Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 21.01.1999, Side 13

Fréttir - Eyjafréttir - 21.01.1999, Side 13
Fimmtudagur 21. janúar 1999 Fréttir 13 framboðshmdw i Ásgarði Ólafur Björnsson mun kynna sig og stefnumál sín á framboðsfundi í Ásgarði, föstudaginn 22. janúar kl. 20:00. Meðal þess sem Ólafur vill beita sér fyrir komist hann á þing er að... ...samgöngumál verði bætt, t.d. með uppbyggingu flugvallarins í Eyjum og Bakkaflugvallar... ...fjölbreytni í atvinnumálum Eyjamanna verði aukin... ...styrkja höfnina í Eyjum sem útflutninghöfn... ...koma upp frekara fjarnámi frá HÍ og auka menntun á öllum sviðum... Fjölmennum á fundinn og kynnum okkur málin! Við styðjum Óla Björns heilshugar á þing Svanhildur Sigurðardóttir Vestmannaeyjum Kjartan Sveinsson Biskupstungum Eva Kóradóttir Vestmannaeyjum Grétar Þór Sævaldason Vestmannaeyjum Ragnar Sær Ragnarsson Biskupstungum Sigurður Sigurjónsson Selfossi Kristý Tryggvadóttir Vestmannaeyjum Ólafur Einarsson Biskupstungum íris Þórðardóttir Vestmannaeyjum Guðbjörg Viðarsdóttir Vestmannaeyjum Gunnar Þorgeirsson Grímsnesi Hanna Hjartardóttir Kirkjubæjarkl. Ragnar Þ. Jónasson Vestmannaeyjum Jens Uwe Friðriksson Selfossi Alda Andrésar Hveragerði Sigurlaug Stefónsdóttir Vestmannaeyjum Emelía Granz Selfossi Pétur Þórðarson Hveragerði Yngvi Borgþórsson Vestmannaeyjum Sigurður Ingi Jóhannsson Hrunamannahr. BrynjarH. Guðmundssor Þorlókshöfn Ólafur Týr Guðjónsson Vestmannaeyjum Óskar G. Jónsson Selfossi Ingvi Þór Magnússon Þorlókshöfn Ólafur J. Borgþórsson Vestmannaeyjum Samúel Smóri Hreggviðsson Selfossi Karl Björnsson Vestmannaeyjum Ingunn Guðmundsdóttir Selfossi Auðunn Hermannsson Selfossi Jón G. Valgeirsson Vestmannaeyjum Kynnið ykkur málefnin á heimasíðunni - http://www.olafur.is Atvinna Starfskraftur óskast til afgreiðslu- og lagerstarfa hálfan eða allan daginn. Tölvukunnátta æskileg. Upplýsingar á skrifstofu okkar að Strandvegi 75. H. Sigurmundsson ehf. Trillukarlar Aðalfundur Farsæls verður haldinn í húsakynnum Sjóstangveiðifélagsins þann 23. janúar nk. kl. 18.00. Allirmæti. Stjórnin. Hæsii- rétmr dæmir siúklingi bætur -sem héraösdómur hafðihafnað Fallinn er í Hæstarétti dómur í máli Ingólfs Þorsteinssonar gegn Bimi ívari Karlssyni fyrr- verandi yfirlækni við Sjúkrahús Vestmannaeyja. Stefndi, Björn ívar, var sýknaður í Héraðs- dómi Suðurlands, en Ingólfur áfrýjaði málinu til Hæstaréttar. Samkvæmt því sem fram kom í héraðsdómi taldi áfrýjandi að greining stefnda á orsökum smella í vinstri olnboga áfrýjanda hafi verið röng og uppskurður hafi verið óþarfur þar sem um minni háttar óþægindi hafi verið að ræða og stefnda hafi síðan orðið á saknæm mistök við aðgeðina þegar hann flutti ölnartaug í oln- boganum. Hann hafi flutt taugina á of stuttu svæði þannig að of krappar beygjur hafi verið á tauginni. Þá hafi hann ekki fest taugina niður á réttan hátt og stafi varanleg örotka áfrýjanda frá aðgerð stefnda. Stefndi telur ákvörðun sína unt aðgerð hafa verið fullkomlega eðlilega og við aðgerðina hafi komið í ljós að taugin væri laus og gengið frá henni með viður- kenndri aðferð. Þegar féstumeinið hafi verið greint rúmlega mánuði eftir aðgerðina hafi ekkert bent til þess að það myndi valda þeim óskunda sem síðar kom í Ijós og eftir þann tíma hafi stefndi enga ábyrgð á áfrýjanda. Fyrir héraðsdómi leitaði áfrýj- andi til tveggja sérfræðinga í tauga- og bæklunarskurðlækning- urn og töldu þeir að fyrsta aðgerðin hefði verið óþörf. Féllst læknaráð á rökstuðning þeirra. Læknarnir ena þeirrar skoðunar að sá varanlegi skaði á tauginni, sem áfrýjandi býr við, stafi frá að- gerðinni. Einnig telja héraðsdóm- arar að ekki yrði horft framhjá þeim drætti sem varð á eftir að festumeinið var ljóst og gripið til viðeigandi ráðstafana. Eigi sá dráttur umtalsverðan þátt í örorku áfrýjanda. Verði því ráðið að stefndi réðst í aðgerð sem ekki var sérstök þörf á. Eftir að ljóst var að aðgerðin leiddi til frekari einkenna og stefndi greip ekki þegar til ráð- stafana til að fyrirbyggja tjón telur Hæstiréttur tjón áfrýjanda því stafa frá aðgerðinni og stefnda gert að gteiða honum bætur. Varanleg læknisfræðileg örorka Ingólfs vegna aðgerðarinnar er metin I0% og heildarbætur til hans hæfilega meinar 2.7 milljónir kr. með vöxtum, stefndi greiði og áfrýjanda málskostnað í héraði og fyrir Hæstrétti. Málið dæmdu Pétur Kr. Hafstein, Guðrún Er- lendsdóttir, Haraldur Henrysson, Hjörtur Torfason, og Hrafn Bragason.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.