Fréttir - Eyjafréttir - 17.07.2003, Blaðsíða 6
6
Frcttir / Fimmtudagur 17. júlí 2003
Yfirlýsing frá fulltrúum á B-lista óháðra:
Andrés Sigmundsson er
ekki fulltrúi okkar í bæjar-
stjórn Vestmannaeyja
Við undirrituð viljum koma því á
framfæri enn og aftur að Andrés
Sigmundsson er ekki fulltrúi B-listans
í bæjarstjóm Vestmannaeyja. Andrés
var fulltrúi B-listans í bæjarstjóm
þegar Sjálfstæðismenn og Framsókn-
arflokkurinn og óháðir mynduðu
meirihluta eftir síðustu bæjar-
stjómarkosningar. En eins og allir vita
kaus Andrés að segja sig frá því
samstarfi og fara í samstarf með V-
listanum.
Andrés fékk ekki samþykki full-
trúaráðsins í vetur til að fara í
meirihlutaviðræður við V-listann.
Hann er því ekki á vegum B-lista
Framsóknarflokks og óháðra, hann er
ekki á vegum Framsóknarflokksins
eða Frammsóknarfélagsins í Vest-
mannaeyjum í þessu meirihluta-
samstarfi sínu hjá V-listanum þetta
veit Andrés vel. En hann fór og tekur
sér það vald að kenna sig við B-listann
í þessu meirihlutasamstarfi. Við
frábiðjum okkur því að vera tengd við
V-listann á nokkum hátt. Og í raun
skömmumst við okkur íyrir að hafa sl.
vor komið Andrési í þá aðstöðu að
geta valsað með hagsmuni bæjarbúa
eftir eigin geðþótta.
Þá aðstöðu hefur Andrés gjörsam-
lega misnotað og leyfir sér að vaða
yfir bæjarbúa undir því yfirskini að
hann telji að þær aðgerðir sem hann er
að taka þátt í séu bæjarbúum fyrir
bestu. Síðasti gjömingur hans og V-
listans er algjör skandall, þar sem vilji
bæjarbúa er gjörsamlega hundsaður,
þe. að segja Inga Sigurðssyni, bæjar-
stjóra, upp störfum, þar sem hann
hefur stuðning og traust meirihluta
bæjarbúa á bak við sig.
Og ljótt er ef satt er, að það
starfsfóík hjá Vestmannaeyjabæ sem
missti starf sitt eða var fært til í starfi
hafi frétt um þessar breytingar í
fjölmiðlum. Hvert er siðgæði þessa
meirihluta? Andrés kom oftar en einu
sinni fram í ijölmiðlum þar sem hann
þrætti fyrir að segja ætti Inga upp og
bar við að Hrekkjalómafélagið væri
vaknað til lífsins á ný og líklega væri
þetta hrekkur frá þeim. Þessi frétt
komá eyjar.net..
Formaður bæjarráðs ætti að
skammast sín fyrir svona útúrsnúning
og ómerkilegheit, en greinilega kann
hann það ekki því fimmtudaginn 10.
júlí er hann spurður að því hvort það
eigi að ræða væntanlega uppsögn Inga
á bæjarstjómarfundi þann dag. Ekki
vildi Andrés kannast við það en allir
vita hvemig fór. Við höfum það fyrir
satt að Andrés hafi ekki haft stuðning
frá „sínu“ nefndarfólki innan núver-
andi meirihluta til að reka Inga
Sigurðsson bæjarstjóra. Einhvert tang-
arhald hafa V-listamenn á honum, því
hann beygði sig undir þeirra vilja og
tók þátt í þessum brottrekstri á manni
sem hann sjálfur átti þátt í að ráða si.
vor og lýsti þá yfir að hann væri hæst-
ánægður með Inga í starfið.
