Fréttir - Eyjafréttir - 16.03.2000, Page 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 16. mars 2000
cþ
l/ e
essi mynd er tekin suður í Stórhöfða um miðjan þriðja áratug aldarinnar.
Hún sýnir vel hvemig húsakostur var við Stórhöfðavitann. Fólkið á
myndinni er, talið írá vinstri: Elísabet Ámadóttir, gift séra Óskari
Þorlákssyni ífá Hofi, dómkirkjupresti; Ámi Sigfússon, kaupmaðiu- og
útgerðarmaður í Vestmannaeyjum og Ólafía Ámadóttir, eiginkona hans
og systir Elísabetar. Stúlkan fremst á myndinni er Ranný Ámadóttir
Rogich, dóttir Áma og Ólafíu. Hún fluttist til Bandaríkjanna og giftist
þar. Sonur hennar, Sig Rogich, var sendiherra Bandaríkjanna á íslandi
fýrir nokkmm árum en er nú kosningastjóri hjá George Bush yngri sem
er væntanlegt forsetaefhi repúblikanaflokksins í næstu kosningum.
Myndina léði okkur Gunnar Stefánsson frá Gerði, tengdasonur Áma og
Ólafíu.
Minning
Guðlaug Þorbergsdóttir
F. 17.7. 1932 d. 3. 3.2000.
Það var á björtum vordegi í maí sem
ég sá hana fyrst. Hún var 14 ára að
komaaustan af landi í Borgarfjörðinn
til foreldra minna í vist. Ég var 4 ára
gömul og horfði feimin og forvitin á
dökkhærðu, grönnu stúlkuna í grænu
kápunni. Hún sagði mér að kalla sig
Laugu.
Og nú eru meira en 50 ár liðin og
komið að kveðjustund.
Lauga mín var einstök. Hljóðlát og
prúð en dugnaðarforkur til allra verka.
Hún var fríð stúlka, broshýr og ein-
staklega jafnlynd. Þó aldursmunur
væri nokkur á okkur við fyrstu kynni,
finnst mér nú að harla hafi lítið fyrir
honum farið í okkar samskiptum. Gott
þótti mér lítilli stelpu að eiga hana að
við dúkkufatasaum og prjónaskap.
Lauga var snillingur með prjónana og
öll handavinna lék í höndum hennar.
Þær eru ófáar prjónaflíkurnar sem ég
eða bömin mín eignuðumst frá henni
enda var Lauga mín glaður gjafari. Og
hún var tryggur vinur, orðheldin og
orðvör.
Hún var á heimili foreldra minna í
16 ár og bæði við og hún litum á það
sem hennar. Þau bönd sem fjölskylda
mín, ég og hún, bundust vom óijúfan-
leg. I 13 ár vomm við samtíða og
ekki í eitt einasta skipti varð okkur
sundurorða. Ég get fullyrt að svo var
einnig í samskiptum hennar við aðra í
fjölskyldunni, hún var alltaf góð og
hlý, öllum þótti vænt um hana.
Sérstaklega vil ég þakka Laugu
minni íyrir góðvild hennar við ömmu
mína sem var á heimili foreldra minna
til dauðadags. Amma var í mínum
huga besta amma í heiminum og hún
elskaði Laugu á sama hátt og okkur
hin. Þær tvær vom samvaldar.
Eftir að Lauga giftist og flutti Vest-
mannaeyja var samgangur okkar auð-
vitað með öðmm hætti, en góðar
minningar á ég frá heimsóknum til
hennar og þá sérstaklega þegar við
amma fórum báðar saman um páska
til hennar og Magnúsar, manns henn-
ar, sem líkt og hún tók okkur opnum
örmum.
Lauga varð þeirrar gæfu aðnjótandi
að eignast augasteinin sinn hana Björt.
Því miður höguðu örlögin því svo að
vegna veikinda Laugu dvaldist Björt
langdvölum frá henni um skeið. En
þessi telpa var bæði Laugu og
Magnúsi manni hennar það dýr-
mætasta i heimi hér og það var mikil
huggun harmi gegn þegar Lauga var
orðin ekkja að Björt sneri aftur í
móðurfaðminn. Mig langar að þakka
hér Björt fyrir umhyggjuna við móður
sína svo og öllum Vestmanna-
eyingum sem studdu Laugu á einn
eða annan hátt.
Oddnýju systur hennar, sem alla tíð
var henni svo góð, sendi ég líka
þakkir mínar.
Lauga átti sitt ævikvöld á Hraun-
búðum, dvalarheimili aldraðra í Vest-
mannaeyjum og leið þar sérstaklega
vel. Allir sem þar starfa umvöfðu
hana allt þar til yfir lauk. Hafi þau
hjartans þökk.
Guð blessi Laugu mína og ég
þakka henni nú að leiðarlokum fyrir
áralanga vináttu og tryggð.
Unnur Kolbrún Hjartardóttir
Nudd er heilsurækt!
Nudd er lífsstíll!
Erla Gísladóttir
n u d d a ri
Vestmannabraut 47
Sími: 891 801 6
Þakkarorð
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
Jóns Ingólfssonar
Dverghamri 13, Vestmannaeyjum
Halldóra Hallbergsdóttir
Þuríður Jónsdóttir Jóel Þór Andersen
Bergþóra Jónsdóttir Óskar Óskarsson
Hallbjörg Jónsdóttir Róbert Gíslason
Berglind Jónsdóttir Steinar Jónsson
Bamaböm og bamabamaböm
Þakkir
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur
samúð og vináttu við andlát og útför elsku litla
sonar okkar, bróður og bamabams.
Erlings Geirs Yngvasonar
Helgafellsbraut 17, Vestmannaeyjum.
Yngvi Sigurgeirsson Oddný Garðarsdóttir
Garðar Þorsteinsson
Sigurbjörg Yngvadóttir
Kári Yngvason
Garðar Þorgrímsson María Gunnþórsdóttir
Björg Agústsdóttir
Þakkir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu vegna andláts
eiginmanns míns, föður okkar, afa og langafa
Olafs Kristins Stefánssonar
er lést 29. febrúar sl.
Jarðaförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks Sjúkrahússins
fyrir góða þjónustu og umönnun.
Hulda Þorsteinsdóttir
Henný Dröfn Ólafsdóttir
Aðalheiður Ólafsdóttir
Sóley Ólafsdóttir
Þorsteinn Ólafsson
bamaböm og bamabamaböm
Háls-, nef- og
eyrnalæknir
Sigurður Júlíusson háls-, nef- og eyrnalæknir verður með
móttöku á Heilbrigðisstofnuninni dagana 22. - 24. mars.
Tímapantanir verða mánudaginn 20. 3. kl. 9-14
ís.481 1955
Heilbrigðisstofnunin í Vestmannaeyjum
50 ára
Laugardaginn 25. mars verður
Georg Kristjánsson 50 ára.
Hann og Harpa taka á móti
gestum í Kiwanishúsinu
kl. 20 - 24, afmælisdaginn.
11 [M i>V \ || Eyjaprent l Strandvegi 47 frettir@eyjar.is