Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 02.08.2000, Blaðsíða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 02.08.2000, Blaðsíða 6
6 Fréttir Miðvikudagur 2. ágúst 2000 Golf: Norðurlandamótið 2000 Völlurinn þótli stórkostlegur Svíar Norðurlandameistarar í karlaflokki, Norómenn í kvennaflokki - íslensku stúlkurnar í 2. sæti en íslenska karlalandsliðið olli vonbrisðum 03 rak lestina Norðurlandamótinu í golfi árið 2000, sem að þessu sinni var haldið í Vestmannaeyjum, lauk á laugardag. Alls voru 30 keppendur í karlaflokki og 20 í kvennallokki. Keppendur voru við æfingar á vellinum á miðvikudag og fimmtudag en mótið fór fram á föstudag og laugardag. A föstudag voru leiknar 36 holur, fjórbolti fyrrihluta dagsins en þá voru tveir saman í liði og réði betri árangur hverrar holu. Síðari hluta dagsins var leikinn fjórmenningur, tveir saman í liði og slógu annað hvert högg. Á laugardag var svo einmenningskeppni þar sem árangur hvers keppanda taldi. Talsverðar væntingar höfðu verið gerðar til íslenska karlalandsliðsins, enda leikið á heimavelli, og því olli árangur þess verulegum vonbrigðum. Þeir höfnuðu í 5. og síðasta sæti, fjórum höggum á eftir Norðmönnum sem voru í Veðrið of gott Sjaldan eða aldrei hefur veður verið jafn hagstætt á stórmóti í golfi í Vestmannaeyjum og núna. Bæði æfingadagana og keppnisdagana var veður eins gott og unnt er hugsa sér til golfleiks, hægur andvari og skýjað að mestu, hitinn 10 - 14 stig. Hinn sænski landsliðsþjálfari íslendinga, Staffan Johansson, átti þá ósk heitasta á laugardag að aðeins blési meira. Þá hefðu íslendingamir virkilega notið þess að vera á heimavelli við kunnuglegar aðstæður og árangurinn áreiðanlega orðið betri. 4. sæti. Svíar urðu næsta örugglega í efsta sæti en góður árangur Finna kom flestum á óvart. Af íslensku körlunum voru það aðeins Þorsteinn Hallgrímsson og Olafur Már Sigurðsson sem voru að spila af eðilegum styrk, hinir voru flestir talsvert frá sínu besta. Á laugardag var Þorsteinn þrjá undir pari þegar þrjár holur voru eftir en lánið var ekki með honum á þeim og hann endaði á 70 höggum eða pari. En það voru íslensku stúlkurnar sem héldu upp heiðri landans í mótinu. Þær urðu í öðru sæti, aðeins einu höggi á eftir sigurvegurunum, Norðmönnum, og vel á undan hinu sterka sænska liði sem flestir höfðu spáð sigri í keppninni. Engin íslensku kvennanna lék betur en Ragnhildur Sigurðardóttir, sem gerði sér lítið fyrir og setti vallarmet á laugardag þegar hún lék á 70 höggum eða pari. mikið og gott starf meðan á mótinu stóð og fyrir það bæri að þakka. Gunnar segir að fjárhagslegur ávinningur klúbbsins sé enginn af þessu móti, jafnvel kostnaður sem fylgi því. Aftur á móti sé þetta mikil og góð kynning bæði á golfvellinum og Vestmannaeyjum í heild og það komi vonandi til með að skila sér. „Við þurfum að kynna golfvöllinn betur, markaðssetja hann, ekki síst með tilliti til útlendinga og þama gafst okkur tækifæri til þess sem vonandi hefur nýst okkur,“ sagði Gunnar. Fundinum aflýst Að afloknum fyrsta æfingadegi á mótum sem þessum er venjan að halda fararstjórafund að kvöldi. Þeir fundir eru stundum nefndir kvart- anafundir þar sem þá gefst tækifæri til að koma á framfæri kvörtunum keppenda og liðsstjóra yfir því sem þykir ábótavant við völlinn, skipulag keppni og aðstöðu. En þegar Gunnar Gunnarsson, formaður klúbbsins, mætti til fundar á miðvikudagskvöld, var honum tjáð að fundinum hefði verið aflýst og svohljóðandi tilkynning beið hans: „Allt eins og best verður á kosið. Til hamingju með þetta allt.“ Vel varðveitt leyndarmál Líklega hefur golfvöllurinn í Vest- mannaeyjum aldrei litið betur út en um þessar mundir. Vallarstjórinn Aðalsteinn Ingvarsson og hans menn hafa í sumar unnið mikið og gott verk og mega vera hreyknir af. Keppendur áttu flestir hverjir ekki nógu sterk orð tíl að lýsa yfir hrifningu sinni með völlinn, ekki aðeins hve fallegur og vel hirtur hann væri, heldur voru erlendu keppendumir margir hverjir nær agndofa yfir umgjörð hans, náttúrfegurðinni og útsýninu. Eða eins og einn þeirra sagði: „Þessi völlur er best varðveitta leyndarmál golfsins í Evrópu.