Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 09.01.2003, Qupperneq 13

Fréttir - Eyjafréttir - 09.01.2003, Qupperneq 13
Fimmtudagur 9. janúar 2003 Fréttir 13 er um að ræða verslunarfólk, fiskverk- unarfólk, sjómenn, verkafólk, iðnaðar- menn o.fl. Þessu þurfum við að bregðast við og m.a. hafa bæjar- yfirvöld ákveðið að ráða einn starfsmann í allt að sex mánuði til að aðstoða núverandi starfsmann hjá Svæðisvinnumiðlun Suðurlands til að kynna fyrirtækjum í bænum hvaða möguleikar eru í stöðunni. Einnig þurfum við að takast á við þá staðreynd að um 70 til 80 sjómenn í Eyjaflotanum eru ekki búsettir eða skráðir í Vestmannaeyjum og þannig verður bærinn af tekjum sem hleypur á tugum milljóna. í því efni verður að höfða til aðila í útgerð að sameinast með bæjaryfirvöldum að breyta þessu hlutfalli. Einnig að reyna að ráða heimamenn í plássin, sérstaklega þegar eitthvað er um að sjómenn séu á atvinnuleysisskrá. Ég hef fulla trú á að útgerðaraðilar hér í bæ munu vera vakandi fyrir þessu, miðað við samtöl við nokkra þeirra í lok síðasta árs. Aðrir þættir atvinnuleysis lúta að því hvemig fiskast nú á næstunni í uppsjávarfiski, hvemig við getum styrkt verkefnastöðu fyrirtækja sem em í iðnaði og einnig eflt verslun í heimabyggð. Vonandi næst að koma fyrirhugaðri matvælaverksmiðju að Eiði í gang nú í þessurn mánuði og veltur það á því hvemig bæjaryfir- völdum tekst að fá aðila hér í bæ til að koma að þeim rekstri. Þar myndi vafalítið skapast ákveðinn fjöldi starfa strax og sá fjöldi gæti stækkað eftir því hvað fyrirtækið dafnaði fljótt og vel. Eflum ferðamannaiðnaðinn Við þurfum einnig að ná að efla ferðamannaiðnaðinn hér í Eyjum og þar þarf að vinna að því að Vest- mannaeyjar komist aftur inn á kort erlenda ferðamannsins eftir að Flugfélag íslands hætti að fljúga áætlunarflug hingað. Islandsflug hefur hins vegar sinnt þessari flugleið með prýði frá þeim tíma en fargjöld eru of há fyrir almenning og því hefur farþegafjöldinn minnkað töluvert. Þá kemur að því hvort ríkið eigi ekki að styrkja þessa flugleið á sambærilegan hátt eins og gert var á flugleiðinni til Homafjarðar. I tengslum við íjölgun ferðamanna er mögulegt að horfa til eflingar á tengingunni við Bakkaflug- völl og mögulegt samstarf við aðila í ferðaþjónustu á Suðurlandi, og síðast en ekki síst með nýrri og hraðskreiðari feiju milli lands og Eyja. Styttri siglingatími gerir þennan möguleika fysilegri fyrir ferðaþjón- ustuaðila og það er einnig það sem kemur okkur sjálfum til góða sem og fólkinu sem vill sækja okkur heim. Þá gætum við með skemmri fyrirvara farið upp á land og einnig væri fiutn- ingsgetan talsvert meiri. Einnig þarf að bæta aðstöðuna á Bakkaflugvelli með nýrri flugstöð og klára að ganga ffá slitlagi alla leiðina frá þjóðvegi 1 og að flugstöð. Vestmannaeyjar em náttúruperla en það er sú auðlind sem við eigum eftir að nýta okkur betur og þar komum við aftur að því að slíkt gerist einungis með samvinnu aðila í ferðaþjónustu. Jarðgöng eru lausnin Samgöngur við Eyjar em samt sá þáttur sem mun hafa áhrif á búsetu- og atvinnuskilyrði til framtíðar. Við munum með nýrri og hraðskreiðari feiju finna fyrir breytingu til batnaðar varðandi ferðamannastraum og hæg- ara um vik fyrir okkur að komast til og frá Eyjunum. Það