Fréttir - Eyjafréttir - 27.07.2000, Blaðsíða 21
Fimmtudagur 27. júlí 2000
Fréttir
21
GESTIR troðfylltu Höfðann og ekki annað að sjá en að þeir skemmtu sér vel
Vel heppnuð skemmtun
Sumarstúlka Vestmannaeyja 2000
var valin á mikilli sumarstúlkuhátíð
á Höfðanum síðastliðið laugardags-
kvöld að viðstöddu fjölmenni. Það
var Lilja Björg Arngrímsdóttir, 18
ára gömul Eyjamær, sem krýnd
var hinum eftirsóknarverða titli að
undangenginni vökulli og greindar-
legri niðurstöðu dómnefndar, auk
þess sem gestir hátíðarinnar fengu í
hendur atkvæðaseðla hvar þeir
gátu látið í ljós hver hinna sjö
stúlkna þeim hugnaðist best og væri
verðugasti handhafi titlisins,
Sumarstúlka Vestmannaeyja árið
2000. Keppnin fór hið besta fram,
auk þess sem margt skemmtiatriðið
var gestum til afþreyingar og gleði
þetta kvöld, sem stundum hefur
verið talið eitt fjörugasta innlegg í
sumarskemmtanaflóru Eyjamanna,
eðlilega þó að undantekinni
þjóðhátíð.
Auk ijölbreyttra skemmtiatriða var
gestum samkomunnar boðinn góður
snæðingur af spænskri tapasgerð. Féll
sú næring í ágæta maga, þó að
einhverjir hafi saknað nokkurra upp-
lýsinga um þá nýjung sem þetta fæði
vissulega var. Var haft á orði að
sumum hefði þótt að löng væri biðin í
aðlaréttinn. Hins vegar mun forréttur,
aðalréttur og eftirréttur hafa verið inni
í tapaspakkanum eins og hann lagði
sig. Þrátt fyrir þennan miskilning,
þótti maturinn þó bragðgóður og gekk
enda vel út af hlaðborðinu þetta kvöld
og allir fengið snæðingsnægju sína
eftir því sem best er vitað.
Skemmtiatriðin þóttu takast vel,
enda fjölbreytt að vanda. Að frátalinni
hefðbundinni kynningu á þátttak-
endum í keppninni og tískusýningu
með dyggilegri aðstoð spengilegra
sveina, sem að sumra mati fannst
stundum yfirgnæfa hin fögru fljóð. Þá
tróðu upp söngkonan Margrét Bjama-
dóttir og söngvari hinnar þekktu
Eyjagrúppu D-7. Auk þess sem
gítarleikari hljómsveitarinnar Lands
og sona söng og lék undir á gítar
ótengdur. Gerði allur þessi tónlistar-
flutningur eina góða lukku. Hinn
heimsfrægi, sjálfumglaði töframaður,
trúður og blekkingameistari, Skari
skrípó mætti einnig á svæðið. Gerði
hann þvflfkt góða og öfluga skemmti-
sprengingu og stemmningu í salnum
og svo mikla að full ástæða þótti til að
hann kæmi tvisvar sinnum á sviðið.
Olli hann aðdáendum sínum engum
vonbrigðum frekar en endranær og
framkallaði mörg hlátrasköllin og
furðu með sínum einstæðu töfra- og
skrípatólum.
Eins og að framan greinir var
aðalatriði kvöldins eðlilega val
sumarstúlkunnar, en auk hennar var
einnig valin Ijósmyndafyrirsæta
keppninnar og vinsælasta stúlkan í
hópnum. Þær sem hlutu þá eftir-
sóknarverðu titla voru Þórey
Jóhannsdóttir ljósmyndafyrirsæta og
Iris Dögg Konráðsdóttir sem lagði
aðra keppendur að velli sem vin-
sælasta stúlkan, báðar vel að titlum
sínum komnar. Það er ljóst að
sumarstúlkukeppnin hefur náð góðri
fótfestu í skemmtanalífmu og vonandi
að hún eigi gott líf framundan og þá í
nýju og glæsilegu húsnæði, því það
geta allir verið sammála um að
Höfðinn er engan veginn í ásættanlegu
ásigkomulagi til að hýsa skemmti-
dagskrá af téðu kaliberi. Gerðu
aðstandendur keppninnar þó sitt besta
til þess að flikka upp á staðinn með
skreytingum sem sóttu uppruna sinn í
villta vestrið, allt með miklum
ágætum upp sett og túlkað.
Að lokinni sjálfri keppninni á
Höfðanum var boðið til balls á Kaffi
Tímor þeim sem slíkt hugnaðist.
Dönsuðu þar gestir fram eftir kvöldi
við undirleik hljómsveitarinnar Lands
og sona, sem slógu ágætan botn í
skemmtunina.
VILLTA vestrið var þema kvöldsins og var Höfðinn skreyttur í
samræmi við það en um það sáu Björg í Sprett úr spori, Dagmar
og Nada Borosak sem málaði skemmtilega mynd á sviðið í vestra
stfl. I opnunaratriðinu komu stúlkurnar fram í indíánabúningum
sem Selma Ragnarsdóttir hannaði og saumaði.
VERSLANIRNAR Flamingo og Eðalsport sýndu föt á
skemmtuninni. Stúlkurnar sýndu fötin ásamt fjórum piltum, ívari,
Davíð, Gústaf og Bjarka. Hér eru Jóhanna og Iris með Ivari.
ÓLAFUR
MARGRÉT
SKARI SKRÍPÓ
TÍSKUSÝNINGIN setti skemmtilegan svip á kvöldið.