Fréttir - Eyjafréttir - 16.03.2000, Page 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 16. mars 2000
BdwH'gAtana
Undir blóöugu fisksöluborði
Ég þakka henni frænku minni
áskorunina og er alveg sammála
henni að hleypa engum öðrum í
þáttinn er ljölskyldumeðlimum og
nánum vinum, og ég treysti næsta
þátttakanda til að passa upp á að svo
verði, (ha ha eða þannig sko).
Sjálf er ég mest fyrir glæpasögur
og svolitla spennu. Ég hef lesið
margar bækur um árin, misgóðar eins
og gengur og gerist, en þær sem mér
finnst standa upp úr eru bækur
Halldórs Éaxness og þá sérstaklega
Sjálfstætt fólk. Bækur Einars Más
Guðmundssonar, Englar alheimsins
og Fótspor á himnum. Og svo er
Stephen King ofarlega á vinsældar-
listanum.
llmurinn eftir Patrick Súskind
gerist á 18. öld í París og segir ffá
Jean Babtist Grenouille sem fæðist
undir blóðugu fisksöluborði, og er
yfirgefinn af móður sinni strax eftir
fæðingu. Nöturleg koma hans í
heiminn er þó aðeins upphafið á
furðulegu lífshlaupi þessa einstæða en
þó grimma manns. Hann er gæddur
yfirskilvitlegu lyktarskyni, en ber þó
enga líkamslykt sjálfúr. Hann er
sífellt að leita hins fúllkomna ilms
sem hann svo finnur hjá ungum
meyjum. Hann myrðir þær svo til að
eignast sjálfúr ilm þeirra.
Slóð fiðrildanna eftir Olaf Jóhann
Olafsson las ég fyrir stuttu, hún er
algert meistaraverk og alveg
snilldarlega skrifúð.
I æsku voru Tinnabækumar eftir
Hergé í algjöru uppáhaldi hjá mér og
er ég búin að lesa þær allar fram og til
baka. Svo eru hvers kyns ferðabækur
alltaf ofarlega í huga mér, því ég hef
svo rosalega gaman af að ferðast eins
og þeir vita sem þekkja mig.
Mig langar næst að skora á hana
vinkonu mína, Rögnu Jenný
Ragnheiðar og Friðriksdóttur, henni
verður ekki skotaskuld úr því að kasta
fram einhverju skemmtilegu.
©rðTspöt
- Góðkunnur Vestmannaeyingur hafði áhyggjur af heilsufari
sínu og fór því í læknisskoðun. Kona hans fór með, honumtil
halds og trausts. Að skoðun lokinni kallaði læknirinn konuna
á eintal og tjáði henni að heilsufar eiginmannsins væri ekki
eins og best yrði á kosið. „En með góðu atlæti heima fyrir,
góðri eldamennsku, engu nöldri og svo því að gefa honum frí
frá heimilisstörfum, þá ætti hann að eiga góða möguleika á
nokkuð mörgum góðum árum ennþá," sagði læknirinn.
Að þessu loknu kvöddu hjónin og fóru. Á heimleiðinni
spurði eiginmaðurinn hvað læknirinn hefði sagt. Konan þagði
um stund en sagði siðan: „Hann sagði að sennilega ættirðu
ekki langt eftir ólifað."
- Það er haft á orði þessa dagana að alþýða manna, öryrkjar
og gamalmenni séu hinir mestu dragbítar á margrómuðu
góðæri. Og nú aldrei þessu vant (sic) heimti þessir aðilar
hlutdeild í því sama góðæri. Þetta finnst að sjálfsögðu
landsfeðrunum hið versta mál, aldrei þessu vant, því
verðbólgudraugurinn muni þá rísa upp. Saklaust fólk spyr
því í grandaleysi um samhengi stórgróða „allra“ fyrirtækja í
landinu og þjóðarhungurlúsasáttar, sem launafólk, gamal-
menni og öryrkjar hafa mátt búa við í verðbólguleysi
undanfarinnar ára. Er furða þó að klofningur sé nú uppi í
samtökum verkafólks, og samtök atvinnurekenda í einu
vellukkuástandi að geta fleygað niður samtöðu lýðsins sem
aldrei hefur verið annað en gjálfur síðan misvitrir menn fundu
upp hugtökin, jafnrétti, bræðralag og svarthol.
Vantarfleiri hefðir
/ síðustu viku var kosið um nýja stjórn í
Nemendafélagi Framhaldsskólans.
Formaður nýrrar stjórnar var kosinn
Hafsteinn Daníel Þorsteinsson og hann
er Eyjamaður vikunnar.
Fulltnafn? Hafsteinn Daníel Þorsteins-
son.
Fæóingardagur og ár? 23. 12. 1981.
Fæðingarstaður? Reykjavík.
Fjölskylduhagir? Bý hjá móðurminni,
Guðrúnu Jónu Gunnarsdóttur og yngri
systur, Katrínu Björgu.
Menntun og starf? Er að Ijúka þriðja
ári i FÍV. Vinn um helgar hjá Kók og
Jóni Inga á Lundanum.
