Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 02.08.2000, Blaðsíða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 02.08.2000, Blaðsíða 2
2 Fréttir Miðvikudagur 2. ágúst 2000 Viðbúnaður vegna konungskomu í liðinni viku voru færslur í dagbók lögreglu 180 talsins, talsvert meira en í vikunni á undan. Nokkur við- búnaður var af hálfti lögreglu vegna heimsóknar Noregskonungs hing- að. AJlt fór þó vel fram og engar óvæntar uppákomur. Enn klippt á girðingar - Kindur sækja í flugvöllinn Lítið var um skemmdarverk í vik- unni, brotin var rúða í veiðar- færageymslu og brotist inn í Lifrarsamlagið en ekki að sjá að neinu hefði verið stolið. Þá var enn klippt sundur fjárgirðing við ristarhlið á veginum suður í Höfða. Atú því sauðfé greiðan aðgang út úr girðingunni og inn á golfvöllinn sem virðist vera í sérstöku uppá haldi lijá sauðfé. Kindurnar hafa sótt á ný mið því nú spranga þær um flugvöllinn. Þeir em því að verða ófáir blettimir sem blessaðar rollumar helga sér á Heimaey. En auðvitað er ekki við þær að sakast heldur eigenduma sem þrátt fyrir allt girðingafárið geta ekki haldið þeim þar sem þær eiga að vera. Væri fróðlegt að vita hver væri ábyrgur ef kindur yrðu valdar að flugslysi. Enn einn stútur Átján voru bókaðir í umferðinni og níu þeirra sem fengu á sig kæru vegna brota á umferðarlögum. Einn þeirra vegna ölvunar við akstur og þrír fyrir ofhraðan akstur. Einn þeirra mældist á 1(X) km hraða á Strandveginum þar sem há- markshraði er 50 km. Einn var kærður t'yrir að hafa of marga farþega í bíl sínum. Rétt er að minna á að tryggingar ná aðeins yfir þann fjölda farþega sem leyfilegur er í bifreið, hinir em ótryggðir. Sex umferðaróhöpp komu til kasta lögreglu en öll reyndust þau minniháttar. Hundur beit börn í vikunni vai' lögreglu tilkynnt að hundur hel'ði bitið tvö börn. Enn og al'tur vill lögregla íti'eka að lausaganga hunda er bönnuð í Vestmannaeyjabæ. Því miður eru þeir margir sem ekki virða þessa reglu og leyfa hundum sínum að valsa efdrlitslaust um bæinn. Útivistarreglur í gildi Lögregla vill koma því á framfæri að útivistarreglur eru í fullu gildi á þjóðhátíð, hvort sem er á hátíðar- svæðinu eða utan þess. Það þýðir að böm og unglingar, undir 16 ára aldri, mega ekki vera úti lengur en til miðnættis nema í fylgd með fullorðnum. Lögregla telur og að fólk undir þeim aldri hafi ekkeit að gera í Dalnum eftir miðnætti. Slfkt býður einungis hættunni heim, þama verður mikið af ókunnugu fólki auk þess sem búast rná við mikilli ölvun. „Hafið velferð barn- anna í huga og sendið þau heim,“ segir í dlkynningu frá lögreglunni. eyjafrettir.is f dag var vefsíða Frétta: www.eyjafrettir.is/ formlega opn- uð. Það var Lilja Björg Arn- grímsdóttir sumarstúlka Vest- mannaeyja 2000, sem handlék músina og opnaði vefinn. Eins og fréttaþyrsdr lesendur Frétta vita hefur undirbúningur að vefnum staðið nokkrar undanfamar vikur og pmfukeyrslur verið í gangi. Um leið og ákveðið var að setja Fréttír á netið var leitað til Tölvunar, sem unnið hefur að tæknilegum útfærslum og uppbyggingu og um leið gerst hluthafi í Eyjaprent/Fréttir ehf. Hluthafar binda miklar vonir við netvæðinguna. Þjónusta við lesendur eykst og síðan verður uppfærð reglulega með því nýjasta og fréttnæmasta sem gerist í Eyjum. Omar Garðarsson, ritstjóri Frétta og eyjafretta.is , sagði af þessu tilefni að þetta væri nýr og spennandi miðill sem vonandi ætti eftir að falla fólki vel í geð. „Þetta er ekki eingöngu spum- ing um að Eyjamenn geti nálgast