Vestfirðir - 12.09.2013, Blaðsíða 2

Vestfirðir - 12.09.2013, Blaðsíða 2
2 12. september 2013 Reykhólakirkja 50 ára: Biskup Íslands Agnes M. Sigurðardóttir í heimsókn Reykhólakirkja er hálfrar aldar gömul á þessu ári og af því til-efni kom Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir í heimsókn, predik- aði og þjónaði fyrir altari ásamt sr. Elínu Hrund Kristjánsdóttur sóknar- presti við hátíðarguðsþjónustu á Reyk- hólum. Þá var minnst hálfrar aldar vígsluafmælis Reykhólakirkju. Kirkjan er helguð minningu Þóru Einarsdóttur í Skógum við Þorskafjörð, móður þjóð- skáldsins sr. Matthíasar Jochumssonar. Gamla kirkjan var tekin niður og flutt að Bæ á Rauðasandi við norðan- verðan Breiðafjörð og þjónar íbúum þar í dag. Auglýsingasíminn er 578 1190 Netfang: auglysingar@fotspor.is Við kaupum ber STAÐGREIÐSLA Sími : 5650447 og 6980448 urta@urta.is landica reykhólakirkja ofan byggðarinnar á reykhólum. Hugsjónir aldamótakynslóðar- innar ræddar á Hrafnseyri Stofnun Rögnvaldar Á. Ólafssonar og samstarfsaðilar boðuðu til ráðstefnu í haustbyrjun þar sem hugsjónir aldamótakynslóðarinnar voru bornar saman við samtímann og þá framtíðarsýn sem við okkur blasir í dag. Hvar stöndum við nú hvað varðar umhverfis- og samfélags- mótun og í hvað stefnir? Hvað getum við lært af þeirri hugmyndafræði og þeim aðferðum sem beitt var í byrjun síðustu aldar? Ráðstefnan fór fram á Hrafnseyri í Arnarfirði, á fæðingarstað Rögnvaldar að Núpi í Dýrafirði og í Edinborgarhúsinu á Ísafirði 6. og 7. september sl. Dagskráin samanstóð af fyrirlestrum, stuttum kynningum, pall- borðsumræðum og samræðuhópum. Hún var hugsuð fyrir fagfólk jafnt sem almenning og var lögð áhersla á að þátttakendur næðu að hittast og ræða saman utan dagskrár með því m.a. að taka þátt í skoðunarferðum og hátíðardagskrá að Núpi. Stemmningin í byrjun tveggja alda „Stemmningin” var með tvennum hætti í byrjun þessara tveggja alda. Um aldamótin 1900 voru tækninýj- ungar að ryðja sér til rúms, svo virt- ist sem auðlindir væru óþrjótandi og helstu viðfangsefnin fólust í því að þróa tækni til að nýta þær. Miklir hugsjónamenn leituðust við að hanna umhverfi og þróa nýjungar sem gætu nýst sem flestum, stórvirki voru unnin með hagsmuni fjöldans í huga. Nú eitt hundrað árum síðar fleygir tækninni hratt fram en flestar auðlindir jarðar eru í hættu. Hvað er til ráða? Getum við lært eitthvað af því fólki sem vann af mikilli hugsjón og bjartsýni í byrjun síðustu aldar? Á ráðstefnunni var leitast við að fanga stemmninguna nú á tímum og bera saman við andrúmsloft og viðhorf sem réðu ríkjum hjá aldamó- takynslóðinni. Reynt var að bera saman þessi tvö tímabil og skilgreina hvernig þau eru ólík og hvað þau eiga sameig- inlegt og hvaða lærdóm má draga af viðhorfum og vinnubrögðum „alda- mótakynslóðarinnar” við mótun nýrrar framtíðarsýnar. Rögnvaldur Ólafsson var fæddur á Ytrihúsum í Dýrafirði 1874 og ólst upp á Ísafirði. Hann lést úr berklum á Vífilsstöðum árið 1917. Rögnvaldur lagði stund á nám í arkitektúr fyrstur Íslendinga í Kaupmannahöfn og varð merkilegur brautryðjandi í íslenskri byggingarlist. Hann var afkastamikill á stuttum ferli í starfi sem síðar varð embætti Húsameistara ríkisins. Hann teiknaði mörg prýðileg hús og opin- berar byggingar