Fréttir - Eyjafréttir - 25.06.1998, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 25.júní 1998
Fréttir
13
Almennur fundur um komu Keikós til Vestmannaeyjum:
Stæira og stórkosUegra
mál en fölk gerir sér grein fyrir
Um sjötíu manns sótti almennan
fund, um komu Keikós til Vest-
mannaeyja, sem haldinn var á Iaug-
ardaginn. Þar sátu á palli Hallur
Hallsson talsmaður Keikósjóðsins
hér á landi, Guðjón Hjörleifsson
bæjarstjóri, Bjarki Brynjarsson
framkvæmdastjóri Þróunarfélags
Vestmannaeyja og Páil Marvin
Jónsson.
íslandkomekkiinní
myndina fyrr en í desember
Hallur byrjaði á að óska Vest-
mannaeyingum og Islendingum upp
til hópa til hamingju með að ákveðið
skuli vera að flytja Keikó til Vest-
mannaeyja. Hallur sagði að Kletts-
víkin væri eins og sniðin fyrir Keikó
og allar kannanir sem gerðar hefðu
verið sýndu að háhymingnum væri
engin hætta búin. „Menn hafa vandað
allan undirbúning og ég tel að þessi
ákvörðun Bandaríkjamannanna sé
góð,“ sagði Hallur og vísaði á bug á að
þar hefði íslensk pólitík eða hreppa-
rígur ráðið nokkm um. „Ég vil þakka
bæði bæjarstjórn Vestmannaeyja og
Eskifjarðar fyrir þeirra framlag þeirra
í málinu.“
Hallur sagði að forráðamenn Free
Willy Keikó sjóðsins hefðu víða leitað
að stað íyrir Keikó áður en ísland kom
inn í myndina. Hér á landi hefðu þeir
mætt litlum skilningi fyrr en í des-
ember sl. þegar þeir ræddu við Davíð
Oddsson forsætisráðherra sem var
tilbúinn að skoða málið. Eftir það fara
hjólin að snúast og fljótlega er hann
ráðinn sem talsmaður samtakanna hér
á landi. Hallur sagði að viðbrögð
íslendinga, þegar minnst var á Keikó,
hefðu komið Bandaríkjamönnunum á
óvart. „Þeir spurðu mig af hverju
íslendingar fæm alltaf að hlæja þegar
minnst væri á Keikó. Ég greindi þeim
frá því eins samviskusamlega en fyrir
Bandaríkjamennina er þetta dauðans
alvara. Að málinu koma fæmstu aðilar
á öllum sviðum, á það bæði við vís-
indamenn og verktaka,“ sagði Hallur.
Aður en ákvörðun var tekin um stað
fyrir Keikó sagði Hallur að farið hefði
verið ofan í kjölinn á kostum og
göllum og þar hefði komið til kasta
heimamanna að segja af eða á. „Farið
var yfir alla þætti með heimamönnum
og ég treysti þeim best til að meta
aðstæður. Allt snýst þetta um traust og
trúverðugleika og Vestmannaeyjar em
trúverðugasti staðurinn til að koma
Keikó aftur út í náttúmna. Plúsamir
reyndust fleiri hér en á Eskiftrði."
Kastljós heimsins mun
beinastaðEyjum
Hallur sagði að áætlað sé að Keikó
komi í september en það gæti breyst
eins og allt annað. Hann sagði þetta
brautryðjendastarf sem líkja mætti við
ferð Leifs Eiríkssonar dl Vínlands.
„Við emm að gera allt í fyrsta sinn og
það er mörgum spumingum ósvarað.
Hvemig bregst Keikó við flutn-
ingnum, nær hann að mynda tengsl
við aðra hvali í kringum Vest-
mannaeyjar og á hann eftir að ftnna
fjölskyldu sína,“ sagði Hallur.
Næst kom Hallur að því sem
Vestmannaeyingar em e.t.v. ekki
famir að gera sér grein fyrir, það er sú
gífurlega athygli sem flutningur
Keikós til Eyja á eftir að vekja. „Við
þurfum að vera undir það búin að
kastljós heims beinist að Vestmanna-
eyjum. Hingað koma mörg hundmð
blaðamenn og á annan milljarð manns
mun fylgjast með flutningnum hingað.
