Fréttir - Eyjafréttir - 02.08.2000, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 2. ágúst 2000
Fréttir
13
viðstöddum norsku konungshjónunum, forseta íslands ofl.
NORSKUR leikflokkur frá Moster flutti leikþáttinn Sverðið og
krossinn eftir Johannes Heggland undir leikstjórn Ragnhild Randai
tónlist var flutt eftir Jostein Molde.
ÁRNI Johnsen opnar formlega sérstaka vefsíðu stafkirkjunnar en slóðin er
http://www.landmat.is/stafkirkja
Samningur um byggingu
nýja íþróttahússins
SKRIFAÐ undir samninginn.
Síðastliðinn mánudag var undirritaður samningur í
Byggingavöruversluninni Húsey, um byggingu hins
nýja íþróttahúss í Eyjum, milli Húsamiðjunnar og
Steina og Olla hf. sem sjá mun um framkvæmd
verksins, en húsið er finnsk hönnun og flutt inn þaðan.
Bogi Siguroddsson, forstjóri Húsasmiðijunnar, skrifaði
undir samninginn fyrir hönd Húsasmiðjunnar og sagði
hann við þetta tækifæri að Húsasmiðjan og Húsey
hefðu átt mjög gott samstarf undanfarin ár, en verkið
er algerlega unnið í samtarfi við Húsey sem hefur verið
aðili að málinu allan tímann. „Það fór fram alútboð á
verkinu og tilboði Húsasmiðjunnar tekið,“ sagði Bogi.
„Við erum mjög ánægðir með það samstarf sem við
höfum átt við aðila í Vestmannaeyjum. Hér hafa menn
unnið mjög vel að undirbúningi, tæknilegum for-
sendum og kröfum sem gera á til íþróttahússins, þannig
að við hlökkum til að vinna að þessu verkefni með
byggingaraðilanum.“ Gert er ráð fyrir að byggingu
hússins verði lokið 1. september árið 2001. Myndin hér
að ofan er frá undirritun samningsins. Standandi frá
vinstri, Þorsteinn Finnbogason, Garðar Björgvinssxon,
Þór Valtýsson, Guðmundur Þór Sigurðsson sérverk-
efnastjóri hjá Húsasmiðjunni, Kristmann Karlsson,
Hörður Óskarsson, Sigurjón Pálsson og Magnús
Sveinsson. Sitjandi f. v. Ársæll Sveinsson og Bogi
Siguroddsson, forstjóri Húsasmiðjunnar.
grjótgarðanna, lagning stétta og kants
á hafnargarðinn á vegum Garð-
yrkjunnar h.f. undir stjóm Steinþórs
Einarssonar.
Bæjarstjóm Vestmannaeyja miðar
við að lokafrágangur sem sem ólokið
er í þessu heildarverkefni verði fyrir
30 september nk. Rafmagnsvinna
hefur verið á vegum Geisla og Bæjar-
veitnanna, en fjölmargir verktakar
hafa komið að smíðum svo sem Þór
Engilbertsson og Kristján Egilsson.
Eyjablikk annaðist smíði hitunar og
loftræsikerfis og Örn Öfjörð hefur
munstursteypt hafnargarðinn. Marinó
Sigursteinsson hefur annast pípulögn
og Vélsmiðjan Þór stálvirki. Þá hafa
starfsmenn Ahaldahúss og bæjarins
lagt gjörva hönd á plóginn.
Hafnarstjórn Vestmannaeyja og
Hafnamálastofnun hafa einnig komið
að málinu á margvíslegan hátt m.a.
með gerð Skansbryggjunnar.
„Öllum sem hafa komið að
verkefninu, bæði heima og heiman,
eru færðar innilegustu þakkir fyrir
alúð, vandvirkni og metnað og á það
við í stóru sem smáu.
Dagskráin
Dagskráin hófst með
skrúðfylkingu frá Skansvirkinu
að Þar í broddi fylkingar gengu
skátar með þjóðfána Isalnds og
Noregs. Á eftir fóru Litlir
lærisveinar með handfána
landanna. Við stafkirkjuna fór
síðan fram formleg afhending
kirkjunnar. Árni Johnsen sagði
frá tilurð kirkjunnar og gjöfum
sem henni bárust,
kirkjumálaráðherra Noregs
Trond Giske flutti ávarp og
afhenti Davíð Oddssyni
kirkjuna. Því næst flutti Davíð
þakkarávarp og afhenti biskupi
Islands lykil kirkjunna. Að
lokum afhenti fulltrúi frá Lom í
Noregi klukku kirkjunnar og
flutti stutt ávarp.
