Fréttir - Eyjafréttir - 29.10.1998, Síða 9
Fimmtudagur 29. október 1998
Fréttir
9
Konur geta stj ómað en
þeirra stíll er öðm vísi
-Fréttir ræða við konur sem sitja við stjómvölinn í
fyrirtækjum og gera það á eigin forsendum
S
Eg er s veigj anlegur stj ómandi
-en ég veit hvað ég vil, segir Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir stöðvarstjóri íslandspósts í Eyjum
-Ég sé nú ekkí þingmanninn fyrir mér. Hins vegar veit enginn ævina fyrr en öll er segir SHpún Ima.
Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir er
stöðvarsjóri Islandspósts hf. í Vest-
mannaeyjum og hefur gegnt því starfi
í nærri þrjá manuði. Hún er einnig
forseti bæjarstjómar. auk þess sem
hún á sæti í þremur nefndum og er
formaður tveggja. Húnsegiraðefhún
líti til baka þá hafi kannski allt gerst
meira og hraðar í lífi hennar síðustu
fimm mánuðina heldur en síðustu
fimm árin.
Þegar ég kem til hennar á
skrifstofuna er nóg að gera hjá henni
og ekki að sjá að það fái neitt á hana.
„Bíddu aðeins ég þarf að klára smá
verkefni," segir hún. Ég bíð þolin-
móður. og spyr hana hverjir séu
möguleikar kvenna til þess að ná langt
á framabrautinni í Eyjum'?
„Ég held að markaðurinn sé frekar
þröngur héma, til þess að komast
áfram. Konur komast í þessi
hefðbundnu skrifstofustörf og sitja þar
dálítið fast, nema þær fari út í eigin
rekstur. Ef maður lítur í kringum sig
eru ekki margar konur í stjóm-
unarstöðum í fyrirtækjum og
stofnunum íEyjum. Égerþóekkiað
tala um fagfólk í heilbrigðis- og fé-
lagsmálageiranum í þessu sambandi.
Hins vegar er þó nokkuð um að konur
sjái um bókhald, pappírsvinnuna og
skrifstofuhaldið hjá fyrirtækjum sem
eru í einkageiranum, en þær eru hins
vegar ekki mjög sýnilegar út á við.“
Én í opinbera geiranum hér í
Eyjum'?
Ég hef ekki orðið vör við það, en
kannski skynja ég þetta svona. Þegar
ég kom inn í þetta samfélag aftur fyrir
þremur árum síðan fannst mér að ef
kona væri komin í stól á skrifstofu, þá
sitji hún svolítið fast og það væri ekki
mikil hreyftng í störfum. Kannski er
þetta að breytast ídag. Hinsvegareru
stjómunarstöður ekki auglýstar mikið
héma. í fljótu bragði man ég eftir
framkvæmdastjórastöðu hjá ÚV sem
auglýst var í vor.“
Sigrún hefur unnið áður hjá
fyrirtækinu, sem þá hét reyndar Póstur
og Sími, en heitir nú íslandspóstur hf.
Hún segist hafa víðtæka reynslu af
skrifstofustörfum og stjómunarstörf-
um, auk þess sem hún sé
heimamanneskja. Hún segir að þessi
atriði haft trúlega ráðið úrslitum um að
hún fékk starfið. „Ég byrjaði sem
gjaldkeri og var við það starf í níu
mánuði. þá losnaði staða fulltrúa
stöðvarstjóra sem ég sótti um og fékk
á sínum tíma og gegndi því starfi í tæp
tvö ár. Síðan losnaði staða stöðvar-
stjóra sem ég sótti um og fékk. Ég hef
hins vegar aldrei verið í stöðu
yfirmanns áður.“
Ertu komin á toppinn núna, eða ertu
kannski að íhuga framboð til
Alþingis'?
