Fréttir - Eyjafréttir - 28.10.1999, Side 13
Fimmtudagur 28. okróber 1999
Fréttir
13
LESENDABRÉF - Sonja Hand
Hvert er fólk aó flýta sér
svona mikið á þessari eyju?
Sonja Hand er jarðfrœðinemi sem
dvaldi í Vestmannaeyjum í fimm
mánuði í sumar við athuganir á
myndun Sœfiallsins á Heimaey.
Verkefiii hennar var liður í loka-
verkefni hennar við Þýskan háskóla
og unnið undir handleiðslu Ármanns
Höskuldssonar forstöðumanns Nátt-
úrustofu Suðurlands. Bréfþetta sem
hér birtist skrifaði Sonja eftir dvöl sína
í Eyjum og átti reyndar að birtast
mun fyrr, enfyrir mistök hefur birting
þess tafist. Beðist er velvirðingar á
þessari töfi en betra er seint en aldrei
og bréfið enn ífullu gildi, en bréfið er
dagsett 23. júlí sl.
Hægt en örugglega leið dvöl mín á
Heimaey og nú er komið að heimferð.
Áður en ég sný aftur til Þýskalands
langar mig að nota tækifærið til þess
að þakka öllum sem ég kynntist í
Vestmannaeyjum. Ég naut ríkulega
þeirra fimm mánaða sem ég dvaldi í
Eyjum. í byrjun hélt ég að leiði
myndi sækja á mig á þessari 12,5
ferkílómetra eyju, en ég hafði alltaf
svo mikið fyrir stafni að ég mátti
stundum þakka fyrir að eiga fría
kvöldstund. Aldrei langaði mig til
þess að fara til Reykjavíkur „stór-
borgarinnar“ á meðan ég dvaldi í
Eyjum. Hér var allt að hafa sem ég
þarfnaðist vegna námsverkefnis míns
í Eyjum. Fyrir þá sem ekki vita að
hverju ég vann, var ég aðallega við að
safna upplýsingum um Sæfjallið, en
ég er að skrifa meistaraprófsritgerð
mína um myndun þess en aðstöðu
hafði ég á Náttúrustofu Suðurlands í
Vestmannaeyjum. Mér líkaði mjög
vel hjá þeirri stofnun og öðlaðist mikla
reynslu, einnig er ég ekki síður þakklát
íyrir að hafa fengið tækifæri til þess að
fara með hópi jarðfræðinga til þess að
skoða Grímsvötn í Vatnajökli, þar
sem við vorum við mælingar er
tengdust gosinu í Grímsvötnum í
desember í fyrra. Það var mjög
spennandi að fá innsýn í störf
jarðfræðinga og taka þátt í starfi
þeirra, svo að ég óttast að erfitt verði
fyrir mig að setjast á skólabekk á ný
næsta árið.
Kvöld eittgekk ég
framhjá íþróttavelli og
hugsaðifull háðs að
Eyjamenn notuðu líklega
íþróttavellina þangað til
þeir nœðu 17 ára aldri,
en þá fengju þeir
bílprófið
... en mér til undrunar sá
ég ungan mann fara
hring eftir hring á
vellinum ígo-kart bíl.
Samhliða eldgosarannsóknum að-
stoðaði ég stundum sem leiðsögu-
maður þýskra og franskra ferða-
manna, bæði á sjó og landi. And-
rúmsloftið í þessum ferðum var alltaf
svo afslappað að sviðsskjálftinn hvarf
á fyrstu mínútunum, svo ég hafði
mjög mikla ánægju af þessu starfi.
Ég gisti á frábærum stað í Eyjum og
fannst ég stundum vera eins og heima
hjá mér, frekar en gestur og tel að það
hafi haft mest áhrif á að gera ferð mína
hvað eftirminnilegasta og mikið
ævintýri, og vonandi að ég geti komið
einhvem tíma aftur.
Hins vegar langar mig til þess að
leggja áherslu á „þakklæti mitt“ með
Sjóstangveiðifélags
Vestmannaeyja
verður haldinn
laugardaginn 30. október
kl. 16.00
í húsnæði félagsins að
Heiðarvegi 7.
Kaffi og meðlæti
Mætum öll
Stjórn Sjóve
smá hugleiðingu sem kom í hug mér á
Aufenthalt.... Þessar hugleiðingar em
almenns eðlis og vöknuðu á meðan ég
dvaldi í Eyjum og em á engan hátt
persónulegar. En mér finnst ég verða
að tjá mig um þetta, vegna þess að það
gerði mig oft reiða.
Vestmannaeyjar em raunvemleg
gjöf og náttúra þeirra fjölbreytt:
Hamraveggir, eldfjöll, hellar, brattar
brekkur, sandstrendur og fjölbreytt
fuglalíf, og kallar á að gengið sé af
virðingu um hana.
