Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 08.10.1998, Síða 8

Fréttir - Eyjafréttir - 08.10.1998, Síða 8
8 Fréttir Fimmtudagur 8. október 1998 Hlédrægi fyrirliðinn sem lært hefur að fóta sig í sviðsljósinu -Hlynur Stefánsson fyrírliði fslands- og bikarmeistara ÍBV sem einnig er sigurvegari í Meistarakeppni KSÍ ✓ ætlaði að vinna titla með IBV þegar hann kom aftur til liðs við Eyjamenn áríð 1995 eftir að hafa verið í fjögur ár í Svíþjóð. Nú hefur hann séð þennan draum sinn rætast á síðustu tveimur árum sem hann fullyrðir að séu hans bestu á löngum ferli. Hvort þau verða hans síðustu kemur í ljós þegar hann kemur heim úr langþráðu fríi Hlynur Stefánsson fyrirliði knattspymuliðs IBV í meistaraflokki er skorin- orður og vel skipulagður maður. Hann er með báða fætur á jörðinni, hvort sem það er á fótboltavellinum eða öðmm völlum, þar sem hann stígur niður fæti. Hann er kvæntur Unni Björgu Sigmarsdóttur og eiga þau þrjú böm, Birki tíu ára, Kristrúnu Ósk sjö ára og Rakel fimm ára. Blaðamaður settist niður með fjölskyldunni eina kvöldstund í síðustu viku að heimili þeiira á Höfða- veginum og spjallaði við þau um velli mannlífsins, en þó mest knattspymuvelli. Hlynur hefur verið í fótbolta síðan hann man eftir sér og fátt annað komist að, enda fótboltinn og íþróttir allt að því upphaf og endir alls hjá fjölskyldunni. Þess vegna má segja að íþróttirnar séu jafnt vinnan og áhugamálin. Byrjaði að sparka bolta hjá Fylki í Árbænum Hlynur er fæddur í Vestmannaeyjum, en flutti til Reykjavíkur með fjölskyldunni, þegar foreldrar hans skildu 1967, en þá er hann þriggja ára. „Við fluttum í Árbæjarhvefið og bjuggum þar til ársins 1975, en fluttum þá aftur til Eyja. Þá er ég ellefu ára gamall. Ástæðan fyrir því að við fluttum aftur til Eyja er sú að mamma kynnist fósturföður mínum Hrafni Oddsyni, en hann reri frá Eyjum og rak útgerð hér ásamt bróður sínum. Á þessum árum fer ég að leika með Fylki sem var hverfisliðið í Ár- bænunt. Eg man hins vegar lítið frá fyrstu ámnunt í Reykjavík, þangað til ég fer að leika með Fylki og fótboltinn verður stór hluti tilverunnar. Það er helst fyrir þig að spyrja mömmu um prakkarastrikin og slíkt." Unnur Björg er fædd og upp alin í Eyjum og kynntist Hlyni í þriðja bekk Bamaskólans. „Við áttum mikla sam- leið í gegnum íþróttimar og bjuggum í sama hverfi.“ Hlynur segist snemma hafa lagt hug á Unni Björgu, þó ekki hafi hann fangað hana fyrr en um tvítugt. En var það erfitt og mikið þrekvirki, Hlynur? Þau segja lítið, en hlæja þeim mun meira og vilja ekkert láta uppi um það. „Reyndar var það ekki," segir Hlynur svo. „Hann var ekkert að flýta sér, enda mikill ævintýramaður og mátti ekkert vera að þessu,“ segir Unnur Björg. „Hann var alltaf í lundaveiði, eggja- töku og að gella. Þegar ég kynntist honum var hann allur í þessari veiðimennsku, fyrir utan íþróttimar.