Verður Keikó aðalfréttaefnið í Banda-
ríkjunum og víðar."
Hvað verður Keikó lengi í
kvínniP
Hallur sagði að koma yrði upp
aðstöðu fyrir frétta- og blaðamenn og
er ekki um neitt smádæmi að ræða því
gert er ráð fyrir allt að þeir verði á
bilinu 750 til 800 þessa daga í sept-
ember. „Þeir munu fjalla um mann-
líftð og leita uppi neikvæða hluti þess.
Það verður því í þeirra höndum hvort
Keikó verður það aðdráttarafl fyrir
ferðamenn sem vonast er eftir.“
Annað atriði sem líka á eftir að hafa
áhrif er hversu lengi Keikó á eftir að
vera í kvínni í Klettsvík, verða það
mánuðir, ár eða jafnvel áratugir.
„Kemur Keikó til með að vera eins og
heimalningur í túnfætinum sem kemur
og fer úr kvínni eftir eigin hentug-
leikum.“
Vinsælli en Demi Moore og
Jack Nicholson til samans
Eins og flestir vita má rekja vinsældir
Keikós til Free Willy myndanna þar
sem hann var í aðalhlutverki. Síðan
hefur hann komist á stall með
ffægustu Holywoodstjömum og sagði
Hallur að samanlagt hefðu Demi
Moore og Jack Nicholson ekki helm-
ing af því aðdráttarafli sem Keikó
hefur. Algjör umbylting varð í New
Port í Oregonfylki þegar Keikó var
fluttur þaðan frá Mexíkó. Þessi átta
þúsund manna bær fékk yfir sig
flóðöldu ferðamanna og sem m.a.
urðu til þess að störfum fjölgaði þar
um 3000. „Við skulum hafa í huga að
þetta eru Bandaríkin en fjölgi ferða-
mönnum til Vestmannaeyja um tíu
þúsund er það mikil aukning því í dag
em þeir nálægt 30 þúsund. Þessu fólki
þarf að bjóða upp á góða þjónustu á
góðu verði. Verðið kemur til með að
skipta miklu máli. Stefnt er að því að
koma upp lögaðila á íslandi sem
tengist Keikósjóðnum og viljum við
að hann verði með aðsetur í Vest-
mannaeyjum. Ég trúi því að Vest-
mannaeyingar taki myndarlega á
málinu og muni gera þetta vel," sagði
Hallur að lokum í ræðu sinni.
Táknmynd
Bjarki sagði að líta yrði á flutninginn á
Keikó sem táknmynd til að opna augu
heimsins fyrir vemdun náttúmnnar.
„Við verðum líka að horfa á verkefnið
sem sem mikið tækifæri fyrir
vísindamenn. „Hér verður komið upp
stærstu sjókví sem gerð hefur verið í
þessum tilgangi. Þetta verður lengsta
ferð sem farin hefur verið með hval og
Keikó er stærsta spendýr sem flutt
hefur verið með þessum hætti. Það em
því ótal íjöll sem við emm að klífa í
fyrsta skipti,“ sagði Bjarki.
Guðjón bæjarstjóri sagði að strax
væri kominn nokkur gullgrafarabragur
á umstangið í kringum Keikó. Fólk
væri farið að falast eftir vinnu og
kaupkröfur væru ekki í lægri kant-
inum. „Þá hafði maður samband við
okkur sem hafði tryggt sér netfangið,
keikur.is. Hann var tilbúinn að selja
okkur það á tíu milljónir króna,“ sagði
Guðjón.
Beintflug besti kosturinn
Ámi Johnsen, alþingismaður rakti þá
möguleika sem fyrir hendi em í að
flytja Keikó frá Oregon til Vest-
mannaeyja. í fyrsta lagi er um að ræða
flutning með C-130 Herkúles flutn-
ingaflugvél sem yrði að millilenda
nokkmm sinnum á leiðinni til Vest-
mannaeyja. Annar möguleikinn og sá
besti er að flytja Keikó beint frá
Oregon til Eyja með C-17 Herkúles
sem er fjögurra hreyfla þota. Þriðji
möguleikinn er að flytja Keikó á milli
flugvéla í Keflavík eða flytja hann
með þyrlu frá Keflavík og í síðasta
lagi að flytja hann í Þorlákshöfn og
með Heijólfi til Vestmanna- eyja.
