Fréttir - Eyjafréttir - 28.10.1999, Qupperneq 17
Fimmtudagur 28. október 1999
Fréttir
17
Gunnar Sigurðsson hefur það gott í Svíþjóð
Saknar brúnu tertunnar
hennar ömmu
Gunnar Sigurðsson. Líkar vel í Svíþjóð en er á leiðinni lieim til Eyja í frí.
Islendingar hafa oft alið af sér afburða góða
íþróttamenn, sem oft ná góðum árangri á
heimsvísu. Knattspyrnumenn eru, kannski eins
og íslenski hesturinn, orðnir ein helsta
útjlutningsvara landsins. Vestmannaeyjar
hafa skilað sínu hlutverki sem útungunarstöð
fyrir einstaklega góða knattspyrnumenn, og
nœgir þar að nefna Asgeir Sigurviitsson sem
án efa er einn fremsti knattspyrnumaður
landsins fyrr og síðar og svo Hermann
Hreiðarsson, þann allra dýrasta. Landsliðið
hefur ekki farið varhluta afþessari þróun og er
árangur þess vitni um það, en þar eru einmitt
þrír Eyjamenn. En nú þegar árangur
landsliðsins fyllir allar síður dagblaðanna er
ekki úr vegi að rifja upp liverjir það eru sem
hafa haldið í víking og lifa af þvi að spila
knattspyrnu. Fréttir munu í nœstu blöðum
spjalla lítillega við þessa knattspyrnumenn um
lífið íatvinnumennskunni,
Fréttir slógu fyrst á þráðinn til Gunnars
Sigurðssonar, markvarðar og Eyjapeyja íhúð og
hár, til að fon’itnast um Brage og dvöl hans í
Svíaríki.
„1K Brage er í bænum Borlange, sem er
tveggja tíma keyrsla norður af Stokkhólmi, en í
bænurn búa um 50 þúsund manns. Liðið var í
Allsvenska fyrir nokkrum árum og má kannski
muna sinn fifil fegurri. En liðið er á uppleið og
öll umgjörð í kringum klúbbinn er mjög góð, t.d.
eru stúkur allt í kringum völlinn og mest hefur
verið um 14 þúsund manns á leik á honum. En í
deildinni eru að meðaltali í kringum 2000 manns
á leik. Við emm í 6. sæti í okkar deild, en 1.
deildin er skipt í norður og suðurdeild. Nú
stendur til að breyta þessu og mynda eina 14 liða
deild þannig að aðeins 7 lið úr hvorri deild
(norður- og suðurdeild) halda sínu sæti. Það er
því óhætt að segja að við séum í bullandi
fallbaráttu,“ segir Gunnar og hlær. „Reyndar er
frekar ólíklegt að liðið falli því þegar aðeins ein
umferð er eftir er liðið í fallsætinu þremur stigum
á eftir Brage, en þarf að keppa við liðið í efsta
sætinu sem þarf nauðsynlega á sigri að halda. En
vegir fótboltans em órannsakanlegir."
Líklega dreymir alla knattspymumenn og -konur
að komast út fyrir landsteinana að spila
knattspymu ogfá borgað fyrirþað. En er lífið
gott í atvinnumennskunni?
„Ja, dagamir em nú frekar misjafnir. Eg
vakna yfirleitt svona um níuleytið ef það era
æftngar klukkan tíu, annars lúri ég aðeins lengur.
En eftir morgunæfínguna fer ég og fæ mér að
borða og sinni svo húsverkunum. Svo er yfirleitt
æftng um hálf íjögur og eftir það fer ég heim og
elda enn eina stórmáltíðina. Svo um kvöldið
fömm við strákamir stundum eitthvað út, eða
maður er bara heima að glápa á sjónvarpið.
Þannig að þetta er mjög fínt héma. Að vísu
sakna ég alveg rosalega brúnu tertunnar hjá
ömmu, það kemur ekkert í staðinn fyrir sneið af
henni.“
Þegar talið berst að því hvemig það kom til að
Gunnar fór til Svíþjóðar breytist aðeins í honunt
hljóðið.
„Þetta kom auðvitað allt til vegna þess að mér
var hreinlega ýtt í burtu. Fyrrverandi þjálfari
ÍBV, Bjami Jóhannesson, fór þar fremstur í
flokki og kom hreinlega mjög illa fram við mig.
