Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.07.2003, Qupperneq 7

Fréttir - Eyjafréttir - 17.07.2003, Qupperneq 7
Fréttir / Fimmtudagur 17. júlí 2003 7 Ný Smáey VE í Eyjaflotann Á laugardaginn kom nýtt skip, Smáey VE 144. til heimahafnarí Vestmannaeyjum í fyrsta skipti. Utgerðarfélagið Bergur-Huginn ehf. gerir skipið út en eldra skip félagsins með sama nafni var sett upp í. Magnús Kristinsson. útgerðarmaður, segir það stóra stund í sögu hverrar útgerðar að fá nýtt skip. „Bergur- Huginn er rúmlega þijátíu ára en tuttugu ár eru liðin frá því fyrirtækið keypti nýtt skip en félagið fékk þá Smáey rúmlega árs gamla frá Olafsvík en nýja skipið kemur frá Reykjavík, er rúmlega árs gamalt. Það má því segja að aðstæður séu svipaðar. Skipin eru svipuð að stærð en nýja skipið hærra og breiðara og ber meiri afla,“ sagði Magnús. Smáey VE var smíðuð í Kína 2001 og er 327 brúttótonn, lengd er 28.87m, breidd 9,17 m, aðalvél er Yanmar951 hestafl. Magnús Kristinsson sagðist að vonum vera glaður og ánægður og líta björtum augum til framtíðar á þessum tímamótum í sögu félagsins. Smáey er vel búin tækjum og vinnslukerfi eru mjög fullkomin. Aðbúnaður áhafnar er góður og allur frágangur til fyrirmyndar. Erum að læra á nýtt skip Smáey hélt út til veiða strax á laugardagkvöldið en skipstjóri er Sigurður Siguijónsson. „Það hefur gengið vel, þetta er allt nýtt og við erum að læra á þetta,“ sagði Sigurður þegar náðist í hann á miðunum á þriðjudagsmorgun. „Þetta er myndarlegt skip. ætli þetta sé ekki svipað og ef maður fengi sér nýja konu, maður þyrfti að læra á hana. Eg þekkti gömlu Smáey út og inn en þetta lofar mjög góðu. Skipið er myndarlegt í alla staði og fer vel um mannskapinn. Þetta eru ný handtök og hugtök sem menn verða að temja SMÁEY VE kemur til hafnar í Vestmannaey.jum í fyrsta skipti. sér en ef þessi reynist eins vel og sú gamla þá erum við á grænni grein,“ sagði Sigurður. Smáey var komin með sjötíu kör og var væntanleg í land klukkan eitt á þriðjudag. „Það þarf að laga og slípa hlutina aðeins til og það hefur ekkert komið upp á nema eðlilegir byrjunar- erfiðleikar. Nýja skipið er tveimur metmm breiðara en það var samt hægt að setja ótrúlega mikið í þá vitleysu," sagði Sigurður hinn gömlu en þetta skip er öflugra og hressasti. nýtískulegra. Mannskapurinn hefur unnið lengi saman og þeir ýta við mér ef ég er að gera einhverja ilillllftl ts li A | i m i ípíT W? ÍQ \• \ iá 'w * l* SIGURÐUR skipstjóri og Eva Andersen, kona hans, í brúnni á Smáey en margir voru mættir og færðu bæði útgerð og áhöfn blúm. Séra Kristján Bjarnason flutti hugvekju við þetta tækifæri og bað skipi og mannskap blessunar. JÓN Snædal, stýrimaður og aflevsingaskipst júri með soninn ???????. Faðir Jónsogafi ?????????????, Logi heitinn Snædal, var um langt skeið skipstjúri á Smáey og fetar Jón í fótspor hans. MAGNÚS útgerðarmaður við komu Smáeyjar á laugardaginn.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.