Fréttir - Eyjafréttir - 09.01.2003, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 9. janúar 2003
Fréttir
9
Bergur-Huginn ehf. fyrirtæki ársins 2002:
Farsæll rekstur í 30 ár
„Um þetta leyti fyrir 30 árum var
togarinn Vestmannaey VE 54 á leið
frá Japan til heimahafnar í
Vestmannaeyjum. En það átti eftir
að breytast þegar gos hófst á
Heimaey aðfaranótt 23. janúar
1973. Það varð þess valdandi að
Vestmannaey fór til Hafnarfjarðar
þar sem hún var gerð út næsta
árið,“ segir í umsögn um fyrirtæki
ársins 2002 að mati Frétta.
„Hér erum við ekki að minnast
gossins 1973 heldur þeirra þáttaskila
sem urðu í útgerð í Vestmannaeyjum
með tilkomu Vestmannaeyjar. Þá
hófst togaraútgerð að nýju frá Eyjum
og um leið urðu Eyjamenn þátt-
takendur í skuttogaravæðingunni sem
hófst hér á landi í kringum 1970.
Það vom þeir mágar, Kristinn
Pálsson sem á þessum árum gerði út
Berg VE og Guðmundur Ingi Guð-
mundsson sem gerði út Hugin VE,
sem þama sameinuðu krafta sína.
Stofnuðu þeir Berg-Hugin hf. sem
seinna átti eftir að verða ehf. Kristinn
er látinn og Guðmundur Ingi berst við
erfiðan sjúkdóm en báðir em þeir
verðugir fulltrúar útgerðarmanna sem
stigu sín fyrstu skref í greininni upp
úr miðri síðustu öld. Bæði Bergur ehf.
og Huginn ehf. em til ennþá þó breyt-
ing hali orðið á eignarhaldi en það
sem skiptir mestu, að enn gera
fyrirtækin út frá Vestmannaeyjum.
Guðmundur Ingi og fjölskylda
seldu á sínum tíma hlut sinn í Berg-
Hugin en gmnnurinn, sem þeir mágar
lögðu með kaupunum á Vestmanna-
ey, VE hefur skapað þriðja stærsta
sjávarútvegsfyrirtæki Eyjanna. Frá
upphafi hefur Magnús Kristinsson,
Pálssonar, veitt Berg-Hugin forstöðu
og undir hans stjóm hefur tekist að
sigla ileyinu fram hjá þeim boðum og
brotsjóum sem hafa.gengið yfir ís-
lenskan sjávarútveg á þessum þremur
áratugum.
I dag er Vestmannaey orðin að
frystitogara og auk þess gerir Bergur-
Huginn ehf. út Smáey VE sem er einn
af öflugri trollbátum í Vestmanna-
eyjum. Starfsmenn em milli 40 og 50
og á árinu 2001 greiddi fyrirtækið
hæstu iaun allra fyrirtækja í landinu.
Magnús hefur líka átt sinn þátt í að
halda kvóta í byggðarlaginu og hefur
líka keypt kvóta annars staðar frá.
Síðast keypti hann 250 þorskígildi og
þar með hafði hann á síðustu sex ámm
fjárfest fyrir 1,3 milljarða í kvóta og
fyrirtækið einn af 20 stærstu kvótaeig-
endum í landinu.
Einkaútgerðir hafa átt undir högg að
sækja að undanfömu og því miður
hefur þeim fækkað í Eyjum á undan-
fömum ámm sent er mjög óæskileg
þróun. Við eigum því mikið undir
fyrirtækjum eins og Berg-Hugin ehf.
og mönnum eins og Magnúsi Kristins-
syni sem sýna það og sanna að enn er
til staðar kraftur og vilji til sjálfs-
bjargarviðleitni í Vestmannaeyjum.
Okkur finnst því kjörið á þessum
tímamótum að útnefna Berg-Hugin
ehf. fyrirtæki ársins í Vestmanna-
eyjum 2002. Megi féiagið vaxa og
dafna og verða til í a.m.k. 30 ár í
viðbót.
