Fréttir - Eyjafréttir - 13.08.1998, Qupperneq 7
Fimmtudagur 13. ágúst 1998
Fréttir
7
N amibíu
þar sem hann starfar við iðn sína
Netauerkstæðið er ólíkt buí sem uið tiekkjum enda er ueður annað og betra en
uíð eigumaðuenjasL
Les Fréttir á Netinu
En hvers saknar þú mest frá Vest-
mannaeyjum?
„Það er náttúrulega fótboltinn og
íþróttimar, en ég get nú fylgst þvt sem
er að gerast á Internetinu. Ég les til
dæmis FRÉTTIR á Netinu og þótti
mikill fengur að því þegar þær komu á
Netið. En það er slæmt að komast
ekki á fótboltaleikina sjálfa. En ég get
fylgst með enska boltanum í sjón-
varpinu."
Hver er þá stærsti kosturinn við að
búa þama?
„Það er trúlega hversu ódýrt er að
lifa og það er sól á hverjum degi og ég
uni mér þar af leiðandi mjög vel.“
Ingi Freyr er með ráðningar-
samning til ársins 2000 og segist muni
klára hann, en eftir það segist hann
ekki vita hvað hann muni gera. Ingi
Freyr hélt til Namibíu á ný á föstu-
daginn var. Hann segir að Gaui í
Gíslholti haft farið með Jóni V til
Namibíu og sagðist trúlega hitta hann
þar og hlakka til þess. Að lokum
spurði ég Inga Frey hvort hann gæti
ekki sagt eina góða sögu frá vem sinni
í Namibíu. „Það er svo sem af nógu
að taka,“ segir Ingi Freyr. „Kannski
má segja frá þvt þegar ég hengdi
þvottinn minn í fyrsta skipti út á
snúm. Ég var í góðri trú og hengdi
minn þvott upp. Síðan fór ég í
vinnuna eða að sinna einhverju öðru.
I hitanum þarna er þvottur fljótur að
þoma. Nú þegar ég ætla að taka hann
niður er hann horfinn. Það hafði
einhver klæðalítill átt leið hjá og kippt
með sér tauinu og hef ég ekki séð það
síðan. Þannig að ef maður hengir
þvottinn sinn út á snúm þá er vissara
að vakta hann og ég hef fylgt þeirri
reglu síðan.“
Úskilamunir
Lögreglan hefur þó haft nóg að
gera við að sinna þeim sem týndu
hinum ýmsu munum á
þjóðhátíðinni og er langflest af því
komið til skila.
Það sem er merkt hefur verið sent
til viðkomandi en erftðari er við að
eiga þegar hlutir em ómerkt en oft
tekst fólki að lýsa hlutunum þannig
að hægt er að þekkja þá og koma til
skila. Það sem eftir er, eru
svefnpokar, ómerkt veski og töskur.
Þetta er mun minna en oft áður og
er greinilegt að fólk hefur verið
nokkuð hirðusamt með hluti sína að
sögn lögreglu en því miður var
nokkuð um að fólk væri of hirðusamt
og hirti það sem aðrir áttu.
Ester og Ólafur, sigurvegararnir í söngvarakeppni á þjóðhátíð
Ostyrk í byijun
Söngvakeppni barna var haldin á Þjóðhátíðinn í ár
eftir nokkurt hlé. Keppt var í tveimur
aldursflokkum, tólf ára og yngri og þrettán ára og
eldri. Góð og mikil þátttaka var í keppninni og
krakkarnir skemmtu sér vel, jafnt þeir sem þátt tóku
og þeir sem hlíddu á sönginn. Sigurvegari í yngri
flokknum var Olafur Sigurðsson, en í eldri flokknum
Ester Bergsdóttir.
Olafur söng lagið „Heyrðu mig Halla“. Hann segir
ástæðu þess að hann vann í sínum flokki sé fyrst og
fremst því að þakka að hann hafi valið rétt lag. „Þetta er
stuðlag og passaði vel við röddina mína, en pabbi minn
kenndi mér lagið.“
Er pabbi þinn mikill söngmaður? „Eiginlega ekki, en
hann spilar á gítar.“
Spilar þú eitthvað á hljóðfæri? „Nei, en ég ætla að
læra á gítar. Pabbi ætlar að kenna mér.“
Olafur segir að hann hafi verið dálítið feiminn á
sviðinu. „Ég var dálítið feiminn í fyrra skiptið, en Jóna
Hrönn var þama svo þetta bjargaðist allt saman. Svo
söng ég aftur um kvöldið og þá var þetta ekki eins erfitt.
Maðurinn hennar Jónu var þá, en ég þekki þau bæði. En
ég mismælti mig í fyrra skiptið, en það virtist ekkert
hafa áhrif á dómnefndina. Ég held ég hafi sungið
„malla“ í staðin fyrir „bralla".
