Fréttir - Eyjafréttir - 02.08.2000, Page 15
Miðvikudagur 2. ágúst 2000
Fréttir
15
Landssímadeild karla: IBV 6 - Fram 1
Loksins - Loksins
ÍBV liðið hefur valdið flestum
stuðningsmönnum sínum
vonbrigðum í sumar, bæði með
stöðu liðsins í deildinni sem og
spilamennsku. Botninum var náð í
síðustu viku þegar liðið tapaði á
útivelli gegn Stjörnunni með
tveimur mörkum gegn engu og var
liðið farið að síga skuggalega mikið
niður töfluna. En strákarnir eru
meðvitaðir um eigið ágæti og vildu
umfram allt sýna Eyjamönnum og
öðrum stuðningsmönnum Iiðsins
hversu öflugir þeir í raun eru. A
sunnudagskvöld mætti IBV liðið
Fram og er óhætt að segja að
leikmenn liðsins hafi boðið upp á
flugeldasýningu af bestu og
fjölbreyttustu gerð. Lokatölur
leiksins þýddu stórsigur IBV, 6-1
gegn andlausum andstæðingum
sem verða að teljast heppnir að
sleppa svo vel.
Leikmenn IBV tóku öll völd á vell-
inum strax í upphaft og var miðjan hjá
liðinu gríðarlega sterk. Tómas Ingi
var að spila sinn fyrsta heimaleik í
langan tíma og var greinilega á þeim
buxunum að sýna fjölmörgum áhorf-
endum á Hásteinsvelli hvers hann er
megnugur, enda byrjaði hann leikinn
mjög vel og var hrein unun að horfa á
hversu vel hann fer með knöttinn. Það
var einmitt Tómas sem lagði boltann
fyrir fætur Bjama Geirs í fyrsta marki
ÍBV í leiknum. Bjami Geir þakkaði
fyrir sig og þmmaði knettinum upp
við samskeytin. En Tómas meiddist
um hálfleikinn miðjann og þurfti að
fara af leikvelli. Þá var komið að
Steingrími að taka upp hanskann og
halda uppi sóknarleik ÍBV. Stein-
grímur skoraði þrjú mörk í leiknum,
ásamt því að eiga að fá víti þegar hann
var togaður niður af vamarmönnum
Framara. Framarar náðu aðeins að
spyma frá sér um miðjan seinni
hálfleik og uppskám eitt mark, en
Baldur Bragason kom ÍBV aftur á
bragðið með ágætis skoti, í vamar-
mann og í netið. Bjarni Geir var þó
ekki sáttur við fjögurra marka sigur
enda bætti hann við sjötta markinu
með sannkölluðu þmmuskoti af 20
metra færi. Bjami Geir var sem óður
maður upp við mark Fram og skoraði
sjöunda mark IBV, en hann var
dæmdur rangstæður og varð því að
sætta sig við aðeins fimm marka sigur,
6-1.
Tvo af fastamönnum liðsins vantaði
í þennan leik, Ingi Sigurðsson tók út
leikbann og Hjalti Jóhannesson á við
meiðsli að stríða en það virtist ekki
koma að sök enda er hópurinn hjá
ÍBV breiður og ekki annað að sjá en
að þeir sem komu inn í liðið hafí nýtt
tækifærið til fulls. Steingrímur
markahrókur virtist hafa fundið réttu
skóna fyrir leikinn, en hann hefði
hæglega getað bætt við í það minnsta
við einu marki þegar hann komst einn
inn fyrir vöm Fram og hafði nægan
tíma til að athafna sig en markvörður
Fram varði skot hans vel. Ungu
strákarnir, Bjami Geir, Hjalti Jóns,
Páll Almarsson og síðast en ekki síst
Atli Jóhannsson, sem var að leika sinn
fyrsta meistaraflokksleik fyrir IBV,
sýndu að þeir em tilbúnir í slaginn og
gefa eldri og reyndari mönnum ekkert
eftir. Slæmu fréttimar em þær að
Tómas Ingi tognaði aftan í læri sem
þýðir að hann mun að öllum líkindum
ekki spila með liðinu gegn Keflavík á
fimmtudaginn en vonast er til þess að
hann verði klár fyrir Evrópuleikinn.
