Fréttir - Eyjafréttir - 28.10.1999, Qupperneq 2
2
Fréttir
Fimmtudagurinn 28. október 1998
Nemendur í Hagnýtri fjölmiðlun við Háskóla íslands hafa dvalið í Vestmannaeyjum
síðan á sunnudagskvöld og unnið við blaðamennsku á Fréttum. Þetta er í fjórða sinn
*
sem fjölmiðlanemar koma til starfa á Fréttum og setja svip sinn á mannlífíð. I
blaðinu í dag munu lesendur sjá sitthvað af efni því sem þessir góðu gestir hafa unnið
að í Eyjum. Á myndinni má sjá þann hluta hópsins sem kom til Eyja: Fv. Halldór
/ /
Jón Garðarsson, María Olafsdóttir, Jakobína Birna Zoéga, Omar Kristinsson,
Kolbrún Þorsteinsdóttir, Nína Björk Jónsdóttir, Kristján J. Kristjánsson, Bergþóra
Njála Guðmundsdóttir, Hlm Jóhannesdóttir og Ingibjörg Ólafsdóttir.
Útgerð Dala-Rafns
Vistvænir útgerðarmenn
Þórður Rafn Sigurðsson, útgerðarmaður, harla ánægður með nýja
sorpgáminn um borð í Dala-Rafni VE.
fréttir
Fleiri bókanír
Nokkuð fjölgaði bókunum í
dagbók lögreglu í síðustu viku, frá
því sem verið hefur. Alls voru 184
færslur í bókinni og er heista
skýringin sú að töluverður fjöldi
bifreiðaeigenda liefur verið sekt-
aður vegna vanrækslu á að færa
bifreiðir sínar til skoðunar. Frá
föstudagskvöldi fram til sunnu-
dagsmorguns voru 36 bókanir.
Fiöldi án skoðunar
Alls kom upp 31 mál vegna brota á
umferðarlögum í vikunni. Voru
flest þeirra, eða 25 vegna van-
rækslu á skoðun. Þnr voru kærðir
vegna hraðaksturs og þrír fyrir að
leggja ólöglega.
Eitt umferðaróhapp var tilkynnl,
bifreið sem ekið var afturábak, lenti
á annarri kyrrstæðri. Engin slys
urðu á fólki.
Átta öúsund kr. sekt
Eins og fram kemur hér á undan
hefur lögreglan boðað nokkum
fjölda bifreiða í skoðun og lagt á
sekt, kr. 8.000. Ökutæki skal færa
til skoðunar í þeim mánuði sem
síðasti tölustafur á skráningarmerki
ökutækis vísar til. Haft ekki gefisl
kostur á að færa ökutækið til
almennrar skoðunar í skoðunar-
ntánuði skal það í síðasta lagi fært
til skoðunar fyrir lok annars mán-
aðar þaðan í frá. Öll ökutæki. sem
færa skal til almenntar skoðunar á
almanaksári, skulu hafa verið færð
lil skoðuníu fyrir árslok. Ef van-
rækt er að færa bifreið til skoðunar
innan þess frests fær viðkomandi
kr. 8.000 í sekt og sjö daga frest til
að færa bifreiðina til skoðunar. Sé
bifreiðin ekki færð til skoðunar
innan þessa sjö daga frests verða
skráningamúmer klippt af henni.
Rétt er að taka fram að sektin leggst
á strax við fyrstu boðun.
Árás í Reykjauík
Ein líkamsárás var kærð til lögreglu
og nokkuð öðruvísi en aðrar slíkar
að því leyti að hún átti sér stað í
Reykjavík, aðfaranótt 17. október
sl. Eyjamaður, sem þar var staddur,
varð fyrir árás með þeint afleið-
ingum að framtönn brotnaði.
Sælgæti og farsíma
stolið
Tveir þjófnaðir voru tilkynntir
lögreglu í vikunni. í öðm tilvikinu
var um að ræða tvo pilta sem fóru
inn í sælgætissöluna í íþróttamið-
stöðinni. Þeir náðust og telst málið
upplýst. í hinu tilvikinu var um að
ræða þjófnað á farsíma en neniítndi
í Barnaskólanum var með símann í
skólanum og vtu honum stolið þar.
Rúðubrot og íkueikja
Þrjár kærur bárust lögreglu vegna
eignaspjalla. Tilkynnt var um
rúðubrot í bifreið á Hásteinsvegi.
Vitað er hver þar var að verki og er
málið upplýst. Þá var einnig brotin
rúða í bifreið á stæðinu við
Framhaldsskólann, á laugardag, og
er það mál óupplýst. Sama dag var
einnig kveikt í í anddyri íslands-
pósts en skemmdir urðu litlar. Það
mál er einnig óupplýst og óskar
lögregla eftir upplýsingum um
þessi mál bæði.
Útgerðaraðilar Dala-Rafns VE hafa
ætíð verið framsýnir og snöggir að
tileinka sér nýjungar. I síðustu
viku var verið að hífa um borð í
skipið sorpgám, sem er sérhannað-
ur til þess að taka við sorpi sem til
fellur frá áhöfninni, en þetta er
fyrsti sorpgámur sinnar tegundar
sem tekinn er í notkun á íslensku
skipi. En fleiru hafa eigendur
skipsins verið að koma fyrir um
borð í skipinu sem til nýjunga telst,
því þeir hafa tekið í notkun
ísþykknivél sem framleiðir ís úr sjó.
