Fréttir - Eyjafréttir - 02.07.1998, Blaðsíða 27
Fimmtudagur2.júlí 1998
Fréttir
27
Fimmtánda Shellmótið heppnaðist frábærlega:
Brasi
Shellmótið, sem fram fór um
síðustu helgi, var hið fjölmennasta
til þessa. Yfir 1000 drengir úr 6.
flokki, á aldrinum 8-10 ára mættu
til keppni í a, b, c og d flokkum.
Annar eins fjöldi þjálfara, farar-
stjóra og foreldra mætti á svæðið,
þannig að hér hafa verið um 2000
aðkomumanns vegna þessa móts.
Mikill hluti gestanna, annarra en
keppenda, gisti í Herjólfsdal og var
yflr að líta svipað og á þjóðhátíð.
Þetta mót fór frábærlega fram,
þaulskipulagt frá A til Ö og ekki
skemmdi fyrir að fádæma veður-
blíða var alla mótsdagana.
Sérstakt blað, Shellmótsfréttir, var
gefið út á hverjuin morgni og komu
þar fram öll úrslit dagsins á undan,
ásamt viðtölum og fleiru.
Samtals voru skoruð 1660 mörk á
mótinu, þar af flest hjá a-Iiðum eða
425, 409 hjá b-liðum, 399 hjá c-
liðum og 278 hjá d-liðum.
Sjálfsmörk voru 43.
Miklar framfarir hafa orðið í
knattspyrnunni hjá drengjunum í
6. flokki. Þarna mátti sjá brasilíska
sömbutakta, argentínskan tangó,
danskan valstakt, þýska snerpu,
ítalska lipurð og kerfisbundinn
enskan bolta svo að fátt eitt sé nefnt.
Margir hraðir og skemmtilegir
leikir sáust á mótinu og greinilegt
að þjálfun og umgjörð margra liða
á þessu móti er til fyrirmyndar.
Golf:
Okkar menn á setníngunní.
Landssímadeildin 11. umferð: IA 1 - IBV 0
Mjög lélegt á Skaganum
Eyjamenn héldu upp á Akranes
síðastliðinn sunnudag og léku þar
við heimamenn í Landssíma-
deildinni. Þetta var leikur úr 11.
umferð, og var honum flýtt vegna
Evrópukeppninnar hjá IBV.
Leikurinn var sýndur beint á
sjónvarpsstöðinni Sýn og því miður
urðu áhorfendur og stuðningsmenn
IBV fyrir vonbrigðum með leikinn.
Leikurinn byrjaði mjög rólega,
bæði lið þreifuðu fyrir sér og lítið var
að gerast. Þessi rólegheit héldust út
fyrri hálfleik, og það er varla hægt að
tala um að eitt einasta alvöru tækifæri
hafi skapast í fyrri hálfleik. Staðan var
því 0-0, í hálfleik og komu
heimamenn heldur sprækari til leiks í
þeim síðari, en Eyjamenn voru
gjörsamlega á hælunum, og gátu
hreint út sagt ekki neitt. Það kom að
því um miðjan síðari hálfleik að
Skagamenn skoruðu, og var þar að
verki Sigurður R. Eyjólfsson, sem var
nýkominn inná sem varamaður. Þetta
hleypti. því miður, ekki nýju blóði í
ÍBV og fór svo að lokum að þetta urðu
lokatölur leiksins, 1-0. Leikur IBV
liðsins í þessum leik var ekki upp á
marga fiska. Leikmenn virkuðu
óöruggir og áhugalausir, og allan kraft
og hraða vantaði í sóknarleik liðsins.
Ef menn ætla sér að halda toppsæti
deildarinnar, þá verður liðið að koma
hugarfarinu í lag.
LiðÍBV: Gunnar 7 - ívar 8, Hjalti 6,
Zoran 6, Hlynur 6 - Ingi 5(Rútur 5),
Ivar 7, Steinar 6, Kristinn 6(Kristinn
H. 5) - Jens 5(Sindri 5), Steingrímur 6.
Kiwanis sigraði í klúbbakeppninni
Um síðustu helgi var klúbbakeppni
í golfi. Klúbbarnir Akóges, Ki-
wanis og Oddfellow keppa sín á
milli árlega og á síðasta ári bættist
Akóges í Reykjavík í hópinn en þeir
keppa sem gestir á mótinu auk þess
sem þeir keppa við Akógesa í
V estmannaeyjum.
Urslit urðu þessi í aðalkeppninni:
Kiwanis 292 punkta
Akóges 266 punkta
Oddfellow 261 punkt
Þá kepptu einnig sex manna
fyrirfram valdar sveitir frá þessurn
félögum urn sérstakan verðlaunagrip
og þar báru Kiwanismenn einnig sigur
úr býtum.
