Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.07.2003, Side 2

Fréttir - Eyjafréttir - 17.07.2003, Side 2
2 Fféttir / Fimmtudagur 17. júlf 2003 Bergur Agústsson, nýráðinn bæjarstjóri á blaðamannafundi: Gætum þurft að grípa tíl erfiðra aðgerða -til að fá tekjur og gjöld til að stemma UM 100 bflar voru mættir við Ráðhúsið síðasta fimmtudag þar sem eigendur þeirra þeyttu bflflauturnar til stuðnings Inga Sigurðssyni, fráfarandi bæjarstjóra, en skömmu síðar var nýr bæjarstjóri, Bergur Agústsson, kynntur til sögunnar. „Frá því að núverandi meirihluti tók við hefur verið unnið að því að endur- skipuleggja frá grunni stjómskipulag Vestmannaeyjabæjar. Þessar breyting- ar miða að því að bæjarfélagið geti sem best þjónað þörfum og hags- munum íbúa Vestmannaeyjabæjar,“ segir í yfirlýsingu sem meirihluti bæjarstjómar, V-listi og Andrés Sigmundsson, lagði fram á blaða- mannafundi í morgun. „Frá því að nýr meirihluti tók við hefur ekki tekist að mynda þann nauðsynlega trúnað sem verður að ríkja milli bæjarstjóra og meirihlutans, en bæjarstjóri á hverjum tíma er helsti trúnaðarmaður meirihlutans. I því ljósi er það mat bæjarfulltrúa meirihlutans og þeirra flokka sem að honum standa að það þjóni best hagsmunum allra, ekki síst hagsmunum bæjarbúa, að nýr einstaklingur taki við starfi bæjar- stjóra. Bæjarstjóraskiptin munu ekki hafa í för með sér nein fyrirsjáanleg útgjöld fyrir bæjarsjóð umfram það sem ella hefði orðið. Meirihluti bæjarstjómar er þeirrar skoðunar að þessi tími sé réttur til að spyma við fótum og snúa af braut stöðnunar, hvar bæjarfélagið hefur verið undanfarin þrettán ár undir forystu Sjálfstæðisflokksins, og reyna að nýta þau fjölmörgu tækifæri sem em til staðar í Vestmannaeyjum. Meirihlutinn mun leggja mikla áherslu á atvinnu-, mennta- og menningarmál. Enn fremur munum við leggja ríka áherslu á að ná tökum á fjármálum bæjarins en þar hafa ríkt mikil lausa- tök undanfarin ár. Til þess að vinna að þessum mark- miðum höfum við fengið til liðs við okkur Berg Ágústsson, sem er menntaður í Tromsö í Noregi sem „Master of fishery science“ og hefur mikla reynslu af rekstri sjávarút- vegsfyrirtækja o.fl. fyrirtækjum. Hann mun gegna starfi bæjarstjóra frá og með 15. júlí nk. Enn fremur höfum við ákveðið að fá til liðs við okkur fjóra einstaklinga sem munu gegna störfum fram- kvæmdastjóra þeirra íjögurra sviða, sem nýtt stjómskipulag Vestmanna- eyjabæjar gerir ráð fyrir en þeir em: Viktor Stefán Pálsson lögfræðingur, framkvæmdastjóri stjómsýslu- og fjármálasviðs, Hera Ósk Einarsdóttir félagsfræðingur, framkvæmdastjóri félags- og fjölskyldusviðs, Andrés Sigurvinsson gmnn- og framhalds- skólakennari og leikstjóri, fram- kvæmdastjóri fræðslu- og menn- ingarsviðs og Frosti Gíslason, iðnaðartæknifræðingur frá Tæknihá- skóla íslands, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs. Við teljum okkur vera mjög lánsöm að hafa fengið allt þetta fólk til að vera í forystu við að vinna að því að byggja á ný upp öflugt sveitarfélag hér í Vestmannaeyjum. Við viljum hvetja alla Eyjamenn og aðra sem að þessu verki vilja koma að taka þátt í því með okkur,“ segir í yfirlýsingunni sem Andrés Sigmundsson og Lúðvík Bergvinsson kynntu á fundinum. A eftir sátu þeir fyrir svömm, Andrés Sigmundsson forseti bæjar- stjómar, Lúðvík Bergvinsson bæjar- fulltrúi og Bergur Elías Ágústsson nýráðinn bæjarstjóri. Lúðvík sagði að takmark meirihluta bæjarstjómar væri að skapa í Vestmannaeyjum fjöl- skylduvænt