Fréttir - Eyjafréttir - 27.07.2000, Qupperneq 23
Fimmtudagur 27. júlí 2000
Fréttir
Landssímadeild karla: IBV 1 - IA0
■■■
Gömlu mennirnir björg
uðu heiðri Eyjamanna
Á laugardag fór fram stórlcikur
fyrrum stórvelda íslenskrar knatt-
spyrnu þegar IBV tók á móti IA á
Hásteinsvelli. Bæði lið hafa átt við
svipuð vandamál að stríða, góður
alhliða leikur sem skilar þó kannski
litlum árangri og fáum mörkum.
Það var því kannski ekki búist við
mikilli markaveislu enda slíkt ekki
oft upp á teningnum í viðureignum
þcssara liða síðustu ár. Hlynur
Stefánsson fyrirliði og aftasti maður
liðsins skoraði sigurmarkið, annan
leikinn í röð. Þetta mark Hlyns og
frábær markvarsla Birkis Kristins-
sonar tryggðu IBV 1-0 sigur í leik
sem hefði getað endað á hvorn
veginn sem var, eru ánægjuleg
úrslit og kannski að heppnin sé
gengin í lið með IBV.
Leikurinn var lengst af jafn og
spennandi. Skagamenn byijuðu þó
betur, voru meira með boltann og áttu
hættulegan skalla sem vamarmenn
vörðu á línu. Ingi átti svo ágætt skot
úr vítateig sem Skagamenn vörðu á
línu. Skagamenn skoruðu undir lok
fyrri hálfleiks, en boltinn breytti um
stefhu á sóknarmanni sem var réttilega
dæmdur rangstæður. Staðan því í
hálfleik 0-0 og ljóst að ÍBV þurfti að
bjóða áhorfendum upp á meiri baráttu
leikmanna en í fyrri hálfleik.
Seinni hálfleikur var með svipuðu
sniði og sá fyrri. ÍBV var þó betri
aðilinn og barátta leikmanna skilaði
nokkrum ágætis færum. Hlynur átti
m.a. þrumuskot í stöng en heppnin var
ekki með honum í þetta skiptið.
Skagamenn sóttu hins vegar hratt upp
og skapaðist nokkrum sinnum hætta
við mark ÍBV, en Birkir Kristinsson
áttí stórleik og varði það sem á markið
kom. Hlynur skoraði svo sigurmark-
ið eftir ágæta homspymu Baldurs
Bragasonar, sem hafði komið inn á
sem varamaður. ÍBV hélt sínum hlut
án teljandi vandræða.
í IBV vantaði tvo leikmenn, þá
Kjartan Antonsson, einn af betri
mönnum liðsins í sumar og svo
Tómas Inga Tómasson en eflaust
hefði sóknarleikur IB V verið á öðmm
nótum ef hans hefði spilað. Páll
Almarsson kom inn í liðið fyrir
Kjartan, leysti verkefnið með ágætum
en átti í vandræðum með að koma
boltanum á samheija og tefldi oft á
tæpasta vað. Sláandi var hins vegar
frammistaða útlendinganna tveggja,
þeirra Momirs og Gorans en þeir
komust engan veginn í takt við leikinn
og fyrir vikið átti ÍBV ávallt í
erfiðleikum á miðjunni þrátt fyrir
ágætan leik Hjalta Jónssonar.
Leikurinn var hins vegar lýsandi dæmi
um knattspymuna sem boðið er upp á
í Landssímadeild karla í sumar, góður
og traustur vamarleikur en fátt um fína
drættí í sóknarleik.
Kristinn Jónsson var ánægður með
stigin eftir leikinn. „Þetta var bardaga-
sigur. Þetta var erfiður og jafn leikur
enda átti maður alltaf von á því. Bæði
hð þurftu nauðsynlega á sigri að halda
til þess að koma sér upp í þessa efri
grúppu sem trónir við toppinn í
deildinni og losna frá því að lenda í
hópi neðstu liða. Þetta var kannski
ekkert besti fótboltaleikur sem maður
hefur séð en bæði lið fengu sín færi
þannig að skemmtanagildi leiksins var
kannski mikið.“
Tveir sigurleikir í röð, er liðið komið á
beinu brautina?
„Við emm að vona það, maður
hefur kannski sagt það áður en mér
finnst liðið hafi verið á uppleið alveg
síðan í KR-leiknum. Þó við höfum
tapað fyrir Grindavík í millitíðinni, þá
var sá leikur bara jafn eins og þessi
leikur og gat alveg eins endað með
okkar sigri eins og þeirra. Næsti
leikur hjá okkur er gegn Stjömunni og
það verður erfiður leikur en ég lofa því
að við munum ekki vanmeta liðið
enda em þeir að beijast fyrir lífi sínu í
deildinni," sagði Kristinn eftir leikinn.
