Fréttir - Eyjafréttir - 17.09.1998, Qupperneq 15
Fimmtudagurl7. september 1998
Fréttir
15
LESENDABREF -'Sigurour Einarsson bæjarfulltrúi skrifar
Snarræði flugmanns-
ins bjargafli lífi okkar
-segir Friðrik Ragnarsson sem var einn þriggja manna í flugvélinni sem
fórst við Bakkaflugvöll á sunnudagskvöldið
Friðrik Ragnarsson var annar
farþeginn í flugvélinni og segir
hann mestu mildi að allir skyldu
slcppa lifandi og lítt meiddir.
Fullyrðir hann að snarræði flug-
mannsins hafi bjargað þeim frá
bráðum bana.
Friðrik, sem nokkrum sinnum
hefur flogið með Flugfélagi Vest-
mannaeyja til og frá Bakka, segir að
aðdragandi flugsins hafi á engan hátt
verið óvenjulegur. „Við vorum tveir
farþegamir og var okkur boðið um
borð í flugvélina. A leiðinni út í vél
skoðaði flugmaðurinn í bensín-
tankinn. Síðan ræsir hann hreyfilinn
og keyrir út á brautarenda. Þar gefur
hann nokkrum sinnum í og fer svo í
loftið," segir Friðrik um aðdraganda
flugferðarinnar sem fékk svo skjótan
endi.
„Við erum komnir í ágætis hæð,
vel yfir allar símalínur þegar flug-
maðurinn hægir á hreyflinum og
beygir í átt að Eyjum. Þá kemur eins
og högg á vélina sem ég tel að sé af
vindinum en það var nokkur hreyfing
í flugtakinu. Þá verð ég var við að
eitthvað er að og vélin byrjar að
lækka flugið," :,egir Friðrik.
Eftir þetta gerast hlutirnir hratt,
reyndar á nokkrum sekúndum ef
marka má frásögn Friðriks. „Flug-
vélin skellur í jörðina en rétt áður nær
flugmaðurinn að rífa hana upp og þar
með bjargar örugglega lifi okkar allra.
Eg sé hvar hægri vængurinn rifnar af
og að gras kemur æðandi á móti mér.
Meira man ég ekki og hef ég
sennilega rotast."
Næst man Friðrik eftir sér hangandi
í sætisbeltunum. „Eg fann strax mikla
bensínlykt og var ég hræddur við eld.
Reyndi ég strax að losa mig sem gekk
sæmilega."
Friðrik rakst fljótlega á Stefni sem
sagði honum að hann og flug-
maðurinn hefðu þeyst út úr vélinni.
„Ég sá að búið var að breiða teppi yfir
flugmanninn og um leið sá ég brakið
úr flugvélinni liggja dreift um svæðið.
Þama varð ég ennþá sannfærðari um
að flugmaðurinn hafði bjargað lífi
okkar allra því hefði hann ekki náða
að lyfta vélinni rétt áður en hún skall í
jörðina værum við allir dauðir."
Hann segir að fólk hafi komið strax
á slysstað og Friðirk og Stefni var
keyrt upp í flugskýli af Jóni á Bakka
þar sem þeir biðu eftir lækni. „Við
Stefnir fórum til Eyja í fylgd með
Víði lækni en flugmaðurinn fór til
Reykjavíkur með þyrlunni. Við
fengum að fara heim eftir
læknisskoðun á Sjúkrahúsinu og
daginn eftir vomm við myndaðir. Ég
er sæmilega hress en mest er ég
þakklátur fyrir að vera á Iífi,“ sagði
Friðrik sem að lokum vildi koma á
framfæri þakklæti til allra sem
aðstoðuðu þá.
Að lokum skal þess getið að á
þriðjudag var Friðrik lagður inn á
Sjúkrahús Reykjavíkur til frekari
rannsóknar.
Nutu góðs af æfingu
frásUori
Einar Jónsson, flugvallarstjóri á
Bakka, sem var á vakt á sunnu-
dagskvöldið þegar slysið varð, segir
að öll viðbrögð vegna flugslyssins á
sunnudagskvöldið hafi verið eftir
bókinni og hafi í raun gengið betur
en hann þorði að vona.
