Fréttir - Eyjafréttir - 09.01.2003, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 9. janúar 2003
Fréttir
7
SMÁRI Jökull í ræðustól.
Útskriftarræða Smára Jökuls Jónssonar:
Strákarnir þurfa
að taka sig á
- 75% útskriftarnema nú stúlkur
Hoppaðu til Reykjavíkur
fyrir Kf 3«41 Sgm
Hoppfargjald er ekki bókanlegt og gildir fyrir
fólk á aldrínum 12 til 25 ára. Skattar innifaldir
ISLANDSFLUG
www.islandsflug.is
Sími: 481-3300
Gauragangur
LV auglýsir ^ ^
Leiklistarnámskeiö dagana 13.-27. jan.
14-16 ára..kl. 16.30 -18.30.verö: kr. 500,-
17 ára og eldri.kl. 20.00 - 23.00.verö: kr. 1000,-
Að loknu námskeiði verður valið
í hlutverk í Gauragangi.
Leiöbeinandi veröu Agnar Jón Egilsson sem m.a.
leikstýröi Vesturpor+shópnum í Rómeó og Júlíu.
Nánori upplýsingar og skráning í símo 481-1940
dogono 11. og 12. jon og milli kl. 17 og 19.
Stjórn LV
Loðnuvertíð fer vel af stað:
Sjö Eyjaskip
með 7000 tonn
„Kæm nýstúdentar, skólastjómendur,
kennarar og aðrir gestir. Til hamingju
með daginn.
Nú er ég viss um að margir nem-
endur Framhaldsskólans hugsa með
sér. Oh. hvað þau eru ógeðslega
heppin, búin með skólann og við
þurfum að hanga hér í nokkur ár í
viðbót. En í sannleika sagt þá finnst
mér þessu eiginlega öfugt farið. Ég
öfunda eiginlega aðra nemendur sem
eiga einhvern tíma eftir í skólanum.
Því sá tími sem ég hef átt í FÍV hefur
verið frábær.
Busavikumar, skólaböllin, árshátíð-
imar og óvissuferðimar svo ekki sé
minnst á allar ferðirnar r bakaríið með
kennumnum. Þetta hefur verið alveg
meiriháttar tími og allir skemmt sér
vel. Síðan hafa auðvitað allir hellt sér
yfir skólabækumar daginn fyrir próf
og skriðið yfir 5, og svo bara haldið
áfram að skemmta sér.
En oft þegar maður er að tala við
fólk ofan af landi þá er maður oftar en
ekki spurður að því hvort að það sé
ffamhaldskóli í Vestmannaeyjum. Og
þegar maður svarar játandi þá glottir
fólk og talar um hvort þeir sem
útskrifist þaðan skítfalli svo ekki allir
þegar komið er í háskólann. Að
sjálfsögðu er þessu ekki svona farið.
Að mínu áliti hefur skólinn okkar
dálítið forskot á hina skólana. Við
stöndum jafnfætis öðmm skólum í
sambandi við kennara, námsgögn og
allt þess háttar en þetta forskot felst í
því að í skólanum okkar þekkjast allir
og tengjast á svo margan hátt. Ef ég
tek mig sem dæmi þá er skóla-
meistarinn fjölskylduvinur, sálfræði-
kennarinn er mótherji í pólitík,
efnafræðikennarinn samherji í pólitfk
og eðlis- og stærðfræðikennarinn á
strák sem ég er svo að þjálfa í fótbolta.
Fyrir utan þetta þá em allir vinir
manns með manni í skólanum. Þegar
þessu er svona farið þá líður öllum
betur í skólanum, að vera innan um
fólk sem maður þekkir. Þetta finnst
mér vera stærsti kosturinn við skólann
okkar.
En þrátt fyrir þetta þá þarf Fram-
haldskólinn í Eyjum að passa sig á að
verða ekki undir í hinni miklu baráttu
sem er orðin um nemendur. Margir
skólar koma með ýmis konar gylliboð
sem erfitt er að hafna. Það sem vantar
í skólann okkar er einhvers konar
sérhæfing í námi. Þá væri hægt að
laða að nemendur hvar sem er af land-
inu í skólann okkar til að stunda eitt-
hvað tiltekið nám. Skólinn hefur
reyndar staðið sig mjög vel með því
að bjóða upp á fjamám fyrir nem-
endur í hjúkrun og er svona fjamám
eitt dæmi um það sem án efa getur
breytt miklu, bæði íyrir skólann okkar
og einnig íyrir bæjarfélagið í heild.
Nú í haust kom frétt í fjölmiðlum
þar sem Ijallað var um kynjaskiptingu
nema í háskólunum hér á landi. Þar
vom konur í miklum meirihluta og
höfðu þeir sem rætt var við nokkrar
áhyggjur af gangi mála. Þegar litið er
yfir hópinn sem er að útskrifast hér í
dag sést það sama.
Af 23 nýstúdentum sem útskrifast
af bóknámsbraut em einungis 6 karl-
menn, eða rétt rúmlega 25 %. Þetta er
visst áhyggjuefni, og þá er ég ekki að
lýsa yfir neinu vantrausti á stelpumar,
þvert á móti. Þær em greinilega bara
svona duglegar. En það er alveg
nauðsynlegt að meira jafnvægi sé
þama á milli þannig að strákamir
þurfa að taka sig á.
En að lokum þá vil ég fyrir hönd
nýstúdenta þakka skólastjómendum
og kennurum kærlega fyrir skemmti-
legan tíma og um leið minna þá
nemendur sem ennþá em í skólanum
á hversu heppin þau em að geta verið
í skóla, það em forréttindi sem enginn
ætti að líta á sem sjálfsagðan hlut,“
sagði Smári Jökull nýstúdent.