eina sem verður til þess að bæta og efla alla þætti sam- félagsins er samt sem áður jarðgöng milli lands og Eyja. Með þeim myndu Eyjamar verða hluti af stærra atvinnu- svæði og þær myndu gegna nýju hlutverki í þjónustu stóm skipafé- laganna. Atvinnutækifæmm myndu fjölga, ferðamannastraumur myndi aukast til muna og stofnanir eins og Heilbrigðisstofnunin, Framhaldsskól- inn. ásamt söfnum bæjarins, myndu stóreflast. Einhverjir hafa sagt að þá myndu Eyjamar tapa sérstöðu sinni sem eyja, en eftir sem áður snýst þetta um að styrkja samfélagið og búsetu hér því við viljum vaxa og dafna og halda eftir sem áður þeim sérkennum sem við emm þekkt fyrir. Vegagerðin hefur staðfest að þessi framkvæmd er möguleg en sé fjárfrek og það er rétt, en það er einnig dýrt að endumýja Herjólf á 15 ára fresti. Því er ég sann- færður um að jarðgöng til Vest- mannaeyja gætu orðið að vemleika innan 10 ára ef farið yrði af stað á þessu ári að vinna þá undirbún- ingsvinnu sem þarf og er tímafrek. Því væri það stór breyting í milli- tíðinni að fá hraðskreiðari ferju til að leysa núverandi Heijólf af ef það gengur eftir og að sú ferja þjóni okkur þar til göngin verða tekin í notkun. Því treysti ég samgönguhópnum sem er að starfa á vegum samgöngu- ráðherra til að ákveða um hvemig feijusiglingum verður háttað á næstu ámm, en í framhaldi af því verður að fara að huga að framtíðarlausn í samgöngumálum Eyjanna. Fmm- kvæðið í því máli verður að koma frá okkur sjálfum á svipaðan hátt eins og staðið var að gerð jarðganga undir Hvalíjörð. Margt að gerast Að öðm leyti er margt að gerast á eyjunni okkar fögm, viðbygging við Hamarsskólann var vígð sl. mánudag og þar með er skólinn einsetinn, stofnuð var á sama degi Fræðslu- og símenntunarstöð, VISKA, hér í Eyjum með framlagi frá ríkinu, miklum endurbótum við Iþróttamiðstöðina er að ljúka á fyrri hluta þessa árs þar með talin bygging nýs íþróttahús sem er ein stærsta framkvæmd bæjarfélagsins síðustu ára, 30 ár liðin frá upphafi og lokum gossins á Heimaey og ýmsir viðburðir verða á árinu tengdir þeim tímamótum, áfram verður haldið við endumýjun hafnarmannvirkja skv. hafnaáætlun, við Heilbrigðisstofnun er unnið að endurbótum, miklar fram- kvæmdir hafa verið í gangi í endumýjun húsnæðis og búnaðar hjá Vinnslustöðinni og Isfélaginu, mið- bæjarsvæðið er í endumýjun og vonir standa til að verslunar- og íbúða- bygging rísi þar og talsverðar byggingarframkvæmdir em í gangi á fasteignamarkaðinum. Sá markaður hefur verið mjög líflegur og fasteignasala verið mjög lífleg skv. upplýsingum fasteignasala. Nýlokið er byggingu parhúss í Bessa- hrauni og í byggingu em einbýlishús í Bessahrauni og í Norðurgarði sem og tvö parhús í Stóragerði, eitt í Litlagerði og fleiri aðilar að huga að byggingu íbúða á árinu. Þetta sýnir að það er hugur í fólki hér og að hér vilji fólk setja sig niður til lengri tíma og jafnvel til frambúðar. Mannlegu málin íþrótta-, æskulýðs- og menningarlíf er sem fyrr öflugt og líflegt, og alltaf er stefnt á að gera belur. Þessir þættir hafa gert og munu gera áfram sam- félag okkar auðugt enda er það fyrst og fremst mannauðurinn sem við eigum að horfa til. Eyjasálin er eitthvað sem fæst hvorki keypt né seld og það er hún sem gerir okkur svo sérstök sem við emm og