Fréttir - Eyjafréttir - 13.08.1998, Blaðsíða 4
Fréttir
Fimmtudagur 13. ágúst 1998
Veggfánarm/íslenska
fánanum
huarsemer
rr
HUSEY
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
VESTMANNAEYINGA
dlmUuimsk
rifjárni. Einnig má nota engifer-
kryddi.
4. Öllu blandað saman á stórri
kínapönnu og hitað vel.
Borið fram með hrísgrjónum,
sojasósu og grófu brauði.
HRÍSGRJÓNAHNETUBUFF
300 gr. brún hrísgrjón
2 ferskar dillgreinar
1 meðalstór laukur
2 hvítlauksrif
2 gulrætur, 1 bolli marðar
heslihnetur
1.5 tsk tímían,
1 tsk karrý
2 msk hnetusmjör, salt og pipar
3 msk olía til steikingar
Rasp búið til úr sesamfræjum,
heslihnetum og haframjöli. Skolið
hrísgrjónin vel, mælið þau í bolla og
sjóðið í helmingi meira vatni í 45 - 60
mínútur. Rífið gulrætur, lauk og
hvítlauk fínt. Hrísgrjónum, kryddi og
hnetum bætt út í og hrært vel saman.
Mótið lítil buff, veltið upp úr raspinu
og steikið við vægan hita í ca 5
mínútur á hvorri hlið
Með þessu er gott að hafa ferskt
salat t.d. rífa niður hvítkál, gulrætur
og epli og hella melónujógúrti yfir.
Það er mjög gott.
Eg ætla að skora á mömmu að
koma með góðu bollu uppskriftirnar
sínar en hún kann að búa til alls konar
bollur. Hún býr t.d. til bestu fiski-
bollur í heimi og býr til rosagóðar
bollur úr saltkjötshakki. Þetta eru
kannski engir heilsuréttir en við sem
erum dugleg að hreyfa okkur höfum
vel efni á því að borða svona mat
stöku sinnum. Einnig skora ég á
mömmu að fara að bjóða mér í mat,
því það er orðið svo langt síðan ég hef
fengið góðar bollur.
O x* ð ei p o r
- Alltaf er of mikið um að þeir sem fara
að sleppa pysjum skilji eftir pappa-
kassana í flæðarmálinu, sjálfum sértil
skammar og öðrum til leiðinda.
Töluvert mun um að fjölskyldur ofan af
landi komi hér að njóta pysjutímans.
Ekki getur verið að þetta sé sú mynd
sem Eyjamenn vilja gefa af sjálfum sér
og viðhorfi sínu til umhverfisins.
-1 Morgunblaðinu siðastliðinn sunnu-
dag var nokkuð fjallað um íbúðir í
félagslega kerfinu og vanda sveitar-
félaga með þetta kerfi. Þar kom fram
að í Vestmannaeyjum eru 43 lausar
íbúðir í eigu bæjarins og standa þær
auðar. Þetta vekur nokkra furðu manna
á meðal. Undanfarna mánuði hefur
verið mikil eftirspurn eftir leiguhúsnæði
í bænum og verið auglýst í Fréttum eftir
allt að 10 íbúðum í viku hverri. Þannig
að eftirspurnin er næg. Bæjarfélagið er
þarna ekki aðeins að gefa frá sér
leigutekjur af umræddum íbúðum
heldur er allt eins líklegt að það fólk
sem ekki fær húsnæði hér neyðist til að
flytjast annað og þá fer útsvarið þeirra
víst með þeim. Auk þess er töluverð
þjónusta í kring um 43 fjölskyldur.
Þetta vekur furðu bæjarbúa, en á þessu
hlýtur bara að vera skýring.
Ég þakka Höllu
vinkonu minni
kærlega fyrir áskor-
unina. Hún bað um
heilsurétti. Réttimir
sem koma hér á
eftir hef ég bæði
matreitt heima til
kvöldverðar, en einnig hef ég boðið
upp á þá í saumaklúbb við mikla
ánægju klúbb gesta.
KÍNARÉTTUR
250 - 300 gr nautakjöt
Vi haus hvítkál
4 gulrætur
1 blaðlaukur
hvítlauksrif
Engiferrót
Bamboo shots (lítil dós )
1 dós water chestnuts
Brokolí 5-6 stönglar
Sellerí 2 stönglar
1. Steikið upp úr lítilli olíu, 250-
300 gr. af nautakjöti ( geymið )
2. Steikið upp úr lítilli olíu Vi haus
af hvítkáli, og skerið smátt Bamboo
shots, water chestnuts, 5-6 stöngla
brokkolí og 2 stöngla sellerí (geymið)
3. Steikið upp úr lítilli ohu; 4 rifnar
gulrætur, 1 blaðlauk smátt skorinn og
1 hvítlauksrif, rifið. Bætið svo við
engiferrót sem rifin hefur verið með
3
SMÁRI UAkÐAk IUPPÁUALDI
BjarkiA. Brynjarsson, er forstjóri Free Willy Keikó sjóðsins
á íslandi. Bjarki er jafnframt forstöðumaður þróunarfélags
Vestmannaeyja og framkvæmdastjóri Keiks ehf. Nú er
búið að ákveða endanlega hvenær Keikó kemur til
Vestmannaeyja, en það mun verða að morgni
W.september. Nú svo erkappinn að fara að gifta sig um
næstu helgi. Bjarki er þvi' Eyjamaður vikunnar að þessu
sinni.