“ Landkynning Gunnar K. Gunnarsson, formaður Golfklúbbs Vestmannaeyja, sagðist hljóta að vera mjög ánægður með hvemig tekist hefði til við Norðurlandamótið. Þetta hafi allt mnnið ljúflega í gegn og engin vandamál sem upp hafi komið. Veðurblíðan hjálpaði þar til en einnig kom til góð skipulagning og stjóm á mótinu. Þá hefði bæði starfsfólk GV svo og félagar í klúbbnum unnið í lagi að tapa höggi og höggi Danski kylfingurinn Anders Boge- bjerg frá Svendborg vakti athygli fyrir létta lund á mótinu, auk þess að leika mjög vel. Glaður og kátur og lét mótlætið ekki fara í taugamar á sér. „Þetta er ótrúlega fallegur völlur sem skemmtilegt er að leika á. Umhverfið er svo stórkostlegt að þótt maður tapi einu og einu höggi þá nægir manni að horfa í kringum sig og fyllast ánægju á ný. Það er bara ekki hægt annað en vera ánægður á svona velli,“ sagði Anders. Völlurinn erfiðari en hann virðist Fáir vöktu meiri athygli á mótinu en norska stúlkan Suzanne Petterson. Hún er aðeins 19 ára gömul en er í fremstu röð evrópskra kvenna í golfi og margir vilja líkja árangri hennar við það sem Tiger Woods hefur verið að gera enda átti hún ekki sístan þátt í velgengni norsku stúlknanna á mótinu. Suzanne gat ekki verið í lokahófi mótsins, hún fór til Noregs árla sunnudags vegna Evrópumótsins sem hófst á þriðjudag. „Eg er búin að stunda golf síðan ég var fimm eða sex ára,“ sagði Suzanne. „Eg er mjög ánægð með okkar árangur á mótinu, okkur var ekki spáð efsta sætínu en okkur tókst það. Þetta er mjög sérstakur völlur, erfiðari en hann virðist vera en mjög góður,“ sagði Suzanne Petterson sem næsta ömgglega á eftir að láta mikið að sér kveða í golfinu á næstu ámm. Allt skipulag til fyrirmyndar Svíinn Anders Wasberg er forseti þeirrar nefndar sem hefur með Norðurlandamótið að gera. Sú nefnd sér um skipulag á keppnum áhuga- manna og forgjafarkeppnum en skiptir sér ekkert af atvinnumennskunni. „Ég er mjög undrandi á gæðum golfvallanna á Islandi," sagði Anders. „Eg átti ekki von á svona góðum völlum svo norðarlega. Ekki síst vellinum í Vestmannaeyjum, hann er stórkostlegur og ég vona að ég geti tekið hring á honum að móti loknu. Þá hefur allt skipulag mótsins verið mjög gott, ekki síðra en hjá atvinnu- mönnum í slíku. Öll þjónusta við keppendur og aðstoðarfólk hefur líka verið til fyrirmyndar." Líklega standa Svíar fremstir Norðurlandaþjóðanna þegar rætt er um árangur í golfi. Anders segir að almennur golfáhugi sé í Svíþjóð, líklega stundi um hálf milljón manns íþróttina. Hann segir að mjög gott skipulag sé á þeim málum í Svíþjóð, ekki síst á keppnum sem séu gott tæki til að þróa upp golfleikara. í öllum klúbbum séu vel skipulagðar keppnir bæði fyrir pilta og stúlkur. Komin sé mjög góð reynsla af þessu kerfi sem byggist á breiðum grundvelli og árangurinn hafi skilað sér. Rólegthjá dómurunum Aðaldómarar mótsins vom þeir Hinrik Hilmarsson og Þorsteinn Sv. Stefáns- son en þeir em báðir með alþjóðleg réttindi sem golfdómarar. Þorsteinn sagði að mjög lítið hefði reynt á dómgæslu í þessu móti. „Engin leiðindamál komu upp og ÞORSTEINN náði bestum árangri íslensku karlanna. Myndlngi T. engar kæmr. Það eina sem við þurftum að gera var að leiðbeina í fáeinum tilfellum þar sem vafi gat leikið á um að fá lausn úr legu eða hvar skyldi láta bolta falla. Þetta var því létt og gott enda vel skipulagt og auðvitað best að dómarar þurfi sem minnst afskipti að hafa af leiknum," sagði Þorsteinn. Vallarmet Ragnhildur Sigurðardóttir setti nýtt vallarmet á laugardag þegar hún lék 18 holumar af bláum teigum á pari vallarins eða 70 höggum. Matseðillinn sást út um glugga Á laugardag, seinni degi mótsins, var tekið á móti skorkortum keppenda í þjóðhátíðartjaldi við hliðina á 18. flöt og þar var keppendum boðið upp á reyktan lunda. Flestir snæddu sinn ÍSLENSKU sveitirnar ásamt þjálfurum sínum, Staffan Johansson og Ragnari Ólafssyni.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.