Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 21.01.1999, Page 8

Fréttir - Eyjafréttir - 21.01.1999, Page 8
8 Fréttir Fimmtudagur21.janúar 1999 Mikill atgangur í norðanbáli á laugardagsmorguninn: Lögregla og björgunarlið höfðu ekki undan hegar mest gekk á -Engin slys á fólki og hvergi mikið tjón Norðan bálið sem gerði á aðfaranótt laugardagsins stóð ekki nema í um tvo og hálfan klukkutíma að sögn lögreglu. Lætin byrjuðu rétt fyrir klukkan þrjú og voru þau að mestu gengin yfir þegar leið á sjötta tímann um morguninn. A þessu tímabili höfðu lögregla og félagar í Björgunartélaginu vart undan að sinna útköllum. Tilkynnt var um báta sem losnuðu í höfninni, þak sem fauk af bílskúr, lausar plötur, rúðubrot um leið og reynt var eftir mætti að koma fólki heim sem hafði verið að skemmta sér. „Það fór að lifna yfir þessu um þrjúleytið þegar loðnuskipið Gígja VE losnaði að aftan og Gandí VE losnaði að einhverju leyti,“ sagði lögreglumaður sem rætt var við um viðburði næturinnar. „Með aðstoð Björgunarfélagsmanna, sem þegar voru í viðbragðsstöðu, tókst að festa landfestar á Gígju. Eftir það má segja að sírninn hafi ekki stoppað næstu klukkutímana. Fótboltamark hafði fokið á Ashamar 55, beðið var um aðstoð við að loka útihurð, þakplötur losnuðu af húsi númer tvö við Herjólfsgötu og svona mætti lengi halda áfram. Við Friðarhöfn var allt vitlaust og varð að kalla út hafnarstarfsmenn vegna gáma sem fóru af stað og fiskikara sent l'uku eins hráviði um allt. Þá fauk þak af bílskúr við Boðaslóð og tilkynnt var um nokkur rúðubrot. Um klukkan hálf fimm fauk gámur í höfnina og slóst utan í Herjólf. Ekki er vitað hvort eitthvert tjón varð en sennilega hefur mesta tjónið orðið þegar gámur fauk á trilluna Vonina VE sem stóð á þurru austan við Tangahúsin. Veðrið var að mestu gengið niður klukkan sex en það voru að berast inn tilkynningar um tjón allan laugrdaginn," sagði lögreglumaðurinn. Um fjörutlu fiskikör fuku upp í hlíðarnar fyrir ofan Friðarhöfn og var verið að safna heim saman á mánudaginn. Árni Karl Ingason var við hann starfa. Formaður Björgunarfélagsins: Vorum í við- bragðsstöðu Adolf Þórsson, formaður Björg- unarfélags Vestmannaeyja, segir að kall hati komið frá lögreglunni um klukkan 2.45 cn menn hafi þá þegar verið í startholunum vegna slæmrar veðurspár. „Það var strax mikið að gera og flæddu inn beiðnir um aðstoð," sagði Adolf. „Við vorum 15 til 20 úti í tveimur og þremur hópum og höfðum meira en nóg að gera á meðan lætin voru hvað mest. Við aðstoðuðum fólk fólk eftir mætli en við urðum að meta þörfina hverju sinni og hvert tilvik fyrir sig. Bátar og trillur slitnuðu upp, húsþök opnuðust, rúður brotnuðu og svo mætti lengi telja. Við reyndum að spila þetta af fingrum fram og höfðum það að leiðarljósi að koma í veg fyrir frekara tjón á fólki, tækjum og fasteignum," sagði Adolf. Hann segir þetta með verstu veðrum þó það jafnist ekki á við óveðrið 1992. „Það var mjög hvasst og komu ægilegar hviður. Þá urðu menn að halda sér í ljósastaura til að Ijúka ekki. Það er ljóst að menn gera ekki mikið við svona skilyrði og því er aðalmarkmiðið að sjá til þess að tjón verði ekki meira en orðið er. I flestum tilfellum varð tjón ekki mikið. Eitt versta tjónið varð á húsi við Hásteinsveg þar sem allt jám og klæðning hreinsaðist af niður í sperrur,“ sagði Adolf að lokum. ÓskarJ. Sigurðsson vitavörður í Stórhöfða: Ekki versta veður vetrarins -Vindhraðinn komst mest í 93 hnúta á laugardaginn en tvisvar fyrir áramót fór vindstyrkur yfir 100 hnúta Þó að mörgum þætti nóg um veðurhaminn aðfaranótt laugar- dagsins og fram yfir hádegi á laugardag, segir Oskar Sigurðsson, vitavörður í Stórhöfða, að þetta sé ekki það hvassasta sem hann