Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 09.01.2003, Qupperneq 11

Fréttir - Eyjafréttir - 09.01.2003, Qupperneq 11
Fimmtudagur 9. janúar 2003 Fréttir 11 Stór skref í menntamálum í Vestmannaeyjum: Einsetningu Hamarsskóla lokið -og Freeðslu og símenntunarmiðstöðin Viska tekur til starfa Síðasta mánudag var mikið um að vera í skólamálum Vestmannaeyja en þá var hluti viðbyggingar í Hamarsskóla tekinn í notkun og einnig var undirritaður stofnsamningur fyrir Fræðslu og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja sem hlotið hefur nafnið Viska. I Hamarsskóla voru teknar í notkun þrjár nýjar kennslustofur við hátíðlega athöfn. Tómas Ingi Olrich, menntamálaráðherra, var viðstaddur opnunina ásamt ráðuneytismönnum, forsvars- mönnum bæjarins, verktökum og starfsmönnum skólans. Ráðherra opnaði stofurnar formlega ásamt Halldóru Magnúsdóttur, skólastjóra Hamarsskóla. Með tilkomu viðbyggingarinnar er stórt skref stigið í sögu skólans og einsetning hans orðin að veruleika. Einnig skapast aðstaða fyrir aukið félagsstarf, dans- og tónlistarkennslu. Stofurnar eru glæsilegar og vel búnar húsgögn- um sem svara kröfum nútímans en hæðir á borðum og stólum nemenda eru stillanlegar. Arnar Sigmundsson, formaður skólamálaráðs, hélt ræðu við opnunina og í máli hans kom fram að aðalverktaki við viðbygginguna var verktakafyrirtækið Steini og Olli. Málningarvinnu önnuðust Olafur Tryggvason og Viðar Einarsson. Tréverk sá um innréttingar og Geisli um raf- lagnir. Píparinn - Þorsteinn Finnbogason sá um pípulagnir og Kristmann Kristmannsson. o.fl. um múrverk. Þorvarður Þorvaldsson annaðist dúklagnir og Eyjablikk Ioftræstingu og fleira stálverk. Þórður Magnússon sá um jarðvegsvinnu og Hellugerð Agnars um hellulagnir. Arkitekt var Hallur Kristvins- son, Arkinn ehf., sem líka sá um arkitektateikningar, samræmingu útboðsgagna innréttingar og húsgögn. Teiknistofa PZ annaðist útboðsgögn í vatns-, hita- og frárennslislagnir, loftræstingu, tréverk, burðarvirki og annan frágang. Raflagnir sá Rafteikning hf. um og eftirlit með verkinu hafði Tækni- og umhverfissvið Vestmannaeyjabæjar. Stofnsamningur um Fræðslu og símenntunarmiðstöð Vestmanna- eyja var undirritaður í Fram- haldsskólanum á mánudaginn. Stofnaðilar eru átján en þeir eru: Vestmannaeyjabær, Sparisjóður Vestmannaeyja, Vinnslustöðin, Isfélag Vestmannaeyja, Tölvuskóli Vestmannaeyja, Tölvun, Eyjasýn, Skipalyftan, Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja, Stjórnunarfélag Vestmannaeyja, Framhaldsskólinn í Vestmanna- eyjum, Háskóli íslands, Háskól- inn á Akureyri, Verslunar- mannafélag Vestmannaeyja, Starfsmannafélag Vestmannaeyja, Drífandi stéttarfélag, Verkstjóra- félag Vestmannaeyja og Sveina- félag járniðnaðarmanna. Fimm manna stjórn var kosinn á stofn- fundinum, Arnar Sigmundsson var kjörinn formaður, en aðrir í stjórn eru Páll Marvin Jónsson, Davíð Guðmundsson, Guðrún Erlingsdóttir og Baldvin Kristjánsson. í varastjórn sitja, Arnar Hjaltalín, Gunnar Gunn- arsson og Jóhann Guðmundsson. SKRTFAÐ var imdir stnfnsamning Viskn í Framhaldsskólannm af fnlltri'mm IX fyrirtækja og stnfnana sem stanrla afl fræðslnmiðstöðinni. Viðstaddur var menntamálaráðherra, Tómas