Hér eru mættar Lóa Skarphéðins-
dóttir, eiginkona Magnúsar og Þóra
Magnúsdóttir móðir hans og ekkja
Kristins Pálssonar til að taka við
viðurkenningunni. Sjálfurer Magnús
norður á Akureyri þar sem verið er að
skipta um vinnslulínu á millidekki á
Vestmannaey."
HLYNUR Stefánsson hefur hlotið margar viðurkenningar fyrir
afrek sín á knattspyrnuvellinum. I viðtali á Fjölsýn á mánudaginn
sagðist hann vera endanlega hættur í boltanum.
Framlag til íþrótta, Hlynur Stefónsson:
Glæsilegur ferill í 20 ár
LÓA Skarphéðinsdóttir, eiginkona Magnúsar, framkvæmdastjóra Bergs-Hugins, og Þóra Magnúsdóttir
móðir hans og ekkja Kristins Pálssonar tóku við viðurkenningunni.
Björgunarafrek ársins 2002:
Giftusamleg björgun við Elliðaey
„Litlu mátti muna að illa færi þegar
fjórir menn á leið í Elliðaey, þann
24. apríl í sumar, lentu í hrakn-
ingum. Þrír þeirra lentu í sjónum
við eyna, komst einn þeirra af
sjálfsdáðum í land en tveir gátu
enga björg sér veitt þar til björg-
unarbáturinn Þór bjargaði þeim.
Var annar þeirra þá orðinn mjög
þrekaður. Snögg viðbrögð áhafnar-
innar á björgunarbátnum Þór réðu
þarna úrslitum ásamt vökulu auga
Þórarins Sigurðssonar í Geisla sem
fylgdist með félögum sínum af
útsýnispallinum á Nýjahrauninu.
Þegar hann sá hvað verða vildi
hringdi hann eftir hjálp og með því
fór af stað ótrúlega hröð atburðarás
þar sem enginn hlekkur brást og
varð það mönnunum til bjargar,41
segir í forsendum viðurkenningar
fyrir björgunarafrek á árinu 2002.
„Að sögn Adólfs Þórssonar, for-
manns Björgunarfélags Vestmanna-
eyja, barst félaginu kali frá Neyðar-
línunni kl. 16.12 þennan dag þar sem
tilkynnt var um menn í sjónum við
Elliðaey, nánar tiltekið við Pálsnef
vestan á eynni. Brugðist var skjótt við
og voru skipverjar á Þór búnir að ná
mönnunum tveimur úr sjónum
klukkan 16.26. Það tók því Gunn-
laug Erlendsson, skipstjóra, og áhöfn
hans á Þór ekki nema 14 mínútur að
bjarga mönnunum eftir að kallið barst.
Upphafið var að fjórir félagar af
Sigurði VE, þeir Amar Andersen,
Friðrik Björgvinsson, Bjarki Krist-
jánsson og Sigurður Sigurðsson voru
á leið í Elliðaey þegar bátnum hvolfdi
undir þeim með þeim afleiðingum að
þrir þeirra, Friðrik, Bjarki og Sigurður,
lentu í sjónum. Sigurður náði landi
fljótlega en hinir tveir voru í sjónum í
tæpar tuttugu mínútur þar til björg-
unarbáturinn Þór náði þeim upp.
Þórarinn var, eins og áður segir,
staddur á útsýnispallinum á Nýja-
hrauninu. Sá hann atburðinn og náði
að tilkynna hann strax. Otrúlega
snögg viðbrögð skipverja björgunar-
bátsins Þórs vöktu mikla athygli, enda
tók það aðeins fjórtán mínútur frá því
útkallið kom og þar til þeir vom búnir
að ná seinni manninum upp úr. Fyrst
þurftu þeir að sigla einar tvær til þrjár
mílur til að komast að Elliðaey. Ekki
mátti miklu muna að illa færi enda
vom þeir orðnir kaldir og þrekaðir
þegar náðist til þeirra og má þakka
snöggum viðbrögðum allra þeirra sem
að björguninni komu fyrir það.
