Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 27.04.2000, Blaðsíða 13

Fréttir - Eyjafréttir - 27.04.2000, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 27. aprfl 2000 Fréttir 13 Ómar Garðarsson skrifar opið bréf til bæjaryfirvalda: Skítalykt um páska Við, þessir venjulegu Eyjamenn, höfum á á undanfömum ámm mátt sætta okkur við það að sífellt erfiðara er að komast um Heimaey. Þar sem áður vom opin svæði er stundum allt í einu girt með girðingum sem hrúgað hefur verið upp til þess að halda utan um nokkrar rollur. Sumar þessar girðingar em ágætlega úr garði gerðar en alltof margar em hreinlega ljótar og ekki bætir það útlitið þegar alls konar drasl byijar að safnast á þær. Allt þetta hafa Vestmannaeyingar mátt þola og hafa reyndar oft sýnt þessu ótrúlega þolinmæði. Að ósekju hefði alveg mátt heyrast meira í fólki því bæjaryfirvöld skulda bæjarbúum svo sannarlega svör við því hver á hvaða land og hver er réttur fólks til að komast um eyjuna. Rollubændur eiga heiðurinn af flestum girðingunum sem mynda ótrúlega Ijölbreytilegt mynstur úr lofti séð auk þess sem tilbrigðin í girðingum em hreint ótrúlega mörg. Girðingamar loka mörgum skemmti- legum gönguleiðum og dæmi em þess að á nokkur hundmð metra kafla þarf að fara yfir sex til átta girðingar til að komast leiðar sinnar. Þetta verður einfaldlega til þess að þeir fjölmörgu sem stunda göngur verða að halda sig á vegunum eða meðfram þeim í stað þess að geta haldið beint af augum og gert með því gönguna enn skemmti- legri og fjölbreyttari. Þessum ágætu rollubændum tókst á snilldarlegan hátt að takmarka enn frekar möguleika til útivem um páskana með því að úða skít á nokkur tún sem þeir hafa til „umráða." Nú er ég ekki í vafa um að húsdýraáburður getur hentað ágætlega og sparar kaup á tilbúnum áburði en það hljóta að vera takmörk fyrir því hvað hægt er að bjóða fólki því skít fylgir skítalykt eins og Eyjamenn og gestir þeirra fengu að kynnast um páskana. Meðan veðrið skartaði sínu fegursta þessa lengstu helgi ársins var ófært En ég held að atburðir síðustu vikna og að á nokkrum stöðum á eyjunni má sjá svæði sem em að fara í svað vegna ofnýtingar séu áminning til bæjar- yfirvalda um að nú verði að taka í taumana. fyrir gangandi að fara um stór svæði á Heimaey fyrir skítalykt. Þessi skíta- lykt er líka það fyrsta sem mætir gestum sem hingað koma með flugi þegar haldið er í bæinn. Ekki er heldur að sjá að skítalyktin sé á undanhaldi og eflaust á hún eftir að ná nýju há- marki þegar hlýnar. Skítalyktin, ásamt vægast sagt hæpinni landtöku í Herjólfsdal, vekur spumingar um hver sé réttur hins almenna borgara í Vestmannaeyjum og hvort bæjaryfirvöld hafi vilja eða getu til þess að hafa stjóm á „ffí- stundabændum". Af þessu tilefni era hér nokkrar spum- ingar til skipulags- og umhverfis- nefndar og landnytjanefndar: Getur hver sem er sölsað undir sig land eins og honum þykir henta? Era gerðar kröfur um útlit girðinga? Var farið fram á leyfi til að dreifa skítnum í síðustu viku? Hver á að hreinsa upp ónýtar girðingar sem víða er að finna á Heimaey? Er hægt að gera kröfur um að þeir sem eiga girðingamar setji á þær stiga þannig að hægt sé að komast um landið án mikilla erfiðleika? Hver á túnin sem fnstundabændur nýta? Hvað era margir hestar á Heimaey? Hvað er margt fé í Vestmannaeyjum? Hvað eiga þeir sem teljast þeir stórtækusm margar kindur og hvað marga hesta? Er þeim sem fá land undir búskap heimilt að ganga um það eins og þeim sýnist? Hafa verið gerðar beitarþolsrann- sóknir á einstaka túnum og land- spildum sem menn hafa til umráða undir skepnur sínar? Nú gæti einhver haldið að ég væri á móti búfjárhaldi en svo er alls ekki eins á sést af umsókn okkar Sigurgeirs félaga míns Jónssonar um að fá landskika undir nautgripi. Hún hefur reyndar verið á borði landnytjanefndar í allan vetur, síðan í september 1999, en við erum enn vongóðir um að fá, þó ekki væri nema afsvar frá þeirri ágætu nefnd. En ég held að atburðir sfðustu vikna og að á nokkram stöðum á eyjunni má sjá svæði vera að fara í svað vegna ofnýtingar séu áminning til bæjar- yfirvalda um að nú verði að taka í taumana. Það er sitt hvað bóndi eða frístundabóndi. Menn í hópi þeirra síðamefndu