Fréttir - Eyjafréttir - 21.01.1999, Blaðsíða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 21. janúar 1999
DCiúkliiufiu' ú(f nuiututerta
Eyþór Harðarson skoraði í síðustu viku
á Sigbjörn Oskarsson að taka við.
Sigbjöm er nýkominn
heiin til Eyja á ný frá
Noregi og tekur hér
við taumunum.
„Eg þakka „Dóra
popp" fyrir að skora á
mig. Hann var að tala
um einhverja norska
rétti en ég komst aldrei
almennilega upp á
lagið með þá og kem í staðinn með
nokkuð sem er bæði einfalt og gott.
Kjúklingur mcð appelsínum og
sítrónum
1 - 2 kjúklingar
1 appelsína
1 sítróna
Sósa:
4 dl barbecuesósa
safi úr 1 appelsínu
safi úr ‘/2 sítrónu
3 dl púðursykur
Athugið að sósan dugir fyrir tvo
kjúklinga.
Hlutið kjúklinginn í bita og raðið þeim
í eldfast mót. Skerið appelsínu og sítrónu
í sneiðar og raðið yfir.
Allt sem fara á í sósuna er soðið
Sigbjörn Óskarsson er
sælkeri vikunnar
saman í potti við vægan hita í 10 mínútur.
Hellið sósunni yfirkjúklingabitana, setjið
fatið í 180° heitan ofn og látið krauma
undir álpappír í 30 mín. Þá er álpappírinn
tekinn af og látið malla áfram í 20 - 30
mín. Berið fram með hrísgrjónum,
sojasósu, snittubrauði og salati.
Myntuostaterta
2 bollar súkkulaðikexmylsna
80 g brætt smjör
500 g hreinn rjómaostur
1 ‘/2 bolli sigtaður flórsykur
2 msk. Creme de Menthe líkjör
2 bollar þeyttur rjómi
Blandið saman súkkulaðimylsnu og
smjöri. Setjið bökunarpappír í botninn á
lausbotna móti. Þrýstið blöndunni t'
botninn og upp með hliðunum á mótinu.
Kælið. Hrærið rjómaostinn með flór-
sykrinum og bætið líkjör út í. Blandið
rjómanum saman við. Hellið fyllingunni
í súkkulaðiskelina og látið kólna í nokkrar
klukkustundir. Takið úr mótinu og
skreytið með rifnu súkkulaði.
Það er rétt að halda sælkeranum enn
um sinn innan handboltans og ættarinnar.
Ég ætla að skora á frænda minn Halla
„vippu" Hannesar, vamaijaxl, rafvirkja og
skipstjóraefni. Ég hef fyrir satt að hann sé
rosalega flínkur kokkur.
O r ð s p o r
Það vakti nokkra athygli í Eyjum þegar
sagt var í frétt Rfkissjónvarpsins í
vikunni að Samkór Vestmannaeyja
hefði fengið allt að hálfrar milljón króna
styrk frá Norðurlandaráði. Það kom
hins vegar í Ijós að enginn kannaðist við
að hafa sótt um styrk til kórsins í sjóði
ráðsins Það hefur þó ekki valdið
mönnum vandræðum með að finna
skýringu á þessum misskilda mis-
skilningi. Ein er sú að langduglegasti
og einn frumvarpaglaðasti þingmaðurá
íslandi og jafvel þó víðar væri leitað
hefði sótt um styrkinn í ofvirknikasti og
gleymt að láta hlutaðeigandi vita. í frétt
sjónvarpsins var einnig getið um að
styrkurinn rynni til kórsins vegna söngs
og dans. Vakti það ekki síðurfurðu að
kórinn ætlaði að fara að leggja fyrir sig
dans líka. Hinir spaugsömustu menn
hafa þó séð kórlimi fyrir sér í hinum
ýmsustu dansstellingum og þá heldur
fáklædda.
5lWfi SEGJtmÉGNÉ
SKIININGSRÍK
Eins og fram kemur annars staðar íbiaðinu hefur ekki
tekistað fastráða kennara að Tónlistarskólanum á
þverflautu í stað Wolfgangs Zeller sem fluttihéðan um
sl. áramót. En málin hafa veríð leyst með því að þær
Mlchelle Gaskellog Védís Guðmundsdóttir sjá um
kennsluna. Védís er langyngsti kennarinn við skólann
og raunar í Eyjum. Hún á þó ekki metið þvlað fyrir
nokkrum árum kenndi Ásgerður Hulda Guðmundsdóttir
á píanó og varþá aðeins 15 ára. Raunar aðstoðaði
hún Guðmund skólastjóra við kennslu en Védís ber
fulla ábyrgð á sínum nemendum. Védís er Eyjamaður
vikunnar.
