Fréttir - Eyjafréttir - 25.06.1998, Síða 15
Fimmtudagur25. júní 1998
Fréttir
15
Landssímadeildin 7. umferð: ÍBV 2 - Grindavík 0
ÍBV enn á toppnum
HHH meistarar
HHH( Haukur á Reykjum. Hjalti
Kristjáns. og Hjörleifur Jensson)
vann bráðabanann í I. deild ís-
lenskra Getrauna fyrir skönnnu.
Þeir fengu 12 rétta og urðu þar með
Vormeistararíslands og að launum
hlutu þeir utanlandsferð. Félag-
amir bættu um betur um helgina og
fengu 13 rétta í annað sinn á árinu.
og unnu urn 500.000 krónur
samtals. HHH er nú í 1 .-2. sæti 1.
deildar, 1. sæti 2.deildar og 2.-4.
sæti 3. deildar, eftir tvær umferðir af
tíu. KFS hefur því eignast sína
fyrstu íslandsmeistara. Félagið
hefur að undanfömu verið 10.-13.
söluhæsta félagið í landinu. Get-
raunanúmer þess er 904 og er
tippað á Helgafellsbraut 20 á föstu-
dögum kl. 20:00. Að sögn Hjalta
Kristjánssonar. þjálfara KFS, er
þetta eina beina tekjulind félagsins,
þar eð bærinn og ÍBV neita að
styrkja félagið. Forráðamenn
íþróttafélags fBV hafa nreðal annars
kallað lið félagsins trimmhóp og
firmalið, þrátt fyrir að liðið hati
nýlega unnið B-lið ÍBV. 1-0, í
æfmgaleik.
Stelpurnar í 2. fl. á
miklum skríði
Annar flokkur kvenna er á nriklum
skriði urn þessar mundir, og verður
fróðlegt að fylgjast með þeirra
árangri í sumar. Síðastliðið föstu-
dagskvöld fengu þær Hauka í
heimsókn. og sigmðu ömgglega, 5-
I. Mörk ÍB V skoruðu: Hrefna 2,
Jóna Heiða 2 og Hjördís 1. í
gærkvöldi áttu stelpumar að spila
við Breiðablik, og verða úrslit
kunngerð í næsta blaði.
Framundan
Sunnudagur 28. júní kl. 17:00. mfl.
karla ÍA - ÍBV.
Miðvikudagur l.júlíkl. 20:00, mfl.
karla, ÞóUAk - ÍBV í 16 liða
úrslitum bikarkeppni KSÍ.
Kl. 18:00 3. fl. kv ÍBV
Stjaman.
Finrmtudagur 2.júlí kl. 20:00 3. fl.
ka. ÍBV - Haukar.
ÍBV heldur forystu sinni í Lands-
símadeildinni eftir 2-0 sigur á
Grindvíkingum í gærkvöldi. Leik-
urinn fór að mestu fram á vallar-
helmingi Grindvíkinga sem greini-
lega sættu sig við að ná einu stigi í
Eyjum. Fyrir vikið var leikurinn
frekar leiðinlegur því sóknarmenn
þurftu að sækja fram gegn 11
manna vörn gestanna. Einkum setti
þetta svip á fyrri hálfleik þegar
Eyjamenn höfðu stífa austanátt í
bakið. Fyrra mark IBV kom um
miðjan síðari hálfleik og eftir það
opnaðist leikurinn og varð
skemmtilegri. Gestirnir sóttu meira
en sigur Eyjamanna var aldrei í
hættu og þegar fimm nn'nútur voru
til leiksloka koma seinna mark IBV.
Stíf austanátt setti sterkan svip á
leikinn, einkum í fyrri hálfleik þegar
Grindvíkingar höfðu vindinn í fangið.
Lágu þeir inni í eigin teig og vörðust
öllum sóknum Eyjamanna. Reyndar
var ekki mikið að gerast hjá ÍBV sem
vantaði svæði til að athafna sig.
Framherjar fengu úr litlu að moða.
Eyjastúlkur mættu ÍA í Meist-
aradeild kvenna, síðastliðið flmmtu-
dagskvöld. IBV var enn án sigurs
fyrir þennan leik og ætluðu þær sér
að selja sig dýrt.
Fyrri hálfleikur var þokkalega leik-
inn og var greinilegt að gestimir
ætluðu sér að pakka í vörn og beita
skyndisóknum. Það bar árangur, því á
17. mínútu leiksins komust Skaga-
stúlkur yfir. og var staðan í hálfleik,
0-1. IBV stelpur komu grimmar til
sfðari hálfleiks en ekkert gekk að
koma boltanunt inn fyrir marklínu
andstæðinganna. Það var ekki fyrr en
á 80. mínútu að Fanný Yngvadóttir
náði að jafna metin fyrir IBV, og
héldu nú flestir að fyrsta stigið væri í
höfn. En Eyjastúlkur voru ekki hættar
og fimm mínútum síðar, skoraði
Bryndís Jóhannesdóttir. sigurmark
Var það helst að góðir sprettir ívars
Bjarklind, sem ásamt Inga Sigurðs-
syni var besti ntaður vallarins, gleddu
augað. Var um tíma farið að gæta
óþolinmæði hjá Eyjamönnum en þeir
náðu að róa sig og spila sinn bolta út
hálfleikinn sem endaði 0-0.
