Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 09.01.2003, Qupperneq 6

Fréttir - Eyjafréttir - 09.01.2003, Qupperneq 6
6 Frcttir Fimmtudagur 9. janúar 2003 Skólaslit Framhaldsskólans: Alls útskrifuðust 32 á haustönn Skólaslitaræða Baldvins Kristjánssonar skólameistara: er vopn gegn alvinnuleysinu Helgina fyrir jól út- skrifuðust 23 með stúdentspróf frá Fram- haldsskólanum í Vest- mannaeyjum. Eins voru sex vélaverðir út- skrifaðir, einn vélstjóri af öðru stigi og einn vélsmiður. Baldvin Kristjánsson skóla- meistari kom víða við í ræðu sinni og skamm- aðist meðal annars út í hækkandi húsaleigu FÍV án frekara framlags frá ríkinu, eins kom hann inn á vaxandi atvinnuleysi í þjóðfél- aginu og sagði mennt- un eina vopn einstak- lingsins gegn atvinnu- leysi. Smári Jökull Jónsson flutti ræðu stúdenta og hafði hann áhyggjur af kynjahlut- falli þeirra sem út- skrifast, aðeins 25% þeirra eru strákar og er þetta í samræmi við það sem er að gerast í framhaldsskólum á landinu. Hann hvatti strákana til að taka sig á. Einnig kemur hann inn á gæði þess að vera í skóla þar sem nálægðin er meiri og taldi hann það veita skólanum ákveðið for- skot á aðra. Sérstakar viðurkenn- ingar voru veittar fyrir framúrskarandi árang- ur í hinum ýmsu greinum. Hildur Sólveig Sigurðardóttir og Elfa r / Asdís Olafsdóttir fengu þrjár viðurkenningar hvor. Menntun „Ég ætla svellkaldur að hetja mál mitt á svartsýnishjali, þó það sé e.t.v. vottur lítillar ræðusnilldar. Á móti kemur að illu er best af lokið. Það er og til marks um dómgreindarleysi undirritaðs að embættismaðurinn Baldvin ætlar að hafa skoðun eða öllu heldur gagnrýna, en eins og flestir vita þá eiga embættismenn ekkert með slíkt. Þannig er mál með vexti að skólinn okkar hefur löngum státað af því að vera vel rekinn fjárhagslega og venju- legast verið borð fyrir báru þegar reikningar hafa verið gerðir upp í lok árs. Nú bregður hins vegar svo við að um þessi áramót verður reksturinn neikvæður sem nemur einhverjum milljónum króna. Um ástæður vil ég ekkert fjölyrða en get þess þó að húsaleiga var hækkuð á þessu ári urn litlar 4,8 milljónir án þess á móti kæmi hækkað framlag á fjárlögum. Á næsta ári er gert ráð fyrir að leigan hækki enn um hálfa aðra milljón og framlög enn óbreytt. Reyndar eru og aðrar hækkanir sem koma til og bjaga stöðuna, en húsa- leigan ein og sér dugir til að koma okkur öfugu megin við núllið. Það sem hér er að gerast er einfaldlega ekki sanngjamt. Við höfum á þessu ári sem öll önnur ár gætt ýtrustu aðsjálni. Hins vegar hefur leikreglum verið breytt einhliða. Það er ekkert sam- komulag um það af okkar hálfu að húsaleiga skuli hækkuð og aðskiljan- legasta kostnaði öðrum velt yftr á skólann án þess þar hafi menn neitt um hlutina að segja. Ef ekki kemur til aukið fjármagn frá því sem skólanum var upphaflega ætlað í frumvarpi til fjárlaga næsta árs þá verður voðalega lítið gaman að vera til og ógjömingur að láta enda ná saman. Það er þó ekki útséð um að leiðrétting fáist þar sem framlög til framhaldsskóla vom hækkuð um ein- hverjar krónur fyrir lokaafgreiðslu fjárlaganna. Ég heiti á ykkur öll sem hér eruð að krossleggja ftngur og vona það besta, það ætla ég að gera. Nú og svo má alltaf lotta. Annað sem brennur mjög á mér, miður jákvætt, er slæmt atvinnu- ástand. Það virðist nokk sama hvar borið er niður á landinu að alls staðar er ástandið bágborið. Og nú kunnið þið að velta því fyrir ykkur hvað sú umræða eigi hér erindi. Því er til að svara að menntun er vopn einstak- lingsins gegn atvinnuleysi. Það skiptir máli í samkeppninni um atvinnuna að hafa menntast. Þú verður sam- keppnisfærari. Þetta sést e.t.v. best á því að samkvæmt fréttum RUV síðastliðinn þriðjudag, þá