Fréttir - Eyjafréttir - 27.04.2000, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 27. apríl 2000
Fréttir
11
Lokahóf handboltans:
Amela og Erlingur best
Lokahóf IBV í handboltanum fór
fram í Týsheimilinu á
laugardagskvöldið og var að venju
hið glæsilegasta. Hæst bar að
sjálfsögðu árangur stelpnanna í
meistaraflokki sem stóðu uppi sem
íslandsmeistarar. En fleira var að
minnast frá nýliðnum vetri og var
það gert með tilþrifum, bæði í gamni
og alvöru. Helsta afreksfólkið var
heiðrað fyrir árangur vetrarins og
stjómarfólk var heiðrað fyrir ffábær
störf í þágu handboltans í
Vestmannaeyjum í gegnum tíðina.
Lokahóf handboltans hafa alla tíð
verið með skemmtilegri samkomum
sem í boði eru hér í bæ.
Skemmtiatriði em heimatilbúin og
þó sum þeirra ættu kannski frekar
heima í heimateitum er ekki annað
hægt en að hrífast með orkunni og
gleðinni sem kemur fram þegar
handboltafólk bregður á leik.
Herlegheitunum stjómaði Jóhann
Pétursson af sinni alkunnu lagni. Fór
hann á kostum í lýsingum sínum í
myndasýningu kvöldsins.
Af skemmtiatriðunum bar hæst
kvikmyndasýningu sem Daði
Pálsson og Sigurður Bragason áttu
heiðurinn af. Ami Mathiesen,
sjávarútvegsráðherra, átti fyrstu
orðin í myndinni, Gaupi á Stöð 2 var
næstur en síðan tóku við leikin atriði
ásamt skotum úr leikjum vetrarins.
Var myndin ótrúlega vel unnin og
ekki síður skemmtileg. Síðan tók við
hvert skemmtiatriðið af öðm í bland
við ávörp og heiðranir.
Guðmundur Þ.B. Ólafsson flutti
hátíðarræðu kvöldsins, Asmundur
Friðriksson, formaður ÍB V-
. héraðssambands, flutti kveðju ffá
stjóminni, Helga Magnúsdóttir, sem
sæti á í stjóm HSÍ og
Handboltasambandi Evrópu flutti
ávarp og Ómar Garðarsson,
stjómarmaður í ÍBV-íþróttafélagi,
ávarpaði samkomuna.
BESTU leikmenn í mfl. voru Erlingur Richardsson og Amela Hegic.
Viðurkenningar og heiðranir
Stjóm ÍBV-héraðssambands sæmdi eftirfarandi silfurmerki: Andreu Atladóttur, Ingibjörgu Jónsdóttur, Vigdísi
Sigurðardóttur, Rögnu Birgisdóttur og Sigbjöm Óskarsson. HSÍ veitti þrennum hjónum silfurmerki: Guðrúnu
Ragnarsdóttur og Þorvarði Þorvaldssyni, Eygló Kristinsdóttur og Grími Guðnasyni og Ólöfu Heiðu Elíasdóttur og
Björgvini Eyjólfssyni.
, Bestu leikmenn í mfl.voru Amela Hegic og Erlingur Richardsson. Markahæst vom Amela Hegic og Miro Barisic.
LEO Snær og Jóhann veislu- Mestu framfarir sýndu Hind Hannesdóttir og Gísli Guðmundsson.Besti vamarmaðurinn var Ingibjörg Jónsdóttir. Bestur
stjóri. í 2. flokki karla var Hannes Jónsson.
HSI veitti þrennum hjónum silfurmerki. Þau eru Grímur Guðnason og Eygló Kristinsdóttir, Guðrún
Ragnarsdóttir og Þorvaarður Þorvaldsson og Olöf Heiða Elíasdóttir og Björgvin Eyjólfsson.Grímur,
Eygló, Guðrún og Þorvarður ásamt Helgu Magnúsdóttur frá HSÍ.
STJÓRN ÍBV-héraðssambands sæmdi Sigbjörn Óskarsson, Vigdísi Sigurðardóttur, Andreu Atladóttur,
Ingibjörgu Jónsdóttur og Rögnu Birgisdóttur silfurmerki ÍBV. Ragna var ekki viðstödd og tók
Þorvarður Þorvaldsson við merkinu fyrir hennar hönd.
Spurt er????
Hver er
fyrsti
vorboð-
inn í
þínum
huga?
Kristjana Þorlinnsdóttir, for-
maður Félags eldri borgara:
„Mér finnst ulltaf
yndislegt þegr fugl-
arnir fara að setjast
upp. Þá finnst mér
vorið vera komið.
Og svo sumardag-
urinn fyrsti."
Séra Kristján Iijörnsson, sókn-
arprestur:
„Ætli fyrsti alvöru
vorboðinn sé ekki
lóan í hugum
flestra. En ferming-
arbörnin eru mínir
vorboðar."
Guðrún Jóhannsdóttir, versl-
unarmaður:
„Lóan, engin spurn-
ing. Söngur lóunn-
ar á morgnana
þegar ég vakna."
Ármann Höskuldsson, náttúru-
fræðingur:
„Þegar múkkinn sest
upp í Klettinn. Það
veit á gott, þeir byrja
alltaf svo snemma á
því að það lengir
sumarið heilmikið."
Ásmundur Pálsson, meindýra-
eyðir:
„Þegar vorfuglarnir
koma."
Harpa Rútsdóttir:
„Lóan, það er alltaf
svo gaman að heyra
í henni. Og svo
sumardagurinn
fyrsti."
Oskar Þórarinsson, skipst jóri:
„I gamla daga
fannst manni það
vera þegar Bjarn-
héðinn var að koma
með lönguna innan
al' Holtshrauni. En
núna finnst mér
vorið vera komið
þegar fer að fiskast vestan við
Surtinn."