vonandi breytist það aldrei. Við eigum að einbeita okkur að því að vinna jákvætt og uppbyggilega fyrir Eyjamar og ef mál fara ekki eins og best verður á kosið þá ber að taka á því og koma þeim til betri vegar. Neikvæðni smitar út frá sér og hefur aldrei hjálpað til að koma góðum málum á veg. Sú orrahríð sem hefur staðið um málefni Þróunarfélagsins hefur ekki gagnast okkur á neinn hátt og því vona ég að í framtíðinni beri okkur gæfa til að vinna þannig að málum að í fyrsta lagi, verði betur staðið að málum, og í öðm lagi að gagnrýni á rétt á sér en hún verður að vera uppbyggileg t.d. eins og alltaf er haft að leiðarljósi í íþróttum. Hins vegar trúi ég því að við bemm öll hag Eyjanna fyrir brjósti en auð- vitað verðum við ekki alltaf sammála um leiðir. Markmiðið verður samt alltaf það að setja Vestmannaeyjar í fyrsta sæti og það gemm við með samstöðu og þeim krafti sem býr í samfélaginu okkar. Að endingu langar mig að hvetja Eyjamenn til þess að leyfa útijóla- ljósunum lifa út mánuðinn til að lífga upp á skammdegið, og jólaskreytingar á vegum bæjarins munu verða uppi allan mánuðinn. Hvet einnig bæjar- búa til að taka virkan þátt í þeirri dagskrá sem verður í gangi í tengslum við 23.janúarnk. Ingi Sigurðsson bœjarstjóri. Rekstur bæjarsjóðs er umfangsmikill og fjárfrekur, enda hafa ýmis mál verið færð frá ríkinu og yfír til sveitarfélaganna. Þvf skiptir það miklu máli að leita allra leiða til að geta nýtt það fjármagn sem best og einnig að vera vakandi fyrir því hvaða möguleika Eyjarnar hafa til að ná hingað rekstri á vegum ríkisins eins og hefur verið að gerast á undanfömum ámm. Þar má t.d. nefna aðila eins og Fiskistofu, nám tengt sjávarútvegi eins og skipstjóra- og stýrimannanám, neta- gerðamám og annað iðnnám sem tengist þjónustu við sjávarútveginn. Einnig ber að nefna eflingu Rann- sóknaseturs Háskólans. Eygló Harðardóttir skrifar: Byggðakvóta er úthlutað með því skilyrði að hann sé unninn í viðkomandi byggðarlagi Vestmannaeyjar fengu úthlutað byggðakvóta í fyrsta skipti í nýlegri úthlutun sjávarútvegsráðuneytisins. Góður rökstuðningur var fyrir úthlutuninni þar sem mikils samdráttar hefur gætt í störfum í fiskvinnslu og útgerð í Eyjum á síðastliðnum ámm. M.a. hefur verið sýnt fram á að bein línuleg tengsl séu á milli fólksfækkunar í byggðarlaginu og fækkunar starfa í fiskvinnslu. Sem höfundur umsóknar um byggðakvóta sem Aðgerðarþjónust- unni Kútmaga- koti, Godthaab Nöf og Hlíðardal var úthlutað ný- lega tel ég mig knúna til að bregðast við fréttapistli sem birtist í Fréttum 3. janúar síðastliðinn undir íyrirsögninni Byggðakvótinn hefndargjöf: Urkynjun og sósíalismi að vera með pólitíska potta. Fólksfækkun og færri störf í fisk- vinnslu Vestmannaeyjar fengu úthlutað byggðakvóta í fyrsta skipti í nýlegri úthlutun sjávarútvegsráðuneytisins. Góður rökstuðningur var fýrir úthlut- uninni þar sem mikils samdráttar hefur gætt í störfum í fiskvinnslu og útgerð í Eyjum á síðastliðnum árum. M.a. hefur verið sýnt fram á að bein línuleg tengsl séu á milli fólksfækkunar í byggðalaginu og fækkunar starfa í fiskvinnslu. í einangraðri sjávarbyggð eins og Vestmannaeyjum, þar sem tæplega helmingur allra unninna ársverka er í sjávarútvegi, er um fátt annað að velja þegar störfum fækkar en flytja