Fréttir - Eyjafréttir - 21.01.1999, Síða 2
2
Fréttir
Fimmtudagur21. janúar 1999
lllðlagatrygging
bætir ekkl f oktión
Eitthvað virðist vera á reyki í
hugum fólks uiri hlutverk Viðlaga-
tryggingar Islands sem surnir halda
að bæti tjón af völdum foks. Heldur
fólk að Viðlagatrygging hlaupi
undir bagga þegai' vindur fer yfir 11
vindstig.
I reglugerð um Viðlagatryggingu
Islands kemur skýit fram að þetta er
ekki rétt og mun það vera vegna
þess að almennu tryggingafélögin
bjóða upp á foktryggingar. Skylt er
að tryggja hús öll og húseignir.
lausafé, tæki. áhöld, vörubirgðir og
vélar enda séu þessi verðmæti í
almennri tryggingu hjá vátrygg-
ingafélagi eða stofnun.
Viðlagatrygging nær til fimm
llokka tjóna I l'yrsta lagi tjóna af
völdunr eldgosa og hrauns og
öskufalls. í öðru lagi enr það tjón af
völdum jarðskjálfta og eldsvoða
sem getur hlotist af hans völdurn. í
þriðja lagi eru það tjón af völdum
snjóflóða en það telst ekki tjón
sligist þakið undan þunga af snjó. I
fjórða lagi em það tjón af völdum
aurkskriða og fimmta og síðasta
lagi vegna ílóða sem verða þegar ár
og lækir llæða yfir bakka sína eða
flóðbylgjur frá liafi eða vötnum
ganga á land og valda skemmdum
eða eyðileggingu á tryggðum eign-
um.
Hvergi er rninnst á foktjón.
TveirEyjamenn
Að gefnu tilefni vill Oli Rúnar
Ástþórsson frambjóðandi í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins á Suður-
landi koma eftirfarandi á framfæri
vegna pósts um prófkjörsmál í
síðasta blaði. þar sem sagt er að
einungis einn frambjóðandi sé úr
Eyjum: „Eg er og hef alltaf verið
Eyjamaður og mun halda áfram að
vera það, þó ég búi handan við
sundið. Það eru því tveir Vest-
mannaeyingar í framboði í
prófkjörinu og stefna báðir í fyrsta
sæti.“
Aldrei fleíri
nemendurennú
Á fundi skólamálaráðs í síðustu
viku kom fram að aldrei hefur verið
jafnfjölmennt í tónlistamámi og nú
við tónlistardeild Listaskólans.
Ekki er þó vitað nákvæmlega um
tjölda nemenda né heldur hvernig
hann skiptist milli hljóðfæra.
Á sama fundi kom einnig fram að
ekki hefði tekist að ráða tónlist-
arkennara í stað Wolfgangs Zeller,
sem lét af störfúm um áramót. Þær
Michelle Gaskell og Védís Guð-
mundsdóttir munu leysa kennslu-
þörfina fyrir þverflautu en aðrir
kennarar munu bæta við sig
kennslu.
lliðar vill byggia
Viðar Elíasson, útgerðarmaður
Narfa VE, hefur sótt um lóð á
hafnarsvæðinu til skipulagsnefndtu-.
Hyggst Viðar byggja hús fyrir
fiskvinnslu og útgerð og óskar eftir
lóð sem næst hafnarkanti og
fiskmarkaði. I umsókninni eru
lilgreindir þrír staðir sem mestur
áhugi er fyrir en þeir era lóð norðan
við minnismerkið inni í Botni, lóð
milli Eimskips og Fiskmarkaðs
Vestmannaeyja og lóð austan við
fyrirtækin Eiði og Kinn. Þessu
erindi Viðars var vísað til
hafnarstjórnar.
Skipulagsnefnd fundaði um miðbæinn
Verður byggt á
BaldurshagalóðinniP
I síðustu viku boðaði skipulagsnefnd
fund um skipulagsmál miðbæjarins
með hagsmunaaðilum á svæðinu.
Auk nefndarmanna og bæjarstjóra
sátu fundinn Páll Zóphóníasson og
Sigurjón Pálsson, eigendur Baldurs-
hagalóðarinnar; Benedikt Ragnarsson,
sparisjóðsstjóri; Sigurbjörg Axelsdótt-
ir, formaður Félags kaupsýslumanna;
Stefanía Jónasdóttir, eigandi Lantemu;
Guðmundur Sigfússon, eigandi Foto;
Bergur Sigmundsson, eigandi Vil-
bergs; Kolbeinn Olafsson, eigandi
Mozart og íbúi við Bárustíg og Georg
Þór Kristjánsson, íbúi við Bárustíg.