Þessa sögu þekkja allir sem það vilja, og kannski
algjör óþarfi að vera rifja hana upp, en allt í einu
stóð ég frammi fyrir því að þurfa að ákveða mig
hvort ég vildi halda áfram að spila fótbolta eða
ekki. Eg var reyndar að spila handbolta um
veturinn og fylgist reyndar mjög vel með
strákunum þar ennþá, en fótboltinn varð fyrir
valinu og því hið eina í stöðunni að flytjast frá
Eyjum. Þar kom til sögunnar maður sem heitir
Jón Péúrr, en hann og Gilli Hjartar hjálpuðu mér
að láta draum hvers knattspyrnumanns rætast,
þ.e.a.s. að komast í atvinnumennskuna. Eg vil
bara taka það fram að ég er alls ekki sár út í IBV,
hvorki félagið né liðið. Auðvitað varð ég sár
eftir að hafa fómað mér fyrir liðið í þrjú ár og
vera svo hent í burtu, en þetta er líklega allt í
góðu í dag.“
Gunnar segir að reyndar hafi hann orðið
dálítið vonsvikinn fyrir stuttu þegar honum var
sagt frá ummælum Heimis Hallgrímssonar í
Fréttum urn að Hrefna ætlaði að skipta um lið.
„Það virðist vera að þeir sem em í forsvari fyrir
íþróttahreyfinguna kunni ekki að koma vel fram
við sitt fólk. Eg meina, hún kom frá KR, einu
besta liði íslands í kvennaknattspyrnu til ÍBV og
styrkti liðið mikið, sama hvemig á það er litið."
segir Gunnar og er mikið niðri fyrir.
Aðspurður segist Gunnar ekki vera viss hvort
hann væri til í að koma aftur til Eyja og spila
með IBV. „Partur af mér segir að ég eigi aldrei
að spila með ÍBV aftur, en aftur á móti er ég, og
verð alltaf Eyjamaður þannig að ég yrði að íhuga
þetta mjög vel. Auðvitað toga Eyjamar alltaf í
mig, ég ætla t.d. að koma heim fljótlega eftir að
deildin er búin héma úti, en ég veit ekki hvað ég
fæ að vera lengi í fríi, vonandi fram að
áramótum. Það er að taka við nýr þjálfari þannig
að það yrði betra að vera til staðar og sanna sig.
Eg er nefnilega í mikilli baráttu um sæti í liðinu,
ég byrjaði tímabilið en meiddist eftir aðeins tvo
leiki. Hinn markmaðurinn hélt mér einfaldlega
út úr liðinu þangað til að hann meiddist og ég
hef spilað síðustu fimm deildarleiki." Þess má
geta að Gunnar hefur spilað fjölmarga leiki bæði
í bikar og með varaliðinu, og hefur liðið aðeins
tapað einum leik. Það var eins og Gunnar sagði:
„... helv. dómaraskandall...“
Að lokum bað Gunnar að heilsa öllum vinum og
ættingjum og bað fyrir baráttukveðju til
handboltastrákanna í ÍBV.
Júlíus Ingason
HARSNYRTISTOFAN
IC' _
ibbbí
3 9 9 3 3 3
NYTT NUMER
481 3666
NANNA, ÓLÖF UNA OG SVANHVÍT
Tottenham=3 - Man.United =1
Að gefnu tilefni vil ég minna þá vini mína sem hættu að hringja í mig
eftir þrítugustu og sjöundu mínútu leiksins á að ég er ennþá með sama
símanúmerið 4811431
Kær kveðja
Hörður Þórðarson
Tottenham aðdáandi
Tvöfaldur um
næstu helgí
Nú eru búnar 6 vikur af hópaleik
IBV og Frétta og em línur nokkuð
farnar að skýrast cn spennan er enn
til staðar. í 6. vikunni voru nokkuð
óvænt úrslit á seðlinum og vttr skor
því með lægra móú. Þó „grísuðust”
nokkrir hópar á hátt skor miðað við
úrslitin. Klaki náði 8 réttum, Vinstri
bræðingur, E.H. og Víms náðu 7
réttum. Staðan er þessi:
A-riðill: Joe on the Hill 44,
Húskross 43, Flug-Eldur og
Pömpiltar 42, Bláa-Ladan 39,
Mambó 38, NR 35
B-riðill: Vinstri bræðingur 44, FF
42, Dumb and Dumber og Klíiki 41,
Tippalingumar 37, JóJó 35,
Kríumar 34
C-riðill: Tveir á Toppnum 43, S.S.
41, Austurbæjargengið og E.H. 40,
H.H.-Flokkur 38, Hjónabandssælan
37. Bonnie and Clyde 33
D-riðill: Man.City 40, Allra bestu
vinir Ottós og Víms 39, Mariner og
Skrekkur og Andri Kolbeinn 38,
Coco 36.
Eins og áður sagði voru úrslitin
um síðustu helgi á enska seðlinum
rnjög óvænt og náði enginn
Islendingur eða Svíi 13 rétturn og
verður því potturinn tvöfaldur um
helgina og er búist við að fyrsti
vinningur verði 65-70 milljónir. Því
er um að gera að koma í
Týsheimilið á laugardaginn og
tippa.
GETRAUNANEFND ÍBV