Fréttir - Eyjafréttir - 21.01.1999, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 21. janúar 1999
Fréttir
17
LoönuvertíÖ hafín þó enn hafí engin loöna borisf til Eyja:
Menn bjartsýnir á góða vertíð
Loðnuvertíð er hafin og menn komnir
í startholumar í Vestmannaeyjum þótt
enn hafi ekki borist loðna hingað.
Sighvatur Bjamason, framkvæmda-
stjóri Vinnslustöðvarinnar, segir að a
síðustu vikum hafi verð á mjöli og lýsi
lækkað nokkuð. Markaðurinn sé
rólegur um þessar mundir og lítið um
að vera. Vinnslustöðin átti litlar
birgðir um áramót og var þegar búið
að selja megnið af þeim á viðunandi
verði.
Sighvatur segir að útlit sé fyrir að
verð á mjöli og lýsi verði lægra en á
síðustu vertíð en þó nokkuð hátt. Búið
er að selja nokkurt magn fyrirfram á
viðunandi verði sem er yfir núverandi
markaðsverði. En verð á lýsi hefur
dalað talsvert og er mun lægra en í
fyrra.
Þegar kemur að frystum afurðum er
staðan betri. Mikil eftirspum er eftir
íslenskri loðnu og segir Sighvatur að
fyrirtækið hafi unnið sér sess með
stöðugum gæðum afurða. Kaupendur
em tilbúnir að taka allt það magn sem
unnt er að frysta á Japansmarkað og
verðið er stöðugt, miðað við árið í
fyrra. Þá hefur staða yensins styrkst
nokkuð þannig að útlitið er bjart.
Sighvatur segir að markaður fyrir
loðnuhrogn hafi minnkað mikið á
liðnum ámm og sé aðeins svipur hjá
sjón miðað við það sem var. Framboð
er oftast meira en eftirspum og það
þýðir lægra verð. Markaðurinn í
Japan tekur við rúmlega 3000 tonnum
en afkastageta Vinnslustöðvarinnar á
þeim tíu dögum, sem vinnslan stendur
yfir, er um helmingur þess magns. En
fyrirtækið hefur sterka stöðu á
markaðinum og unnið hefur verið að
því að fínna nýja kaupendur að
hrognum. Utlitið er því þokkalegt að
því gefnu að ekki verði um offramboð
að ræða frá íslenskum framleiðendum.
Tvö skip frá Vinnslustöðinni verða á
loðnuveiðum í vetur, Kap og Sighvat-
ur Bjamason. Kvóti þeirra var í fyrra
tæp 60 þúsund tonn en ekki vitað hver
endanlegur kvóti verður í ár.
Frá Isfélagi Vestmannaeyja verða
þrjú skip á loðnu í vetur, a.m.k. fyrst
um sinn, Antares, Gígja og Sigurður.
Guðmundur verður áífam undir græn-
lensku flaggi og það fer eftir
endanlegri úthlutun kvóta hvort
Heimaey fer einnig til loðnuveiða.
Loðnuafli Isfélagsskipanna var í fyrra
106.000 tonn en aflinn í haust nam
19.000 tonnum. Isfélagið hefur yfir að
ráða um 10% af heildarkvóta Is-
lendinga.
Sigurður Einarsson, forstjóri Isfé-
lagsins, segir að í vetur sé horft með
bjartsýni til loðnuvinnslunnar, ekki
síst þar sem ný og endurbætt bræðsla
hafi verið tekin í gagnið. Tekið hafi
verið á móti bæði síld og loðnu í haust
og allur tækjabúnaður reynst vel.
Afkastageta verksmiðjunnar hefur
aukist vemlega og sagðist Sigurður
reikna með að tekið yrði á móti 35 -
40 þúsund tonnum í vetur ef allt gengi
að óskum.
Verðþróun á mjöli og lýsi hefur verið
fremur óhagstæð að undanfömu og
gæti það sett nokkurt strik í
reikninginn. Þó verður að gæta þess
að verð á þessum afurðum hefur verið
mjög hátt fram til þessa.