Þá sátu einnig fundinn Ingi Sigurðs-
son, byggingafulltrúi og Ólafur Ólafs-
son, tæknifræðingur.
Á þessum fundi kom m.a. fram hjá
þeim Páli og Sigurjóni að fengju þeir
samþykkt byggingarleyfi fyrir húsi á
Baldurshagalóðinni, þá myndu þeir
strax hefja framkvæmdir þar. Fullur
vilji virtist vera hjá fundarmönnum að
byggja í miðbænum og þá ekki
einungis skrifstofu- og verslunarhús-
næði heldur einnig íbúðarhúsnæði.
Einnig var bent á að í þeirri upp-
byggingu yrði að gera ráð fyrir
nægum bfiastæðum. Þá var bent á
nýja samþykkt ríkisstjómar um
menningarhús í Vestmannaeyjum og
bent á þann kost að staðsetja það í
miðbænum.
Talsvert var rætt um umferð á
Bárustígnum en efri hluti hans hefur
verið göngugata um langt skeið. Vom
flestir því hlynntir að taka upp hæga
umferð til norðurs á Bárustígnum
enda var á það bent að nú þegar væri
nokkur umferð um götuna. Þó lagðist
eigandi veiúngahússins Lantemu gegn
því að opna götuna fyrir umferð,
sagðist óttast að þá yrði gatan hluti af
„rúntinum" með mikilli umferð á
kvöldin. Einnig rnyndi slík opnun
skerða möguleikana á móttöku
ferðamanna á veitingastaðnum.
Georg Þór Kristjánsson, sem er einn
af fáum íbúum við Bámstíg, sagðist
fagna því ef byggt yrði í miðbænum.
Hann benti einnig á að niðurstaðan
sem fengist um framtíðarskipulag við
Bárustíg, yrði að þjóna heildar-
hagsmunum svæðisins en ekki hags-
munum einstakra aðila.
Æskulýðsfundir, kirkjuprakkarar,
TTT, og margt annað í Landakirkju
Æskulýðsstarf Landakirkjuog KFUM
og K er farið í gang að nýju eftir
áramót og er undirbúningur hafinn að
hópferð ungmenna á landsmót
æskulýðsfélaga um miðjan næsta
mánuð. Landsmótið verður í Vatna-
skógi 12.-14. febrúar fyrir unglinga í
8.-10. bekk. Hefur það alltaf verið hin
mesta upplifun að taka þátt í svona
móti þar sem 2-300 ungmenni koma
saman víðs vegar að af landinu.
Þátttakan á mótið er niðurgreidd að
hluta af sóknamefnd en allir fundir og
samverur hér í Eyjurn enj félögum að
kostnaðarlausu. Ópið hús er á fimmtu-
dagskvöldum kl. 20.30 í KFUM & K
húsinu og æskulýðsfundir eru í
safnaðarheimilinu kl. 20.30 á
sunnudagskvöldum. Gylfi, Skafti, ÓIi
Jói og Lilja eru helstu leiðtogamir.
Krakkar á aldrinum 7-9 ára (þeir
sem verða sjö ára á þessu ári geta
byrjað núna) hittast í Kirkju-
prökkurum á þriðjudögum kl. 16 í
safnaðarheimilinu. Nýir krakkar em
velkomnir og taka Óli Jói, Margrét og
María vel á móti þeim. Mörg
spennandi verkefni em framundan.
Tíu til tólf ára krakkar koma saman
undir merkinu TTT á fimmtudögum
kl. 17 í safnaðarheimilinu. Það eru
Skafti, Garðar og Guðrún Helga sem
leiða þann hóp og fást þau við eitt og
annað í starfinu. Stundum er farið í
heimsóknir en alltaf er farið í leiki og
sprell. Þeir krakkar sem gripu í tómt
síðasta fimmtudag em beðnir
velvirðingar á rangri tilkynningu sem
var send út, en núna hefst starfið
ömgglega, fimmtudaginn 21. janúar.
Bamaguðsþjónsta er alla sunnudaga
kl. 11 og em allir hjartanlega
velkomnir. Komnar eru nýjar bækur
með verkefnum og skemmtilegum
myndum til fróðleiks og upplifunar.
Barnaguðsþjónustan einkennist af
miklum söng, lofgjörð, sögum og leik.
Foreldrar em hvattir til að koma með
börnum sínum og styðja þau til
þátttöku.
Sérstakir foreldramorgnar eru í
safnaðarheimilinu á hveijum miðviku-
degi og hefjst þeir kl. 10 árdegis. Það
eru samverur sem ætlaðar eru fyrir
mæður og feður nýfæddra og ungra
bama.