„I vor vorum við með æfingu og í
Það má teljast með ólíkindum að menn skuli hafa sloppið lifandi úr slysinu
að mati Friðriks. Morgunblaðsmynd
framhaldi af því var útbúin björg-
unaráætlun sem við unnum eftir,“
segir Einar. „Það var unnið 100%
eftir skipulaginu og gengu hlutimir
hratt fyrir sig, hraðar en ég þorði að
vona t.d. að fá lækni og aðstoðar-
mann úr Eyjum.“
Hann vill alfarið þakka æfingunni
frá í vor hvað vel tókst til en um
slysið sjálft vildi hann sem minnst
segja um. „Sjálfur sá ég ekki hvað
gerðist enda um blint hom að ræða frá
minni aðstöðu séð. Allt virtist eðlilegt
á meðan ég sé vélina og ekkert að
veðri eða vindi,“ sagði Einar sem
vildi koma á framfæri þakklæti til
allra sem aðstoðuðu hann við
björgunina.
Að hlæja eða gráta
Stundum þegar ég heyri eitthvað veit
ég ekki hvort ég á að hlæja eða gráta.
Sl. föstudagskvöld var Guðjóni
Hjörleifssyni bæjarstjóra boðsent bréf
frá fulltrúum V-listans í bæjarstjóm
Vestmannaeyja. Ljósrit af bréfinu
birtist með þessari grein. í bréfinu
kemur fram krafa V-listans um það að
Guðjón sjái til þess að flugvélin C-17
verði ljarlægð af Vestmannaeyja-
flugvelli þegar í stað.
Fyrst þegar Guðjón las þetta bréf
fyrir mig gat ég ekki stillt mig um að
hlæja.
„Sterkur em ek ”
Maður getur séð íyrir sér Vest-
mannaeyinga með Smára Harðarson,
sem er sennilega sterkasti maður
Eyjanna, í fararbroddi, fá sér góðan
kaðal og reyna að draga vélina í burtu.
Það væri örugglega mjög fyndið og
skemmtilegt og mundi vekja mikla
athygli fréttamanna. Fulltrúar V-
listans mundu að sjálfsögðu sjást mjög
framarlega í þeim hópi.
Gönguferðir
Allir Vestmannaeyingar vita að fiug-
völlurinn er lokaður gangandi fólki.
Þess vegna verður það að teljast mjög
sérstakt að einn af bæjarfulltrúum V-
listans skyldi fara í gönguferð um
flugvöllinn meðan flugvélin var þar.
Tilganginn með þessarri gönguferð
ætla ég ekki að leggja neitt mat á, en
óneitanlega var þetta svolítið
sérkennilegur tími og mjög óvenjulegt
að velja þessa gönguleið eins og
málum var háttað.
Viðbrögð íslenskra og bandarískra
yfirvalda
Það var eins og hvert annað óhapp
þegai' vélabúnaður vélarinnar laskaðist
eftir lendingu.
Það var mikið kappsmál bæði Vest-
mannaeyingum og Free Willy
samtökunum að hægt væri að lenda
með Keikó héma í Vestmannaeyjum
en ekki í Keflavík og flytja hann
hingað með öðrum hætti. Það var
þægilegra fyrir alla aðila og tryggði
öryggi Keikós betur.
Síðan þetta óhapp varð unnu íslensk
og bandarísk flugmálayfirvöld hörð-
um höndum að þvf að reyna að koma
vélinni af vellinum og ekki hefur farið
fram hjá Vestmannaeyingum sú um-
ijöllun sem orðið hefur í íjölmiðlum
um það mál.
„Eru þau súr”?
Það fer ekki hjá því að sú hugsun
hvarfli að undirrituðum að fulltrúum
V-listans hafi fundist nóg um þá já-
kvæðni og það góða andrúmsloft sem
hefur verið hér í bænum undanfamar
vikur og fylgdi m.a. komu Keikós.