ÍBV 1 - ÍA 0
ÍBV spilaði Ieikkerfið 4-4-2: Birkir
Kristinsson, Hjalti Jóhannesson,
Páll Almarsson, Hlynur Stefánsson,
Bjami Geir Viðarsson, Momir
Mileta, Goran Aleksic, Hjalti
Jónsson, Ingi Sigurðsson, Jóhann
MöIIer, Steingrimur Jóhannesson.
Varamaður sem kom inn á: Baldur
Bragason
Mark ÍBV: Hlynur Stefánsson.
Undanúrslit Bikarkeppni kvenna: fBV 0 - Breiðablik 1
Konurnar eisa betra skilið
ÍBV tók á móti Breiðabliki í
undanúrslitum Coca Cola bikar-
keppni kvenna á Hásteinsvelli
sfðastliðinn sunnudag. Leikurinn
var mikill rokleikur og án efa hefði
leik karlaliða verið frestað við sömu
aðstæður. En þrátt fyrir rokið fór
leikurinn fram og náðu liðin að
sýna ótrúlega góð tilþrif miðað við
aðstæður. Blikarnir nýttu sér
reynslu sína og lönduðu sigri sínum
með frekar ódýru marki í fyrri
hálfleik.
ÍBV lék undan vindi í íyrri hálfleik.
Liðið náði þó ekki að nýta sér með-
byrinn og náði ekki afgerandi
yfirburðum á vellinum. Elena Einis-
dóttir átti þó að fá vítaspymu dæmda
eftir tíu mínútna leik en afleitur
dómari leiksins opinberaði kunnáttu-
leysi sitt í knattspymuíræðunum með
því að dæma ekki. Aftur var dóm-
arinn í sviðsljósinu þegar markvörður
Breiðabliks tók markspymu, vindur-
inn feykti boltanum tíl baka í áttina til
hennar og hún tók boltann upp án þess
að nokkur annar á vellinum hefði
komið við hann. Dómarinn sá ekki
ástæðu til þess að dæma og vom
áhorfendur allt annað en ánægðir með
það. Upp úr þessu bmnuðu gestimir í
sókn og skomðu sigurmarkið á frekar
ódýran hátt.
Seinni hálfleikur var mjög erfiður
fyrir ÍBV enda spilað á móti rokinu.
Þrátt íyrir það sóttu stelpumar nokkuð
síðustu tíu mínútumar og vom nálægt
því að skora en Kelly Shimmin skaut
yfir úr upplögðu færi. Leikurinn rann
sitt skeið og endaði með 0-1 tapi ÍBV.
Leikmenn IBV hefðu átt að nýta sér
vindinn í fyrri hálfleik og skjóta meira
á markið. Til marks um skort á
áræðni stelpnanna þá eiga þær aðeins
fjögur skot á mark gestanna í fyrri
hálfleik, þar af aðeins eitt langskot.
Vindurinn var reyndar það sterkur að
líklega var ekkert betra að spila með
hann í bakið en þrátt fyrir það þá náðu
leikmenn ÍBV að sýna ágætís spil sín
á milli. Tapið á sunnudaginn var sárt
en lið gestanna virtist líkamlega
sterkara og Breiðablik er án efa besta
kvennaliðið í dag.
Kvennaknattspymu hefur fleygt
mikið fram undanfarin ár og konumar
hljóta að eiga betri dómgæslu skihð en
KSI bauð þeim upp á þessum leik.
AÐSTÆÐUR voru mjög erfiðar í leiknum, austan rok sem gerði
leikmönnum ómögulegt að hemja boltann. Hér er Petra að halda
boltanum fyrir Sigríði Ásu sem tekur útsparkið.
Knattspyrna yngri flokkar: Zeljko Sankovic þjálfari 4. flokks karla
Vantar heila kynslóð inn í fótboltann
Lið fjórða flokks ÍBV hefur verið í
sviðsljósinu að undanförnu og því
miður fyrir slakan árangur. Mikið
hefur verið rætt um stór töp
flokksins enda hafa tölurnar oft
verið á annan tuginn sem er eitt-
hvað sem Eyjamenn eiga ekki að
venjast. Zeljko Sankovic yfir-
þjálfari yngri flokka IBV og þjálfari
4. flokks sagði í samtali við Fréttir
að um gamalt vandamál væri að
ræða.
„Einhvers staðar fyrir noklaum
ámm hefúr tapast heil kynslóð af
strákum í fótboltanum. Þessu eru
bæði íjórði og þriðji flokkur að
kynnast núna enda eru flokkamir
mjög fámennir. Sem dæmi má nefna
að í íjórða flokki í fyrra voru aðeins
þrír leikmenn á elsta ári. Upp í annan
flokk gekk svo ljöldinn allur af
strákum, en aðeins þessir þrír gengu
upp í þriðja flokk. Sama vandamál er
í fjórða flokki og jafnvel fimmta
flokki lfka. Þegar ég kom hingað vildi
ég vinna í þessu og gera þá sem fyrir
voru að betri leikmönnum. Ég vildi
hafa allt að 6-7 æfingar á viku, en
foreldrum og öðrum sem við kom
málið þótti það of mikið og ég hef
verið skikkaður til að fækka æfingum.
