Fréttir - Eyjafréttir - 30.11.2000, Qupperneq 8
8
Fréttir
Fimmtudagur 30. nóvember 2000
Maithildur Sveinsdóttir með sína
aðra bók:
Tarot-
bókín mín
Út er kontin bókin Tarotbókin mín,
sem Matthildur Sveinsdóttir er
höfundur að. Matthildur fer ekki
troðnar slóðir í útgáfu sinni því
ekkert eintak er eins, og hún
vinnur bókina að öllu leyti sjálf.
Hver kaupandi fær sinn eigin
tarotlestur í bókinni þannig að hún
stendur undir nafni sem
Tarotbókin mín.
„Eg er höfundur, hönnuður, útgef-
andi, ég keyri bókina út á eigin prent-
ara, kápan er handunnin þar sem
bókin er merkt eiganda sínum og ég
sé um útgáfu og dreifingu þannig að
það kemur enginn annar að verkinu
nema ég nema hvað Oskar prentari
skar blöðin fyrir mig,“ segir Matt-
hildur í samtali við Fréttir um Tarot-
bókina mína sem nú er að koma út.
Aðspurð um ætt og uppruna segist
Matthildur vera borinn og barnfæddur
Eyjamaður langt aftur í aldir og hér
ólst hún upp. „Faðir minn er Sveinn
Gíslason frá Hvanneyri og móðir mín
er Þórdís Sigurðardóttir frá Staka-
gerði. Eg vil nota þetta tækifæri til að
vekja athygli á Stakagerðisnafninu
sem er hið rétta nafn en ekki
Stakkagerði eins og seinna varð til.
Við höfum fundið Stakagerðisnafnið
í bókum langt aftur í aldir og viljum
við halda því á lofti,“ sagði Matt-
hildurákveðin.
Lestur í tarotspil er einn anginn af
leit mannskepnunnar á andlega
sviðinu og segist Matthildur snemma
hafa farið að velta fyrir sér hlutum
sem tengjast andlegum málefnum.
„Þessi áhugi kviknaði hjá mér strax
sem unglingi og fyrir gos var ég búin
að lesa talsvert af bókum á bóka-
safninu um þessi efni. Ég hef verið
dulspekinemi í 15 ár. Fyrst innan
reglu sem heitir Servants of the Light
og svo Builders of Aditum sem þýðir,
þeir sem byggja upp sitt innra musteri
og er alheimsregla. Þar er mitt sérsvið
tarot og kennsla í tarot. Áður en ég
flutti aftur heim fyrir fimm árum
kenndi ég nokkra vetur lestur á
tarotspil hjá Menningar- og fræðslu-
sambandi alþýðu og eftir að ég kom
hingað hef ég haldið námskeið bæði á
Akureyri og í Reykjavík.“
Matthildur segir að minna hafi
orðið úr þessum námskeiðum en hún
ætlaði sér því að það sé dýrt að halda
sér uppi utan heimabyggðar. „En við
Hanna Bima Jóhannsdóttir í Suður-
garði erum að byrja samvinnu á þessu
sviði. Hún er meira í tölum en ég og
svo starfar hún hjá Örlagalínunni þar
sem hægt er að hringja inn og fá
spádóma. Nei, þetta er ekki dónalína
heldur andleg lína þar sem þú getur
komist í samband við miðla og fólk á
andlega sviðinu," segir Matthildur
hlæjandi.
Sennilega meðfætt
Þegar hún er spurð að því hvers vegna
hugur hennar hafi leiðst inn á andlega
sviðið segir hún að sennilega sé þetta
að einhveiju leyti meðfætt og kannski
sé þetta í ættinni. „Þorsteinn Jónsson
læknir í Vestmannaeyjum og alþing-
uDUR með bók sína,
Tarotbókin mín
ismaður Eyjamanna var langalangafi
minn og hann var meðal frumkvöðla
í spíritisma og var stofnfélagi í
tilraunafélagi á þessu sviði sem stofn-
að var í Reykjavík um aldamótin
1900.“
En erhún skyggn? „Ég sé. Stundum
sé ég fólk og hef stundum heyrt
ýmislegt sem öðrum er hulið.“
Fœrðu skilaboð að handan? „Já. Það
kemur fyrir. Ég vissi t.d. nokkrum
klukkutímum áður en Hekla gaus
síðast að gos væri í vændum og eru
vitni að því,“ segir Matthildur sem
þama hefur slegið fréttastofu Ríkis-
útvarpsins við þegar hún sagði í
fréttum kl. 18.00 einn laugardaginn
fyrr á árinu að Hekla færi að gjósa
eftir 20 mínútur og það stóðst. Eru
ekki margar fréttastofur sem geta
státað af slfkri nákvæmni þegar
móðir náttúra er annars vegar en
þarna naut RÚV að sjálfsögðu jarð-
vísindamanna sem voru starfi sínu
vaxnir.
„Sennilega var ég líka að fá
skilaboð áður en gaus hér á Heimaey
1973 en þá kunni ég ekki að lesa úr
þeim.“
Tarotspilin eiga sér langa sögu og
Matthildur segir að margt sé hægt að
lesa úr spilunum m.a. óorðna hluti.
„Já, það er hægt að segja fyrir urn
hvað sé í vændum og um leið er hægt
að benda fólki á leiðir til að vinna úr
sínum málum. Samkvæmt rannsókn-
um telst það góður árangur þegar
spádómar em réttir upp á 40% til 50%
en dæmi em um 50% til 60% árangur
og í þeim hópi var Indriði miðill. En
þú átt alltaf val og hinn frjálsi vilji
ræður alltaf töluvert miklu."