sem reistar voru víða um land og ber þar hæst Vífilsstaða- spítala. En auk þess teiknaði hann 25 kirkjur, sumar þeirra perlur í íslenskri byggingarlist. Stofnun Rögnvaldar Á Ólafssonar hefur það að markmiði að hvetja til rannsókna á sviði arkitektúrs, hönnunar, umhverfis- og skipulags- mála og skyldra greina. Einnig hefur stofnunin á stefnuskrá sinni að stuðla að nýsköpun með því m.a. að standa fyrir sumarskóla og námskeiðum og halda málþing með reglulegu milli- bili þar sem horft er til framtíðar og nýjungar í hönnun og arkitektúr eru kynntar og ræddar. Hrafnseyri. sýnishorn eldri tíma á Hrafnseyri. Lína Björg Tryggvadóttir ráðin verk- efnastjóri við byggðaþróunardeild FV Stjórn Fjórðungssambands Vest-firðinga hefur samþykkt tillögu formanns og framkvæmdastjóra FV um að ráða Línu Björgu Tryggva- dóttur, Ísafirði, í starf verkefnastjóra við byggðaþróunardeild FV. Lína Björg er viðskiptafræðingur og hefur góða reynslu og þekkingu af verk- efnastjórnun. Hún situr í umhverfis- nefnd og er varamaður í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar auk setu í stjórn Við- lagatryggingar Íslands. Síðustu ár hefur Lína starfað sem svæðis- og þjónustustjóri hjá Motus á Ísafirði. Starf verkefnastjóra var auglýst í byrjun júní sl. með umsóknarfrest til 18. júní, umsækjendur voru 13 auk einnar umsóknar frá lögaðila um verktöku. Samið var við ráðningar- stofuna Talent ehf. til að meta hæfni umsækjenda og byggir tillaga for- manns og framkvæmdastjóra á mati ráðningarstofunnar. Lína björg tryggvadóttir. María Játvarðardóttir ráðin félagsmála- stjóri Strandabyggðar og Reykhólahrepps María Játvarðardóttir hefur verið ráðinn félagsmála-stjóri Strandabyggðar og Reykhólahrepps og hefur störf þann 16. september nk.. María er ættuð frá Miðjanesi í Reykhólahreppi en þar býr Halldóra, systir hennar fjár- búi og systursonurinn Gústaf Jök- ull Ólafsson kúabúi. Á Miðjanesi er einnig ferðaþjónusta. María Játvarðardóttir hefur síðustu 20 ár starfað á Greiningar- og ráðgjaf- arstöð ríkisins við Digranesveg í Kópavogi. maría Játvarðardóttir. Sigríður Elsa Kjartansdóttir skipuð dómari við Héraðsdóm Vestfjarða Innanríkisráðherra hefur skipað í þrjú embætti héraðsdómara, þar af tvær konur og einn karl. Sigríður Elsa Kjartansdóttir var skipuð í embætti dómara við héraðs- dóm Vestfjarða og verður jafnframt dómsstjóri. Þau Sigríður J. Hjalte- sted og Þórður Clausen Þórðarson voru skipuð dómarar við héraðsdóm Reykjavíkur. Embættin voru auglýst laus til umsóknar þann 6. júní sl. Sam- kvæmt 4. gr. laga um dómstóla nr. 15/1998 skilaði dómnefnd umsögn sinni um umsækjendur um embættin. Niðurstaða dómnefndar var sú að af þeim umsækjendum sem sóttu um embætti dómara við héraðsdóm Reykjavíkur hafi Sigríður J. Hjaltested verið hæfust og að henni frátalinni hafi Sigríður Elsa Kjartansdóttir og Þórður Clausen Þórðarson verið hæfust. Þá telur nefndin að af þeim sem sóttu um embætti dómara við héraðsdóm Vestfjarða hafi Arnaldur Hjartarson og Sigríður Elsa Kjartans- dóttir verið hæfust til að hljóta skipun í það embætti. sigríður elsa Kjartansdóttir.

x

Vestfirðir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirðir
https://timarit.is/publication/1082

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.