Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 08.10.1998, Qupperneq 9

Fréttir - Eyjafréttir - 08.10.1998, Qupperneq 9
Fimmtudagur 8. október 1998 Fréttir 9 maður í að aðstoða okkur og ef eitt- hvað kom upp á var haft samband við hann.“ Hlynur segir að Örebro hafí haft mjög háleit markmið þegar hann kom til liðsins. „Þeir vom í 3. sæti í sænsku úrvalsdeildinni og ætluðu að vinna gullið. Það gekk frekar illa fyrsta árið og það var mjög erfitt. Ég var einn af þremur aðkomumönnum í liðinu og af því að ekki gekk eins vel þetta árið var okkur kennt um slakt gengi liðsins. En ég segi fyrir mig að auðvitað vom þetta viðbrigði að spila knattspyrnu alla daga og pressan var mikil og gífurleg samkeppni milli manna. En þetta gekk betur eftir sem leið á tímann og 1994 er liðið einu stigi frá því að verða meistarar. Við áttum mjög góða möguleika, en fyrir eigin klúður náðum við ekki að sigra. Það er líka eitt í sambandi við þetta og hugsunarháttinn í Svíþjóð að Gautaborg er stórveldi í knattspymu ogerenn. Allir leikmenn tippa á það hverjir verði meistarar hvert ár og allir í Örebro liðinu, nema ég tippuðu á Gautaborg. Ég hins vegar tippaði á Örebro. Ef menn trúa ekki sjálfir að þeir geti klárað dæmið, þá er það ekki hægt. Hins vegar er borin mjög mikil virðing fyrir Gautaborgarliðinu og menn skortir sjálfstraust þegar Gauta- borgarliðið er annars vegar. Gauta- borg vann svo með einu stigi í síðustu umferð. Þetta er svo stór spuming um hugarfarið, hvað sem öllum íþrótta- sálfræðingum líður.“ Spuming um skipulag Nú þegar þið emð bæði í vinnu og mikið í íþróttunum, æfingar, auk þess að vera með þrjú böm. Er þetta ekki heilmikið skipulag að púsla saman tilvemnni? „Jú þetta er mjög mikið skipulag," segir Unnur Björg. „Uti í Svíþjóð vomm við með sænska stelpu sem kom og passaði. Hún kom þegar ég fór í leiki, en ég spilaði með sænsku handboltaliði. Yfirleitt var þetta þann- ig að þegar Hlynur kom af æfingu, hittumst við í dyrunum og heils- uðumst og kvöddumst. Héma er hins vegar æft miklu seinna. Ég fékk hins vegar mjög mikið út úr því að vera í handboltanum. Sérstaklega vegna fé- lagsskaparins.“ Þau segja að áhugamál utan við íþróttimar séu mjög fá. „Ahugamálin em öll tengd íþróttum á einhvem hátt. Kannski ef hægt er að segja að hvfld sé áhugamál, þá má svo vera,“ segir Hlynur og brosir. „Hlynur hefur verið mjög bundinn allar helgar í sumar," segir Unnur Björg. En stundum kemur einn og einn dagur sem hann á frí. Þá reynum við að gera eitthvað saman. Til dæmis að fara í göngur með bömin og heimsækja fjölskylduna. En það er rosalega takmarkaður tími sem við eigum út af fyrir okkur. Maður hefur hins vegar lifað sig svo mikið inn í þetta að það kemur ekki að sök.“ „Það eru allir þátttakendur í þessu,“ segir Hlynur. „Þannig að maður hefur engan tíma til þess að hugsa eða gera eitthvað annað. Það er alltaf einhver sem gengur að manni og tengir við íþróttimar og eftir sigurleiki er maður að taka við hamingjuóskum allan daginn og marga daga á eftir og fyrir leiki er maður að fá alls konar ráð- leggingar. En auðvitað getur maður orðið andlega þreyttur á þessu, eins og öðm. Og ég segi það að ég er miklu meira andlega þreyttur, en nokkum tíma líkamlega eftir fótboltann. Maður vill klára sig í þessu og það kostar heilmikla vinnu og þarf stöðugt að vera með hugann við þetta.