Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.07.2003, Síða 9

Fréttir - Eyjafréttir - 17.07.2003, Síða 9
Fréttir / Fimmtudagur 17. júli 2003 9 smiðja, fullvinnsla úr fiskimjöli og lífefhavinnsla úr sjávarafurðum. Að lokum telja þeir mikilvægt að Vestmannaeyingar efli tengsl sín við Háskóla Islands, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Iðntæknistofnun og fleiri með það að markmiði að nýta sér þá þekkingu sem fydr er hjá sérífæð- ingum þessara stofnana. Fiskvinnsla Hópurinn, sem fjallaði um fiskvinnslu í Eyjum, skilaði langri skýrslu um málið enda fiskvinnsla löngum verið mikilvæg atvinnugrein í Eyjum. Hópinn skipuðu þau Guðmundur Elíasson, Kristján Bjarnason, Eygló Harðardóttir, Georg Amarsson, Kristín Valtýsdóttir, Jóhann Jónsson og Amar Hjaltalín. Skýrslan er nokk- uð pólitísk þar sem farið er mikið yfir það sem betur má fara í stjóm fisk- veiða. Fyrst er áréttað í umfjöllun um útflutning óunnins afla að fiskistofnar við landið séu sameign þjóðarinnar og eðlilegt að hlutast sé til um meðferð aflans, bæði á sviði ríkis- og sveitarstjóma, sérstaklega þar sem hagsmunir sveitarfélaganna em miklir eins og hér í Eyjum. Lagt er til að allur afli sem á að fara til útflutnings verði boðinn upp hér á landi og að gerð verði hagfræðileg úttekt á afleiðingum þess að afli er fluttur óunninn út. Einnig vill hópurinn að myndaður verði samstarfshópur þeirra sveitar- félaga sem mestra hagsmuna eiga að gæta. Þau benda á mikinn aðstöðumun sjó- og landvinnslu og sérstaklega þegar kemur að vigtunarmálum, losun úrgangs og skattaumhverfi fyrirtækja og starfsmanna auk kjaramála. Þennan mun þarf að jafna, ekki með því að gera sjóvinnslu erfiðara fyrir heldur með því að jafna tækifæri land- vinnslunnar til móts við sjóvinnsluna. Umhverfi þetta er að mestum hluta skapað af lögum og reglugerðum og þarf því að beina spjótum að þeim sem því stjóma. Þau benda þó á að einn hlutur er ekki settur í reglugerð en það er brottkast á stórum hluta fisksins í sjóinn frá vinnsluskipum, það eru hausar, hryggir og oft afskurður sem mönnum er fijálst að koma með t' land en gera ekki. Áætlað er að þetta brottkast geti numið að minnsta kosti 1.500 tonnum á ári frá skipum á bolfiskveiðum, gerðum út í Eyjum. Vilja þau að afurðir verði vigtaðar fullunnar frá húsum en ekki hráefni inn í hús eins og nú er gert. Það er heimilt í sjóvinnslu. Segja þau þetta mjög til bóta og einnig vel fram- kvæmanlegt. Benda þau á að fyrir- tækjum með vinnslu út á sjó er heimilt að henda öllum þeim fiski í sjóinn sem þeir ekki nýta. Þannig geta allt að 63% af hveijum bolfiski farið í sjóinn án athugasemda frá opinberum aðilum. Unnin hefur verið skýrsla á vegum sjávarútvegsráðuneytisins um þetta mál og koma engin rök þar fram sem mæla þessu bót. Einu rökin í skýrslunni sem útgerð- armenn höfðu fram að færa þessu til málsbóta voru þau að aðrir fiskar fengju að éta. Eins benda þau á að landvinnslan hafi engan möguleika á að losa sig við úrgang nema með nokkrum tilkostnaði og auk þess er alltaf verið að herða reglugerðir með fráveitumál, til dæmis fitugildrur og þess háttar sem sjóvinnslan sleppur alveg við. Hópurinn bendir á að fyrirtæki í landvinnslu beri ýmsa skatta og að- stöðugjöld sem em ekki lögð á skip og segja þau þar tækifæri til að jafna. Tillögur