Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 27.04.2000, Síða 16

Fréttir - Eyjafréttir - 27.04.2000, Síða 16
Daglegar ferOir oiilli londs og Eyja Landputningar Rútuferðir - Bus tours Móttaka ferðamanna, skóla- og íþróttahópa ÓDÝRASTi KOSTURINN í EYJUM (3) 481 1909 - 896 6810 - fax 481 1927 Vilhjálmur Bergsteinsson * 481-2943 * 897-1178 SEMQÍPEBðASÍLL Guðbjörg og Sigþór fengu Fréttabikarana áfram á sömu braut þá getur hann náð langt í íþróttinni." Omar sagði að bæði væru Guðbjörg og Sigþór verðugir fulltrúar ungs fólks í Vestmannaeyjum og vonandi ætti ÍBV eftir að njóta krafta þeirra um mörg ókomin ár. Þrír páskastútar Eftir vikuna lágu fyrir níu kærur vegna umferðarmála. Einn var kærður vegna aksturs gegn einstefnu, fjórir fyrir að leggja ólöglega, einn fyrir hraðakstur og þrír vegna meintrar ölvunar við akstur. Það sem af er árinu hafa tólf verið teknir fyrir ölvun við akstur. A sama tíma í fyrra voru þeir átta og hafði þá fjölgað mikið frá árinu þar áður. Er þama um alvarlega þróun að ræða og vonandi að ökumenn láti af þeirri hættulegu iðju að aka undir áhrifum. f ljósi þessarar þróunar má búast við verulega hertum aðgerðum lögreglu við að fylgjast með ölvunarakstri. Þurfti að sauma 20 spor Ein líkamsárás var kærð til lögreglu eftir páskana og átti hún sér stað á einu af öldurhúsum bæjarins. Þar hafði verið rifið aftan í mann sem féll aftur fyrir sig. Þá sparkaði árásarmaðurinn einnig í hann eftir því sem vitni sögðu. Fékk hann skurð á hnakka og þurfti að sauma 20 spor til að loka þeim skurði. Sigþór og Sigríður Hreinsdóttir, sem tók á móti bikarnum fyrir Guðbjörgu dóttur sína. Guðbjörg Guðmannsdóttir og Sigþór Friðriksson hlutu Frétta- bikarana á lokahófi handboltans sl. laugardag. Fréttabikararnir koma í hlut efnilegra leikmanna í yngri flokkum í handbolta og fótbolta og eru afhentir í lok hvors tímabils. Ómar Garðarsson ritstjóri afhenti Fréttabikarana og sagði við það tækifæri að Fréttum væri heiður að því að koma að íþróttastarfsemi í bænum með þessum hætti. „Guðbjörg hefur, þrátt fyrir ungan aldur leikið lengi með meistaraflokki ÍBV,“ sagði Ómar. „Hún hefur jafnframt verið ein af efnilegustu handknattleikskonum landsins og hefur leikið með öllum yngri landsliðum Islands í hand- knattleik. Síðasta sumar fór hún einmitt með U-l8 landsliði Islands á heimsmeistaramótið sem haldið var í Kína. Var Guðbjörg útnefndur varafyrirliði liðsins. Mörgum þykir kannski furðulegt að Guðbjörg sé talin efnileg enda byrjaði hún ung að leika með meistaraflokki en hún er samt sem áður enn leikmaður 2. flokks ÍBV og á því framtíðina fyrir sér í hand- boltanum,“ sagði Ómar. í karlaflokki er Sigþór Friðriksson handhafi Fréttabikarsins í ár. „Sigþór er aðeins nýorðinn sautján ára og er þar af leiðandi á yngra ári í 3. flokki. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Sigþór náð þeim merka áfanga að spila sinn fyrsta meistaraflokksleik, en hann kom inn á á móti Haukum í úrslita- keppninni. Sigþór hefur lagt mikið á sig í vetur, æft vel og hefur uppskorið samkvæmt því. Hann er góð fyrir- mynd félaga sinna og ef hann heldur Sá þekkti kylflngur og rakari, Ragnar Guðmundsson, gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á golfvellinum á þriðjudag. Er hann sá fyrsti sem afrekar slíkt á vellinum í Vestmannaeyjum á árinu. Þetta gerðist á 12. brautinni, sem ber nafnið Hæna. „Ég notaði níujárn í höggið og Maxfli kúlu með 90 pressu. Og hún var kyrfilega niðri þrátt fyrir stóran blýhólk á stönginni sem hálflokaði holunni. Með mér voru þeir Einar Ólafsson, Gunnar Stefánsson og Sveinn Magnússon og heimtuðu allir að fá að kvitta á skorkortið. Þeir tilkynntu mér líka að þeir ætluðu að mæta til koníaksveislu upp í bústað til mín þann 17. júní og það verður ekkert því til fyrirstöðu,“ sagði Raggi rakari. Þetta er í annað sinn sem Ragnar fer holu í Raggi rakari. höggi, þann leik lék hann áður þann 7. september 1985 á braut númer tvö. „Þetta var ánægjulegt þó að lfldega hafi nú hríslingurinn niður eftir bakinu verið meiri í fyrra skiptið. En þetta var virkilega gaman,“ sagði Raggi rakari. Ragnar er annar Vestmannaeyingurinn sem nær þessum árangri á árinu, Sigurgeir Jónsson lék sama leik á Hólmsvelli í Leiru fyrr í mánuðinum og nú er bara að bíða og sjá til hvort fleiri bætast í hópinn í sumar. Golfvöllurinn kemur vel undan vetri og nú er unnið á fullu að því að koma honum í gott horf fyrir átök sumarsins. Hápunktur golfvertíðarinnar í sumar verður Norðurlandamótið sem að þessu sinni verður haldið í Eyjum í júlí. Raggi rakari fór holu í höggi á Hænu Vikutilboð Vöruvals MyPops 88,- áSur 108 Wheetos 199,- áSur 274 V _________________J Homeblest, 300 gr. 129,- V____________________________J Cocoa Cronchies 179,- áður 275 FigRolls 109,- áður 136 V_________________________________J Remi kex 109,- áður 139,- Condi kex 109,- áður 139,- Við seljum eingöngu Sæfellsegg - kr. 329 pr. kg. Nýbökuð brauð daglega frá Vilberg kökuhúsi og Arnóri bakara Eflum okkar heimabyggð

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.