er at- vinnuleysið áberandi mest í hópi ungs fólks sem hætti námi að loknum gmnnskóla og dreif sig út á vinnu- markaðinn á síðasta þensluskeiði. Þess vegna á ungt fólk að mennta sig og þess vegna eigum við fúllorðnir að hvetja bömin okkar og styðja til náms. En nóg af svartnættinu. Dagurinn í dag er hátíðisdagur. Hann er slíkur í a.m.k. tvennum skilningi. I fyrsta lagi almennur hátíðisdagur með því að úr þessu tekur dag að lengja. Það þýðir að straumhvörf em að verða þegar halli jarðmönduls breytir afstöðu til sólar og í stað þess að daginn stytti í sífellu hér á norðurhveli þá verður nú hver nýr dagur örlítið lengri hinum næsta á undan, að morgundagurinn verður örlítið lengri en dagurinn í dag. Og næstu sex mánuði munum við upplifa slíka lengingu daganna. Bara af þeirri ástæðu ætti okkur að vera létt í sinni og við ættum að geta horft bjartari augum fram á veginn. Og dagurinn í dag er einnig sér- legur hátíðisdagur nemenda sem em að ljúka svo merkum áfanga sem útskrift er. Og ég trúi að aðstandendur útskriftamema séu sæmilega sáttir við daginn. Gildir þá einu hvort að baki útskriftinni em fleiri eða færri ár í námi. Annars er ég nú þess heiðurs aðnjótandi í þriðja sinn á lífsleiðinni að útskrifa nemendur. Hin fyrri skiptin tengdust Ijarvem alvömskólameistara Ólafs Hreins, þó íjarveran væri þá skammvinnari en nú. Og úr því alvöruskólameistari var hér nefndur. þá átti ég við hann dálaglegt spjall í vikunni. Hann bað fyrir kveðju til ykkar allra og fól mér að bera ykkur þann boðskap sem hann allajafna flytur útskriftamemum. Það má segja það samnefnara í ræðurn Ólafs í gegnum tíðina að innræta mönnum virðingu fyrir meðbræðmm sínum og mjög oft sér í ræðum hans hvatningu um samhjálp. Að við gætum gert sjálfum okkur og öðmm lífið bæri- legra með því að gera öðmm það sem við viljum að þeir geri okkur. Þessar áherslur Ólafs flyt ég ykkur og tek heilshugar undir. En ég vil líka leggja til frá eigin brjósti. Einkum er eitt atriði sem ég hef reynt sjálfur að hafa að leiðarljósi og innræta mínum bömum. Þar fer tryggðin eða hollustan við hvaðeina sem maður tekur sér fyrir hendur. Að sinna verkum sínum af kostgæfni og þá e.t.v. að færast ekki meira í fang en svo að unnt sé að skila sæmilega af sér. Fátt veit ég dapurlegra en grautarhátt sem tilkominn er af því að menn em ekki að gera það sem þeir best geta. Þeir leggja sig ekki fram vegna þess þeir nenna því ekki, hafa ekki áhuga og jafnvel þó þeir hafi bæði nennu og áhuga, þá er enginn tími af því menn sjást ekki fyrir. Ég trúi því staðfastlega að hver sá sem ekki leggur sig allan fram. eða sem næst allan, sé að skapa sjálfum sér vandræði og oftar en ekki vanlíðan. Þetta íyrirbæri, sem kallast samviska, nuðar og nauðar og þó manni lánist tímabundið að loka á hana þá skýtur hún alltaf upp kollinum aftur. Þó það væri ekki nema bara til að losna undan nuðinu þá borgar sig að gera sitt besta. Ég tala nú ekki um þau óþægindi sem maður sparar öðmm sem annars geta þurft að taka til eftir mann. Það vill reyndar svo til að flestir nemendur sem nú voru að útskrifast hafa tileinkað sér þann kost sem ég hér brýndi, enda eru þetta fyrirtaks- nemendur, sem njóta bæði vinsælda og virðingar annarra nemenda og þá ekki síður kennara. Ég hvet ykkur til að halda áfram á braut hollustu og tryggðar við viðfangsefnin á hveijum tíma og ykkur mun áfram vel famast. Að síðustu vil ég endurtaka ámaðar- óskir mínar til útskriftamema og að- standenda. Ég þakka öllum sem lögðu hönd að því að gera athöfnina svo hátíðlega, með blómum, viðurkenn- ingum og öðmm aðskiljanlegasta hættí,“ sagði Baldvin. AÐ þessu sinni útskrifuðust 23 stúdentar,

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.