Eyjamenn hafa verið þekktir fyrir
góða kirkjusókn um langan aldur.
Söfnuðurinn er því hvattur til þátttöku
í öllu kirkjulegu starfi til að halda uppi
þessu merki, en ekki síst til þátttöku í
almennum guðsþjónustum á sunnu-
dögum. Þess skal að lokum getið að
næsta sunnudag, 24. janúar, verður
aðalsafnaðarfundur eftir messu kl. 14,
og boðar sóknamefnd til hans.
Með bestu kveðju og
blessunaróskum,
sr. Kristján Björnsson.
Skemmdirá
gróðri
Einhverjir ófyrírleítnír ökumenn
hafa undanfarið gert sér leik að
hví að keyra upp um allar brekkur
ínní í Herjólfsdal. Sígurður
Jónsson Lv„ sem hér sést ásamt
Oddi Júlíussyni, segir að hetta sé
hinn mesti fautaskapur gegn
móður náttúru. Því hó snjór sé yfir
er hann ekki hað hykkur að nægi
til að hlífa gróðrinum. Eru hað hví
eindregin tilmæli Sigurðar að
menn láti af hessum Ijóta leik og
haldi sig við vegi og götur begar
heir hurfa að fá útrás fyrir
aksturshörf sína.
Margir vilja gerast
Ofanbyggjarar
Mikil ásókn er um þessar mundir í
land fyrir ofan hraun. Ekki er langt
síðan Árni Johnsen reisti sér hús
vestan Suðurgarðs og l’yrir skömmu
var greint frá því í Fréttum að
Sigfús Johnsen hefði sótt um leyfi
til að byggja hús í landi Suðurgíirðs.
En fleiri hafa nú bæst við. Á fundi
skipulagsnefndar í síðustu viku lá
fyrir urnsókn frá Val Andersen um
leyfi til að endurbyggja gömlu
útihúsin í Brekkuhúsi og innrétta
þar bílskúr og geymslur. Þá sækir
Valur einnig um að lá að byggja
hæð þar ofan á fyrir íbúð. Þá lá
fyrir fyrirspurn frá Guðrúnu Garð-
arsdóttur um byggingu íbúðæ'húss í
landi Eystra Þorlaugargerðis.
Einnig er fast sótt að fá
Draumbæjarlandið til afnota þó að
ekki sé til bygginga. Benedikt
Frímannsson hefur sótt urn 6400
fermetra landsvæði þar til skipu-
lagsnefndíu' og er landið ætlað til
trjá- og garðræktar. Hjá landnytja-
nefnd lá svo lyrir í síðustu viku
untsókn frá Pétri Steingrímssyni
um beitarrétt í Drauntbæjarlandi.
Þessi mál verða ekki afgreidd fyrr
en niðurstöður svonefndra tún-
samninga liggja fyrir, svo og
deiliskipulag fyrir svæðið fyrir ofan
hraun vegna bygginga þar.
flrgangur 75hefur
komiðsérupp
heimasíðu
Árgangur 1975 stefnir að því að
hittast í Vestmannaeyjum aðra
helgi í júní nk. Mikið verður urn
dýrðir enda miklir gleðipinnar á
ferð. Til þess að þjappa hópnuni
saman og gefa fólki tækifæri á að
fylgjast með hvemig undirbúningi
miðar og koma með tillögur hefur
árgangurinn komið sér upp heirna-
síðu. Slóðin er here.is/75
Nðgaðgeraí
óveðrinu
Lögregla hafði í nógu að snúast um
helgina. Ekki þó vegna baráttu við
lögbrjóta heldur vegna baráttu við
náttúruöflin eins og ítarlega er
greint frá í Fréttum í dag. Voru
mörg mál bókuð í dagbókina en
nær öll flokkuðust þau undir að
veita fólki aðstoð.
BraustinnáLundann
Á aðfaranótt mánudags var brotist
inn á veitingahúsið Lundann. Stóð
lögregla innbrotsþjófinn að verki
og var þar heimamaður á ferð. Sat
hann inni í 18 tíma vegna þessa.
Leítin hafín að Ungffrú
Suðurland1999
Keppnin Ungfrú Suðurland 1999
verður haldin að Hótel Örk 31.
mars nk. Skráning er á Hótel Örk
og hjá Eydísi í sírna 482-3837 á
kvöldin. Einnig era allar ábending-
ar vel þegnar. (Fréttatilkynning)
(FRÉTTIR
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
íþróttir: Rútur Snorrason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjómar: Strandvegi 47 li. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293.
Netfang/rafpóstur frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn. Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi,
Flugvallarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. í Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og i Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Efcirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.