Fulltnafn? Védís Guðmundsdóttir.
Fæðingardagur og ár? 24. maí
1982.
Fæðingarstaður?
Vestmannaeyjar.
Fjölskylduhagir? Bý í foreldrahúsum hjá
foreldrum mínum, Guðmundi og Deng. Égá
eina systur, Rósu og hálfbróður, Ágúst
Herbert.
Menntun og starf? Erá fyrsta árí ÍFÍV.
Kenni á þverflautu í Listaskóla
Vestmannaeyja.
Laun? Þau eru ágæt.
Helsti galli? Ég get verið alger frekja og
óþolinmóð. Sérstaklega bitnar það á
foreldrunum.
Helsti kostur? Sumir segja að ég sé
skilningsrík.
Uppáhaldsmatur? Allt að hætti mömmu.
Versti matur? Hákarí. Svo er ég ekki hrifin
aföllum þorramatnum.
Uppáhaldsdrykkur? Appelsínusafi.
Uppáhaldstónlist? Allt frá rokki upp í klassík
Védís Guðmundsdóttir
er Eyjamaður vikunnar
og allt þar á milli. Geri ekki upp á milli í tónlistinni.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Kaupa föt og
glápa á sjónvarp.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Mér finnst leiðinlegt ef
ég er ósátt við einhvem.
Hvað myndirðu gera efþú ynnir milljón i happdrætti? Skoða
heiminn, hiklaust.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Enginn.
Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap? Lúðrasveit
Vestmannaeyja.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Simpsons, Fríends og fræðsluþættir.
Uppáhaldsbók? Alfræði unga fólksins og Þjóð bjamaríns mikla.
Hvað metur þú mest í fari annarra? Heiðarleika og stundvísi.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari
annarra? Óstundvísi og baknag.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á ?
París að kvöldi til.
Hve lengi hefurþú spilað á flautu? Íníu
ár. Ég er á 6. stigi, tek það eftir viku en stigin
eruallsátta.
Hvernig líkar þér að kenna öðrum ? Mjög
vel. Éger ánægð aðgeta miðlað minni
reynslu tilannarra.
Ertu strangur kennari? Nei, það get ég ekki
sagt.
Hvað dettur þéríhug þegar þú heyrir
þessi orð?
Tónlist? Skemmtun og gleði.
Flauta? Stórkostlegur hlutur, tónlist.
■Guðmundur kantor? Þó að hann sé pabbi
minn þá finnst mér hann stundum furðulegur
náungi.
Eitthvað að lokum? Já, takkfyrírmig. Ég
vona að allir finni ánægju i lífinu.
Þann 16. nóvember eignuðust Gyða Arnórsdóttir og Sigmar Helgason
dóttur. Hún vó 14 merkur og var 52 1/2 sm að lengd. Hún hefur verið
skírð Berglind. Hún fæddist á fæðingardeild Landsspítalans. Ljósmóðir
var Halla Hersteinsdóttir. Fjölskyidan býr í Reykjavík.
Þann 2. desember eignuðust Jóna Björk Grétarsdóttir og Grétar
Omarsson dóttur. Hún vó 11 merkur og var 491/2 sm að lengd. Hún
hefur verið nefnd Margrét Björk. Hún fæddist á fæðingardeild
Landsspítalans. Fjölskyldan býr í Reykjavík.
Þann 3. janúar eignuðust Kristbjörg Oddný Þórðardóttir og Arnar
Richardsson dóttur. Hún vó 17 merkur og var 54 sm að lengd. Með
henni á myndinni er stóra systir Bertha María. Ljósmóðir var Drífa
Björnsdóttir.
A döfirin i
21. janúcir Heimili og skóli. Fundur í Sal Bamaskólans
23. janúar Almennurfundur umjjölmiðla í Vestmannaeyjum verður í Asgarði Þorrablót Kiwanis, Oddfellow og Austfirðinga
23. janúar 26 úr liðinfrá gosinu í Heimaey