Matthildur hefur síðustu tvö árin
rýnt í tarotspil fyrir Vestmannaeyinga
og hún segir að engin breyting verði á
því á næsta ári. Hún á 20 ára reynslu
að baki á þessu sviði og þetta er
hennar önnur bók. „Það var
kennslubók í tarotlestri og hún seldist
nrjög vel innan lokaðs hóps og hefur
verið ófáanleg í ein átta ár. Ahugi á
andlegum efnum hefur farið heldur
vaxandi en fólk gerir ekki mikið af
því að opinbera þennan áhuga sinn."
Keisarinn og fíflið
Til að gefa hugmynd um það sem
Matthildur býður upp á í bók sinni
rýndi hún í spil þess sem viðtalið tók
og hér er niðurstaðan úr þeirri rýni:
Persónuspil: Keisarinn og Fíflið.
Þeir sem hafa Keisarann með áhrif-
um frá Fíflinu sem persónuspil lenda
oft í mótsögn við sjálfa sig. Keisarinn
sem er afar sterkur persónuleiki og
vel yfirvegaður á meðan Fíflið vill
dálítið ana áfram og er óhrætt við
nýjungar.
Ómar er mjög líklega góður skipu-
leggjandi, en honum hættir til að
treysta öðmm um of. Hann er góður
heimilisfaðir, en kanski örlar á smá
fljótfæmi.
Á meðan Keisarinn vill sitja heima
og hafa það náðugt, vill Fíflið vera á
stanslausum þeytingi og veldur þetta
meðal annars mótsögn hjá Ómari.
Spil Ómars fyrir þetta ár (reiknað
frá afmælisdegi til afmælisdags) em
Töframaðurinn og Örlagahjólið.
Þetta ár vilja örlögin leika við
Ómar þannig að honum getur fundist
hann fara í hringi. Hann verður bjart-
sýnn og kemur til með að hafa mikla
trú á sjálfum sér. Hann verður óvenju
mælskur þetta árið og á auðvelt með
að fá fólk í lið með sér. Stjómsemi
verður líka sterk þetta árið og þarf
hann að fara varlega með hana.
Ómar fær mjög líklega viðurkenn-
ingu fyrir störf sín á þessu ári og
verður óvenju heppinn maður. Ó.G.
Netverslunin poley.is
Systurnar Hafdís og Berglind
Kristjánsdóttir, sem hafa síðasta
árið rekið verslunina Póley, eru að
færa út kvíarnar og hafa stofnað
Netverslun-Póleyjar.
„Þama ætlum við að bjóða upp
sömu vöru og við emm að selja í
Póley, kristal, lampa, ljós, matar-,
kaffi- og mokkastell svo eitthvað sé
nefnt,“ sagði Hafdís í viðtali við
Fréttir. „Til að byrja með verðum við
ckki með sama úrvaldið í netversl-
uninni og við emm með í Póley. Vilji
fólk fá að kanna úrvalið eitthvað betur
þarf ekki annað en að slá á þráðinn til
okkar. Við kaupum allt inn frá
Póllandi sjálf og þetta hefur gengið
mjög vel frá því við byrjuðum í maí í
fyrra. Markaður okkar er ekki bara
Vestmannaeyjar, við emm að selja
nánast um allt land. Hingað til höfum
nýtt okkur símann, sent bækling og
notað Netið. Þessi aðferð hefur gengið
vel og við emm komin inn í verslanir
um allt land en Fjarðarkaup í Hafnar-
firði er okkar stærsti viðskiptavinur."
Hafdís segir að undirbúningur sé
langt kominn, aðeins eigi eftir að reka
endahnútinn til að poley.is komist á
koppinn. En af hverju Netverslun?
„Ég vil meina að þetta sé framtíðin.
Fólk hættir ekki að fara út í búð til að
kaupa inn en það er svo mikið um að
það sitji heima við tölvuna og skoði
hvað þar er í boði. Þennan möguleika
ætlum við að nýta okkur. Ég geri mér
ekki háleit markmið um að selja
einhverja hrúgu til að byrja með en
maður er kominn á Netið og svo veltir
það vonandi upp á sig. Öllu verður
stjórnað héðan og hér emm við með
lagerinn. Við ætlum ekki að vera með
kreditkort til að byrja með heldur
gírókröfur. Svo er ég með í athugun
að flytja vömna upp að dymm hjá
hverjum og einum sem verslar við
okkur. Flutningur ætti að taka einn til
tvo daga og varan tryggð á leiðarenda.
Vömverð er lægra hjá okkur en gerist
og gengur í verslunum hér á landi
miðað við gæði vömnnar. I fram-
tíðinni er ætlunin að koma upp
vildarklúbb eða kristalklúbb. Kostar
ekkert að skrá sig og verða alls konar
tilboð í gangi og þegar við fáum nýjar
vömr sendum við út myndir til
klúbbfélaganna," sagði Hafdís að
lokum.
SELJA eigin jólakort. Krakkarnir í 7. bekk Barnaskólans ganga
þessa dagana í hús og selja jólakort og á ágóðinn að renna til
skíðaferðalags í vetur. Jólakortin eru þeirra eigin framtak og hafa
þau teiknað allar myndirnar en kortin eru prentuð í Eyjaprenti.