Sigurður sagði að stefnt væri að því
að frysta loðnu í báðum húsum
fyrirtækisins, bæði vesturfrá og
austurfrá. En að þessu sinni verður
einungis fryst á Japansmarkað, ekkert
á Rússlandsmarkað. Útlitið mætti
vera betra í markaðsmálum, að sögn
Sigurðar. Því veldur helst sú ijárhags-
kreppa sem verið hefur í Japan svo og
aukin samkeppni frá Kanadamönnum
og Norðmönnum.
„Og við vitum auðvitað ekkert um
það magn sem við komum til með að
frysta í vetur. Þar skiptir stærð
loðnunnar vemlegu máli en í fyrra var
hún smá og það var okkur óhagstætt.
Við vonum bara að þetta verði betra
núna," sagði Sigurður Einarsson.
Siggi Bjarni og flrnar eru í startholunum fyrir loðnuvertíðína og vonast eftir mikillí mjölframleíðslu.
Almennur opinn
pallborösfundur
um fjölmiðla í
Vestmannaeyjum
Pallborðsfundur verður í Ásgarði
laugardaginn 23. janúar, kl. 12:00
Fundarefni:
Fjölmiðlar í Vestmannaeyjum
Á palli sitja:
Bjarni Jónasson, útvarpsstjóri
Gísli Óskarsson, kennari og fréttaritari
Guðbjörg Hildur Kolbeins, lektor í hagnýtri fjölmiðlun við Háskóla íslands
Hermann Einarsson, útgefandi
Ómar Garðarsson, ritstjóri
Umræðustjóri: Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir
Fundurinn er opinn fyrir alla bæjarbúa, sem áhuga hafa á að kynna sér þetta áhugaverða
mál.
Umræður. Fyrirspurnir.
Hver er staða fjölmiðlunar í Vestmannaeyjum?
Hvað segir lektor í Háskólanum um fjölmiðla í Vestmannaeyjum?
Hvað segja fjölmiðlamennirnir sjálfir?
Boðið verður upp á súpu og kaffi gegn 500 kr. gjaldi.
Sjálfstæðisfélögin
Héraðsdómur Suðurlands:
Vann mál
gegn ísfélaginu
Fallinn er dómur í Héraðsdómi
Suðurlands í máli Gunnars Þórs
Þorbergssonar gegn Isfélagi Vest-
mannaeyja.
Málsatvik voru þau að Gunnar Þór
féll í stiga við vinnu sína í fiski-
mjölsverksmiðju félagsins íjúlí I993.
Við fallið klemmdist vinstri fótur
stefnanda undir einu þrepi stigans og
brotnaði á hæl og sperrilegg. Ekki
voru vitni að slysinu, en atvik talin
óumdeild. Stefnandi telur stefnda
bótaskyldan vegna tjóns sem hann
hlaut af vinnuslysinu samkvæmt
reglum um húsbóndaábyrgð og á-
byrgð vinnuveitanda á aðbúnaði á
vinnustað.
Stefndi telur að slysið verði rakið til
aðgæsluleysis stefnanda sjálfs og því
eigi hann sjálfur sök á því og stefndi
sýknaður, en til vara að verulegur hluti
sakar á slysinu verði lagður á stefn-
anda og bætur því skertar vegna eigin
sakar.
I niðurstöðu segir meðal annars að
vinnuveitandi verði bótaskyldur gagn-
vart starfsmönnum sínum vegna
meiðsla er þeir hljóta vegna ófull-
nægjandi aðbúnaðar á vinnustað eða
vanbúinna áhalda sem þeim eru lálin í
té til notkunar við vinnu. Auk þess
verði stefnda ekki metið til eigin sakar
að hafa ekki gert sérstakar ráðstafanir
til að daraga úr hættu sem þarna
skapaðist. Bótaskylda stefnda er því
viðurkennd og verður stefnda gert að
greiða stefnanda óskertar bætur, þar
sem eigin sök hans verður ekki að
neinu leyti um slysið kennt.
í dómsorði segir að stefndi, ísfélag
Vestmannaeyja hf. greiði stefnda
Gunnari Þór Þorbergssyni kr.
1.195.753 kr með 2% vöxtum frá 7.
júlí 1993 til 16. ágúst 1996, en með
dráttarvöxtum frá þeim degi til
greiðsludags og kr 350.000 í
málskostnað. Dóminn kvað upp Jón
Finnbjömsson