Fréttir - Eyjafréttir - 17.07.2003, Síða 1
Athyglisverð skýrsla
um atvinnumál
Fyrir skömmu lögðu vinnuhópar um
atvinnumál í Eyjum fram skýrslu sína.
Þar er margt athyglisvert að finna.
Daglega
Aukaferðir:
Alla daga nema
laugardaga
HERJÓLFUR
Upplýsingatími: 481-2800 • www.herjolfur.is
HERJOLFUR
30. árg. / 29. tbl. / Vestmannaeyjum 17. júlí 2003 / Verð kr. 180 / Sími 481-1300 / Fax 481-1293 / www.eyjafrettir.is
MIKIÐ var um dýrðir i Höllinni á laugardagskvöldið þar sem Stefán Atli var kjörinn herra
Vestmannaeyjar og Sædís Eva var valin Sumarstúlka Vestmannaeya 2003.
ATTA stelpur og fimm strákar tóku þátt
kominn eftir að úrslit lágu fyrir.
keppninni og hér er allur hópurinn saman-
Ráðuneytið svarar ekki bréfi ÍBV:
Löggæslukostnaður
kominn úr böndum
-Þurfum að selja 1000 miða bara til að standa
undir þessu, segir framkvæmdastjóri félagsins
Mikillar óánægju gætir hjá ÍBV-
íþróttafélagi vegna stöðugt hækk-
ídi löggæslukostnaðar á þjóð-
ítíð. Er (svo komið að félagið
þarf að borga 8 miiljónir til þess
að fá leyfi til að halda hátíðina á
meðan aðrar úti- og bæjarhátíðir
þurfa ekki leggja fram krónu.
Dómsmálaráðuneytið hefur ekki
látið svo lítið að svara bréfi fé-
lagsins frá því janúar sl. þar sem
þessu er mótmælt harðlega.
„Þann 22. janúar í vetur sendum
við bréf til dómsmálaráðuneytisins
og dómsmálaráðherra þar sem við
vildum fá sem gleggstar upplýs-
ingar um löggæslukostnað á þjóð-
hátíð,“ sagði Páll Scheving fram-
kvæmdastjóri ÍBV.
„Þar bentum við á það órétti að á
meðan Kántríhátíð, Neistaflug og
Síldarævintýri, sem draga til sín
mörg þúsund manns, borga ekki
krónu í| löggæslukostfiað þurfum
Við ap punga út 8 milljónum í lög-
gæslu, björgunarsveitir, læknis-
þjónustu og sálgæslu."
Páll sagði að þetta væri óþolandi
mismunun og framkoma ráðúneyt-
isins væri með endemum. ! „Það
virðist vera stefna ráðuneytisins að
skattleggja og gjaldtaka okkur
þannig að við gefumst upp. Þá taka
við eftirlitlausar hátíðir unglinga
sem er kannski það sem þessir herr-
ar vilja. Stærsti hluti löggæslunnar
er svo í bænum en ekki Herjólfsdal
sem gerir óréttlætið enn meira.
Ahættan eykst líka stöðugt hjá
okkur og nú þurfum við að selja
1000 miða til að eiga fyrir þessum
reikningi," sagði Páll að lokum.
Afmælismót GV og
Meistaramótið hófst í gær
Meistaramót Vestmannaeyja í
golfi hófst í gær. Raunar byrjaði
mótið á þriðjudag með keppni í
unglingaflokki en í gær byrjaði
keppni í meistaraflokki, 1., 2., 3.
og 4. flokki karla og kvenna-
flokki. Leiknar verða 72 holur án
forgjafar nema í kvennaflokki
þar sem leikið verður með og án
forgjafar.
Keppni í öldungaflokki hefst í dag
og verða leiknar 54 holur, með og
án forgjafar. Þar er keppt í þremur
flokkum, karlaflokki, kvennaflokki
og eldri karlaflokki.
A laugardag er svo afmælismót
GV en klúbburinn er 65 ára á þessu
ári. Þeir sem taka þátt í Meistara-
mótinu eru sjálfkrafa þátttakendur í
því móti sem er punktamót og
verðlaun veitt fyrir fimm efstu sæti
og nándarverðlaun á þremur holum.
Innbrot, hass og eldur í Elliðaey
Aðfaranótt sunnudags var farið inn
um glugga á íbúðarhúsi við
Dverghamar og nokkrar vínflöskur
teknar ófrjálsri hendi. Ekki er vitað
hverjir voru þama að verki. Ef ein-
hver hefur orðið vitni að þessu er sá
hinn sami vinsamlegast beðinn um
að láta lögreglu vita.
A föstudagskvöld fundust fíkni-
efni á Lundanum. Talið er að um
hass sé að ræða og að einn gestanna
hafi annaðhvort misst það eða kast-
að frá sér. Dyravörður fann efnið
eftir ballið og lét lögreglu vita.
Einn bruni var tilkynntur til
lögreglu en kviknað hafði í gasís-
skáp í Elliðaey. Félagsmenn náðu
að slökkva eldinn og tjón varð ekki
verulegt.
Í5ii
B]
Bergur Ágústsson tekinn
við sem bæjarstjóri
Mikill gusugangur hefur verið í bæjar-
málunum undanfarna daga en nú er nýr
bæjarstjóri tekinn við og nýir foppar á
leið í Ráðhúsið.
^jjtarlegjjmfjöllunj^blaðjnu^dafl.
TM-ÖRYGGI
fyrir fjölskylduna
sameinar öll tryggingamálin
á einfaldan og hagkvæman hátt
- á öllum sviduml
Viðgerðir og smurstöð
Sími 481 3235
Réttingar og sprautun
Sími 481 1535
Heildarlausn
íflutningum
E eimskip Œffinzzn
www.eimskip.is • www.flytjandi.is • simi 4813500