Fréttir - Eyjafréttir - 02.07.1998, Qupperneq 28
aUTNWGAR - VESTMANNAEYJUM
Datkgvhrtkhmiáhndimf,
Vöruafgreiðsla
SldMlngavegl 4 Sini 481 3440
Vöruafgreiðsla ■ Reykjavik
AðaHlutnlngar Héðinsgöfu 2
Simi 581 3030
Fimmtánda Shellmótið var haldið um helgina og hafa þátttakendur aldrei verið fleiri. Mótið hófst á miðviku-
deginum og lauk á stóru lokahófi í íþróttamiðstöðinni. Öllum ber saman að þetta mót hafi heppnast einstaklega
vel og ekki skemmdi að veður var einstaklega gott alla mótsdagana.
Viðamikil goslokadagskrá
í tilefni af því að 25 ár eru liðin frá
því að gosinu í Heimaey lauk hefur
verið boðað til fjölbreyttrar hátíðar
í bænum um næstkomandi helgi.
Sérstök goslokanefnd var skipuð til
þess að sjá um skipulag og fram-
kvæmd hátíðahaldanna og hefur hún
leitast við að gera hátíðina sem
glæsilegasta með það að markmiði að
virkja alla bæjarbúa til þátttöku, jafnt
unga sem ganúa. í goslokanefndinni
áttu sæti Guðjón Hjörleifsson, Amar
Sigurmundsson og Ragnar Óskarsson.
Það var ákveðið í nefndinni að ráða
Andrés Sigurvinson til að hafa yfir-
umsjón með hátíðinni og undirbúningi
þeirra. Andrés virðist hafa tekið málið
föstum tökum og afréð að koma á fót
götuleikhúsi með eldspúandi akró-
bötum og himinviðberandi stultu-
fólki. Mun sá hluti eflaust höfða til
yngsta fólksins. Þá munu og verða
uppákomur, hljómleikar og dansiböll
fyrir unglingana og hinir sem heldur
vilja gömlu Eyjalögin bregða sér
trúlega í Skvísusund á skvísufund.
Einnig verða myndlistarsýningar,
víkingaskipið íslendingur mun koma
til Eyja á laugardeginum, sigling
umhverfis Heimaey í boði Herjólfs,
messa og ótölulegir viðburðir á
tónlistarsviðinu. Vert er að vekja
athygli á því að sérstakur póststimpill
mun verða í notkun laugardaginn 3.
júní. Auk þess sem söfnin verða opin
mun Golfklúbbur Vestmannaeyja
efna til sérstaks goslokamóts sem er
opið mót og nefnist Cantat 3 mótið.
Vonandi er svo að Vestmannaeyingar
og gestir sem gista munu Eyjar um
helgina kunni vel að meta þessa
vönduðu dagskrá sem í boði er og
verði duglegir að mæta og taka þátt í
henni.
Andrés Sigurvinsson vildi að lokum
koma miklu þakklæti til allra sem lagt
hafa hátíðinni lið og gert hana
mögulega.
Sendibílaakstur innanbæjar.
Vilhjálmur Bergsteinsson
aEMaÍPEHMSÍLL
9481-2943,
iP 897-1178
Nýi sýslu-
maðurinn
mænurtílleíks
Karl Gauti Hjaltason nýskipað-
ur sýslumaður Vestmannaey-
inga hóf störf hjá hjá embættinu
í gær. Hann segir að það sé góð
stemmning yfir þessum degi og
ekki hafi veðrið spillt fyrir.
,Jig er búinn að koma fjórum
sinnum til Eyja í júní og alltaf
verið einmunablíða. Ég er hins
vegar rétt búinn að máta stólinn.
Mér hugnast hann vel og hlakka til
að fá að vinna fyrir og með
Vestmannaeyingum að þeim mál-
um sem til framfara mega verða í
Eyjum og taka til sýslumanns-
embættisins."
Karl Gauti segir að fjölskylda
hans sé ekki enn komin til Eyja, en
það horfi til bóta. ,,Ég er grasekkill
hér í Eyjum enn sem komið er,
enda ekki kominn með endanlegt
húsnæði. Það er í lögum að
kauptún sem eru með fleiri en
1000 íbúa þurfi ekki að útvega
sérstakan embættisbústað. En ég
er bjartsýnn og vonast eftir góðu
samstarfi við Eyjamenn. Þau störf
sem munu taka mestan tíma nú í
júlí taka til undirbúnings Þjóðhá-
tíðarinnar og það er spennandi og
krefjandi verkefni," sagði Karl
Gauti að lokum, glaður í sinni.
Gonhjá
VestmannaeyVE
Frystitogarinn Vestmannaey VE
kemur í dag af Reykjanes-
hryggnum með fullfermi.
Magnús Kristinsson útgerðar-
maður segir að Vestmannaey hafi
verið þrjár vikur í túmum. „Þeir
em með 14.000 kassa, 10.000
kassa af úthafskarfa og 4000 kassa
af gulllaxi. Ég veit ekki hvað
afiaverðmætið er en held að það sé
alveg þokkalegt," sagði Magnús.