Kirkjuvígslan hófst með
klukkuhringingu, að henni
lokinni vígði biskup íslands
kirkjuna og predikaði,
helgigripir voru afhentir, Védís
Guðmundsdóttir lék á flautu og
dr. Gunnar Kristjánsson
prófastur flutti bæn. Lauk síðan
vígslunni með
klukknahringingu.
Eftir vígslu kirkjunnar var
efnt til hátíðardagskrár.
Lúðraveit Vestmannaeyja lék
nokkur lög og stutt ávörp voru
flutt. Hátíðarkór
Vestmannaeyja söng og Elva
Ósk Ólafsdóttir las þrjú Ijóð.
Norskur leikflokkur frá Moster
flutti leikþáttinn Sverðið og
krossinn eftir Johannes
Hcggland í undir leikstjórn
Ragnhild Randal tónlist var flutt
eftir Jostein Molde.
Að lokum sýndi Freyr Valsson
bjargsig við Dönskutó í
Heimakletti. Kynnir á hátíðinni
var Guðmundur Þ.B. Ólafsson.
frá íbúum Lom þar sem kirkjan var
smíðuð. Klukknaportið er gjöf Eim-
skips.
Arkitektafyrirtækið Andersen og
Irgens í Bergen hefur teiknað
kirkjuna, en áður hafði íslenska undir-
búningsnefndin óskað eftir því í
samráði við norska og íslenska
sérfræðinga, þar á meðal Hjörleif
Stefánsson, að fyrirmyndin að nýju
stafkirkjunni í Eyjum yrði Holt-
dalskirkja í Noregi, kirkja sem var
byggð 1170 í stíl 10. aldar kirkna, en
sú kirkja er nú varðveitt sem minjar í
Þrándheimi.
Vel unnið verk
Islenska byggingamefndin sem starfar
á vegum forsætisráðuneytisins réð
Pétur Jónsson arkitekt til þess að
hanna endanlega umgjörð kirkjunnar,
Skanssvæðið sem hefur mikið sögu-
legt og menningarlegt gildi. Verk-
takafyrirtækið Stokk og Stein í Lom í
Noregi hefur annast byggingu
kirkjunnar, fyrri hluta undirbúnings og
smíða úti í Noregi undir stjóm Sverre
Sömmgard og lokafrágang undan-
fama fjóra mánuði hér í Vest-
mannaeyjum.
Formaður byggingamefndar hefur
stýrt ífamkvæmdinni með byggingar-
nefnd, en þeir sem hafa haft umsjón
með fr amkvæmd verkþátta em Ólafur
Ólafsson og Guðmundur Þ. B.
Ólafsson frá tæknideild Vstmanna-
eyjabæjar. Kristján Bjamason garð-
yrkjustjóri hefur með sínu liði haft veg
og vanda af glæsilegum frágangi á
lokastigi Fjölmargir verktakar hafa
tekið þátt í verkefninu, en stærsti
þátturinn hefur verið hleðsla
MÖRGUM fannst nóg um að
horfa á Frey Valsson síga niður
Heimaklett.
þátttöku á vígsluhátíð
Þakkir fyrir
Eftir fagran og eftirminnilegan vígslu-
dag Stafkirkjunnar í Eyjum, er það
efst í huga byggingamefndarinnar að
þakka framlag allra sem lögðu sitt af
mörkum til vígsluhátíðarinnar sl.
sunnudag.
Á annað hundrað manns lögðu
hönd á plóginn við endurbætur á
svæðinu og við frágang og byggingu
kirkjunnar. Fríður hópur Hátíðarkórs
Vestmannaeyja og Lúðrasveitar Vest-
mannaeyja með stjómendum sínum
bar uppi tónlistarflutning, auk ein-
leikara. Þá komu margir að lestrum,
kynningu og stjómun, en tæknimenn
sáu til þess að flutningurinn barst vel
um svæðið.
Leiklistarhópurinn frá Moster setti
sinn svip á dagskrána og bjargsigið
var glæsilegur endapunktur. Þá eru
biskupi, prestum og öðmm sem að
helgihaldinu komu færðar þakkir en
síðast en ekki síst er öllum þeim
þakkað sem komu til hátíðarinnar. Það
var sérstaklega ánægjulegt að sjá allan
þann fjölda sem sýndi vígslunni áhuga
og kemur það líka vel fram í
veglegum gjöfum sem kirkjunni hafa
borist. Fyrir allt þetta þakkar
stafkirkjunefndin af heilum hug og
vonar að kirkjan verði notuð og nýtt til
að dýrka Drottin í framtíðinni. Reynt
verður að hafa hana opna til skoðunar
og verður það kynnt nánar í
klukknaporti hennar.
Stajkirkjunefndin