Níu félagar úr Akóges í Reykjavík
kepptu að þessu sinni við félaga úr
Vestmannaeyjafélaginu og urðu úrslit
þessi:
Akóges Rvk. 194 punkta
Akóges Vestm. 192 punkta
Akógesar úr Reykjavík halda því
verðlaunaskildinum í eitt ár a.m.k.
í einstaklingskeppni urðu úrslit þessi:
1. Einar Olafsson 34 punkta
2. Gunnlaugur Axelss. 34punkta
3. Fríða D. Jóhannsd. 33 punkta
4. Jóhann Pétursson 33 punkta
Eitt hollíð í klúbbakeppninni , frá uinstri Sígurgeir Jónsson Akóges Vestm., Axel Gunnlaugsson, sem
keppti sem gestur, Hilmar Herbertsson Akóges Ruk. og Hjörtur Hermannsson Oddtellow. Veðrið lék uið keppendur á
mótinu.
Á innfelldu myndinni er Einar Úlafsson Oddfellow en hann uar punktahæstur einstaklinga á mótinu.
Enn sigrar KFS
A sunnudaginn lék KFS, hér heima,
gegn liði Snæfells. Eins og í fyni
sigurleikjum KFS var leikurinn
afgreiddur á fyrsta hálftímanum. Þá
höfðu menn vaknað af Jónsmessu-
blundi og léku frábærlega. Staðan í
hálfleik var 4-0. KFS-menn slök-
uðu aðeins á í seinni hálfleik, enda
með unninn leik í höndunum.
Lokatölur leiksins urðu því, 6-2.
Fremstir í flokki KFS-manna
voru þeir Heimir Hallgrímsson,
sem átti frábæran leik, Magnús
Steindórsson, sem nú hefur gert 11
mörk ííslandsmótinu, Yngvi Borg-
þórsson og Sigurður Gylfason, sem
átti glæsilegt „come-back“.
Mörk KFS skoruðu: Magnús 3,
Yngvi 1, Heimir I og Sigurður 1.
KFS er nú í öðru sæti A-riðils,
sex stigum á eftir efsta liðinu,
Aftureldingu. Næsti leikur er ein-
mitt við Aftureldingu, þann lO.júlí.
Góóferóí
Kópavoginn
A-og B-lið fjórða flokks kvenna
gerðu góð ferð í Kópavoginn í
síðustu viku, þegar þau mættu
heimamönnum í Breiðabliki. A-
liðið vann 1-5, með mörkum Ástu
H., sem skoraði þrjú, Margrét L. og
Berglind gerðu eitt mark hvor. B-
iiðið stóð sig einnig frábærlega og
vann sinn leik, 3-5. Mörk ÍBV
skoruðu: Thelma 4 og Eyrún 1. En
þess má geta að Breiðablik varð
Pæjumótsmeistari í flokki b-liða, en
ÍB V lenti þar í ó.sæti.
Sluppu víð að leika
Strákamir í 4. flokki áttu að spila
við Völsung á mánudaginn, en
Völsungur hefur dregið lið sitt úr
keppni, þannig að ekkert varð af
leiknum.
Frækilegt jafntefli
Annar flokkur kvenna mætti liði
Breiðabliks, sem hefur á að skipa
einu besta liði landsins í þessum
aldursflokki, ásamt ÍBV og Val.
Þetta var hörkuleikur og endaði
hann meðjafntefli, 2-2. Mörk ÍBV
skoruðu þær Hrefna og Bryndís.
Sannfærandi sigur
Fjórði flokkur karla gerði góða ferð
til Keflavíkur, þegar þeir sigruðu
heimamenn mjög sannfærandi, 1-4.
Mörk ÍBV skoruðu Friðrik 2 og
Víðir2.
Cantat3 laugardag
Urn næstu helgi verður stórmót hjá
GV, Opna Cantat 3 mótið.
Aðalstyrktaraðili mótsins er Lands-
síminn og eru verðlaun fádæma
glæsileg. farsímar og þráðlausir
símar. Verðlaun eru veitt bæði með
og án forgjafar auk þess sem lengsta
teighögg á fyrstu braut er verð-
launað og veitt nándarverðlaun fyrir
2. og 17. braut. Mótsgjald er kr.
1500 og athygli er vakin á því að
lokaskráning er til kl. 17 á morgun,
föstudag. Athugið að ekki er hægt
að skrá sig eftir þann tíma.
Framundan
Fimmtudagur 2. júlí kl.20:00 3. fl.
ka ÍBV-Haukar, föstudagur 3.
júlí kl. 20:00 2. fl.ka, ÍBV -
Keflavík (bikarkeppni), sunnudagur
5.júlí kl.20:00 mfl.ka. Leiftur -
ÍBVog mánudagur 6. júlí kl.20:00
mfl.kvenna ÍBV - Fjölnir.