Fulltnafn? Bjarki
A. Brynjarsson
Fæðingardagurog
ár? 290166-5439
Fæðingarstaður ?
Reykjavík
Fjölskylduhagir?
Sambýliskona + 2
börn
Menntun og starf:
Verkfræðingur,
framkvæmdastjóri ÞV og
Keikósjóðsins
Laun? hmmmmmm
Helsti galli?
Segi of sjaldan
nei
Helsti
kostur? i ^
Viljastyrk-
ur
Uppáhaldsmatur? Lundinn hjá Tóta rafvirkja
Verstimatur? kaldur hafragrautur
Uppáhaldsdrykkur? Gott rauðvín
Uppáhaldstónlist? Létt klassík
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Sjá spennandi
verkefni komast til framkvæmda.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Taka niður tjald í
rigningu
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í happdrætti?
Kaupa hús og bíl og gefa mömmu afganginn
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Káre Willock
Uppáhaldsíþróttamaður? Smári Harðar (hver annar??)
Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap? IEEE
Uppáhaldssjónvarpsefni? Góðar bíómyndir
Uppáhaldsbók? Flest eftir Jeffrey Archer
Hvað metur þú mest í fari annarra? Framkvæmdagleði
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Kraftleysi
Fallegasti staður sem þú hefur komið á?
Hvannadalshnúkur í björtu
Felst ekki mikil ábyrgð í starfi þínu? Jú
Hvað er skemmtilegast við starfið? Óendanleg tækifæri og
kynni af skemmtilegu fólki.
Hvað heillar þig mest við Vestmannaeyjar? Stutt
frá skrifstofunni í úteyjar og náttúru.
Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir þessi
orð?
Gifting? 15.ágúst
Keikó? Spennandi verkefni
Bandaríkin? Alltogekkert
Eitthvað að lokum? Nei.
Húðsjúkdómalæknir
er væntanlegur á Heilbrigðisstofnunina dagana
21. og 22. ágúst n.k.
Tímapantanir mánudaginn 17. ágúst
kl. 9 -11 og 13 -15
HEILBRIGÐISSTOFNUNIN í VESTMANNAEYJUM
Sími 481 1955
Að þjálfa upp
vöðva og
minnka ummál
Frábær árangur strax á 1. tíma!
Öflugasta líkamsmeðferð á íslandi í dag!
Comfort lif&slim 10 tímar á aðeins
kr. 10.000. Meiriháttar tilboð íTrimform.
20 tímar teknir á 20
á aðeins
kr. 9.55^0^
dögum
<37'm/'vfoifcfa
Skóvinnustofan
verður lokuð vegna sumarleyfa
14.-25. ágúst
Opnað aftur 26. ágúst
Stefán Sigurjónsson, skósmiður
Starfsfólk óskast
Óskum eftir starfsfólki í frystihús ísfélags Vestmannaeyja hf. Um er að
ræða störf í snyrtingu og pökkun, í sal. Vinnutími erfrá kl 07:00 til 15:00,
í sumar. Við erum að leita að starfsfólki til framtíðar.
ísfélag Vestmannaeyja hf er elsta starfandi fiskvinnslufyrirtæki á íslandi
með mjög fjölþætta vinnslu og lítur björtum augum til framtíðarinnar.
Fyrirtækið rekur eitt fullkomnasta alhliða frystihús á íslandi.
Allar nánari upplýsingar veitir Einar Bjarnason í síma 488 1142
✓ /
Golfmót
Coca Cola mótið
Verður haldið laugardaginn 15. ágúst n.k.
Mótið hefst kl. 9.00
Spilaðar verða 18 holur m/forgjöf
Spilað verður í þrem forgjafarflokkum.
Vallarforgjöf frá 0 -15,16 - 29 og 30 - 40
GJaasileg verðlaun
Aukaverðlaun verða veitt fyrir næstur holu, á öllum par 3
brautum auk lengsta teighöggs á 1 braut (á braut)
Lokaskraning á föstudag klukkan 20:00
dl
cL&rlínni
15. -16. ágúst Þórsmerkmferð Svartci Gengisins
30. ágúst Úrslitaleikur í Coca cola bikarnum
1. september Grunnskólastcuf hefst
10. -15. sept. Keikó kemur
25. desember Lundaball í umsjá Bjamaeyinga