“ Sá möguleika á betri árangri hjá ÍBV Hlynur hafði starfað mest af sínum ferli með IBV og aldrei unnið titil en hann hafi alltaf langað til þess að vinna einhvem titil með liðinu. „Þegar ég var að meta stöðuna eftir dvölina í Svíþjóð langaði mig til þess að enda ferilinn með því að vinna titil með Eyjamönnum. Ég hafði alltaf komið til Eyja í sumarfríum og æft með strákunum, sem voru margir góðir í liðinu og ég sá möguleika í stöðunni. Reyndar varð ég einu sinni íslandsmeistari með IBV í 5. flokki, en maður stefndi nú hærra og langaði að státa af einhverju stærra. Þetta er ein meginástæðan fyrir því að ég hélt ekki áfram með Örebro, en þeir höfðu boðið mér tveggja ára samning. Einnig fannst mér þeir vera komnir á ákveðna endastöð og stefnan í leik- mannakaupum ekki rétt, svo mig langaði ekkert að vera þama áfram. Einnig var elsta bamið komið á skólaaldur, þannig að ef við hefðum verið tvö ár til viðbótar hefði verið ennþá erfiðara að koma heim og ekki síst fyrir bömin." Fótboltinn baktería sem þú losnar ekki við En staðan í dag. A að hætta á toppnum? „Ég ætla ekki að gefa neitt út um það enn þá. Ég er að fara í frí núna og verð úti í Portúgal þegar þetta birtist á prenti. Ég ætla aðeins að hlaða batteríin og taka svo ákvörðun þegar ég er búinn að tæma hugann og slaka á, en þó að ég hætti núna þá hættir ekki áhuginn. Fótboltinn er eins og baktería sem maður losnar aldrei við. Það er hins vegar mjög freistandi að hætta núna eftir tvöfaldan sigur. Guðjón Þórðarson sagði einu sinn um ntig sem gamlan leikmann: „Þú ert að fara niður brekkuna, en hins vegar spuming um hversu lengi hægt er að standa á bremsunni.“ Ég er e.t.v. að afsanna þessa kenningu vegna þess að ég hef bætt mig eftir að ég kom heim og síðustu tvö ár em held ég bestu tímabilin sem ég hef spilað. Aldurinn er afstæður í þessu sem öðm, ef menn em lausir við meiðsl og hafa gaman af þessu, þá er aldurinn alveg eins plús.“ Nú er til eitthvað sem heitir anti- sportistar og þeir tala gjama um bikara sem pjátur og eftirsókn eftir vindi. Hver er þín skoðun á því? „I svona hópíþrótt eins og fótboltinn er og allir leggja sig fram er maður að uppskera eitthvað. Það er ekki bara leikurinn sem telur heldur líka æf- ingamar í misjöfnum veðmm og svo framvegis. Þegar maður uppsker á eftir fer mikil sælutilfinning í gegnum mann. Ég held að antisportistar viti ekkert hvað þeir em að tala um. Anti- sportistar em líka yfirleitt þeir menn sem ekki gátu farið þrjár armbeygjur í leikfimi, eða einhver annar vanmáttur sem brýst svona út. Þetta fólk hefur kannski áhuga á bridds eða einhverju örðu. Ég ber hins vegar fulla virðingu fyrir þeim og þeirra áhugamálum." Stutt í fyrirmyndimar Hlynur nefndi hér áðan Hilmar Nínon sem mikinn áhrifamann í sínu lífi og því er fróðlegt að fá að vita hvort hann eigi ekki einhverjar aðrar fyrirmyndir úr knattspymunni. Hann er ekki lengi að hugsa sig um og segir: „Asgeir Sigurvinsson var mjög góður knattspyrnumaður sem ég lít mjög upp til. Þannig að ég þarf ekki að fara langt út fyrir heimahagana til þess aðnefna fyrirmyndir. Ég get líka nefnt Ómar Jóhannsson, en ég bar virðingu fyrir öllum þessum mönnum. Ásgeir kom til dæmis stundum hingað í fríum þegar ég var í yngri flokk- unum. Hann var þá kannski með á æfingum og gaf eiginhandaráritanir og komst kannski næst því að komast í guðatölu hjá mér. Einhverju sinni sá hann mig á æfingu og sagði mig mjög efnilegan