“ Lærði undirstöðuna á hálu dekkinu hjá Hilmari Nínon „Eg byrja á því að fara á sjóinn með Hilmari Nínon,“ segir Hlynur. „Enda telur hann sig eiga heiðurinn af þeirri tækni sem ég hef í fótboltanum. Við vorum á síld og dekkið var svo sleipt og þurfti mikla fótafimi til þess að standaþar. Hann trúir því að þetta sé allt honum að þakka. Árni Ninon sonur hans var mikið í lundanum á hverju sumri og ég fylgdi honum í því og hafði tekjur og gaman af. Þannig var maður meira og minna á fjöllum og í klettum á þessum ámm. Eg held að þetta fjallabrölt hafi gefið manni ntikinn styrk og að ég búi að því enn þann dag í dag.“ Má segja að Hilmar hafi verið fyrsti þjálfarinn þinn? „Eg hugsa að hann yrði mjög ánægður ef að ég segði það,“ segir Hlynur og hlær. „Það var að minnsta kosti mikil reynsla að vera með þeim feðgum á þessum tíma og við áttum skemmtilegar stundir saman.“ Hlynur segir að fótboltinn hafi alltaf verið samfara þessu veiðimannalífi. „Ég tók hann hins vegar ekkert mjög alvarlega þá. Ef útlit var fyrir þoku hikaði ég ekki við að fara í lunda. Síðan varð kannski skyndilega fært, þá var einhver sendur upp í fjall til að ná í mig og segja mér að það væri leikur. Knattspyman er auðvitað kapi- tuli út af fyrir sig hér í Eyjum og er stór hluti af ímynd Vestmannaeyja og það er verið að búa til hetjur ef menn standa sig. Ég geri mér hins vegar grein fyrir því að það kemur að því að slíkt tekur enda og aðrir sem taka við. Ég hef reynt að vera heill í þessu og ekki lifað í neinum hillingum. Ég veit að þetta er ekki svo raunverulegur heimur. Hetjan er eitthvað sem fjölmiðlar eru að búa til. Raunveru- leikinn er miklu frekar í brauðstritinu og að sjá fjölskyldu sinni farborða. Ég er hins vegar mjög ánægður með að vera hluti af IBV liðinu, en per- sónulega er ég mjög svo niðri á jörðinni." Hlynur telur það mjög jákvætt fyrir sig, áður en hann fór út í atvinnu- mennskuna að hafa alltaf unnið með fótboltanum. „Margir ungir strákar sem hafa farið út í atvinnumennsku og hafa ekki unnið neitt með boltanum eiga kannski í vandræðum, þegar atvinnumennskunni lýkur eða þeir meiðast. Þá hafa þeir ekki menntun eða reynslu í bakhöndinni. Þá getur stundum farið illa.“ í atvinnumennsku í fjögur ár Hver er þín menntun og skólaganga? „Ég kláraði skylduna og vann í Skipalyftunni í tvö ár og var kominn á samning þar og ætlaði að verða jámsmiður eða vélvirki. Ég vildi hins vegar ekki gera þetta að ævistarfi. Ég tók tvær annir, en kláraði námið ekki. Skólaganga mín er þess vegna mjög takmörkuð. En ég hef hins vegar lært mikið af lífinu. Ég fór í atvinnu- mennsku árið 1992, þá 27 ára gamall og lék í fjögur tímabil með Örebro í Svíþjóð. Það var ekki algengt að menn fæm héðan í atvinnumennsku á þessum árum. Það blundaði hins veg- ar alltaf í mér. 1 Svíþjóð lenti maður í mjög jákvæðu umhverfi. Hjá Örebro starfaði íþróttasálfræðingur, sem vann með okkur og þá lærði maður mjög mikið um íþróttamanninn, bæði réttan og jákvæðan hugsunarhátt. Hvemig hópar ná best saman og hvemig best væri að undirbúa leiki. Þama las maður bækur sem ég lít enn þá í ef mér finnst eitthvað vanta og tileinkaði mér einnig ákveðið hugarfar. Það að vera bestur þegar þörfm er mest. En oft er síðasta hindrunin sú sem menn klikka á. Þetta er spurning um að sjá sjálfan sig sem sigurvegara.” Ertu mjög jarðbundinn maður? „Já ég myndi segja það. Mér líður ekkert allt of vel í þessu „glamorljósi". Ég segi stundum. „Afhveiju aðhrósa alltaf einum manni.