hópsins fela meðal annars í að annaðhvort verði sett reglugerð sem beinlínis skyldar menn að koma með allt að landi, eða með því að leggja skilagjald á það sem nú er yfirleitt hent, eða kvótaívilnun. Að kjör liskvinnslufólks á sjó og landi verði jöfnuð þegar kemur að opin- berum gjöldum. Að viðurkennt verði að landvinnslan eigi tilkall til þeirra afurða sem sjóvinnslan getur ekki nýtt, á frjálsum markaðsgrundvelli. Nýsköpun í sjávarútvegi fær gott pláss í skýrslunni og kemur þar fram að opinberar stuðningsstofnanir fyrir nýsköpun, svo sem Iðntæknistofnun og Byggðastofnun hafa haft á orði að lítið af umsóknum og fyrirspurnum berist frá Vestmannaeyjum og al- mennt virðist upplýsingamiðlun til frumkvöðla hafa verið takmörkuð. Einnig er flutningskostnaður aðfanga innanlands hár. Hvetja þau til aukinnar samvinnu á milli hinna íjölmörgu fiskvinnslufyrirtækja sem starfa í Vestmannaeyjum, að setja á stoíh ný- sköpunarmiðsöð eða frumkvöðlasetur til stuðnings og aðstoðar nýjum og eldri íyrirtækjum. Draga þuríi úr flutn- ingskostnaði, til dæmis með niður- greiðslu og að gera þurfi bæjarfélagið meira aðlaðandi með staðsetningu fyrir ný fyrirtæki. Til dæmis með því að lækka eða fella niður föst gjöld, svo sem fasteignagjöld, gamamálagjöld og svo framvegis fyrstu tvö til þrjú rekstrarár íyrirtækisins í Eyjum. Þau telja fullvinnslu sjávarafurða í Eyjum vera heppilegan kost með tilliti til aðfanga, góðu aðgengi að hæfu starfs- fólki og ódýru húsnæði. Benda þau á mikinn ýsukvóta Eyjamanna og að mikil aukning sé fyrirsjáanleg. Telja þau upp nokkra möguleika sem fisk- vinnsluhópurinn telur vert að skoða varðandi fullvinnslu. Til dæmis fiskibökur frá fyrirtækinu Kútmaga- koti sem voru framleiddar fyrir nokkrum ámm en var hætt, ekki vegna slæmrar afkomu heldur vegna þess að þessi tegund vinnslu hentaði illa með annari vinnslu fyrirtækisins. Benda þau á að til staðar séu upp- skriftir, umbúðir og þekking. Eins er til staðar hér í Eyjum nánast fullbúin verksmiðja, uppskriftir, þekking, til- lögur að framleiðslusamningum og reynsla af útflutningi til Evrópu í fyrirtækinu Westmar. Fiskiðnaðarhópurinn telur einnig rétt að skoða möguleika á þurrkun sjávarafurða með það í huga að nota ódýrt hráefni, til dæmis hausa, af- skurð, loðnu, fiskroð, bein og svo framvegis. Einnig telja þau mikla möguleika í Eyjum á útflutningi á ferskum flökum og að aðstæður hafi skapast á ný fyrir harðfiskverkun. Hópurinn vill stuðla að því að um- ræðan um fiskvinnslu verði jákvæðari en nú er og að Framhaldsskólinn taki inn fiskvinnsludeild. Að lokum íjalla þau um samkeppnisstöðu fiskvinnslu í Eyjum annars vegar og á Suður- nesjum og í Reykjavík hins vegar, með tilliti til vatns- og orkuverðs. Niðurstaðan í stuttu máli er sú að það virðist frekar óhagkvæmt að vera með fiskvinnslu í Eyjum sem notar mikið ferskvatn, hafi hún ekki möguleika á að nota sjó í staðinn. Ferðaþjónusta Sú atvinnugrein, sem hvað mestar vonir hafa verið bundnar við undan- farin ár, er ferðaþjónustan og hópurinn sem fjallaði um hvað má betur fara þar var skipaðurþeim Valgeiri Amórssyni formanni, Ámari Hjaltalín, Frosta Gíslasyni, Selmu Ragnarsdóttur, Sig- urmundi Einarssyni, Stefáni Jónas- syni, Viktori Ragnarssyni og Þresti Johnsen. Hópurinn lagði til eftir- farandi markmið og tillögur: