Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 08.10.1998, Qupperneq 13

Fréttir - Eyjafréttir - 08.10.1998, Qupperneq 13
Fimmtudagur 8. október 1998 Fréttir 13 Ilápxuúdxirinn var að hitta Keikó -segja Guðbjörg Erla Ríkharðsdóttir og Ríkharður Öm Atlason sem var boðið til New Port þegar háhymingurinn fór þaðan til Eyja Það hefur örugglega ríkt eftirvænting í Barnaskólanum og Hamarsskóla þegar dregið var um það hvaða krakkar í 6. bekk áttu að fara til Newport í Oregon í Bandaríkjunum og vera viðstaddir þegar Keikó lagði upp til nýrra heimkynna í Vestmannaeyjum. Þau heppnu voru Guðbjörg Erla Ríkharðsdóttir 11 ára í Hamarsskóla og Ríkharður Örn Atlason í Barnaskólanum sem er 11 ára í dag. Þarna upplifðu þau ævintýri lífs síns sem náði hápunkti þegar þau fengu að sjá Keikó. Það er ekki á hveijum degi sem krökkum á þessum aldri býðst að ferðast alla þessa leið sem tók heilan sólarhring. Flogið var til New York frá Keflavík þaðan sem leiðin lá til Las Vegas og loks Newport. Guðbjörg Erla segist ekkert hafa sofið á leiðinni en það gerði sko ekkert til því þau voru á leiðinni að hitta Keikó. Guðbjörg Erla segir að vissulega sé margt að sjá í Ameríku og þar sé flest stærra en á íslandi en þrátt fyrir það var skemmtilegast að fá að sjá Keikó. „Þegar Keikó var farinn til íslands heimsóttum við þrjá skóla sem var skemmtilegt. Þar hitmm við krakka sem við töluðum við um allt milli himins og jarðar. Þeim fannst allt í lagi að Keikó skyldi vera kominn Vestmannaeyja," sagði Guðbjörg Erla. Ríkharður Öm segist hafa orðið mjög hissa þegar hann var dreginn út úr hópi jafnaldra sinna í Bamaskólanum. Þama fór hann í sína fyrstu utanlandsferð og fannst honum ferðalagið svolítið langt. í spjalli við Fréttir segir Ríkharður Öm að margt skemmtilegt hafi gerst í ferðinni en hann er sammála Guðbjörgu Erlu; það var skemmtilegast að hitta Keikó. Alls stoppuðu þau í sex daga í Newport og vom á fínu hóteli. „Mér leist bara vel á Keikó," segir Rikharður Öm sem fannst fátt annað koma á óvart í henni Ameríku. „Við kynntumst engum krökkum en töluðum við nokkra þegar við fómm í heimsókn í skólana. Þegar Keikó var að fara lentum við í viðtölum við ijölmiðla, t.d. CNN. Við gátum talað við fréttamennina en ekki mikið." Ríkharður Öm hefur heimsótt Keikó í kvína í Klettsvik og segir sér finnist hann bara vera eins og hann var í Newport. íslensku krakkarnir voru látnir vinna verkefni með nemendum í einum skólanum sem þau heimsóttu. Hér er Guðbjörg Erla niðursokkin í vinnu sína. Helgina 8.-10. október munu félagar Kiwanishreyfingarinnar á Islandi selja svonefndan K-lykil. Mun þetta í níunda skipti sem slík sala fer fram. Agóði af sölu lykilsins undan- gengin átta skipti mun á núvirði nálægt 150 milljónum og hefur honum ávallt verið varið til styrktar geðsjúkum eða aðstandendum þeirra. Má í því sambandi nefna byggingu Bergiðjunnar, vemdaðs vinnustaðar fyrir geðsjúka. Einnig kaup á sambýlum í Reykjavik og á Akureyri fyrir einstaklinga, sem dvalið hafa á geðdeildum eða endurhæfingarheim- ilum. Enn má nefna kaup á íbúð fyrir aðstandendur geðsjúkra bama og unglinga sem vegna sjúkleika bamanna hafa þurft að dvelja í Reykjavík um lengri eða skemmri tíma. Hér í Eyjum munu félagar í Kiw- anisklúbbnum Helgafelli ganga í hús og bjóða fólki K-lykilinn til kaups. Verð lykilsins er 500 kr. Að þessu sinni verður ágóða af sölunni varið til endurbóta og uppbyggingar á fram- tíðarhúsnæði Geðhjálpar að Túngötu 7 í Reykjavík, en samtökin fengu húsið nýverið að gjöf frá heilbrigðis- yfirvöldum. Vestmannaeyingar hafa ávallt tekið Kiwanismönnum vel þegar þeir hafa gengið í hús og selt K-lykilinn til styrktar geðsjúkum. Með von um að þar megi verða framhald á. Kiwanisfélagar í Vestmannaeyjum