Fréttir - Eyjafréttir - 29.07.1998, Blaðsíða 6
6
Fréttir
Miðvikudagur 29. júlí ] 998
Pólitík 09 ipróttum á
ekki að blanda saman
-segir Jóhann Ólafsson formaður knattspyrnudeildar ÍBV
lfignir hættur með Lundann
Á laugardaginn uar síðasta kuöldið sem Uignir Guðmundsson hélt um
stjórntaumana á Lundanum. Hann hefur rekið Lundann í brjú og hálft ár en
húsnæðið eríeígu Sparisjóðsins. „Þetta hefur uerið skemmtilegur tími en ég
er mjög sáttur uið að hætta á bessum tímapunkti," segir Uignir. „Samskiptum
mínum uið Sparisjóðinn lauk með fullum sáttum og ég uíl nota bena tækifæri
til að bakka Vestmannaey ingum fyrir uiðskiptin. Það er óráðið huað ég fer að
gera en bað mun skýrast á næstunni.
Uignir með starfsfólki sinu á lokakuöldinu. F.u. Þórunn Ragnarsdóttír, Sigríður
Kristinsdóttir, Guðfinna Ágústsdóttir, Uignir og Guðmundur Sueinsson.
Síðastliðinn föstudag hélt Arnór Hermannsson bakarameistari móttöku vegna opnunar nýrrar
aðstöðu undir starfsemi bakarís síns. Nýja húsnæðið hefur tekið gagngerum breytingum og er á
Hólagötu 28. Arnór hefur eingöngu bakað og dreift bakstri sínurn til smásöluaðila í Vestmannaeyjum
og segir nóg að gera. „Við vorum hætt að anna eftirspurn svo það er eðlilegt framhald að stækka við
sig til þess að geta veitt betri þjónustu.“ segir Arnór.
Auk þess að baka fjölbreytt úrval brauða fyrir smásöluverslanir rekur Arnór cinnig veisluþjónustu,
þar sem völ er á miklu góðgæti úr rjóma- og marsipanheiminum.
Á myndinni eru fv. Sigríður Helga Ástþórsdóttir, Birna Vigdís Sigurðardóttir, Davíð Arnórsson,
hjónin Helga Jónsdóttir og Arnór Hermannsson og Sigurjón Þorkelsson.
Eins og flestum mun kunnugt lék
ÍBV við jógóslavneska liðið FK
Obilic í síðustu viku ytra og tapaði
þeim leik 2 - 0. Heimaleikur IBV
verður í kvöld á Hásteinsvellinum.
Jóhannes Ólafsson, formaður knatt-
spyrnudeildar ÍBV, fór með liðinu til
Júgóslavíu og við inntum hann fregna
af móttökum og aðbúð.
„Við Zoran fórum út tveimur dögum
á undan liðinu til að kynna okkur
aðstæður. Satt að segja hafði ég haft
nokkrar áhyggjur vegna ástandsins á
þessum slóðum en sá ótti reyndist
ástæðulaus. Það var mjög vel tekið á
móti okkur. Sá frægi maður, Arkan,
aðaleigandi liðsins, virðist valdamikill
í borginni, ræður nánast öllu og getur
gert hvað sem honum sýnist. T.d.
hikaði hann ekki við að aka móti
rauðu Ijósi og komst upp með það.
Húsið hans er gífurleg villa, sjö hæðir
og alll í gulli og marmara. Hann er
greinilega vellauðugur. Allur aðbún-
aður var mjög góður en það sem var
að drepa okkur var hitinn. Hann fór
upp í 40° og það var nógu erfitt að
standa undir sjálfum sér í slíkri svækju
hvað þá að eiga að spila fótbolta. Það
sem vakti athygli okkar var að þarna
var enginn túrismi eins og áður var,
ástandið í landinu hefur greinilega sín
áhrif.“
Nú er Arkan þessi yfirlýstur
stíðsglæpamaður. Mörg lið hafa lýst
því yfir að þau muni ekki leika við
Obilic, dragist þau á móti því. Einnig
hafið þið verið nokkuð gagnrýndir
íyrir það sem menn segja nokkuð náið
samband við hann. Hverju svarar þú
þeiiyi gagnrýni?
„Ég er hræddur um að við værum
fátækir í dag hefðum við tekið þá
afstöðu að leika ekki gegn þessu liði.
Við hefðum verið sektaðir og vísað úr
keppni og guð má vita hvaða eftirköst
það hefði haft, við hefðum getað orðið
gjaldþrota. Sem dæmi get ég nefnt
þegar ekki ófrægara lið en A C Milan
mótmælti fyrir nokkrum árum með
því að spila ekki síðustu mínútu
leiksins. Þeir voru dæmdir í háar
fjársektir auk þess að vera vísað úr
keppni. Þá höfum við nærtækt dæmi
úr leik Leifturs frá Ólafsfirði í
Evrópukeppninni í sumar. Þeir voru
með leikmann sem var ólöglegur og
fengu auk þess fimm gul spjöld og tvö
rauð. Þeir voru sektaðir um hálfa
milljón fyrir vikið. Það má því rétt
ímynda sér hvaða sekt við hefðum
fengið fyrir að neita að spila. Ég vil
lfka benda á að Bayern Miinchen
hefur lýst því yfir að þeir ntuni leika
gegn Obilic, komi til þess. Enda tel ég
að ekki eigi að blanda saman pólitík
og íþróttum. Það kom vel í ljós þegar
Bandaríkjamenn og Iranir léku saman
á HM þrátt fyrir pólitískar erjur milli
þjóðanna. Og það samband sem við
höfðum við forráðamenn Obilic var
ekki nánara en við forsvarsmenn
annarra liða sem við höfum leikið á
móti. Þetta voru eðlileg samskipti og
bara almenn kurteisi bæði af þeirra
hálfu og okkar. Raunar er Arkan ekki
Jóhannes og Bjarní biálfari á blaðamannafundi í Belgrad með Arkan og eiginkonu hans.
sjálfur skráður sem forseti félagsins
heldur er það konan hans. Ég neita
því ekki að það var í okkur beygur
vegna þessara mála en þetta var
hvorki betra né verra en það sem við
höfum kynnst annars staðar. Ef við
ættum að fara að velja og hafna efdr
einhverjum geðþóttaaðferðum væmm
við komnir út á hálan ís. Persóna
Arkans er bara ekki okkar mál, við
fómm út til að spila fótbolta og pólitík
kom þar hvergi við sögu."
Nú er seinni leikurinn í kvöld.
Hvemig leggst hann í ykkur?
„Bara nokkuð vel. Reyndar er þetta
fantasterkt lið, við komumst að því í
fyrri leiknum. Við verðum að eiga
algeran toppleik til að vinna þá. Þá
bætir það ekki stöðuna að þrír okkar
manna em meiddir, auk þess sem
Sigurvin er úr leik í sumar. En að
sjálfsögðu stefnum við á sigur. Þessi
leikur verður góð byrjun á þjóðhátíð
og góður stuðningur áhorfenda skiptir
miklu máli. Ég vil þó biðja
áhorfendur að sýna fyllstu kurteisi og
láta það eiga sig að senda leikmönnum
eða dómurum tóninn. Við emm á
undanþágu með völlinn og það skiptir
miklu máli að engin leiðindi verði. En
það er í lagi að láta vel í sér heyra og
hvetja okkar menn. Öflugir stuðn-
ingsmenn geta virkað eins og tólfti
leikmaðurinn á vellinum,“ sagði
Jóhannes Ólafsson.
Barcelona - Benidorm - Costa del Sol - Heimsferðir, umboð í Eyjum - Straumur s. 481-1119