á brott. Þrátt fyrir erfitt atvinnuástand hefur lítið af aflaheimildum verið selt í burtu. Eyjar eru því skólabókardæmi um að hlutfall aflaheimilda skiptir ekki mcstu máli varðandi byggðaþróun og fólksfækkun, heldur hvar og hvemig aflinn er unninn; beint í gáma, úti á sjó eðaí landi. Af hverju byggðakvóti? Markmið laga um fiskveiðistjómun vom tvíþætt; annars vegar „...að stuðla að vemdun og hagkvæmri nýtingu [nytjastofnanna] og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu." (Lög um stjóm fiskveiða, 1990 nr. 38 15. maí). Flestir geta verið sammála um að fýrra markmiðið hefur náðst að mestu leyti en markmiðið um trausta atvinnu og byggð í landinu er fjarri raunvem- leikanum. Mikil fólksfækkun hefur orðið í byggðum landsins á þessum rúma áratug sem núverandi útfærsla laga um fiskveiðistjómun hefur ríkt. Færri störf þýða að fólki fækkar - enginn efast um þann sannleika. Færra fólk þýðir minni þjónusta fýrir þá sem eftir sitja þar sem grundvöllur fyrir þjónustu versnar. Ef ekkert er að gert getur keðjuverkun farið af stað þar sem enn fleira fólk flytur í burtu. Með byggðakvóta er verið að reyna að koma í veg fyrir áframhaldandi sam- drátt og fólksfækkun og bæta fyrir vankanta á núverandi útfærslu annars góðra laga um fiskveiðistjómun. Pólitískir pottar Astæða er að minna á að úthlutun byggðakvóta byggist einnig á eftirfar- andi: „Úthlutun veiðiheimilda sam- kvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.“ (Lög um stjóm fiskveiða, 1990 nr. 38 15. maí). Af hverju ekki? Vegna þess að fiskurinn er eign íslensku þjóðarinnar sem úthlutaði aflaheimildum í upphafi úr sameiginlegum potti samkvæmt reglum um veiðireynslu og skipaeign ákveðinna einstaklinga og fýrirtækja í þeirri trú að það væri best fýrir atvinnu og byggð í landinu. Með byggðakvóta er enn á ný verið að úthluta úr okkar sameiginlega potti til að reyna að ná þessum markmiðum laganna. Byggðakvóta er úthlutað með því skilyrði að hann sé unninn í viðkom- andi byggðarlagi til að skapa störf og auka verðmæti afurðanna. Sanngjarnari skipting í næstu umferð Úthlutun veiðiheimilda til nýrra aðila þýðir minni veiðiheimildir til þeirra sem fyrir voru. Frá mínum bæjar- dyrum séð er rökstuðningurinn ein- faldur fyrir þessari aðgerð. Nýjum handhöfum veiðiheimilda er ætlað það hlutverk að gera betur í að tryggja að sameign þjóðarinnar sé nýtt til að tryggja atvinnu og byggð í landinu. Mörg útgerðarfyrirtæki hafa staðið sig mjög vel í sínu vörsluhlutverki og er leitt að þau verða fyrir því að afla- heimildir til þeirra minnki. 1 allri sanngimi tel ég að í næstu skiptingu ætti e.t.v. að líta til nýtingar hjá einstökum handhöfum veiðiheimilda með tilliti til framsals, löndunar og nýtingar á afla (í gáma, sjóvinnslu eða landvinnslu). Þeir sem leigja frá sér afla eða flytja hann beint út í gámum án þess að bjóða til sölu á fiskmörkuðum eða vinna hann á annan máta yrðu þannig fyrir meiri skerðingu en aðrir þar sem þeir væm ekki að uppfylla vörslu- hlutverk sitt. Að lokum vil ég þakka fyrir skýrt svar útgerðarmannsins Magnúsar Kristinssonar um að útgerðin hans muni ekki sjá um að veiða aflann, - en þegar er frágenginn samningur um veiðar á byggðakvótanum. Eygló Harðardóttir

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.