Hvað fékkstu í sigurlaun? „Ég fékk geislaspilara og
fána sem stendur á Þjóðhátíð Vestmannaeyja. Svo gáfu
Svanhvft og Lóa mér vatnsbyssu og kringlótt
sjálfflýsandi eitthvað til þess að hafa á hausnum eða um
hálsinn.“
Hvaða stelpur eru það? „Þær eiga heima í Grafarvog-
inum,“ svarar Ólafur sem var staddur hjá þeim þegar
viðtalið var tekið.
Ætlar þú að verða söngvari þegar þú verður stór?„Ég
veit það ekki, en mig langar að syngja aftur á næstu
Þjóhátíð."
Ólafur segist eiga tvær systur, en þær syngi ekki núna.
„Þó er Sara systir mín búin að syngja á Þjóðhátíð. En
mamma syngur ekki voðalega mikið.“ En fannst þér
ekki gaman á Þjóðhátíðinni?
„Nei eiginlega ekkert rosalega. Ég mátti bara kaupa
eitt dót á einum degi.“
Ólafur segist ekki vita hvort hann muni keppa aftur ef
það verður söngvakeppni á næstu Þjóðhátíð. „Maður
vill nefnilega alltaf vinna og það er ekki víst að maður
vinni tvö ár í röð.“
Ester Bergsdóttir er 13 ára en hún bar sigur úr býtum í
eldir flokknum. Hún söng lagið „Bamabragur“ sem er
gamalt Þjóðhátíðarlag frá því um 1950. En Hún segist
hafa sungið frá því hún man eftir sér. Fréttir náðu tali af
henni þar sem hún var í heimsókn hjá frænkum sínunt í
Svíþjóð. Hún sagði að það væri þrjátíu stiga hiti í
Svíþjóð og fullt af flugum og ógeði. En hvemig stóð á
því að hún ákvað að taka þátt í keppninni? „Hafsteinn
Guðfinnsson bað mig að syngja á Goslokahátíðinni í
sumar og í framhaldi af því var ég búin að æfa lagið svo
vel að ég ákavð að taka þátt í Þjóðhátíðarkeppninni."
Ester segist hafa sungið áður opinberlega jtegar hún
var í kór Bamaskólans. „Þá söng ég líka einsöng hjá
kómum. En svo hætti tónlistarkennarinn og þá var
enginn kór meira.“
Var ekkert erfitt að syngja fyrir fólkið á
Þjóðhátíðinni? „Ég var svolítið óstyrk fyrst, en svo var
þetta allt í lagi. Það var líka rosalega gaman á
Þjóðhátíðinni, þó að það hafi rignt svolítið, en það var
allt í lagi.
Hefurðu sungið lengi? „Já eiginlega frá þvt' ég var
lítil. Ég söng bara upp úr söngbókum og lærði svoleiðis.
Ég tók líka með mér söngbók til Svíþjóðar. Svo tók ég
líka með mér vídeóspólu sem var tekin upp á
söngkeppninni til að sýna frænkum mínum í Svíþjóð.“
Spilar þú á eitthvert hljóðfæri? „Ég var að læra á
blokkflautu og svo lærði ég á hljómborð í tvö ár og gekk
ágætlega. Mig langar samt ekki að halda áfram að læra
á hljómborðið. Ég vil frekar læra á gítar.“
Varstu ömgg um að þú rnyndir vinna keppnina?
„Nei, það kom mér reyndar á óvart, en veistu hvað
hann Óli sagði þegar úrslitin vom kynnt?
Nei. „Ég vissi að ég myndi vinna,“ sagði hann.
Var hann svona öruggur með sig? ,Já það má
eiginlega segja það. En veistu hvað hann sagði þegar
honum var óskað til hamingju með að hafa unnið?“
Nei. „Ekkert að þakka.“
I framhaldi af þessu vomm við Ester sammála utu það
að Olafur væri fullur af sjálfstrausti og væri vel að
sigrinum kominn í sínum aldursflokki.
En átt þú eitthvert uppáhaldslag? „Mér finnst mjög
gaman að gömlu Eyjalögunum og uppáhaldslagið mitt
er lagið sem ég söng í keppninni."
Ester segir að hún gæti vel hugsað sér að verða
söngkona þegar hún verði stór, en fyrst vilji hún læra
sönginn svolftið betur, en spurði svo hvemig veðrið
væri. „Það er tólf stiga hiti, hægur andvari og sól með
köflum,“ segi ég.
„Það er þá betra en héma í Svíþjóð," sagði Ester og
bað um góðar kveðjur heim. Benedikt Gestsson
Bg . . ==
K/t$<sL\
'p.
K/ts<\L\ {/t^\L\
40% tíl $0%
20% «.\fslÁttwr «\f íiVjjjvmi vörvim
OifsíÁttur
Verslunin
JIWOB&'R
Miöstræti 14 Vestmannaeyjum
■: ■!