,Úg sé nú ekki þingmanninn fyrir
mér. Hins vegar veit enginn ævina
fyrr en öll er. Ég sá það til að mynda
ekki fyrir mér um áramót að ég yrði
komin í bæjarstjóm núna. hvað þá að
ég yrði orðin stöðvarstjóri Islands-
pósts nú. Hver veit hvað verður eftir
fjögur ár, en samt hygg ég að ég verði
farin að draga mig í hlé ef eitthvað
væri. Ég vil samt ekki útiloka neitt og
allra síst að ég yrði kannski minnt á
það eftir fjögur ár að hafa sagt að ég
ætlaði aldrei í framboð. Hugur minn
stefnir að minnsta kosti ekki þangað í
dag. Ég sé Alþingi íslendinga heldur
ekki fyrir mér sem skemmtilegan
vinnustað."
Er Islandspóstur skemmtilegur
vinnustaður'?
„Já mér finnst þetta mjög fjölbreytt
og skemmtilegt starf. Hjá Islandspósti
í Eyjum starfa engir karlmenn í dag.
Það em héma sautján konur og það er
gott að starfa hér.“
Hvemig skýrir þú þennan fjölda
kvenna'? Er það vegna þess að þetta
eru láglaunastörf að engir karlmenn
starfa hér?
„Þetta hefur verið meiri kvenna-
vinnustaður í Vestmannaeyjum og
vonandi verða launamálin sam-
bærilegri við það sem gerist annars
staðar á vinnumarkaði eftir að
fyrirtækið var gert að hlutafélagi.
Launastefnan er að minnsta kosti upp
á við í fyrirtækinu almennt."
Hefur þú eitthvað velt fyrir þér
hugtakinu, kona á framabraut'?
„Auðvitað hef ég átt mína drauma.
I gegnum tíðina hef ég alltaf haft
yfirmenn og í öllum tilvikum hafa það
verið karlmenn þar sem ég hef unnið.
Stundum sá maður að hægt var að
gera hlutina öðruvfsi og stundum
betur. Metnaðurinn var því til staðar,
en ég átti kannski ekki von á því þegar
ég flutti hingað, að lenda í þessari
tilteknu stöðu sem ég er nú í. En ég er
mjög sátt við hlutskipti mitt í dag og
verð ekki vör við neina kynjafordóma
vegna þeirra verkefna sem ég sinni í
mínu staifi. Ég hef líka mjög gaman
af því að vinna með fólki og það
kannski vegur þyngst."
Sigrún hefur mörgu að sinna fyrir
utan stöðvarastjórastaifið, því hún er í
bæjarstjóm og á sæti í þremur
nefndum á vegum bæjarins, fyrir utan
það að reka heimili. Að vísu er hún
ekki með börn heima, en kemstu yfir
þetta með góðu móti'?
„Einu sinni heyrði ég mjög góða
setningu, reyndar á ensku sem er
svona: If you want a job well done,
ask a busy man. í lauslegri þýðingu
gæti hún verið svona: Ef þú vilt
eitthvert verk framkvæmt, skaltu
spyrja önnum kafinn mann. Þetta
hefur setið í mér og ég er margbúin að
reyna þetta vegna þess að sá sem er
önnum kafinn skipuleggur tfma sinn.
Það er líka eitt sem ég hef tamið mér,
en það er að taka strax á verkefnum og
reyna að láta þau ekki safnast upp.“
Ertu harðstjóri sem yfirmaður?
„Égerákveðin. Það er alltaf sagt að
konur séu frekar og karlar ákveðnir.
Ég hins vegar veit hvað ég vil, en tel
mig líka sveigjanlegan yfirmann og
reyni að hlusta á fólk og taka á málum.
Fólk fær hins vegar svar, hvort sem
það er svo já eða nei. Ég er ekki já
manneskja." segir Sigrún Inga og
tekur hálsfestina, sem hún hefur
rórillað milli fingra sér á meðan
viðtalið fór fram og setur hana um
hálsinn.