Ástæður lélegs gengis flokkana eru
margþættar en eitt af vandamálum er
hversu erfitt er fyrir okkur að fá
æfingaleiki, skiljanlega sökum legu
Eyjanna, en á meðan við spilum 4-5
æfingaleiki við stelpumar þá em
jafnaldrar þeirra að spila 15-20
æfingaleiki við jafnaldra sína. Ég
reyni hins vegar að horfa ekki eins
mikið í úrslit einstaka leikja, heldur vil
ég gera góða knattspymumenn úr
þeim sem æfa vel og reglulega. Það
þýðir að oft er kannski bestí maðurinn
í stöðu sem nýtist liðinu kannski ekki
nógu vel, en nýtist honum hins vegar í
framtíðinni. Einnig hef ég lagt áherslu
á góða samvinnu við handboltann. Ég
er hins vegar tilbúinn í að vinna með
krakkana en búast má við að á næstu
ámm verði árangur 3. og 2. flokks í
lélegri kantínum,“ sagði Zeljko.
Liðssfyrkur til
Islandsmeistaranna
Eins og fram hefur komið hefur
Hind Hannesdóttir ákveðið að flytja
til Reykjavikur og spila þar hand-
bolta. Hópurinn í fyrra var mjög
þunnskipaður og því fór hand-
knattleiksráð á stúfana í þeirri
viðleitni að styrkja hópinn, enda
munu sænsku leikmennimir tveir,
Anita og Mette ekki koma aftur til
liðsins á komandi tímabili. Tveir
leikmenn hafa nújjegar ákveðið að
ganga tíl liðs við IB V, en báðar em
þær ungar og mjög efnilegar
stelpur. Ingibjörg Yr Jóhannsdóttir
kemur frá ÍR en hún er rétthent
skytta og er á tvítugsaldri. Hinn
leikmaðurinn er Hafdís Hinriks-
dóttir, systir Hjartar sem lék með
ÍBV fyrir tveimur árum. Hún er
örvhent og getur bæði spilað í homi
og í skyttuhlutverki. Þorvarður
Þorvaldsson í handknattleiksráði
sagði að ráðið væri að leita að
erlendum leikmanni, en sú sem þau
höfðu í sigtinu hætti við á síðustu
stundu sem setur allt á byrjunarreit.
Þrátt fyrir það þá sagði Þorvarður
að liðið væri í góðum gír og menn
væm bjartsýnir á framhaldið. Þess
má geta að ÍBV tekur þátt í
Evrópukeppni félagsliða og mun
fyrri leikurinn líklega fara fram í
byrjun október, en ekki hefur enn
verið dregið um hverjir mótherjar
ÍBV verða.
Heimir hættir eftir
tímabilið
Heimir Hallgrímsson, sem þjálfað
hefur meistaraflokk kvenna, hefur
ákveðið að hætta þjálfun liðsins
eftir þetta tímabil. Heimir sagði í
samtali við Fréttir að hann hafi
verið búinn að taka ákvörðun um
málið fyrir löngu, þannig að tapið
fyrir Breiðablik í bikamum hafði
ekkert með málið að gera.
Magnús ráðinn til
ÍBV-íþróttafélags
Magnús Sigurðsson, knattspymu-
kappi, hefur verið ráðinn til starfa
hjá aðalstjóm ÍBV. Starfsheitið er
framkvæmdastjóri aðalstjómar ÍBV
og mun hann að miklu leyti sjá um
starfsemi yngri flokka ÍBV, bæði
knattspymu og handknattleik ásamt
því að sinna ýmsum tilfallandi verk-
efnum.
Framundan
Fimmtudagur 27. júlí
Kl. 18.OOIBV-KR3.fi. karla
Föstudagur 28. júlí
Kl. 20.00 ÍBV-Stjaman 2.fl. kvenna
Kl. 20.00 ÍH-KFS
Laugardagur 29. júlí
Bikar 2.11. karla
Kl. 14.00 ÍBV-Valur3.fl. kvenna
Sunnudagur 30. júlí
Kl. 20.00 ÍBV-Fram Landssíma-
deild karla
Þriðjudagur 1. ágúst
Kl. 20.00 IBV-ÍA 2.fl.karla
Miðvikudagur 2. ágúst
Kl. 20.00 KFS-ReynirS.
Kl. 20.00 Valur-ÍBV 2.fl. karla
Úrslit leikja 4. flokks
um helgina
Fjölnir-ÍBV 7-3 í A-liðum
Fjölnir-ÍBV 4-2 í B-liðum
Fram-ÍBV 12-OÍA-liðum
Fram-ÍBV 10-1 íB-liðum.