umhverfi og það hafi verið mikið lán að fá jafn hæfan mann og Berg til að stýra þeirri vinnu. „Hann hefur mikla reynslu af rekstri í sjávarútvegi og kemur inn með nýja sýn,“ sagði Lúðvfk. Andrés tók í sama streng og sjálfur sagði Bergur ánægjulegt og spennandi að takast á við nýtt verkefni. Lofaði hann að vinna af krafti og heilindum fyrir samfélagið og kvaðst vonast til að allir legðust á eitt til í þeim efnum. Þeir vom spurðir að því hvort trúnaðarbrestur hefði orðið milli Inga Sigurðssonar ífáfarandi bæjarstjóra og núverandi meirihluta. Andrés sagði ekki rétt að tala um trúnaðarbrest. „Það er frekar nauðsynlegt við þessar aðstæður að skipta um mann í brúnni,“ sagði Andrés og viðurkenndi að ekki hefði tekist að byggja upp nauðsynlegt traust milli þeirra og Inga. Lúðvík áréttaði að bæjarstjóra- skiptin væm til hagsbóta fyrir alla en af hveiju var þetta ekki gert fyrr? „Við sögðum í upphafi að við ætluðum að láta á það reyna hvort það gengi eða ekki. Sjálf ákvörðunin er ekki mjög gömul og þetta er niðurstaðan,“ sagði Lúðvík. Ekki höfðu þeir áhyggjur af því að bæjarsjóður þyri'ti að borga fráfarandi bæjarstjóra laun út kjörtímabilið, því til staðfestingar benti hann á lögfræði- álit sem kveður á um að bæjarstjóri hafi sex mánaða uppsagnarfrest. Aðspurðir um stöðu fólks sem er í störfum sem leggja á niður samkvæmt nýja skipulaginu sagði Lúðvík að pláss væri fyrir þá alla innan bæjar- kerfisins. „Það er svo spuming hvort þeir vilja taka við nýjum störfum. Þessar breytingar voru unnar í samvinnu við Starfsmannafélagið og þetta var skipulagt þannig að enginn á að skaðast," sagði Lúðvík. Næst vitnaði hann í skýrslu Jóns Gauta Jónssonar, sem telur að boðleiðir innan bæjarkerfisins hafi ekki komið að tilætluðum notum og því hafi verið nauðsynlegt að brjóta það upp. Ekki sagði Lúðvík að nauðsynlegt hefði verið að auglýsa stöður sviðsstjóranna og það hefði ekki heldur verið heiðarlegt þegar búið var að ákveða hverjir fengju stöðurnar. Ekki eiga breytingamar að hafa kostnaðarauka í för með sér nema hvað staðið verður við að borga þau biðlaun sem falla á bæjarsjóð. Það kom fram að þeir vænta mikils af nýju fólki og með nýju skipulagi verði kerfið einfaldara, ynni hraðar og yrði skilvirkara en Bergur kom að kjama málsins þegar hann sagði að gjöld og tekjur yrðu að stemma og það gæti komið að því að þeir þyrftu taka erfiðar ákvarðanir. Sumarstúlkan 2003 og Herra Vestmannaeyjar Það var bónus að vinna Geðveikt gaman - segir Stefán Atli Sædís Eva Birgisdóttir var valin Sumarstúlka Vestmannaeyja og Ijós- myndafyrirsæta í Sumarstúlku- keppninni sl. laugardagskvöld. Atta stúlkur tóku þátt í keppninni. Sædís er sautján ára, fædd 21. sept- ember 1985. Hún er dóttir Birgis Þórs Sverrissonar og Kolbrúnar Evu Valtýsdóttur og starfar í versluninni 11-11 í Goðahrauni í sumar. „Þetta var æðislega gaman og undirbún- ingurinn skemmtilegur, alveg brjálað að gera síðustu dagana. Mórallinn var mjög góður, sérstaklega síðustu vikuna. Fyrst var svolítil spenna á milli okkar en þá vomm við að hittast á viku til tveggja vikna fresti. Þegar við fómm að hittast oftar þá fór hópurinn að smella betur saman." Sædís Eva segir lokakvöldið hafa verið frjálslegt og skemmtilegt en stúlkumar komu fram í sumarlegum fatnaði í stað síðkjóla. Þegar hún er spurð hvort hún telji að titillinn opni einhverjar dyr hlær hún og segist ekki hafa áhuga á fegurðarsamkeppni og þetta hafi verið meira til gamans gert. „Eg á ekki von á því að leggja fyrir -segir Sædís Eva mig fyrirsætustörf. 