Já, Andrés rak mann sem mikill
meirihluti bæjarbúa hafði lýst yfir
ánægju sinni með sem bæjarstjóra og
bar við að ekki hafi verið nægur
trúnaður í samstarfinu við hann. En
skyldi Andrés vita hvað orðið
trúnaður þýðir, við emm næstum því
viss um að svo er ekki, því ekki sýndi
hann okkur svo mikinn trúnað sem
vomm að vinna með honum í
fyrrverandi meirihluta, þegar farið var
að vinna í nefndum og út í alvömna
var komið. Hann fór í viðræður við V-
listann án þess að ræða það við okkur,
hann leyfði sér að taka sér það vald
sem efsti maður á listanum án þess að
við vissum að hann væri að plotta á
bak við okkur. Líklega finnst Andrési
þetta vera trúnaður. Andrés fann að
hann fékk aðhald frá okkur og það
þoldi hann ekki. Andrés hefur gagn-
rýnt og látið þau orð falla að það séu
alltof margir sjálfstæðismenn og fólk
sem tengist Sjálfstæðisflokknum í
vinnu hjá bænum og úr því þurfi að
bæta!!!!
Eigum við, sem emm í vinnu hjá
bænum og emm í nefndum í núver-
andi minnihluta von á því að fá upp-
sagnarbréf fyrir tilstuðlan Andrésar
því við tengjumst Sjálfstæðisflokkn-
um í gegnum nefndarstörfin?
Núverandi meirihluti hefur gagn-
rýnt mjög harkalega stefnu sjálf-
stæðismanna í ráðningu starfa hjá
bænum og kallað það vinaráðningar
og klíkuskap. En hvað gerir núverandi
meirihluti, þeir ráða vini og vanda-
menn í nýju störfin sem urðu til núna
og höfðu ekki einu sinni fyrir því að
auglýsa í stöðumar. Þeir fara sömu
leið og þeir hafa verið að gagnrýna.
Við emm undrandi yfir því að V-
listinn skuli treysta á trúnað Andrésar
og treysta því að hann greiði atkvæði
með meirihlutanum á fundum.
Að lokum viljum við biðja alla
bæjarbúa afsökunar á því að hafa
stuðlað að því að Andrés Sigmunds-
son kæmist í þessa aðstöðu sem hann
hefur í dag, þe. að halda heilu bæjar-
félagi nánast í gíslingu. Við bemm að
hluta ábyrgð á því. Að lokum þetta,
Andrés Sigmundsson er ekki fulltrúi
B-lista lista Framsóknar og óháðra í
bæjarstjóm Vestmannaeyja, hann er
þar á sínum vegum og ber einn og
sjálfur ábyrgð á öllum gjörðum sem
hann framkvæmir. B-listinn kemur
hvergi þar nærri.
Vestmaimaeyjum 15. júlí2003.
GuðríðurAsta Halldórsdóttir,
Sœrún Eydís Asgeirsdóttir, Jóhann
Þorvaldsson, Agústa Kjartansdóttir,
Sigurður Páll Asmundsson, Víkingur
Smárason og Sigurður
Friðbjömsson.
Á fimmtudagskvöldið, 3. júh' á goslokaafmæli voru hljómleikar sem ætlaðir
voru yngri kynslóðinni. Þar komu fram hljómsveitirnar, Brútal og
Hugarástand frá Vestmannaeyjum, Búdrýgindi sem unnu Músíktilraunir
2002 og Dáðadrengir sem sigruðu í ár.
Hljómleikarnir voru ætlaðir 12 til 18 ára og mættu hátt í 200 manns og
fengu sveitimar góðar undirtektir enda var þetta góð blanda sem boðið var
upp á.
Á neðri myndinni er Brútal á sviðinu í Höllinni en á þeirri efri
Dáðadrengir.
Yfirlýsing frá frambjóðendum D lista og B
lista og óháðra í Vestmannaeyjum:
Fordæmum vald-
níðslu og siðleysi
Sveitarstjórnarflokkar Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks og
óháðra harma þá ákvörðun meirihluta
V-lista og Andrésar Sigmundssonar
að segja Inga Sigurðssyni upp sem
bæjarstjóra.
