Fréttir - Eyjafréttir - 29.07.1998, Qupperneq 1
25. árgangur • Vestmannaeyjum 29. júlí 1998 • 30. tölublað • Verð kr. 140,- • Sími: 481 3310 • Fax: 481 1293
Agjörgæslu
Valdimar Guðmundsson, sem
slasaðist um borð í Antares VE á
loðnumiðunum fyrir skömmu er
aftur kominn á gjörgæslu vegna
áverka sem hann hlaut.
I sfðasta blaði var sagt að Valdi-
mar hefði komið heim á þriðju-
daginn í síðustu viku en hið rétta er
að hann kom heim á laugardaginn.
Daginn eftir tóku sig upp innvortis
blæðingar, var hann fluttur aftur til
Reykjavíkur og er nú á gjörgæslu.
Valdimar er einnig meira slasaður
en skilja má af frétt blaðsins í síð-
ustu viku. „Hann er höfuðkúpu-
brotinn vinstra megin og fékk bjúg
við heilann hægra megin,“ sagði
Matthildur Sveinsdóttir sambýlis-
kona Valdimars í samtali við
Fréttir. „Hann er einnig rifbeins-
brotinn, annað lungað féli saman og
miltað riihaði. Það byrjaði að blæða
úr miltanu á sunnudaginn og þá var
ákveðið að flytja hann strax til
Reykjavíkur þar sem hann bíður
úrskurðar um hvort miltað verður
tekið eða ekki. Það er enginn
skurðlæknir í Eyjum og því var
engin leið fyrir Valdimar að vera
heima,“ sagði Matthildur að lokum.
Glaðningurinn
efdr þióðhádð
Samkvæmt upplýsingum frá
skattstofunni verður álagningar-
skráin lögð fram á föstudag um
allt land.
Sama dag verða álagningarseðlar
og ávísanir til þeirra sem fá
endurgreitt póstlagðir í Reykjavík.
Skattstofan í Eyjum verður lokuð
eins og flestar aðrar stofnanir á
föstudaginn og því verða Eyjamenn
að bíða fram á þriðjudag eftir
glaðningnum.
Fréttir munu í næsta blaði greina
frá því hverjir eru skattakóngar
þetta árið og í framhaldi af því
verður gluggað í skattskrána.
Tjöldunín
Tjöldun í Dalnum er eitt af stóru
málum þjóðhátíðarinnar því
flestir vilja korna halda sama
tjaldstæðinu ár eftir ár.
Þjóðhátíðamefnd hefur ákveðið að
leyfa tjöidun frá klukkan 8 annað
kvöid, fimmtudagskvöld. „Sam-
kvæmt venju hafa starfsmenn
forgang sem er það eina sem þeir fá
fyrir að ieggja nótt við dag við
undirbúning hátíðarinnar. Biðjum
við fólk að taka tillit til þess,“ sagði
Bjöm Þorgrímsson í þjóð-
hátíðamefnd.
Stefán Jónasson, Sigurfinnur Sigurfinnsson,
Birgir Guðjónsson og Grétar Jónatansson
eru meðal fjölmargra sem unnið hafa að
uppsetningu skreytinga í Dalnum þar sem
Keikó er að sjálfsögðu í öndvegi. Á minni
myndinni er nýtt veitingatjald sem setur
skemmtilegan svip á hátíðarsvæðið.
Ekkert á hreinu með Móðháhðarveðrið
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu Islands ætti að geta
brugðið til beggja vona með
þj óðhátíðarveðrið.
A morgun og föstudag er spáð hægri
breytilegri átt, skýjuðu og hætt við
síðdegisskúrum. Hitastigið verður á
bilinu 10-18 gráður. En á laugardag
og sunnudag er búist við suðaustlægri
átt með einhverri vætu. En áfram
verður hlýtt í veðri.
Samkvæmt þessu er ijóst að
þjóðhátíð ætti að byrja vel en
mögulegt að eitthvað blotni í þegar á
líður. Rétt er þó að taka með í
reikninginn að hér um langtímaspá að
ræða, spá sem gerð var á mánudag og
mögulegt að einhverjar breytingar
kunni að verða á henni.
Síðdegis í gær þegar við höfðum
samband við Veðurstofuna vörðust
menn allra frétta, vildu helst sem
minnst segja um veðurhorfur. „Það er
lægð hér í nánd við okkur sem er
eitthvað tvístígandi," sagði veður-
fræðingur sem við ræddum við. „Hún
kemur til með að stjóma veðurfarinu
um helgina og á þessari stundu er ekki
nokkur leið að segja hvað hún kemur
til með að gera. Eigum við bara ekki
að vona það besta, bæði fýrir ykkur úti
í Eyjum og aðra landsmenn," sagði
veðurfræðingurinn að lokum.
Það virðist því á ýmsu von um
þjóðhátíðina en að sjálfsögðu vonum
við hið besta eins og veðurfræðingar.
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉUINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 - sími 48132
( /j—|/ ) Þjóðhátíðaráœtlunin.
,,, &t á é£& 3
*■j/ • ’íf /wácw/ú/ið
rtcrioifjur Sími 481 2800 Fax 481 2991