1 sjálfu sér á ég ekki nein sérstök áhugamál önnur en það sem ég er að fást við hverju sinni. Mér finnst gaman í vinnunni og fer til Ítalíu eftir tvær vikur og ætla að sleppa þjóðhátíð að þessu sinni. Það kemur þjóðhátíð eftir þessa þjóðhátíð." Sædís Eva stundar nám í FIV og er á þriðja ári á félagsfræðibraut. „Mér finnst erfitt að koma mér af stað í skólanum eftir frí en það er allt í lagi þegar ég er byrjuð. Ég er ekki ákveðin hvaða framhaldsnám ég ætla að velja í framtíðinni það verður að koma í ljós.“ Hún segir úrslitakvöldið hafa verið rosalega skemmtilegt og bónus að vinna þetta. „Það fylgdu mér tuttugu og fimm manns þetta kvöld en enginn pabbi og enginn kærasti þar sem þeir voru báðir á sjó. Ég hef ekki fundið fyrir neinu neikvæðu í tengslum við keppnina og fólk tekur þessu öllu vel. Þetta var skemmtilegt og ógleyman- legt kvöld," segir Sædís Eva. EVA Sædís með mömmu sinni, Kolbrúnu Evu og Valtý Snæ bróður sfnum. Stefán Atli Agnarsson var kosinn herra Vestmannaeyjar sl. laugar- dagskvöld en fimm ungir menn kepptu um titilinn. Stefán Atli er sautján ára, fæddur 18. desember 1985. Foreldrar hans eru Agnar Ámason og Valgerður Stefánsdóttir. Stefán Atli hefur búið í Reykjavík og á Olafsfirði en fluttist hingað frá Akureyri sl. haust. Hann segist ánægður í Éyjum og bjóst ekki við að það væri svona mikið um að vera hér. „Það gerist ekki betra, ég var á goslokahátíð og maður verður auðvitað á þjóðhátíð." Hann segir það hafa verið mjög gaman að taka þátt í keppninni og ágætt að prófa eitthvað nýtt. „Við æfðum öll saman, þ.e. við strákamir og stelpumar sem tóku þátt í Sumar- stúlkukeppninni. Það vom ekki aðrar kröfur gerðar til okkar en að við væmm við sjálfir og við áttum að brosa til dómaranna." Stefán Atli segist ekki hafa orðið var við fordóma vegna þátttöku sinnar x keppninni. „Vinimir hafa komið með athugasemdir en það er bara í gríni og mér er nákvæmlega sama.“ Þegar hann er spurður hvort hann ætli að taka þátt í keppninni um herra Suðurland segist hann ekki alveg vera búin að gera það upp við sig ennþá. Hann segir ýmsa möguleika geta opnast og fer í myndatökur hjá Model.is á miðvikudag. „Þetta er pmfa og ég veit ekkert hvað kemur út úr því en ég get samt alveg hugsað mér að starfa eitthvað sem módel, það getur verið ágætt. Ég fer á þriðja ár í FIV í haust á félagsfræðibraut og stefni á að æfa handbolta næsta vetur.“ Hann segir fjölskylduna hafa stutt vel við bakið á sér úrslitakvöldið en níu manns komu frá Reykjavík. Félagamir og kærastan hvöttu mig en ég tók voða lítið eftir því þegar ég var uppi á sviði. „Þeir sem fá tækifæri til að taka þátt í svona keppni ættu endilega að nýta sér það, þetta er geðveikt gaman,“ sagði Stefán Atli að lokum. FRETTIR Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549 - Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Sigursveinn Þórðarson, Guðbjörg Sigurgeirsdóttir. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjasýn/ Eyjaprent. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47. Símar: 481 1300 & 481 3310. Myndriti: 481-1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjafrettir.is. Veffang: http//www.eyjafrettir.is FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Krónunni, ísjakanum, Bónusvídeó, verslun 11-11, Skýlinu í Friðarhöfn og í Jolia í Hafnarfirði og afgreiðslu Hejrólfs í Þorlákshöfn. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.