hefur séð í vetur. „Hann hefur tvisvar í vetur orðið hvassari," sagði Oskar en í þetta skiptið blés hann að norðan en í hin tvö skiptin var um austan átt að ræða. „Veðrið var á engan hátt sérstakt en það var ansi byljótt. Mestur varð vindhraðinn 93 hnútar í einni hviðu. Það var upp úr klukkan 3 á laugar- dagsnóttina en þann 14. desember sl. fór vindurinn upp í 114 hnúta og veðrið var litlu minna þann 7. nóvember í haust. Þá hefur það komið fyrir þrisvar sinnum í vetur að olíumöl hefur flest af veginum upp í Höfðann en það gerðist ekki núna. Mesti meðalvindur var svo eftir hádegið þegar hann stóð í 75 hnútum," sagði Oskar en tólf vindstig eru 65 hnútar. „Annars held ég að norðanáttin sé verri í bænum en uppi á landi.“ Hann segir að veturinn núna sé ólíkur vetrinum í fyrra sem var einstaklega rólegur. „En þetta er ekkert óvenjulegur vetur og það má alltaf búast við sterkum veðrum á þessum tíma.“ Eins og komið hefur fram í fréttum var lægðin, sem veðrinu olli, með dýpstu lægðum sem komið hefur inn á Norður-Atlantshaf á öldinni, fór niður í 920 millibör. Óskar segir að 930 millibör séu minnsti loftþrýstingur sem hann hafi mælt en lægsti loftþrýstingur sem mælst hefur hér á landi mældist á Stórhöfða var 919,8 Um 30 tilkynningar um tjón Samkvæmt upplýsingum hjá stærstu tryggingafélögunum, Sjóvá- Almennum, Tryggingamiðstöðinni og VÍS, lætur nærri að þeim hafi borist ?? tilkynningar um tjón í veðrinu á laugardaginn. Ekki liggur enn fyrir hvað tjónið er mikið í krónum en Ijóst má vera að það skiptir einhvcrjum milljónum króna. Guðbjörg Karlsdóttir hjá Tryggingamiðstöðinni, segir að engin tilkynning um stórtjón hafi borist félaginu. „í allt hafa okkur borist um tíu tilkynningar og í engu tilfelli er um mikið tjón að ræða. Þau eru minni en oft áður en það sem gerist núna er að nú hefur orðið tjón bæjarhlutum sem hafa yfirleitt sloppið. A ég þar við miðbæinn sem virðist fara verr út úr norðanáttinni en austanáttinni," sagði Guðbjörg. Kristín Georgsdóttir hjá VÍS segir að tjónið geti varla talist mikið miðað við veðurhaminn. „Það hefði mátt búast við miklu meira tjóni og þetta er ekkert í líkingu við veðrið 1991. Við höfum fengið inn sex eða átta tilkynningar en það er ómögulegt að segja til um fjárhæðir. Auk þess hafa tveir komið til okkar sem eru aðeins með bmnatryggingu en hún bætir ekki foktjón. Það sama gildir um Við- lagatryggingu vegna þess að hægt er að kaupa foktryggingu á almennum markaði," sagði Kristín. millibör árið 1929. „Ég hef heyrt að þá hafi gengið eitt versta austan veður, sem sögur fara af, yfir landið.“ Þegar Óskar er spurður um hitafar í vetur segir hann að byrjun desember hafi verið mild og úrkoma var mikil. „Síðan hefur kólnað þannig að hitinn gæti verið nálægt meðaltali." Aðalsteinn Sigurjónsson, umboðs- maður Sjóvá-Almennra, sagði að þeim hefðu borist tæplega tíu til- kynningar um tjón og hefði það verið mest í tveimur tilfellum. „Annars held ég að við höfum sloppið vel miðað við veðurhaminn. Enda á það ekki að koma Eyjamönnum á óvart þó að hann blási hressilega," sagði Aðal- steinn sem var einn þeirra sem svaf af sér veðrið. Jón Bragi Arnarsson lögreglumaður: Hefaldrei séð annað einsveður Jón Bragi Arnarsson, lög- reglumaður, var að störfum um nóttina og segist hann aldrei hafa lent í öðrum eins veðurham. „Veðrið var alveg kolklikkað og það skall á allt í einu. Það var mest að gera hjá okkur á bryggjunum. Ég hef aldrei séð annað eins veður. Fiskikörin fuku um alla Friðarhöfn og upp um brekkur og maður stóð varla í lappimar í verstu hviðunum. Ég var ekki á vakt í mikla veðrinu 1992 en þetta er versta veður sem ég hef lent í,“ sagði Jón Bragi.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.