Sjálfir gerðu þeir sem komust á
land í eynni ítrekaðar tilraunir til að ná
sambandi við Neyðarlínuna en án
árangurs. Það vom því rétt viðbrögð
Þórarins og sá háttur hans að fylgjast
með mönnum á leið í úteyjar, ásamt
ótrúlegri röð tilviljana þennan dag sem
urðu þess valdandi að hann var ekki
sjálfur með í för sem áttu sinn þátt í
giftusamlegri björgun. Ekki má svo
gleyma þætti áhafnarinnar á Þór sem
sannaði að þar fer björgunarsveit sem
stendur undir nafni. Hvað þetta stóð
tæpt sést best af því að þegar menn-
imir tveir náðust vom þeir báðir orðnir
mjög kaldir, var líkamshiti Bjarka
kominn niður í 33° og 34° í Friðrik.
A þessum forsendum afhendum við
Þórami og áhöfninni á Þór og Björg-
unarfélaginu viðurkenningu fyrir
björgun ársins 2002.“
Það var Adólf formaður sem veitti
viðurkenningunni viðtöku.
„Þegar fótbolti og ÍBV eru nefnd
kemur nafn Hlyns Stefánssonar
strax upp í hugann. Hann hefur í
mörg ár verið einn af máttar-
stólpum meistaraflokks karla IBV í
knattspyrnu,“ sagði Omar Garð-
arsson í umsögn Frétta um að veita
Hlyn viðurkenningu fyrir framlag
til íþrótta í Vestmannaeyjum.
„Sem fyrirliði átti hann sinn þátt í
veigengni liðsins á ámnum 1997 til
1999 þegar ÍBV vann tvöfalt. Ekki
ætla ég að rekja feril Hlyns sem
spannar yfir 20 ára tímabil en kaflaskil
urðu hjá ÍBV 1996 þegar hann gekk á
ný til liðs við félagið eftir að hafa
leikið nokkur ár með Örebro í
Svíþjóð. Þar með hófst sannkallað
gullaldartímabil í sögu félagsins. Það
ár vom Eyjamenn í toppbaráttu bæði í
deild og bikar og árið eftir varð IBV
Islandsmeistari. Toppnum var svo náð
árið 1999 þegar IBV varð bikar-
meistari, Islandsmeistari og meistari
meistaranna. Það em sennilega ekki
mörg dæmi þess að einn og sami
fyrirliðinn hafi fengið jafn mörg
tækifæri á eins stuttum tíma til að taka
við jafn mörgum bikutum og Hlynur
gerði á þessum ámm. En snemma
beygist krókurinn og Hlynur varð líka
bikarmeistari með IBV 1981 en þá var
hann í leikmannahópnum.
Hlynur hefur verið í fremstu röð
knattspymumanna landsins í um 20 ár
og á glæstan feril með landsliðinu,
hann var kjörinn knattspymumaður
ársins árið 2000, hann er með leikja-
hæstu mönnum hjá IBV í efstu deikl
frá upphafi og hann svaraði kalli ÍBV
á síðasta sumri þó hann hafi verið
búinn að leggja skóna á hilluna.
Margt fieira má telja Hlyni til tekna
en það eru líka mannkostir hans sem
hafa skapað honum orðstír. Hann er
fæddur leiðtogi og hefur alla tíð verið
öðmm fyrirmynd í íþróttum.
Fyrir þetta allt veita Fréttir og
Fjölsýn honum viðurkenningu fyrir
framlag hans til knattspymu og íþrótta
í Vestmannaeyjum á síðustu 20
ámm.“
INGl Sigurðsson, bæjarstjóri, ávarpaði þá sem hlutu viðurkenningar
að þessu sinni og óskaði þeini til hamingju.