við einhvem. Mér var svo sagt þetta og lifði á því í mörg ár. Svona styrkir alltaf sjálfsmyndina og í gengum íþróttimar hef ég fengið aukið sjálfstraust. Þess vegna líður mér kannski best innan þess geira, því þar er ég sterkastur. Állt þar fyrir utan mætti ég hins vegar bæta meira og er held ég að taka framfömm þar líka." Hefurðu einhvem tíma séð þig í einhverju öðru hlutverki í lífinu, en sem knattspyrnumann og í þessum knattspymuheimi? Það er löng þögn og greinilegt að rnargt fer í gegnum hugann, en svo segir hann brosandi: „Ég veit það ekki. Þetta er eitthvað sent ég hef aldrei staðið frammi fyrir. Ég datt inn á þessa braut og hef ekkert litið til baka. Ég lít bara fram á við og tek því sem að höndum ber og hef engar áhyggjur af þessu langt fram í tímann. Maður tekur bara dag í senn og leysir þau vandamál sent upp koma. Þetta er bara lífsmynstur hjá okkur og krakkamir hafa áhuga á íþróttum líka, þó hefur ekki verið nein pressa af okkar hálfu að ýta þeim út á þessa braut. Svo kemur það bara í ljós hvort þau vilja halda þessu áfram eða ekki. Við munum bara styðja þau í því sem þau hafa áhuga á.“ Styttist í fulla atvinnumennsku hér á landi Hvernig sjáið þið framtíð íslenskrar knattspymu fyrir ykkur sérstaklega í ljósi þess að erlendum leikmönnum er að fjölga? „Það er náttúrulega orðin hálfat- vinnumennska í þessu hér á landi og ef fram fer sem horfir verður knatt- spyrnan orðin að fullri atvinnu hjá mönnum. Varðandi útlendingana er þetta bara þróun sem við verðum að sætta okkur við. Menn eru að fara héðan og aðrir koma hingað, sem er rnjög jákvætt að okkar mati. Menn eru alltaf að reyna að brúa bilið og fylla í skörðin, ef við ætlum að halda uppi sæmilegum standard héma. Gagnvart Eyjamönnum þá er þetta kannski öðru vísi vegna smæðarinnar. Við viljum bara frændur og vini, en því miður hefur það ekki verið hægt vegna þess að það hefur ekki verið unnið nógu gott starf í yngri flokkunum hérna og það hefur ekki skilað sér í nógu mörgum góðum strákum. Það em vissulega góðir strákar í 2. flokki, en þeir eru ekki orðnir fullfjaðraðir fyrir úrvals- deildina og þurfa meiri tíma. Þetta stendur nú samt allt til bóta og er nýbúið að ráða nýjan yfirþjálfara. Þó að hann sé Rússi þá er það allt í lagi ef hann hefur einhverju að miðla og sjálfsagt að taka því fagnandi. Við þurfum að hætta fordómunum og meta hvern og einn eins og hann er. Mér finnst að taka eigi öllum opnum örmum, ef hins vegar menn standa sig ekki, þá á bara að frímerkja þá eitthvert annað og finna eitthvað nýtt. Það er ekkert flóknara en það." Ein lokaspuming, hefur þú einhvetja samúð með KR-ingum eftir leikinn um íslandsmeistaratitilinn á dögunum? „Maður hefur kannski reynt að setja sig í þeirra spor og það held ég sé bara mannlegt. Þeir hafa verið með þessa sigurpressu á bakinu í 30 ár. Þetta hlýtur að vara mikið álag. Og ég hugsa að það hafi haft mikil áhrif í þessum leik. Við vorum kannski afslappaðri og yfirvegaðri í leiknum og kannski gerði það gæfumuninn. En eins og ég hef sagt, það er hægt að ræða knattspymu endalaust og viðhafa alls konar vangaveltur, en það er á- gætis niðurstaða að segja að betra liðið hafi unnið.“ Benedikt Gestsson Unnur Björg: í fríum Hlynur: í fríum reynum uíð að gera eitthvað saman. Til dæmis að fara í göngur með börnin og heimsækja f jölskylduna.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.