hafa sýnt og sannað að þeir geta lifað í sátt og samlyndi við okkur hin með góðri umgengni um leið og þeir skapa hér fjölbreyttara mannh'f. En það má öllu ofgera. Með von um skjót svör, Ómar Garðarsson, ritstjóri. Óskar Þórarinsson skrifar: Að gefnu tilefni Mjög fróðlegt og skemmtilegt við- tal í Fréttum, 19. apríl sl., við Kristján Óskars- son, skipstjóra og útgerðarmann, vakti mig til um- hugsunar um við- horf fólks til okkar sem eram ennþá að draga fisk úr sjó. Kristján er einn af fjölmörgum ein- staklingum í útgerð sem hafa gagnrýnt aflamarkskerfið og bent á ýmsa vankanta sem þar er að finna. Málflutningur hans hefur verið hreinskiptur og frakkur eins og við er aðbúastfráhansmunni. Ognúþegar hann er búinn að fá sig fullsaddan af hafrókerfinu, sem hann hefur verið neyddur til að vinna eftir í sautján ár, er hann spurður hvort hann hafi ekki leikið tveim skjöldum með því að játast ekki undir þá trú sem boðuð er af Hafró, en samt haldið áfram að gera út. Nú er það svo að við Stjáni höfum verið nokkuð samstíga í gagnrýni á þetta kerfi og ekkert farið leynt með það á fundum, í blaðaviðtölum og skrifað um það blaðagreinar svo ekki hafa verið margir skildir á lofti í þeim efnum. Að vilja halda áfram að starfa að fiskveiðum, eins og ég hef gert í 45 ár, þrátt fyrir óeðlileg afskipti hins opinbera sl. 25 ár, hefur ekkert með fals að gera. Ég mun reyna að gera út minn bát innan þessa kerfis, þrátt fyrir að leynt og ljóst sé verið að gera okkur einyrkjum erfitt fyrir með alls konar reglugerðum í tengslum við veiðamar, sem ganga nærri fiskistofnunum, án nýtingar. Og stefnan er að allir sam- Hvar þeir voru á þessum árum, sem hæst láta gegn kerfmu í dag, er mér hulið. Og sumar tillögur þeirra til lausnar vandanum, eins og hann snýr að okkur í dag, eiga frekar upp á borð sálfræðinga en stjómmálamanna. einist öllum og þá spyr maður, hveiju var verið að fagna þegar SÍS var leyst upp? Þegar kvótakerfin vora sett á 1983 skrifaði ég grein í Fréttir þar sem ég varaði við kvótabraski og örlögum einyrkja í útgerð. Arið 1990 stóð valið milli sóknar- marks og aflamarks. Þá skrifaði ég grein í Fréttir að ósk ritstjórans. Þar kemur berlega í ljós að ég er alfarið á móti þeirri fiskveiðistefnu sem varð fyrir valinu. Þar færi ég rök íyrir því að ungum mönnum sé gert ókleift að hefja útgerð verði aflamarkið valið. Síðan segir orðrétt: .Eiskveiðistefha, sem veldur því að dugandi skipstjórar og útgerðarmenn fara á hausinn og verða að láta skip sín í hendumar á mönnum sem aldrei hafa migið í saltan sjó, er röng. Fiskveiðistefna, sem veldur því að hörkufiskimönnum, sem hafa undanfarin ár endurbætt báta sína og látið smíða ný skip, er gert ómögulegt að standa við skuldbind- ingar sínar, er röng. Fiskveiðistefna, sem leiðir til þess að braskari kallast búhöldur en fiskimaður skussi, er röng.“ Tilvitnun lýkur. Lokaorðin f grein þessari vora: „Ef svo færi að Alþingi samþykkti afnám sóknarmarksins, verður sú óheilla- þróun að fiskveiðikvótinn verður orðinn eign örfárra aðila innan ára- tugar. Og þá mun þjóðin gera upp- reisn gegn óréttlætinu og klíkan sem ræður stefnunni í dag mun verja sér- réttindi sín með kjafti og klóm. Og það verður sársaukafullt uppgjör." Tilvitnun lýkur. Þannig skrifuðu sægreifar í gamla daga og vora litnir homauga! Hvar þeir voru á þessum áram, sem hæst láta gegn kerfinu í dag, er mér hulið. Og sumar tillögur þeirra til lausnar vandanum, eins og hann snýr að okkur í dag, eiga frekar upp á borð sálfræðinga en stjómmálamanna. Stjána á Emmu, skoðanabróður mínum í fiskveiðistjómarmálum, óska ég velfamaðar í nýju starfi og vona að hann lesi þetta, þrátt fyrir allt. Oskar Þórarinsson, skipstjóri, frá Háeyri. Skemmtanalíf var með eindæmum fjölbreytt yfir páskana, og framboðið stundum meira en eftirspurnin. Fréttir litu við hjá handboltanum þar sem var mikið líf og fjör. Gestir sáu oft ástæðu til að rísa úr sætum þegar verið var að heiðra afreksfólkið. Hljómsveitin 8-vilIt lék fyrir dansi og þar er Eyjakonan Ólafsdóttir ein söngkvenna FLUGFELAGISLANDS Sumaráætlun gildir til 1. október Fjórar ferðir á dag Bókanir og upplýsingar um flug í s. 481 3300 www.flugfelag.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.