Laun? Fleyta mér áfram. Mamma
bjargar afgangnum.
Bifreið? Bíllinn hennar mömmu,
Toyota Corolla.
Helsti galli? Ein-
hverjirsegja að ég sé
skapbráður og
fljótfær.
Helsti kostur? Einstaklega hjart-
góður og prúður drengur (segir
mamma).
Uppáhaldsmatur? Flestallt sem
að kjafti kemur. Mér finnst t.d.
skyndibitafæði alveg Ijómandi gott.
Versti matur? Ég hefaldrei skilið
hvers vegna fólk er að láta ofan í
sig skemmdan mat, kominn langt
fram yfir síðasta söludag, eins og
það sem kallast súrmatur.
Uppáhaldsdrykkur? Vatn og kók,
(verð að segja það fyrir Hlyn).
Uppáhaldstónlist? Held upp á
marga t.d. Sálina og Guns 'n Ros-
es.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir? Að reyna að meika
það i körfubolta og dúlla mér með
kærustunni.
Hvað er það leiðinlegasta sem
þú gerir? Eigum við ekki að orða það þannig að það
fyrsta sem ég ætla mér að kaupa þegar ég eignast
pening verður uppþvottavél.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í
happdrætti? Kaupa uppþvottavél til að byrja með.
Skella mér svo í sólina og borga skuldir fjölskyld-
unnar.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Davíð Oddsson er
einstakur húmoristi og ber af.
Uppáhaldsíþróttamaður? Fyrir utan mig sjálfan er
það Múhameð Ali.
Ertu meðlimur í einhverjum féiagsskap? Nem-
endafélagi Framhaldsskólans og ÍV.
Uppáhaldssjónvarpsefni? iþróttir.
Uppáhaldsbók? Kokkabókin hennar mömmu.
Hvað metur þú mest í fari annarra? Kurteisi og
stundvísi.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra?
Ókurteisi og hroki.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á? Herbergið mitt á
góðum degi.
Kemur ný stjórn til með að
breyta einhverju í starfsháttum
Nemendafélagsins? Lengi
getur gott batnað, við stefnum
allavega að því.
Hvað vantar helst í starf
félagsins? Kannski fleiri hefðir í
skólastarfinu.
Verður stefnt að því að taka
þátt í „Gettu betur" á næsta
ári? Ef áhugi er fyrirþví, já.
Kemur formannsstarfið til með
að taka mikinn tíma frá
náminu? Já, ef maður ætlar að
sinna þessu almennilega þá fer
varta hjá því.
Eitthvað að lokum? Við
þökkum kæriega fyrir stuðninginn
og mótframbjóðendum fyrir
drengilega og skemmtilega
kosningabaráttu.
Hafsteinn Daníel
Þorsteinsson er
Eyjamaóur vikunnar
Nýf æddir
•* Vestmannaeyingar
Þann 5. mars eignuðust Sóley María Hafsteinsdóttir og Sigurbjöm
Hilmarsson son. Hann vó 16 merkur og var 56 cm að lengd. Hann er
hér á myndinni með sytkinum sínum Katrínu Rós og Óðni Magnúsi.
Ljósmóðir var Guðný Bjamadóttir.
Þann 8. febrúar eignuðust Ingveldur Magnúsdóttir og Emil Marteinn
Andersen son. Hann vó 14 /2 mörk og var 54 cm að lengd. Ljósmóðir
var Drífa Bjömsdóttir.
Á döfinni 4*
16. mars Stofnfundur Skógræktarfélags Vestmannaeyja í Rannsóknasetrinu kl. 20.30
16. mars Fundur í Alþýðuhúsinu um samningamólin kl 20.00
16. mars DJ-lce með dúndur dikófek
17.-31. mars Franskir dagar hjó Amóri bakara
17.-19. mars Sparisjóðsmótið í handknattleik, 6. d. Icvenna í Iþróttamiðstöðinni oq Týs heimili
17. mars Golfhermismót GV hefst
17. mars 17. 18.og21. Fönkmaster 2000 ó Fjörunni
mars Rocky Horror ó Fjölum Leikhússins
17.-18. mars Víkingasveitin Hermann Ingi og Smóri ó Lundanum
18. mars Mfl. kada í handknaftleik ÍBV-Stjaman í íþróttamiðsföðinni kl. 16.30
18. mars Aðalfundur Björgunarfélagsins
18. mars Mannekla ó Fjörunni (órafmagnaðir tónleikar)
18. mars Árshótíð Hressó ó Höfðanum kl. 19.00. Almennur dansleikur með Greifunum kl. 24.00
20. mars Aðalfundur Kvenfélags Landakirkju í safnaðarheimijinu kl 20.00
25. mars Myndlistarvor Islandsbanka í Eyjum 2000. Tolli Morthens opnar einkasýningu í Gallerí Ahaldahúsinu kl. 17.00
25. mars Dagur tónlistarfólks í Vestmannaeyjum í Safnaðarheimilinu kl. 17.00
25. mars Skílamórall ó Fjörunni
19.-20. maí Vor í Eyjum 2000