STEINGRÍMUR náði loks að sýna sitt rétta andlit í leiknum og
virðist nú laus úr álagahamnum. Hér er hann umkringdur Hjalta
Jónssyni, Bjarna Geir Viðarssyni, Hlyn Stefánssyni, Páli
Almarssyni og Páli Guðmundssyni sem allir stóðu sig frábærlega í
Knattspyrna yngri flokkar: 5. flokkur kvenna
B-liðið
Islcmds-
meistari
Iris Sæmundsdóttir fór með læri-
sveina sína upp á fastalandiö, nánar
tiltekið upp á Skipaskaga um
helgina í úrslitakeppni Islands-
mótsins í 5. flokki kvenna. IBV
tefldi fram bæði A- og B-liðum og
gerði B-liðið sér lítið fyrir og varð
Islandsmeistari, eftir æsispennandi
úrslitaleik gegn Breiðabliki sem
reyndar endaði með jafntefli en
Blikastúlkur höfðu áður gert
jafntefli og því endaði IBV í efsta
sæti úrslitakeppninnar.
A-liðið tapaði öllum sfnum leikjum
í úrslitum en sýndi miklar framfarir
þrátt fyrir það og eiga framtíðina fyrir
sér.
Iris Sæmundsdóttir sagði í samtali
við Fréttir að hún væri hæstánægð
með allar stelpumar í sumar. „Stelp-
umar hafa sýnt mjög miklar framfarir
í sumar þannig að ég get ekki annað
en verið ánægð með það. Þær vom
félagi sínu og Vestmannaeyjum til
sóma, bæði utan vallar sem innan í
sumar og náðu góðum tökum á því
sem fyrir þær var lagt. Eg er
náttúmlega mjög ánægð með að fá
íslandsmeistaratitilinn til Eyja enda
ætla ég að taka mér smá pásu næsta
sumar í þjálfuninni og sinna öðmm
málum sem setið hafa á hakanum
þannig að það er ágætt að fá titilinn
svona í lokin. Ég býst hins vegar
alveg við því að byrja svo aftur að
þjálfa enda er þetta svo skemmtilegt
að vinna með krökkunum og gefur
manni mikið.“ 5. flokkur kvenna á
eftir að fara í eitt mót í sumar, þannig
að möguleiki fyrir fleiri titla er enn
fyrir hendi.
Höfðum gaman af þessu
Anna Ester Óttarsdóttir er fyrirliði B-
liðs ÍBV sem varð íslandsmeistari um
helgina. Anna er jafnframt mark-
vörður liðsins en í íjómm leikjum fékk
hún aðeins á sig tvö mörk.
Var erfitt að tryggja sér titilinn?
„Já, maður var náttúmlega svolítið
stressaður en þetta var samt mjög
gaman og við höfðum bara gaman af
þessu.“
Hvemig var svo úrslitaleikurinn ?
„Við gerðum jafntefli við Breiðablik
en þær höfðu sko gert áður jafntefli
þannig að við unnum titilinn á fleiri
stigum í úrslitum."
Og er fyrirliðinn ekki ánægður með
titilinn ?
, Jú, rosalega."
Emð þið búnar að spila marga leiki í
sumar ?
„Já, já. Við spiluðum náttúmlega
þama á Akranesi, svo fómm við á
Gull og Silfurmótið og auðvitað á
Pæjumótið héma.
Svo emm við að fara á Pæjumótið á
Siglufirði eftir Þjóðhátíð.“
Og þið ætlið að sjálfsögðu að vinna
þar ? ,Já, að sjálfsögðu."