Tuttugu prósent aukningu á ferðamönnum innan eins árs og telja þau að hægt sé að ná þessu markmiði með aukinni markaðssetningu. Að gerð verði markaðsgreining, könnun meðal ferðamanna hvað leiddi til ákvörðunartöku um að koma til Eyja. Hvenær árs ferðamenn koma hingað og út frá þeirri markaðs- greiningu verði Vestmannaeyjar markaðssettar. Benda þau á að betur mætti nýta sögu Vestmannaeyja til kynningar og markaðssetningar má þar meðal annars nefna landnám Eyjanna, og t.d. víkinga, Tyrkjaránið, gos og gossöguna. Alla þessa atburði má setja í leik- rænan búning, með fjölda starfa fyrir unga sem aldna. Fyrrgreindir atburðir falla undir menningartengda ferða- þjónustu og hægt er að sækja um styrki fyrir þess háttar ferðaþjónustu. Einnig benda þau á nokkra atburði sem vel mætti markaðssetja betur, til dæmis Shellmótið, Þjóðhátíðina, Pæjumótið, Hvítasunnumót Sjóve, golfmót og fleira. Næsta skref segja þau að sé að ráða markaðs- og sölufulltrúa tímabundið, og það starf verði auglýst sem fyrst og hæfasti einstaklingurinn ráðinn. ÁTVINNUTÆKIFÆRI kvenna í V ESTMANNAE Y JUM Sérstökum hópi var falið að fjalja um atvinnutækifæri kvenna í Vestmanna- eyjum og hópinn skipuðu Helga Tryggvadóttir sem var formaður, Anna Dóra Jóhannsdóttir, Eygló Harðardóttir, Hlíf Gylfadóttir, Stein- unn Jónatansdóttir, Unnur Sigmars- dóttir, Vigdís Sigurðardóttir og Þóra Hrönn Siguijónsdóttir. Tillögur þeirra fela meðal annars í sér að endurskoða opnunartíma leikskólanna og sam- ræma við atvinnulífið og þarfir fjöl- skyldna í bænum. Lögð er áhersla á að ljúka einsetningu grunnskóla og að boðið verði upp á heilsdagsskóla og daggæslu yfir sumarmánuðina. Að viðhaldi leik- og grunnskóla verði sinnt mun betur en gert hefur verið og að stuðlað verði að aukinni fag- mennsku í skólum með því að mennta stuðningsfulltrúa og annað starfsfólk. Telur hópurinn að styrkja þurfi konur sem eru í og hafa hug á að fara út í atvinnurekstur bæði í smáum og stórum stíl. Auk þess telja þau að Framhaldsskólinn þurfi að auka náms- framboð sitt bæði til þess að fólk innanbæjar fái tækifæri til að mennta sig ffekar og einnig vilja þær veg FIV sem mestan og vilja sjá nemendur frá öðrum stöðum á landinu sækja framhaldsskólamenntun sína hingað. Fleiri hugmyndir koma fram hjá þeim, þær tala um atvinnumál og at- vinnutækifæri kvenna þar sem helstu tillögur eru að ráða starfsmann sem hefði það að verkefni að halda utan um og fylgja eftir hugmyndum frá hópi um atvinnumál kvenna. Telja þær að betri heilsugæsla og þróun starfsemi sjúkrahússins geti opnað mörg atvinnutækifæri fyrir konur og segja að stækka þurfi mark- hóp sjúkrahússins. Aðrar hugmyndir sem koma fram hjá hópnum er að fá ríkisstofnanir í bæinn, setja á laggimar markaðsskrifstofu útflutnings á sjávar- afurðum, einkareknar búðir þar sem bærinn gengi í ábyrgðir fjárhagslega, föndurmiðstöð, einfalda framleiðslu á fýlgihlutum og útibú frá lyfjafyrir- tækjum eða öðmm ámóta, pökkun og létta framleiðslu. Hafnarnefnd Þeir Sigurmundur G. Einarsson, Georg Amarsson og Sigurður Óskars- son vom í hafnamefnd og skilgreindu höfnina sem fyrirtæki og tillögur skoðaðar út frá því. Tillögur jxirra fela meðal annars í sér bætta aðstöðu fyrir dagróðrabáta þar sem til staðar verði upptökutæki til lagfæringa á plast-, stál- og tréskipum. Vilja