Útskriftar-
nemendur
Náttúrufræðibraut:
Bjami Rúnar Einarsson
Elfa Ásdís Ólafsdóttir
Guðrún María Þorsteinsdóttir
Matthildur Sveinsdóttir
Smári Jökull Jónsson
Sæþór Jóhannesson
F élagsfræðibraut:
Birgit Jóhannsdóttir
Bjartey Gylfadóttir
Eva Björk Ómarsdóttir
Hildur Sævaldsdóttir
Kolbrún Stella Karlsdóttir
Lára Skæringsdóttir
Margrét Grétarsdóttir
Marsibil Anna Jóhannsdóttir
Rakel Rut Stefánsdóttir
Sigurrós Steingrímsdóttir
Sindri Ólafsson
Védís Guðmundsdóttir
Félags- og náttúrufræðibraut:
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Hagfræðibraut:
Andrés Bergs Sigmarsson
Ása Sóley Hannesdóttir
Jón Helgi Gíslason
Viðskiptabraut
Þórey Svava Ævarsdóttir
ÍB
Heiðar Hinriksson
Vélaverðir:
Baldvin Þór Sigurbjömsson
Guðjón Þorkell Pálsson
Halldór Ingi Guðnason
Hallur Einarsson
Sigurmundur Gísli Einarsson
Valgarð Jónsson.
Vélstjórn 2. stig:
Hafþór Halldórsson
Vélsmíði / Vélvirkjun:
Þórarinn Magnússon
Sérstakar
viðurkenningar
Framúrskarandi skólasókn:
Ásta Björk Guðnadóttir og Sigmar
Þór Hávarðsson.
Fyrir góðan eða mjög góðan
námsárangur á stúdentspróf:
Elfa Ásdís Ólafsdóttir
Guðrún María Þorsteinsdóttir
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Sindri Ólafsson
Smári Jökull Jónsson
Fyrir framúrskarandi árangur í
íslensku:
Frá Sparisjóði Vestmannaeyja:
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Fyrir mjög góðan námsárangur í
íslenskum bókmenntum: Frá
Máli og Menningu
Elfa Ásdís Ólafsdóttir
Fyrir frábæran námsárangur í
samfélagsgreinum: Frá Drífanda
stéttarfélagi:
Hildur Sólveig Sigurðardóttir
Fyrir framúrskarandi námsár-
angur í efnafræði: Frá Efna-
fræðingafélagi Islands:
Elfa Ásdís Ólafsdóttir
Fyrir mjög góðan námsárangur í
viðskiptagreinum: Frá Deloitte
og Touche.
Sindri Ólafsson.
Loðnuvertíð fer vel af stað en
loðnan veiðist nú austur af Langa-
nesi. Sjö Eyjaskip eru komin með
afla, samtals um 7000 tonn.
Kap VE 4 hélt á miðin á miðnætti
2. janúar og landaði fullfermi, 900
tonnum, hjá Vinnslustöðinni á þriðju-
dag. Kap hélt aftur á miðin sama dag.
Að sögn Guðna Ingvars Guðnasonar,
útgerðarstjóra Vinnslustöðvarinnar, er
loðnan sem nú fæst falleg og í
ágætum gæðaflokki.
ísleifur VE 63 hélt á loðnumiðin
þann 3. janúar og var væntanlegur til
Eyja í gær, miðvikudag. Isleifur var
með sjö hundruð til sjö hundruð og
fimmtíu tonn og landaði í Vinnslu-
stöðinni.
Huginn VE 55 hélt einnig á miðin
þann 3. janúar og var kominn með tólf
hundruð tonn í gær og allar líkur til
Byggðakvótinn sem fiskvinnslu-
fyrirtækin Godthaab í Nöf,
Hlíðardalur og Aðgerðarþjónustan
Kútmagakot fengu úthlutað verður
veiddur af togbátnum Gjafari VE
sem Sæhamar ehf. gerir út.
Samtals voru þetta 41 tonn sem
kom af byggðakvótanum til Eyja og
kom í hlut fyrirtækjanna þriggja. Sæ-
þess að þeir myndu landa á Aust-
fjörðum.
Gullberg VE 292 hélt á loðnumiðin
aðafaranótt 2. janúar og landaði full-
fermi, 1250 tonnum, á Reyðarfirði á
þriðjudag. Gullberg hélt á miðin aftur
sama dag.
Guðmundur VE 29 og Sigurður VE
15 héldu á loðnumiðin þann 3. janúar
og lönduðu báðir í Krossanesi á
þriðjudag. Guðmundur var með 900
tonn og Sigurður með 1500 tonn.
Harpa VE 25 var nýkomin á miðin í
gær.
Bergur VE 44 hélt til veiða 5. janúar
og var kominn með 400 tonn í gær.
Veðrið var einstaklega gott á mið-
unum en eitthvað rólegra yfir veiðinni
en sólarhringana á undan að sögn
Ásdísar Sævaldsdóttur, útgerðarstjóra.
hamar tryggir á móti 120 tonn þannig
að samtals fá þau 120 tonn til vinnslu.
Hjá útgerðinni fengust þær upplýs-
ingar að breytingin yrði ekki mikil því
á síðasta ári hefðu þeir landað 500 til
600 tonnum til vinnslu í Godthaab í
Nöf og Hlíðardal og því yrði haldið
áfram. Eina breytingin væri að nú
bættist Kútmagakot við.
Gjafar VE veiðir
byggða kvóta n n