Grindvfkingar sýndu aðeins meiri
djörfung í seinni hálfleik, enda með
vindinn í bakið. Við það opnaðist
leikurinn aðeins og á 11. mínútu áttu
gestimir sannkallað dauðafæri sent
hafnaði í stöng. Eftir þetta fóm sóknir
ÍBV að þyngjast og á 68. mínútu
uppskáru þeir árangur erfiðis síns
þegar Jens Paeslack skallaði f mark
eftir fyrirgjöf frá Inga.
Rútur Snorrason kom inn á fyrir
Jens á 82. mínútu og setti strax mark
sitt á leikinn og liðu ekki nema þrjár
mínútur frá því hann kom inn á þar til
hann skoraði seinna rnark ÍBV. Ingi
skaut úr aukaspymu frá hægri og fyrir
markið. Þar tók Rútur boltann
viðstöðulaust og negldi í netið. Þar
með innsiglaði hann sigur ÍBV og
áframhaldandi veru á toppi
IBV íleiknum. IBV stelpur eiga hrós
skilið fyrir þennan sigur, því að þær
hættu aldrei að berjast og uppskáru
eftir því.
Lið IBV: Sigríður 7 - Fanný 7, íris 6,
Sigríður Á 7, Kristín E 6 - Elena 6,
Anna 8, íris 6, Dögg L 6(Hjördís 6) -
Hrefna 7, Bryndís 7
KR 4 ÍBV 0
Eyjastelpur mættu síðan KR-ingum í
Reykjavík. á þriðjudagskvöld. KR-
ingum er spáð Islandsmeistaratitl-
inum, og var þvf Ijóst að stelpurnar
ættu á brattann að sækja. Að sögn
Sigurlásar Þorleifssonar, þjálfara ÍBV,
léku stelpumar sinn besta leik í suntar,
en sem fyrr voru það algjör klaufa-
deildarinnar. ÍBV er nú með 16 stig en
ÍBK kemur næst með 13 stig.
ÍBV mætti í nýjum búningum í
leikinn gegn Grindavík, rnjög
skrautlegum; hvítunt treyjum með
rauðum og svörtum ermum. ívar
Bjarklind segir að þeir hefðu verið
minntir á það fyrir leikinn. „Jóhannes
formaður sagði fyrir leikinn að það
væru ekki búningarnir heldur
leikurinn sem skipti máli. Þetta var
greinilega það sem mannskapurinn
þurfti. Mér finnst við spila vel og vom
allir á fullu allan tímann. Boltinn gekk
vel og þó þeir legðust í vörn héldum
við áfram að spila, Þetta kom svo í
lokin eins og gerðist oft í fyrra. Við
náum að hamra á liðununt þangað til
þau fara að gefa sig. Eg er því mjög
ánægður með leikinn," sagði ívar.
Lið IBV: Gunnar Sig 7, ívar Ingimars
7, ívar Bjarklind 8, Steinar Guðgeirs
6, Hjalti Jóhannesar 6, Zoran
Miljakovic 6, Hlynur Stefáns 7, Ingi
Sigurðs 8 (Rútur Snona 6), Jens
Paeslec 7 (Kristinn Hafliða 6),
Steingrínur Jóhannesar 7.
ntörk, sem urðu liðinu að falli. ÍBV
lét boltann ganga vel á milli manna, en
aðeins hersluntuninn vantaði. Eyja-
stelpur fengu tækifæri til að skora í lok
leiksins, þegar þær fengu vítaspyrnu,
en íris Sæmundsdóttir lét verja frá sér.
„Lokatölur leiksins gefa ekki alveg
rétta mynd af gangi leiksins, og
heppnin var ekki með okkur í þessum
leik. En það er nóg eftir af mótinu,
svo er bikarinn líka eftir, þannig að ég
er bjartsýnn á framhaldið,“ sagði
Sigurlás eftir leikinn.
Lið ÍBV: Sigríður 6( Petra 6) -
Fanný 7, íris 6( Ema 6 ), Sigríður Á.
5(Dögg L.6), Kristín E.7 - Elena 7,
Anna 7, íris S. 7, Hjördís 7 - Hrefna 7,
Bryndís 8
Tap gegn Bruna
KFS tapaði fyrir Bruna frá Akra-
nesi, 2-0, urn síðustu helgi. Liðið
lék illa og saknaði leikmanna eins
og Jóns Braga, Yngva Borgþórs.,
Helga Braga. og fleiri. KFS heldur
þó enn öðm sæti í 3.deild A. en tvö
efstu liðin fara í 8 Iiða úrslit. Heirn-
ir Hallgrímsson og Rúnar Vöggs-
son áttu bestan leik KFS-manna.