Bryndís Bogadóttir fararstjóri krakkanna: ÆVintýri sem seint gleymist Það kom í hlut Bryndísar Bogadóttur, kennara í Bamaskólanum, að vera fararstjóri krakkanna ijögurra til New- port. Auk Guðbjargar Erlu og Ríkharðs Amar vom með Hálfdán Helgason og Anna S Kristjánsdóttir frá Eskifirði, bæði 13 ára. Bryndís segir að ferðin hafi verið eitt ævintýri frá upphafi til enda og þama hafi hún og krakkamir upplifað eitthvað sem þau muni sennilega aldrei komast í snertingu við aftur. Einkum er það fjölmiðlafárið í kringum brottför Keikós frá Newport sem er henni efst í huga. Líka hvað allar mótttökur vom einstaklega vinsamlegar, allir vildu allt fyrir þau gera og sló gestrisnin út allt sem hún hafði kynnst áður. „Eg veit ekki hvers vegna Páll Marvin valdi mig en hann hringdi í mig og gerði mér þetta kostaboð, að fara í vikuferð til Bandaríkjanna með ijóra krakka," segir Bryndís sem ekki hafði heimsótt Bandaríkin áður. „Ferðin gekk ótrúlega vel og ég hefði aldrei trúað því að óreyndu hvað það gat gengið snurðulaust að ferðast með fjóra krakka aila þessa leið." Tímamismunur milli Islands og Newport er sjö klukkutímar og fór fyrsti dagurinn, mánudagurinn, í að venjast nýjum tíma. A þriðjudaginn skoðuðu þau safnið sem Keikó var í, annað náttúmgripasafn og vaxmynda- safn. „Safnið sem Keikó var í er mjög flott og þar fengum við að fara upp á búrið. Það fengu ekki aðrir gestir að gera." Miðvikudagurinn fór allur í að fylgjast með brottför Keikós og segir Bryndís að bæði henni og krökkunum hafi fundist nóg um allt ijölmiðlafárið. „Krakkamir vom í stöðugum viðtölum og vom orðin hundleið á því. Krakkamir frá Eskifirði em byrjuð að læra ensku en ekki okkar krakkar en samt björguðu þau sér ótrúlega vel. M.a.s. vom þau farin að tala saman á ensku en þeim fannst þetta of mikið og vom farin að fela sig til að losna undan fréttamönnunum." Bryndfs segir að sjálfri hafi sér fundist umstangið öfgakennt en tekur fram að þetta séu nú einu sinni Bandaríkin. „Það var mikil dramatík í kringum brottförina og fólk var að biðja okkur um að vera gott við hvalinn. Við hittum konu sem vildi láta krakkana kenna sér að segja bless á íslensku svo hún gæti kvatt hann á máli íslendinga. Mér fannst þetta alit nokkuð mikið og við Islendingar emm ekki vanir að láta svona. Alls staðar var sagt: -Verið góð við hvalinn," segir Bryndís. Allt fór Jdó vel að lokum og Keikó komst til Islands en þá tóku við þrír dagar í að skoða Newport og kynnast aðeins lífinu þar. Bryndís hafði komist í samband við skóla í Newport í gegnum Netið og var búið að skipuleggja dagskrá fyrir þau fösmdag og laugardag. Fóm þau í heimsókn í þrjá skóla. „Móttökumar voru frábærar og við mundum aldrei sjá nokkuð þessu likt hér á landi. Það var allt gert fyrir okkur. Einhver minntist á amerískan fótbolta og þá var því strax komið í kring að við kæmumst á leik hjá menntaskóla í bænum. Og á föstudeginum fór kona af skóla- skrifstofu með okkur í skoðunarferð um bæinn. Þessar mótttökur voru alveg einstakar." Heimleiðin gekk ekki eins hnökra- laust fyrir sig og ferðin út og bættist þar enn eitt ævintýrið í safnið. „Við flugum frá Newport til Portland. Þegar við komum þangað kom í ljós að flugfélagið sem Flugleiðir höfðu skráð okkur hjá var í verkfalli. Við urðum því að vera í sólarhring á flug- vallarhótelinu meðan málunum var bjargað. Daginn eftir flugum við til Denver, þaðan til Baltimore og svo loks heim," sagði Bryndís að lokum. Tilgangurinn með ferðinni er að koma á tengslum milli Vest- mannaeyja, Eskifjarðar og Newport. Bryndís segir að enn eigi eftir á ákveða með hvaða hætti það verði en á Netinu er í gangi verkefni, Hvalur og menn sem krakkamir taka þátt í.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.