Fyrir síðustu bæjarstjómarkosn-
ingar máttu frambjóðendur Sjálfstæð-
isflokksins sitja undir því að með þá í
bæjarstjóm Vestmannaeyja mundi
ekkert gerast annað en stöðnun og
afturför. Þótt ekki séu liðnir margir
mánuðir frá kosningum hafa bæjar-
búar séð aðra hluti og annað yfirbragð
yfir bænum. Auðvitað er þetta ekki
allt bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokks
að þakka enda hafa þeir ekki látið sér
detta í hug að eigna sér þá hluti alla en
eigi að síður hefur það skipt máli
hvemig þeir hafa haldið á málum.
Fyrir bæjarstjómarkosningamar sá
nefndarmaður V-listans á borgara-
fundi ástæðu til að gera lítið úr
hugsanlegri komu Keikós til
Vestmannaeyja og gera grín að þá-
verandi meirihluta fyrir það að reyna
að vinna að því að fá Keikó hingað.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
hafa einsett sér að gera komu Keikós
ekki að pólitísku máli heldur fyrst og
fremst jákvæðu máli Vestmanna-
eyinga allra. Þannig verð-ur bréf
V-listans urn að íjarlægja flugvélina
enn furðulegra ef litið er á það í því
ljósi. Það er ljóst að sumir fulltrúar V-
listans sjá rautt þar sem
Bandaríkjamenn og bandaríski herinn
eru annars vegar en þama var þetta
stóra herveldi að vinna að málum sem
tengdust ekki á neinn hátt hemaði.
Hvað felst í komu Keikós?
Það er engin ástæða til þess að ofmeta
hvað felst í komu Keikós. Það getur
verið að þegar frá líður verði þetta
bara atburður á haustdögum sem
fyrnist yfir. Við þurfum að hafa í
huga að þetta er atburður sem snertir
sérstakan streng í hugum bama og að
sumu leyti er þetta þeirra atburður.
Hvað þetta þýðir fyrir Vest-
mannaeyjar er alveg óljóst á þessarri
stundu. Það er von bæjaryfirvalda að
með komu Keikós hingað hafi
Vestmannaeyjar fengið mikla
kynningu og í kjölfarið muni hefjast
ýmiss konar vísindastarfsemi. Öll
kynning á Vestmannaeyjum er af hinu
góða en hvað tekur við er ekki gott að
segja. Það er samt ástæða íyrir fólk að
ofmeta það ekki.
Það er skynsamlegt fyrir Vest-
mannaeyinga að reyna að halda því
jákvæða hugarfari sem hefur einkennt
þessa atburði alla. Bæði bandarískir
samstarfsaðilar Vestmannaeyinga um
komu Keikós og fréttamenn hafa haft
sérstakt orð á því hversu jákvæðir
Vestmannaeyingar hafa verið í
þessum málum.
Það var líka viðhorfið sem
bæjarstjóm Vestmannaeyja vildi hafa
í þessu máli, að nálgast það með
jákvæðum hætti og reyna að hafa
kostnað í lágmarki fyrir bæinn og þá
mundi takast vel til.
Vemm jákvæð og lítum á björtu
hliðamar.
Höfimdur er bcejarfulltrúi
Sjálfstœðisflokksins
Bæjarstjóri Guðjón Hjörleifsson
Ráðhúsinu, Vestmannaeyjum
Við undirritaðir bæjarfulltrúar Vestmannaeyjalistans fömm þess á
leit við þig að þú f.h. Vestmannaeyjabæjar, krefjist þess að Bandaríkjaher
fjarlægi nú þegar flugvél hersins sem biluð er á Vestmannaeyjaflugvelli og
hefur ffá því í gærmorgun hindrað samgöngur í lofti til Vestmannaeyja.
Við erum þess fúllviss að það æui ekki að vera ofaukið öflugasta
herveldi heims að ftarlægja umrædda flugvél.
Við bendum á að flugsamgöngur við Vestmannaeyjar em okkur
Vestmannaeyingum svo mikilvægar að brýna nauðsyn ber til að fjarlægja
vélina þegar í stað.
Vestmannaeyjum ll.sept. 1998
Bréflð sem bæjarstiórinn f ékk boðsent á föstudayskuöldið.