Næsti leikur KFS fer fram á Helga-
fellsvelli, næstkomandi sunnudag
kl. 12:00. ÞáfærKFS liðSnæfellsí
heintsókn.
Hjalti og Jón Helgi
meiddir
Hjalti Jónsson, miðjumaðurinn
efnilegi, hjá öðrunt og meistara-
flokki ÍBV í knattspymu, meiddist
á liðbandi í hné, í leik gegn Fram í
Landssímadeildinni. Meiðslin eru
ekki talin mjög alvarleg, en þó er
talið að hann verði frá æfingum og
keppni í nokkurn tíma. Jón Helgi
Gíslason, vamamiaðurinn eitilharði,
er líka meiddur og það á ökkla, en
hann mun vera óðum að ná sér.
7 - 0 hjá 2. flokki
Það hefur verið í nógu að snúast hjá
öðrurn flokki karla að undanfömu
og hafa þeir leikið mjög þétt að
undanförnu. Fimmtudaginn 11.
júní, spiluðu þeir gegn Breiðabliki
á útivelli, og endaði leikurinn þar
meðjafntefli, 0-0. Þriðjudaginn 16.
júní fengu þeir sfðan lið Fjölnis í
heimsókn, og var sá leikur í
bikarkeppninni. ÍBV hafði mikla
yftrburði í leiknum. og sigraði 7-0.
Mörk ÍBV skoruðu: Bjarni Geir 3,
Oskar I, Birgir 1 og Unnar 1.
Síðastliðið mánudagskvöld Iéku
þeir gegn Fylki hér heima og
töpuðu, 0-2. Þess ntá geta að þar
vantaði marga af lykilmönnum
liðsins.
Á brattann að sækja
Fjórði flokkur karla spilar í A-deild,
og eiga þeir töluvert á brattann að
sækja þar. Mánudaginn 15. júní
fengu þeir KR-inga í heintsókn og
urðu lokatölur leiksins, 1-5. Eina
ntark ÍBV í leiknum skoraði Karl.
Siðastliðinn mánudag komu ÍR-
ingar síðan í heimsókn. og unnu
gestirnir leikinn, 2-4. Mörk ÍBV
skoruðu: Friðrik og Andri.
Þriðji flokkur á
góðri siglingu
Þriðji flokkur karla er að gera góða
hluti, og í þessum flokki eru margir
ungir og efnilegir strákar að konta
upp. Síðastliðinn fimmtudag héldu
þeir til Siglufjarðar og léku þar gegn
KS. Eyjapeyjar höfðu mikla
ytlrburði í leiknum og unnu 1-7.
Mörk ÍBV skoruðu: Gunnar Heiðar
2, Einar Hlöðver 1, Guðgeir 1,
Bjarni I, Atli I og ívar 1. Á
sunnudaginn mætti ÍBV sfðan
Keflavík í bikamum og fór með
sigur af hólmi, 4-1. Mörk ÍBV
skoruðu: Gunnar Heiðar 3 og Atli
1.
Tóku Blikana í
bakaríið
Þriðji tlokkur kvenna fékk Breiða-
blik í heimsókn á mánudaginn. og
vom gestimir teknir í bakan'ið. ÍBV
vann 4-0 og mörkin skoruðu þær:
Kristjana 2, Eva 1 og Silvía R. 1.
Ekki færri en hrjú ættarmót uoru haldin hér um síðusm helgi. Huað fjölmennast
mun hafa uerið á ættarmóti Sueinsstaðaættarinnar eða hátt í 200 manns. Innan
heirrar ættar eru margir góðir golfleikarar enda uar slegið upp golfmóti bæði
á föstudag og laugardag. Þessi mynd uar tekin á laugardag í miöju móti af einu
hollinu. Fráuinstri: Kristinn Björnsson, skurðlæknir, en hann keppti sem gestur
á mótinu, Knútur Björnsson, læknir og frændur hans, bræðurnir Leífur og Arsæll
Ársælssynir.
Leitum að
áhugasömum
einstakl-
ingum til
þjálfunar
Unglingaráð handknattleiksdeildar ÍBV-íþróttafélags leitar
að þjálfurum og aðstoðarþjálfurum til starfa veturinn 1998
til 1999. Leitað er að áhugasömu fólki á öllum aldri sem
hefur gaman að umgangast böm og unglinga.
Þjálfararnir starfa náið með Mickail Akbashev sem
verður yfirþjálfari allra yngri flokka deildarinnar og er
talinn mjög fær á sínu sviði. Hér er því tækifæri fyrir
áhugasama einstaklinga að fræðast um handboltaþjálfun
eins og hún gerist best í heiminum í dag og takast á við
skemmtilegt verkefni með góðum hópi af áhugasömu
fólki.
Áhugasamir einstaklingar eru
beðnir um að hafa samband við Hlyn Sigmarsson í
Þórsheimilinu í síma 481-2060.
Meistaradeild kvenna: ÍBV 2 - ÍA 1 og KR 4 - ÍBV 0
Baráttusigur gegn Skagastúlkum
-en stórt tap gegn KR-stúlkum í Reykjavík