þeir sjá söfn á hafnarsvæðinu, til dæmis sögu vél- bátaútgerðar í Vestmannaeyjum sem og skipasmíða. Saga Björgunarfélags Vestmannaeyja og fyrsta varðskip íslendinga, Þór og saga hans. Sögu erlendrar útgerðar í umhverfi Vest- mannaeyja og sögu köfunar á íslandi. Þeir vilja sjá göngubrú yfir í Löngu, litla flotbryggju inni í Klettsvík og að bryggjuaðstaða á Skansinum þurfi að vera nothæf fyrir báta en í dag er dýpi ekki nægilegt. Nefndin segist hafa ákveðnar hugmyndir um framkvæmd á ofantöldum tillögum og er tilbúin til aðstoðar ef óskað er eftir. Upplýsingatækni Fyrir ekki löngu var upplýsingatæknin það sem átti að bjarga landsbyggðinni en heldur hefur dregist saman í þeim geiranum undanfarin ár og svokölluð sprotafyrirtæki farið á hausinn hvert á eftir öðm. Samt sem áður telja menn þar mikla vaxtarmöguleika og var einn hópur tileinkaður þessum geira. Ekki kemur fram í skýrslunni hverjir skipuðu hann og skýrslan er mjög slök og lítið í hana lagt miðað við hvað hinir hópamir höfðu fram að færa. Þrjár hugmyndir em viðraðar og ganga þær út á að bæjarfélagið ætti að koma að því að auðvelda fmm- kvöðlum í upplýsingatækni með opnun eins konar upplýsingatækni- seturs. Bæjarfélagið ætti að heija könnun á því hvort möguleikar em fyrir Landssímann að flytja eitthvað af sinni starfsemi til Eyja vegna land- fræðilegrar stöðu eyjanna gagnvart Cantat 3 og að bæjaifélagið ætti að kynna fyrir netmiðlum möguleika á að koma með útibú til Eyja. svenm@eyjafretúr. is Margar góðar hugmyndir komu fram -segir Guðmundur Elíasson, verkfræðingur, sem var falið að fylga skýrslunni eftir Það kemur í hlut Guðmundar Elíassonar rekstr- arverkfræðings að fylgja skýrslu atvinnuhópsins eftir fyrst um sinn en honum hefur verið falið að vinna að því að kortleggja hugmyndimar og tillögumar. „Lúðvík Bergvinsson bað mig um að fylgja eftir þeirri vinnu sem búin var og setja niður hver næstu skref geta verið.“ Guðmundur sem starfar hjá Verkfræðiskrifstofu Sigurðar Thorodd- sen var einn þeirra sem tók þátt í vinnu hópsins en hann starfaði bæði í iðnaðar- og fiskvinnsluhópi. „Mér líst vel á skýrsluna og þetta er rosalega gott framtak og þama em margar góðar hugmyndir." Guðmundur, sem reiknar með því að skila sinni vinnu um mánaðamótin ágúst - september, segir að hans vinna sé að skoða tillögumar og flokka þær. „Það þarf að skoða hversu einfalt eða flókið er að koma tillögunum í framkvæmd með tilliti til kostnaðar, tíma o.fl. Sumar tillögumar em þess eðlis að einfalt er að koma þeim í framkvæmd en aðrar byggja á mikilli undirbúningsvinnu og jafnvel stefnumótandi ákvörðunum. Auk þess má skoða það sem fram kemur í skýrslunni með tilliti til þess að einhverjar ábendingar höfða til einstaklinga, aðrar til bæjaryfirvalda og sumar hugmyndir þurfa jafnvel að fara í gegnum landsmálapólitík áður en lengra er haldið." Guðmundur sagði að bæjarbúar gætu enn haft sín áhrif á vinnuna sem er í gangi. „Það er hægt að nálgast skýrsluna hjá mér og eins vil ég hvetja fólk, sem hefur hugmyndir eða eitthvað annað til málanna að leggja, að hafa samband." Netfangið hjá Guðmundi er ge@vst.is, síminn 481-3292 og myndsímanúmer 481-3294. PÁLL Scheving afhendir Lúðvík Bergvinssyni, oddvita meirihluta bæjarstjórnar, skýrsluna.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.