Fréttir - Eyjafréttir - 29.10.1998, Side 1
25. árgangur • Vestmannaeyjum 29. október 1998 • 44. tölublað • Verð kr. 140,- • Sími: 481 3310 • Fax: 481 1293
Byr VE, sem er fyrsta sérútbúna túnfiskveiðiskipið, sem íslendingar eignast kom til heimahafnar í Vestmanna-
eyjum á sunnudagskvöldið. Byr heldur til veiða suður af landinu um næstu helgi. Sjá nánarábts. 8.
Tillaga um að slíta Eignarhaldsfélagi Brunabótafélagsins:
Hlutur Eyjamanna 140 milljónir
BæjarfulltrúarSjálfstæðisflokksins
hafa lagt til í bæjarráði Vest-
mannaeyja að Eignarhaldsfélagi
Brunabótafélagsins verði slitið og
eignum þess ráðstafað til trygg-
ingataka og sveitarfélaganna, eins
og lög þess gera ráð fyrir.
Heildareignir Eignarhaldsfélagsins
eru um það bil 3.7 milljarðar og
hlutur Vestmannaeyinga gæti því
orðið 140 milljónir.
Gagnkvæmir samningar hafa verið í
gangi milli sveitarfélaga og Eign-
arhaldsfélags Brunabótafélagsins
vegna brunatrygginga húseigna og
hafa arðgreiðslur til sveitarfélaganna
verið bundnar af tjónaferli bruna-
trygginga húseigna á hverjunt stað.
Eigendur félagsins eru fyrrum
tryggingartakar hjá Brunabótafélagi
íslands ásamt sameignarsjóði fé-
lagsins.
Hilmar Pálsson forstjóri Eignarhalds-
félagsins segir að Vestmannaeyjabær
hafi fengið 4.414.300 kr. þann 15.
október sl. frá Eignarhaldsfélaginu
sem er hlutdeild af 110 milljóna
ágóðahlut. „Ef sveitarfélögin ætla að
fara að segja upp samningum sínum
við Eignarhaldsfélagið mun sameign-
arsjóður sveitarfélaganna splundrast.
Vestmannaeyjabær gæti mögulega átt
hlutdeild upp á 15.000.000 í eitt skipti.
Höfuðstóll félagsins stendur hins
vegar saman af 104 þúsund vátrygg-
ingarskírteinum einstaklinga og
lögaðila sem myndu dreifast á margar
smáeiningar, ef félaginu yrði slitið.“
Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri
segir þetta vera sanngimismál þeirra
tryggingataka sem eiga þetta fé hjá
sjóðnum. „Ástæða þess að við flytj-
um þessa tillögu er sú að við teljum
heiðarlegra að borga þetta út til þeirra
sem eiga. Fé sjóðsins byggist á
iðgjöldum tryggingartaka Brunabóta-
félags íslands. Hins vegar erfist þessi
hlutur ekki milli einstaklinga, heldur
rennur hann til sveitarfélagsins við lát
tryggingartaka. Þetta finnst okkur
ósanngjamt."
Guðjón segir að ákveðin upphæð af
ágóðahlut félagsins sé eymarmerkt
sveitarfélögunum. ,J>að er sú upphæð
sem við fengum þann 15. október sl„
en gert er ráð fyrir að þessi upphæð
renni til brunavama."
I fyrra lá fyrir Alþingi frumvarp til
laga um slit á Eignarhaldsfélaginu
Brunabótafélagi íslands. Einar Oddur
Kristjánsson, Vilhjálmur Egilsson,
Pétur H. Blöndal og Einar K.
Guðfinnsson flytja frumvarpið.
Ákveðið hefur verið að leggja
frumvarpið fram á ný á þessu hausti.