Strax við upphaf heimsóknar
minnar fannst mér að náttúran væri
ekki mikils metin. Ég efast ekki um
að Eyjamenn unna eyjunum sínum og
lofa fegurð þeirra hástöfum, en á milli
þeirrar platónsku (huglægu) ástar og
raunvemlegrar hegðunar er stundum
hyldýpis gjá.
Sú staðreynd að bflaeign Eyja-
manna er svo mikil sem raun ber vitni
kom mér ekki á óvart, eftir að ég lenti
í fyrsta stórviðrinu. Ef ég byggi á
Heimaey ætti ég trúlega bíl lílca. En
undir það síðasta stóð ég frammi fyrir
óleysanlegri þversögn: Þegar sólin
skín fyllast götumar lífi, en ekki fólki
á göngu, eins og búast mætti við um
allan heim. Nei í Eyjurn notar fólk
góða veðrið til að hringsóla á
rúntinum í bflum sínum og ég spurði
mig oft að því hvemig stæði á þessu.
Auk þess sem mengun frá bflunum er
þeim fáu sem vilja ganga til ama. Mér
þótti einnig gaman að sjá bömin leika
sér úti við og gladdist við að sjá að þau
kynnu enn þá að meta útiveru.
Kvöld eitt gekk ég framhjá
íþróttavelli og hugsaði full háðs að
Éyjamenn notuðu líklega íþróttavell-
ina þangað til þeir næðu 17 ára aldri,
en þá fengju þeir bflprófið... en mér til
undrunar sá ég ungan mann fara hring
eftir hring á vellinum í go-kart bfl.
Ég lýsti því yfir í huga mínum að
Sonja Hand, jarðfrœðinemi
suðurhluti Heimaeyjar væri mitt
persónulega skjól, vegna þess að
náttúran þar er enn náttúruleg, auk
þess sem ég held að ég hafi valið besta
staðinn á eyjunni fyrir rannsóknir
mínar. Margir Eyjamenn virðast vera
mér sammála mér í þessu, vegna þess
að oít á dag og í misjöfnum veðmm er
fólk í bflum við Brimurðina, hverra
ökumenn em trúlega náttúmunnendur.
Sumir yfirgefa jafnvel bfla sína og
ganga um fjömna. Oft á tíðum em
þetta hundaeigendur. Þessir hundar
geta verið glaðir að eiga það hlutskipti
að geta gengið á eftir hermrn sínum í
stað þess að elta herra sína sem aka á
undan þeim í bflum sínum. Auðvitað
geta hundaeigendur verið of gamlir til
þess að ganga en það er önnur saga.
En ég spyr mig oft að því hvers vegna
ungt fólk á hunda en vill ekki fara með
þá í gönguferðir?
Kindumar sem era beggja vegna
vegarins suður á eyju og að Stórhöfða
virðast líka sjaldan sjá fólk á göngu
vegna þess að þær virtust hræðast
fótgangandi, en héldu ró sinni ef bflar
þutu hjá á 100 km hraða. Sem minnir
mig á það hvort nauðsynlegt er að
stunda slíkan hraðakstur og skilja eftir
fuglahræin á veginum, sem gæti allt
eins orðið fótgangandi maður ein-
hvem daginn Hvert er fólk að flýta sér
svona mikið á þessari eyju?
Bílskúrs-
HURÐIR
Húsey hefur hafið sölu á
Garaga stál- og álbílskúrs-
hurðum frá Kanada.
Afhendingartimi 6-8 vikur.
Gerum tilboð fyrir þig
HÚSEV
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
VESTMANNAEYINGA
Vetraráætlun
30.
mán-fös 07.30 08.15
laugard. 08.00 08.45
alladaga 11.50 12.35
alladaga 17.00 17.45
Sími 481 3050 • Fax 481 3051
vey@islandsflug.is
^ÉC)ÍSLANDSFLUG
X- gonr floirum f^srt að ftjúga
ágúst 1999 - 4. júní 2000
'll'V 1 * —- 111 ■ ■ x-i
Frá Rey. Frá Vey.
BOÐSMIÐI
f TILEFNIÁRS ALDRAÐRA 1999
vill Lionsklúbbur Vestmannaeyja bjóða öllum eldri
borgurum til kvöldskemmtunar í Alþýðuhúsinu
föstudagskvöldið 29. október nk.
❖
Skemmtunin hefst kl. 20.30
og verður ýmislegt til skemmtunar
og boðið verður upp á kaffi og kökur.
❖
Hljómsveitin Eymenn
leikur fyrir dansi frarn eftir nóttu
❖
Lionsmenn eru reiðubúnir
að sækja fólk á bílum sínum og keyra heim.
Vinsamlegast haftð samband við Sigmar í síma 481 2353
eða 863 0512.
❖
Vonumst eftir að sjá sem flesta
Lionsklúbbur Vestmannaeyja:
Sigmar Georgsson formaður