Dala Rafn er þó ekki fyrsta skipið
sem tekur slíka ísþykknivél í notkun,
því slík vél mun einnig vera um borð í
Bylgju VE. Þórður Rafn Sigurðsson
útgerðarmaður segir að þetta sé liður í
að vemda umhverfið og þar með þann
ftsk sem þar syndir. „Með tilkomu
gámsins er engu sorpi hent í sjóinn,
heldur sett í gáminn og hann losaður í
landi. Gámurinn sem tekur um 1500
lítra er framleiddur í Kanada af
Sæplasti og er held ég fysti gámurinn
sem kemur til landsins og settur um
borð í íslenskt skip.“
Erlingur Pétursson, vélstjóri á Dala
Rafni, segir mikinn mun á því að geta
framleitt ís um borð í skipinu. „Fyrir
það fyrsta getum við búið til ís eftir
þörfum hverju sinni og þar af leiðandi
kælt ftskinn á tveimur tímum, sem tók
hátt í sólarhring með ís sem fenginn
var í landi áður. Vélin tekur um 3000
lítra og er um það bil tvo tíma að
framleiða það magn. Þetta tryggir auk
þess mun meiri ferskleika hráefnisins,
sem er krafa dagsins."
Þórður Rafn tekur undir með Erlingi
og segir að um leið fái kaupandi
aflans ferskari vöm og útgerðin hærra
verð. „Ég gæti trúað því að verð-
mætaaukningin með tilkomu ís-
þykknivélarinnar sé á bilinu tíu til
fimmtán prósent. Þessi vél er
framleidd af Bmnnum í Hafnarfirði
og byggir að miklu leyti á íslensku
hugviti og hönnun," sagði Þórður
Rafn.
frettir
Kveikið útiljjósin
Nú þegar dimrna tekur eru það
vinsamleg tilmæli lil áskrifenda
Frétta að þeir haft kveikt útiljós til
hagræðis fyrir blaðburðarfólk
okkar. Blaðburðatfólkið er snemma
á ferðinni á fimmtudögum og léttir
það útburðinn að trtun séu útiljós
kveikt.
Menntanetið til EyiaP
Fulltrúar minnihluta í bæjarstjóm,
þau Þorgerður Jóhannsdóttir,
Guðrún Erlingsdóttir og Ragnar
Óskarsson hafa lagt fram tillögu,
sem borin var upp á fundi bæjar-
ráðs sl. mánudag. Tillagan er
svohljóðandi: „í framhaldi af
auglýsingu í Morgunblaðinu. hinn
24. okt. sl„ samþykkir bæjarráð að
leita allra leiða með hagsmuna-
aðilum að fá íslenska menntanetið
til Vestmannaeyja og skapa þannig
aukin störf í Vestmannaeyjum.
Vinna þarf hratt í málinu þar sent
tilboð verða opnuð 11. nóv. nk.“
Þessi tillaga var samþykkt í
bæjatráði. íslenska menntanetið er
netþjónusta, sem starfað hefur á
Kópaskeri en hefur leitað eftir
nýjum starfsvettvangi og er vitað að
margir hafa hug á að fá þessa
þjónustu.
Kristilegur 17. lúní
Á bæjarráðsfundi var tekið fyrir
bréf frá kristnihátíðamefnd. Þar er
þess óskað að kristnihátíðar verði
minnst í öllum sveitarfélögum
landsins á þjóðhátíðardegi íslend-
inga, 17.júníárið2000. Bæjarrað
hefur vísað þessu erindi til
menningamiálanefndar en sú nefnd
sá um hátíðahöld 17. júní í sumar
og mun væntanlega hafa veg og
vanda af hútíðahöldunum á sumri
komanda.
Kristián fær Landlyst
Samþykktur hefur verið verk-
samningur rnilli Kristjáns Egils-
sonar og Vestmannaeyjabæjíu- um
gröft og undirstöðu og lagningu
lagna vegna Ltuidlystar. Þrjú tilboð
bámst í verkið og var tilboð
Kristjáns lægst þeitTa.
Fótboltaferð
Flugleiðir bjóða upp ú fótboltaferð
á Wimbledonleikvanginn frá
Vestmannaeyjum á leik Leeds og
Wimbledon í ensku úrvalsdeildinni.
Innifalið í verði er flug til
Reykjavíkur og rútuferð til
Kellavíkur auk flugs til London,
gisting í London, miði á leikinn
sem verður eftirmiðdaginn 7.
nóvember. Flogið verður til
London þann 6. nóvember og
komið aftur til Keflavíkur þann 9.
nóvember og innifalið í verði er
ferð aftur til Vestmannaeyja. Eins
og vitað er leikur Vestmanna-
eyingurinn Herntann Hreiðarsson
með Wimbledon og aldrei að vita
nema hann leiki með liðinu í
þessum leik
Fréttatilk.
FRETTIR
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
íþróttir: július Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293.
Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.isMrettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig I lausasölu i Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn. Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi,
Flugvallarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. í Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og í Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.