Talsvert var um fyrirspurnir á
fundinum og fengust svör við nokkr-
um þeirra en ekki öilum. Það er þó
ljóst að líf Eyjamanna mun að stómm
hluta snúast um komu háhymingsins
Keikós í september. Um framhaldið er
ómögulegt að segja en vissara er fyrir
bæjaryfirvöld, bæjarbúa og fyrirtæki í
bænum að vera viðbúnir einhverju
sem er stærra og viðameira en nokkuð
annað sem við höfum kynnst áður.
Komi ferðamönnum til með að fjölga
úr 30 þúsund í 40 þúsund kallar það á
miklar framkvæmdir. Nægt gistirými
er ekki fyrir hendi en hvort hér eiga
eftir að rísa hótel frá helstu
hótelkeðjum heims verður að koma í
ljós.
Isólfur Gylfi Pálmason alþings-
maður sagði að í Keikó kæmi fram
mismunur á bandarísku og íslensku
þjóðfélagi. Hér á landi ættu börn
möguleika á að komast í beina
snertingu við dýr en bandarísk böm
yrðu að svala þessari þörf sinni í
gegnum bíómyndir og aðra íjölmiðla.
Þetta er atriði sem við verðum að
virða, það er ekki nema sjálfsögð
kurteisi en það má líka hafa gaman af
eins og kom fram hjá Þór Vil-
hjálmssyni, formanni ÍBV-íþróttafé-
lags. Hann bauð Keikó velkominn í
ÍBV enda er hann hvítur og svartur
eins og aðrir góðir IBVarar.
Atvinna ^iísfélag
VESTMANNAEYIA HF.
STOFNAD 1901
VESTMANNAEYJA HF.
Sími 481 1100 • Pósthólf 380 • 902 Vestmannaeyjum
Óskum eftir starfsfólki í
frystihús ísfélags Vestmannaeyja hf. Um er að ræða störf í snyrtingu
og pökkun, í sal. Vinnutími er frá kl 07:00 til 15:00, í sumar. Við emm
að leita að starfsfólki til framtíðar.
Isfélag Vestmannaeyja hf er elsta starfandi fiskvinnslufyrirtæki á
Islandi með mjög fjöiþætta vinnslu og lítur björtum augum til
framtíðarinnar. Fyrirtækið rekur eitt fullkomnasta alhliða frystihús á
íslandi.
Allar nánari upplýsingar gefur
Einar Bjarnason í síma 488 1142
FUNDARBOÐ
Efni: Kynningarfundur Skipulagsstofnunar v/gildistöku nýrra
skipulags- og byggingalaga og -reglugerða.
Skipulagsstofnun mun mánudaginn 29. júní kl. 16.00 í sal
Listaskólans Vesturvegi 38, standa fyrir kynningarfundi um
skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997 sem tóku gildi þann 1.
janúar sl., og reglugerðir sem settar verða á grundvelli þeirra
laga.
Á fundinum verða ofangreind lög kynnt ásamt drögum að
skipulags- og byggingareglugerðum. Að því loknu er gert ráð
fyrir fyrirspurna- og umræðutíma.
Fulltrúar Skipulagsstofnunar og nefndar sem unnið hefur drög
að byggingareglugerð verða á fundinum. Fundurinn er opinn
öllum er áhuga hafa og sérstaklega ætlaður bæjarstjórnar-
mönnum, starfsmönnum bæjarfélagsins, hönnuðum, bygg-
ingastjórum, iðnmeisturum og öðrum þeim sem starfa að
skipulags- og byggingamálum.
Fundarstjóri verður Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins.
Nánari upplýsingar gefur byggingafulltrúi Vestmannaeyja á
skrifstofu sinni að Tangagötu 1.