Úrslit leikja um helgina:
A-lið
ÍBV-Grindavík 1-3
ÍBV-ÍA 1-2
ÍBV-KA 0-2
ÍBV-Breiðablik 0-3
B-lið
ÍBV-Haukar 3-1
ÍBV-Fjölnir 4-0
ÍBV-KA 2-0
ÍBV-Breiðablik 1-1
Sindri með níu
mörk í Iveimur
leikjum
KFS er sem fyrr á toppnum í B-riðli
3. deildar en liðið hefur verið þar
nánast frá því í vor. Möguleikar
liðsins á að komast í úrslita-
keppnina hafa aldrei verið meiri en
nú og samkvæmt öllu ætti liðið að
vera öruggt í úrslit. En það er mikið
í húfi í næstu leikjum, ef liðið endar
í efsta sæti þá mæta þeir liði í öðru
sæti í D - riðli sem spilaður er fyrir
austan og hlýtur það að teljast mun
betri kostur en að mæta sterku liði
Þróttar frá Neskaupstað, en jafritefli
í tveimur síðustu leikjunum, gegn
Reyni Sandgerði og Haukunt geta
tryggt liðinu efsta sætið enda
markatala liðsins með eindæmum
góð og er liðið reyndar markahæsta
meistaraflokkslið Islands í dag með
44 mörk skoruð í 10 leikjum.
25. júlí síðastliðin mætti KFS liði
Gróttu sem er að mestu skipað
fyrrverandi leikmönnum Akur-
eyrarliðanna KA og Þórs. Leifur
Geir Hafsteinsson hefur reyndar
eitthvað spilað með þeim en var
ekki með í þessum leik en einnig
var ívar Bjarklind með liðinu áður
en hann gekk í raðir KR. KFS
kafsigldi gestina og sigraði í
leiknum með níu mörkum gegn
tveimur og ekki annað hægt að sjá
að liðið sé í feikna góðu formi.
Sindri Grétarsson var í miklum ham
í þessum leik, skoraði sex mörk í
öllum regnbogans litum. Þess má
geta að Sigurði Bragasyni
markverði KFS var vikið af
leikvelli þegar um tuttugu mínútur
voru eftir af leiknum en það kom
ekki að sök enda hópurinn sterkur
hjá KFS.
Mörk KFS: Sindri Grétarsson 6
Rúnar Svan Vöggsson, Óðinn
Steinsson og Thierry Björn
Amason.
Mikilvægur útisigur
KFS mætti svo ÍH síðastliðinn
föstudag og fór leikurinn fram á
gervigrasvellinum í Hafnarfirði.
KFS mætti sterkt til leiks og kláraði
nánast leikinn á fyrsta hálftímanum
en þrátt fyrir yfirburði liðsins þá
börðust heimamenn út allan leikinn
sem gerði leikmönnum KFS dálítið
erfitt fyrir.
Sindri Grétarsson var enn á
skotskónum og skoraði hann
þrennu í leiknum. Sigurður
Bragason tók hins vegar út leikbann
í leiknum.
Mörk KFS: Sindri Grétarsson 3,
Kári Hrafn Hrafnkelsson 2.
Framundan
Miðvikudagur 2. ágúst
Kl. 20.00 KFS-Reynir Sandgerðir
Kl. 20.00 Valur-ÍBV 2.fl. kvenna
Fimmtudagur 3. ágúst
Kl. 20.00 Keflavík-ÍBV Lands-
símadeild karla
Miðvikudagur 9. ágúst
Kl. 14.00 ÍBV-Valur4.fl. kvenna A
Kl. 15.30ÍBV-Valur4.fl. kvennaB
Kl. 19.00 ÍBV-Valur 2.fl. kvenna
undanúrslit bikarsins
Fimmtudagur 10. ágúst
Kl. 19.00 ÍBV-Hearts Evrópu-
keppni félagsliða á Laugardalsvelli