Ingi Orlich. Stofnun Fræðslu og símenntunarstöðvarinnar: Markmiðið að efla menntun í Eyjum Páll Marvin Jónsson, forstöðumað- ur Rannsóknaseturs Vestmanna- eyja, segir að stofnun Fræðslu- og símenntunarstöðvarinnar sé fram- hald af því starfi sem unnið hefur verið hér í fjarnámi við setrið ásamt fullorðinsfræðslu við Framhalds- skólann og Tölvuskóla Vestmanna- eyja- „Það var tímabært skref að stofna séreiningu sem heldur utan um þetta nám hér í Eyjum. Markmið Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvarinnar er að efla menntun í Vestmannaeyjum með því að standa fyrir fræðslustarfsemi sem ekki heyrir undir námsskrár- bundið nám á grunn- og fram- haldsskólastigi, nema sérstaklega verði um það samið. Miðstöðin mun hafa forgöngu um fræðslu og fjar- kennslu á sem flestum sviðum og miðla því til almennings og atvinnulífs í Vestmannaeyjum. Einnig mun hún hafa samstarf við aðra aðila í landinu sem sinna símenntun, endurmenntun og menntun á háskólastigi og vera í fararbroddi að nýtingu á bestu fáan- legri Ijarkennslutækni hveiju sinni.“ Páll Marvin segir að í framhaldinu verði gerður samningur við mennta- málaráðuneyti sem leggur til níu milljónir frá ríki eins og til annarra fræðslumiðstöðva. „Síðan koma stofnaðilar sem leggja fram stofnfé og tryggja rekstrargrunn miðstöðvar- innar. Það verður ráðinn maður til að sinna Fræðslumiðstöðinni sérstaklega og það má reikna með að framboð á námi verði meira en verið hefur. Næsta skref er að auglýsa stöðuna og við reiknum með að starfsemin komist á fullt í mars. Ég vil þakka góðar viðtökur hjá fyrirtækjum sem hafa gert þetta mögulegt og vonandi verður þetta til að styrkja fjarmenntun og endurmenntun í Eyjum,“ segir Páll Marvin. MENNTAMÁLARÁÐHERRA við eitt af borðunum góðu í einni af nýju stofunum. Halldóra Magnúsdóttir skólastjóri: Allir geta nú gengið að sínu vísu -og þurfa ekki að flytja með sér dót ó milli staða Halldóra Magnúsdóttir, skólastjóri Hamarsskóla, segir viðbygginguna gera það að verkum að hver bekkjardeild og kennari hafi sína stofu til umráða og þurfi ekki að deila henni með öðrum. „Auk þess er nú hægt að nota fjölnota rými til kennslu á dansi og tónmennt ásamt móttöku gesta. Ég sé fyrir mér að þetta rými nýtist ef nemendur, foreldrar eða aðrir vilja standa fyrir fyrirlestrum, leiksýn- ingum eða tónlistarstarfsemi. Það eiga eftir að koma pallar fyrir áhorf- endur og pallar sem nýtast sem leik- svið. Við eigum líka eftir að fá tjöld en ljósabúnaður er kominn. Ég held við munum ekki átta okkur á því hvað þetta á eftir að breyta miklu fyrr en líður á önnina." Halldóra segir jafnframt að meiri ró og friður komi til með að ríkja á göngum og í skólastofum. „Allir geta nú gengið að sínu vísu og þurfa ekki að flytja með sér dót á milli staða. Húsgögnin í nýju stofunum eiga að vera vinnuvæn fyrir kennara, hægt er að hækka og lækka stóla og borð og því þarf kennarinn ekki að bogra þegar bömum er leiðbeint. Við emm mjög ánægð með að verkið skyldi standast áætlun og hvað verktakar gengu vel um og tóku tillit til skólastarfsins. Frágangur húsnæðis er frábær og við emm öll í sjöunda himni,“ segir Halldóra.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.