Árið 1993 fól framkyæmdanefnd um
einkavæðingu þeim Áma Tómassyni
löggiltum endurskoðanda og Tryggva
Gunnarssyni hæstaréttarlögmanni að
taka saman álitsgerð um eignarhald á
Brunabótafélagi íslands. Segir meðal
annars í álitsgerðinni að hvorki
sveitarfélög í heild né þau sveit-
arfélög, sem gert hafa samninga við
BI um brunatryggingu fasteigna í
viðkomandi sveitarfélagi, teljist
eigendur BÍ. Þeim sveitarfélögum
sem gert hafa samning við BI um
slíkar tryggingar er hins vegar með
lögum fengin aðild að stjómun fé-
lagsins.
Ennfremur segir í álitsgerðinni að þar
sem BÍ hefur með höndum lögbundna
starfsemi verði því ekki slitið eða
eignum þess skipt upp nema Alþingi
breyti lögum um félagið eða bú þess
verði tekið til skipta við gjaldþrot.
Verði lög um BÍ felld úr gildi án þess
að jafnframt sé mælt fyrir um í lögum
hvemig ráðstafa skuli eignum fé-
lagsins, ber að skipta eignum félagsins
á rnilli þeirra sem eru félagsmenn í BÍ
á þeim tíma sent Iögin féllu úr gildi.
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 ■ sími 481
Bílaeign
Vestmanna-
eyinga
undir
meðaltali
Upplýsingar um bifreiðafjölda
frá Skráningarstofunni hf. gefa
til kynna að bílaeign Vest-
mannaeyinga sé minni en á
ýmsum öðrum stöðum á
landinu.
Tölumar sem byggðar eru á upp-
lýsingum síðasta árs sýna að um 44
bflar séu á hverja hundrað íbúa
eyjunnar, en bflamir eru um 2064
talsins.
Þegar bflafjöldi á höfuðborg-
arsvæðinu. Akureyri og Egils-
stöðum er kannaður til saman-
burðar kemur hins vegar í ljós að
heildarhlutfall bfla á höfðatölu þar
er töluvert hærri, eða um 55 á
hverja hundrað fbúa á höfuð-
borgarsvæðinu. 57 á Akureyri og
71 á Egilstöðum. Svipuð niður-
staða fæst þegar einungis
fólksbílaeign hvers staðar er
könnuð. Akureyri og Egilstaðir
skera sig þar úr með því að hlutfall
fólksbíla er tiltölulega lægri hluti
heildarbflaflota, eða um 46 á
hverja hundrað íbúa á Akureyri og
52 á Egilstöðum. Þá er fólks-
bflaeign á höfuðborgarsvæðinu um
49% af fólksfjölda og enn á ný
reka Vestmannaeyjar lestina með
um 37 bíla fyrir hverja hundrað
íbúa.
Sigurðurætlar
ekki í slaginn
I tilefni greinar sem birtist í
Morgunblaðinu þann 28.
október sl. hefur sá orðrómur
komist á kreik í bæjarfélaginu
að Sigurður Einarsson, forstjóri
Isfélagsins, stefni á fyrsta sæti á
lista sjálfstæðismanna á Suð-
urlandi. Aðspurður segir Sig-
urður ekkert vera hæft í þeim
orðrómi.
Greinin tjallar um framtíðarsýn í
íslenskum sjávarútvegi og hefur
hún vakið vangaveltur manna
hvort hér sé á ferð fyrsta skrefið í
átt til þess að taka sæti Þorsteins
Pálssonar sjávarútvegsráðherra.
Sigurður segist ekki vera á leið í
framboð og lítur því út fyrir að
Ámi Johnsen mæti ekki sam-
keppni á heimavelli.
AA Höf. er nemcmdi í hagnýtri
fjölmiðlun.
H)\ Herjólfur fer í slipp
Fagranesið siglir 10.október til 4. nóvember
Frá Eyjum Frá Þorl.höfn
Alladaga 8.15 13.00
Ucrfólfur
/mícni/U/ið
Sími 481 2800 Fax 481 2991