Fréttir - Eyjafréttir - 29.07.1998, Side 16
Sendibílaakstur innanbæjar.
Vilhjálmur Bergsteinsson
SEMDÍFSaðASÍLL
0481-2943,
V 897-1178
H „ H
FLUTNINGAR • VESTMANNAEYJUM
Dagkgar hrtír hnrt á had im w.
Vöruafgreiðsla
Stdldingavegi 4 Sími 481 8440
Vöruafgreiðsla í Reykjavik
AAaHlutisingar Höðinsgöfu 3
fíni 881 3030
Sparisjóðuiinn
beintengist
Verðbréfapingi
Fundur Sparisjóðsins uar uel sóttur.
í tilefni þess að stjórn Verð-
bréfaþings ísiands samþykkti
aðild Sparisjóðs Vestmannaeyja
að þinginu í síðustu viku var
haldinn kynning á þessari auknu
þjónustu í fundarsal sjóðsins í
hádeginu í gær.
I máli Arnars Sigurmundssonar
formanns stjómar Sparisjóðsins
kom fram að þessi nýja þjónusta
væri dæmi um þær breytingar sem
orðið hafa í starfsumhverfi banka
og sparisjóða hér á landi. Nokkur
stofn- og rekstrarkostnaður fylgir
aðild að Verðbréfaþinginu og væri
þessi aukna þjónusta vísir að stofnun
viðskiptastofu í Sparisjóðnum og
útvíkkun á starfsemi verðbréfa-
deildar sjóðsins. A lúndinum kynnti
Kristinn Lárusson, starfsmaður
verðbréfadeildar þessa nýju starf-
semi, en hann hefur unnið að
undirbúningi starfsemi viðskipta-
stofa hjá SPRON og Sparisjóði
Hafnarfjarðar.
Ljóst er að þessi beintenging við
Verðbréfaþingið mun einfalda öll
viðskipti Eyjamanna með hlutabréf
og verðbréf á þinginu. Kristinn er
sumarmaður í Sparisjóðnum, en
hann er einnig í knattspyrnuliði
ÍBV.
Þá flutti Þorsteinn Víglundsson hjá
Kaupþingi erindi um íslenskan
hlutabréfamarkað og þær miklu
breytingar sem orðið þar hafa orðið
með fjölgun fyrirtækja sem skráð
eru á Verðbréfaþingi Islands.
Þorsteinn hefur nýlega hafið störf
hjá Kaupþingi, en hann var áður
blaðamaður hjá Morgunblaðinu.
Þorsteinn Víglundsson, sem er nafni
Þorsteins heitins Víglundssonar
fyrrum skólastjóra og sparisjóðs-
stjóra, er sonur Víglundar Þor-
steinssonar í BM Vallá og Sigur-
veigar Jónsdóttir, kynningarfulltrúa
íslandsbanka. Að loknum erindum
þeirra Kristins og Þorsteins var opn-
að fyrir viðskipti við Verð-
bréfaþingið og fóru fyrstu viðskiptin
fljótlega fram.
Það var mikið lif og fjör þegar börnum í golfskóla GV og íþróttaskóla ÍBV var boðið í
siglingu með PH Viking. Krakkarnir skemmtu sér konunglega og enginn varð sjóveikur.
Allir virðast stefna a Eyiar
-Gæti orðið með stærri þjóðhátíðum gangi samgöngur að óskuif^
Samkvæmt upplýsingum sem
Fréttir hafa fengið frá flutnings-
aðilum milli lands og Eyja, virðist
allt stefna í að hér verði um mikla
aðsókn að ræða uni þjóðhátíð.
í síðasta blaði greindum við frá því
að bæði Flugfélag íslands og
Islandsflug væru með allt sitt flug nær
fullbókað, bæði fimmtudag og
föstudag og væntanlega er allt orðið
stútfullt þar núna.
Hjá Flugfélagi Vestmannaeyja var
okkur sagt að rosalega mikið væri
búið að bóka af flugi. „Það verður
„non stop“ flug hjá okkur á föstudag
milli Eyja og Bakka, auk þess sem
stærri vélamar okkar verða í stans-
lausu flugi frá Selfossi til Eyja,“ sagði
afgreiðslustúlka á Flugfélagi Vest-
mannaeyja. „Fyrir utan okkar venju-
lega flugvélaflota verðum við með
a.m.k. sex aukavélar í flugið á Bakka.
Það er búið að hringja alveg rosalega
mikið að undanfömu og panta og mér
sýnist að fólk stefni beint hingað um
þessa helgi.“
Magnús Jónasson, hjá Heijólfi, sagði
að allir miðar hefðu selst upp hjá BSI
nú í vikunni. „Við emm sem sagt
með fullt skip í öllum ferðum og sáum
okkur ekki annað fært en að setja upp
aukaferð á þriðjudag eftir þjóðhátíð til
að geta skilað öllum til baka. Þettaer |l|
alveg einstakt, ég man ekki eftir öðm
eins,“ sagði Magnús Jónasson.
Lögreglan með venjulegan viðbúnað:
Stöndum klárir að öllu
Mikill undirbúningur er hjá lögreglu vegna þjóðhátíðar. Ellcfu manns
úr lögregluliði Vestmannaeyja verða á vakt á hátíðinni og auk þess
ellefu l'rá meginlandiuu. í hópi þeirra eru lögreglumenn frá
fíkmefnadeildinni.
Ásgeir Lýðsson, varðstjóri hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum, sagði að
ellefu ntanns yrðu ávallt á vakt á hátíðarsvæðinu. „Við stöndum 13 tfma
vaktir, auk þess verða félagar úr Björgunarfélagi Vestmannaeyja einnig á
ferðinni og sýslumaður og fulltrúar hans verða einnig í viðbragðsstöðu. Við
emm við öllu búnir en auðvitað vonum við að sem rninnst þurfi að leita til
okkar,“ sagði Ásgeir Lýðsson, lögregluvarðstjóri.
g
R
II
II
Wr funcfi & Q^eyktur Íuníft
Gfcðilcga pjóófiatíé
Frétta- og auglýsingasími: 481-3310 * Fax 481-1293