnisskránni er eftir
Robert Sirota (fæddur 1949) skóla-
stjóra Peabodytónlistarskólans. Verk-
ið kallar Sirota „Dark Dances“ og er
það skrifað fyrir einleiks víólu sem
Jamie Raudensky lék á af stakri
tilfinningu. Verkið er byggt upp á
fjórum þáttum sem höfðu yfirbragð
myrkrar gleði. Þættirnir hétu mars,
skuggavals, næturljóð og Phos
Hilaron. Dark Dances var einkar
áheyrilegt verk og ekki svo ólíkt þeiiri
rómantík sem sveif yfír vötnum þetta
kvöld. Verkið er þó nær okkur í tíma
og slungið hrynjandi og taktuppbygg-
ingu nútímatónsmíða. Víólan hélt
eyrunum þó við jörðina og mildaði
annars hin myrku öfl sem að verki
voru í mjög svo skemmtilegu verki.
Hljómsveitin var ágætlega samstillt ■
og fórst Gene Young stjómunin vel úr
hendi. Helst mátti greina dálítið óör-
yggi og ósamhljóm í Andante kafl-
anum í sinfóníu Schuberts. Að öðm
leyti vom þetta vel heppnaðir tón-
leikar og mikil sætindi fyrir hlust-
imar.
Hljómleikasalurinn var hins vegar
til skammar og með ólíkindum að
bjóða bæði áheyrendum og hljóm-
sveitinni að dvelja í slílai fúkkagryfju
sem er eins og tilbúin undir tréverk.
Kannski var vel við hæfi að flytja
ófullgerðu sinfóníuna í slíkum salar-
kynnum, þó er mér það til efs. En rétt
að virða viljann fyrir verkið.
Flugfélag Islands og Islandsflug neita orðrómi um uppstokkun í fluginu
Erum ekki að yfirtaka flug tll Eyja
/ /
-segirAsta Ólafsdóttir hjá Islandsflugi sem notar eingöngu stórar vélar á Eyjar ísumar
Sumaráætlun íslandsflugs tekur
gildi nk. mánudag, þann 29. júní og
gildir til ágústloka. Ferðatíðni til
Eyja helst óbreytt, þrjár ferðir á
dag, virka daga kl. 07.30, 11.40 og
16.40. Þá er morgunflug á laugar-
dögum og síðdegisvélinni seinkað til
kl. 18.30 frá Reykjavík til að koma
til móts við heima- og ferðamenn.
Sætaframboð til Eyja eykst aftur á
móti mikið því að nú verður eingöngu
boðið upp á 46 sæta ATR vél í flug
hingað.
Sá orðrómur hefur gengið að
undanfömu að íslandsflug sé að yfir-
taka allt áætlunarflug hingað; það séu
nokkurs konar býti við Flugfélag
íslands þar sem íslandsflug hefur hætt
áætlunaiflugi á ísafjörð og Flugfélagið
tekið við því.
Ásta Ólafsdóttir, afgreiðslustjóri hjá
íslandsflugi, aftók í viðtali við Fréttir
að nokkuð slíkt væri á döfinni. „Það
hefur ekki komið upp á borðið hér og
ég veit ekki til að nokkuð slíkt hafi
verið rætt. Við verðum áfram í
samkeppni við Flug-félag Islands í
flugi til Eyja, það eina sem breytist er
að við emm að stórauka sætafram-
boðið í sumar," sagði Ásta Ólafsdóttir.
Thor Ólafsson hjá Flugfélagi Islands:
35 prósent aukning milli ára
Að sögn Thors Ólafssonar sölu- og
markaðsstjóra Flugfélags Islands
stendur ekki til að Flugfélag Islands
hætti að lljúga til Vestmannaeyja
og láti Islandsflugi eftir allt flug
milli Reykjavíkur og Vestmanna-
eyja.
„Það er ekkert til í þessum orðrómi.
Hugsanleg skýring á því að þessi
umræða kom upp er sú að við vorum
seinir fyrir að setja inn vetraráætlun
félagsins. Nú er búið að setja inn
áætlun september og október
mánaða.“
Thor Ólafsson segir að verið sé að
ráðgera að taka í notkun nýtt
tölvukerfi, sem skýri seinkunina.
„Þetta var spurning um að setja alla
vetraráætlunina inn í gamla kerfið.
Það var ákveðið að setja inn
september og október í gamla kerfið,
en framhaldið verður samkvæmt
þessu nýja kerfi sem er í bígerð."
Thor segir að frá 1. janúar til 1. júní
á þessu ári sé 35% aukning farþega
milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur.
„Þessi flugleið er á mjög góðum vegi
þrátt fyrir samkeppni. Við sjáum líka
að á jafn stuttri flugleið virðist gefast
betur að fara fleiri ferðir á Metro
vélunum, heldur en færri á Fokker.
Metró vélarnar hafa líkað vel, þó
stundum sé talað um að þær séu
þröngar. Við erum síður en svo að
hætta þessu flugi,“ segir Thor.
Birgir í tekur vifl umbofli Brimborgar
Birgir Sueinsson, forstöðumaður Skeljungs í Vestmannaeyjum hefur tekið uið
umboði Brimborgar sem er með umboð fyrir Ford, Voluo og Baihatsu bíla.
Brimborg uar með sína fyrstu bílasýningu í Eyjum undir uerndaruæng nýja
umboðsmannsins um helgina. Gekk hún uel að sögn Birgis og uoru
Brimborgarmenn ánægðir með uiðtökur Eyjamanna.
Þegar Byigjulestin uar hér á ferð uar Ferðaskrifstofan Samuínnuf erðir-Landsýn
meðal fyrirtækja sem bar kynnti biónustu sína. Var SL með lukkuhjól tii styrktar
félaginu Þroskahjálp sem er að fara skemmtiferð til údanda í sumar. Söfnuðust
93 búsund krónur á hjólinu auk bess sem uerslunin Vöruual setti 20 búsund
krónur í pottinn.
Þeir sem komust í stóra hjólið uoru Sigurður Árni Trygguason sem uann ferð
fyrir einn dl Oublin, Hallgrímur Heigí Hallgrímsson sem uann 10 búsund króna
ferðaáuísun, Þórdís Gyða Magnúsdóttir uann kassa af sælgæti frá Freyju og
Anna Hulda Long uann birgðir af appelsíni.
Á myndinni eru m.a. Sigríður Sigmarsdótdr frá SL og Benóný Gíslason
forniaður Þroskahjálpar.
Milli 60 og 70 félagar úr Húsbílaklúbbi íslands uoru hér með húsbíla sína um
síðustu helgi. Var beim komið fyrir inni í Botni. Var ekki annað að sjá en að uel
færiumfólkið ábessumstað.
Endurvinnslan er lokuð vegna
sumarleyfa frá 1. júlí til 15. júlf
Minnum fólk á að nýta sér Endurvinnsluna og koma með
umbúðir af gosdrykkjum, gler frá ÁTVR og áldósir og gera
verðmæti úr þessu.
Nýtt úr notuðu
Endurvinnslan
Flatir 20 sími 481-2977
Þakkir
Sendi mínar bestu þakkir til
ættingja og vina fyrir skeyti og
gjafir á 85 ára afmæli mínu 17.
júní. Sérstakar þakkir fyrir
myndina frá SJÓVE.
Hannes Tómasson
Barcelona - Benidorm - Costa del Sol - Heimsferdir, umboð í Eyjum - Straumur s. 481-1119