“ Þetta er hóp- íþrótt og við eigum allir þátt í velgengninni. Sem fyrirliði hef ég lagt upp úr því að við séum allir jafnir og að vinna að sama markmiðinu. Ég vil líka láta alla finna það í hóp að það em allir jafn mikilvægir. Það er ekkert pláss fyrir egóflippara og kónga, og ég held að slíkt sé aldrei vænlegt til árangurs. Það er alltaf eins og sé þörf fyrir að skapa hetjur. Ég er oft kvíðnari fyrir því að koma fram í sjónvarpi eða blöðum, heldur en að spila einhverja úrslitaleiki í fótbolta. Hins vegar er þetta hlutur sem venst og ég orðinn nokkuð sjóaður í þessu.“ Ert þú svona jarðbundin hka, Unnur Björg? „Við emm mjög ólíkar týpur í okkur. Hlynur hefur alltaf verið miklu hlédrægari og lítið fyrir að trana sér fram. Ég er meira fyrir að tjá mig og vera framarlega í hópi. Hlynur hefur hins vegar breyst mikið frá því ég kynntist honum og orðinn vanari því að vera í viðtölum og í ljölmiðla- umræðunni. Það má segja að hann sé búinn að læra á það líf sem hann valdi sér.“ Fótboltinn vinsælastur En af hveiju fótbolti? „Þetta er nú vinsælasta íþrótt í heimi og fótboltinn heillar alla og allir geta haft skoðun á honum. Þetta er bara menning eins og annað sem maðurinn er að fást við. Ég veit hins vegar ekki hvað það var sem dró mig fyrst að boltanum. Þegar ég var að alast upp var fátt annað við að vera og ég heillaðist af þessari íþrótt. Engar tölv- ur og slíkt. Fótboltinn var vinsæll leikur og ódýr. Það var bara hent bolta inn í krakkahópinn og enginn þurfti að hafa áhyggjur af krökkunum allan daginn. Ég var reyndar í fleiri íþróttum, bæði fijálsum, fimleikum og handbolta. Þaðkannskijaðrarviðþað að ég hafi verið ofvirkur. Ég hafði að minnsta kosti þörf fyrir að vera í öllu. Nú eru breyttir tímar.“ Nú ertu bæði hlédrægur og jarð- bundinn, en einhvers staðar er mikill metnaður líka. Hvemig hefur gengið að samhæfa þessa eiginleika? „Það má segja að ég komi inn í þetta umhverfi í Eyjum, þar sem er mjög mikill metnaður í fólki. Hvort það er vegna þess að við erum fámenn veit ég ekki. Ég geri mér ekki alveg grein fyrir því hvar rætumar liggja, en maður fer inn í þessa hringiðu. Fjölskyldan hefur líka stutt mig mikið og lagt upp úr því að maður standi sig.“ En aðeins aftur að atvinnumennsk- unni. Var eitthvað sem kom sér- staklega á óvart í Svíþjóð? „Mest kom á óvart hversu vel var hugsað um okkur bæði sem inn- flytjendur og einnig af hálfu stjóm- enda liðsins og félaganna. En urn- önnunin utan vallarins var líka með eindæmum góð. Þeir gerðu sér grein fyrir því að eftir því sem manni leið betur heima hjá sér væm meiri líkur á því að fá meira út úr mönnum á vellinum. Þannig var einn ákveðinn Hlynur: Hetjan er einhuað sem fjölmiðlar eru að búa til. Raunueruleikinn er miklu frekar í brauðstritinu og að sjá fjölskyldu sinni farborða.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.