Ingi Sigurðsson hefur með dugnaði
sínum í starfi sem bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjum áunnið sér mikið og
vaxandi traust meðal bæjarbúa, hvar í
flokki sem þeir standa. Það er öllum
ljóst að hér er gengið gegn vilja mikils
meirihluta bæjarbúa.
Ennfremur hörmum við það fals og
þann óheiðarleika sem Vestmanna-
eyingum var sýnt í öllum aðdraganda
þessa máls. Oddviti V-lista, Lúðvík
Bergvinsson og Andrés Sigmundsson
höfðu ítrekað vísað fullyrðingum um
að til stæði að segja Inga Sigurðssyni
upp störfum og er þess skemmst að
minnast þegar forseti bæjarstjómar
sagði í Fréttum 26. júní að hann vísaði
þessum fullyrðingum algjörlega á bug
og væri helst á því að einhver væri að
endurvekja Hrekkjalómafélagið.
Galgopaháttur þessi og sú vald-
níðsla sem útt hefur sér stað frá því að
samstarf þeirra Lúðvíks og Andrésar
varð að vemleika er ófýrirgefanlegur.
Fordæmum jafnframt siðleysi í
vinnubrögðum núverandi meirihluta
bæjarstjómar varðandi samskipti við
starfsfólk vegna breytinga á skipuriti
Vestmannaeyjabæjar.
í stað þessi að ræða við viðkomandi
starfsfólk var tilkynning send í fjöl-
miðla íyrir hádegi og mátti starfsfólk
bæjarins lesa eða heyra það í fjöl-
miðlum að því hafði verið sagt upp
störfum.
Það vekur jafnframt furðu að stöður
fjögurra nýrra framkvæmdastjóra hjá
Vestamnnaeyjabæ skulu ekki verða
auglýstar lausar til umsóknar, eins og
reglur bæjarstjómar Vestmannaeyja
gera ráð fyrir og samið hefur verið um
við Starfsmannafélag Vestmannaeyja-
bæjar.
Fyrir hönd sveitarstjórnarflokks
Sjálfstœðisflokks,
Guðjón Hjörleifsson
Ný og endurbætt flugslysaáætlun
Fyrir skömmu var undirrituð í Vestmannaeyjum ný og
endurbætt flugslysaáætlun fyrir Vestmannaeyja-
flugvöll. Áætlunin hefur að geyma upplýsingar um
verkefni og samhæfingu allra viðbragðsaðila í
Vestmannaeyjum. Viðbragðsaðilarnir eru: Almanna-
varnir, Björgunarfélagið, Flugmálastjórn, flug-
rekendur, Iögreglan, Rauði krossinn, Sjúkrahús
Vestmannaeyja, slökkviliðið og Lóðsinn og Vest-
mannaeyjaradíó vegna viðbraða á sjó.
Flugslysaáætlunin er unnin samkvæmt verk-
þáttaskipulaginu SÁBF (stjórnun, áætlanir, bjarganir
og framkvæmdir) sem er sameiginlegt skipulag allra
viðbragðsaðila á Island. Skipulag áætlunarinnar var
unnið í samstarfi heimamanna, Flugmálastjórnar
íslands og Ríkislögreglustjórans almannavamadeildar.
í lok október er svo stefnt að því að reyna virkni
áætlunarinnar með flugslysaæfingu, þar sem allir hlut-
aðeigandi aðilar koma að.
Flugmálastjórn, Ríkislögreglustjóri og viðbragðsaðilar
á einstökum stöðum vinna nú að flugslysaáætlunum í
SÁBF-kerfinu fyrir alla áætlanafiugvelli landsins.
Áætlanirnar byggja m.a. á þeim fjölmörgu hóp-
slysaæfingum sem átt hafa sér stað á undanförnum
árum, nú síðast á Vopnafirði og Þórshöfn í maímánuði,
þar sem æfð voru viðbrögð við flugslysi.
Á myndinni eru Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður í
Vestmannaeyjum og fulltrúar Flugmálastofnunar að
undirrita áætlunina.