það fréttnæmasta á netinu sem á döfinni er í Eyjum, heldur og ekki síður mjög mikilvægt í samkeppni landsbyggð- arinnar um athyglina á upplýs- ingaöld." SUMARSTÚLKA Vestmannaeyja 2000, Lilja Björg Arngrúnsdóttir, opnaði eyjafrettir.is formlega í gær á ritstjórn Frétta. Ólafur Týr Guðjónsson framkvæmdastjóri Hátíðarsvæðið girt af -og áherslubreyting í rukkun aðgangseyris í Dalinn í ár verður þjóðhátíðarsvæðið mun afmarkaðra en áður. Búið er að koma fyrir færanlegum girðingum kringum hátíðarsvæðið. Nær girð- ingin frá Fjósakletti að vestan, til austurs meðfram Herjólfsbæ, sunn- an bílastæðis á 6. braut á golf- vellinum og allt austur að 5. flöt golfvallarins. Norðan Dalvegar er einnig girðing, frá þjóðhátíðar- hliðinu og austur með bflastæðinu sunnan gamla Golfskálans, upp í brekkuna. Ólafur Týr Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri þjóðhátíðamefndar, segir ætlunina með girðingunni þá að auðvelda gæslu og umhirðu á svæðinu auk þess sem hún muni auðvelda rukkun fyrir aðgangseyri. Tjöldun verður ekki leyfð utan svæðisins. Bílastæði verða á sama stað og áður, á flötinni þar sem er 6. braut á golfvellinum. Fólki er einnig bent á bflastæði við Týsheimili, Þórsheimili og Golfskála en eindregin tílmæli em að fólk stilli notkun einkabfla í hóf eins og kostur er. Að þessu sinni verður áherslu- breyting í rukkun aðgangseyris í Dalinn og varðar einkum rútur og bekkjabfla. Innheimtuskúrinn verður að þessu sinni mun innar en áður hefur verið, eða við norðvesturenda bfla- stæðisins sunnan gamla golfskálans, rétt áður en komið er að aðalhliði. Öllum farþegum í rútum og bekkjabflum verður hleypt úr á því bflastæði til að auðvelda rukkun. Síðan munu rútur og bekkjabflar fara gegnum aðalhliðið inn á svæðið til að taka farþega á leið í bæinn. Þjóð- hátíðamefnd mælist einnig til þess að þeir sem koma á einkabflum og eiga eftir að greiða aðgangseyri, hafi sama hátt á, farþegar fari úr bflum á bflastæðinu. Sögur hafa gengið um að sótt hafi verið um vínveitingaleyfi fyrir veit- ingatjaldið en Ólafur Týr segir svo ekki vera. „Sú hugmynd skaut upp kollinum einhvem tíma í sumar en að athuguðu máli var horfið frá því að sækja um slíkt og allir fyllilega sáttir við það,“ sagði Olafur Týr. 111'hLIH I GIRÐINGIN auðveldar allt eftirlit og miðasölu í Dalinn, Spurt er. að vera á þjóðhátíð? Óskar Ólafsson, sölumaður: Steingrímur Sigurðsson, skoð- unarmaður: ----~7----pi Nei, ég verð að vinna í Þorlákshöln ’ fram á föstudag og fæ ekki far með /1 bílinn heirrj þannig að við komum til _______með að eyða helg- inni uppi á landi. Kristín Gísladóttir, húsmóðir: Jóhann I Guðmundsson, flug- vallarstjóri: j -'ifcikM Eg verð að vinna I uppi á fiugvelli alla helgina og á ekki f . von á að verða 4 jm. mikið innfrá. En ég ~ :Æ verð á svæðinu. Sigrún Óskarsdóttir, hjá Axel Ó: æ* <--] Já, það er ekki hægt /TlEtfÉÁ'' að sleppa þjóðhátíð. Snorri Óskarsson, í Betel: Nei! Eg verð þar f sem heilagur andi f : . - I fær að vera í friði. Birgir Guðjónsson, formaður ijóðhátíðarnefndar: Að sjálfsögðu. Eg annarra og skemmta mér við -lúðrasveit 37/ og bjargsig, ásamt —— A— glæsilegustu fiug- eldasýningu sem sést hefur á Islandi. FRETTIR Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481- 1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyja r. is/~f retti r. FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig i lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. FRETTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.