Fréttir - Eyjafréttir - 17.07.2003, Blaðsíða 10
10
Fréttir / Fimmtudagur 17. júli 2003
Lúðvík Bergvinsson oddviti V-listans
Arfleifð íhcildsins kcillcir á
margvíslegar aðgerðir
-Það er afar mikilvægt að gott samband sé milli hans og bæjarstjóra. Það eru einfaldlega hagsmunir bæjarfélagsins að svo sé. Þeir hagsmunir eiga að
ganga fyrir. Það er algerlega óþekkt að minnihluti í sveitarstjórnum ráði bæjarstjóra, segir Lúðvík um ráðningu nýs bæjarstjóra. Hér er hann á
blaðamannfundi með Berg Agústssyni bæjarstjóra sem tók við í gær og Andrési Sigmundssyni formanni bæjarráðs.
Lúðvík Bergvinsson, oddamaður V-
listans, segir að í raun hafi ekki annað
komið til greina en að skipta um
bæjarstjóra og þar komi margt til.
I yfirlýsingu ykkar kemurfram að ekki
hafi tekist að mynda nauðsynlegan
trúnað milli ykkar og fráfarandi
bœjarstjóra síðan þið tókuð við í
mars, í hverjufólst það?
„Því miður tókst ekki að móta sam-
starf eða samvinnu sem hefði getað
orðið sá grunnur sem hægt hefði verð
að byggja á næstu árin. Þegar það lá
fyrir var ekki önnur leið fær en sú sem
ákveðið var að fara. Ég tel það ekki
þjóna neinum tilgangi að ræða þetta
frekar, enda upplifir hver þetta á sinn
hátt, hvort heldur atvik eða samskipti
og væntanlega hafa báðir aðilar skoð-
un á því. Þetta var mat meirihlutans.
Þess ber þó að geta að háttalag Sjálf-
stæðismanna við að eigna sér bæjar-
stjórann og gera hann að sínum manni
hjálpaði ekki við að reyna að skapa
nauðsynlegt traust. Þeir bera mikla
ábyrgð í því hvemig fór jafnvel þó
þeir hafi þurft að nota þetta mál til að
fela frambjóðanda sinn í alþingis-
kosningunum í maí sl. Það sýnir
aðeins að þeir setja hagsmuni flokks-
ins ofar öllu. Þeim hugsunarhætti
verður að breyta."
Hvað réttlælir slíkt
ÖRYGGISNET?
Ingi Sigurðsson sagði sjálfur í rœðu á
fundinum að hann hafi aldrei fengið
tœkifœri til þess að mynda þennan
trúnað, hvað viltu segja um það?
„Ég er ósammála þeirri skoðun.“
Lögfrœðiálit Rugnars Hall, er það
ekki ávísun á að máliðfarifyrirdóm-
stóla? „Það verður ákvörðun þeirra
sem sætta sig ekki við þá túlkun
samningsins sem ég tel eðlilega og í
samræmi við niðurstöður Hæstaréttar
í sambærilegum málum. Fyrir flesta
hefði ég talið að rúmlega þriggja
milljóna króna greiðsla, við þessar
aðstæður, hljóti a.m.k. að vera sann-
gjöm og eðlileg, svo vægt sé að orði
komist, og skoðist sem nægur
heimanmundur við þessar aðstæður.
Til samanburðar má geta þess að
borgarstjórinn í Reykjavík hefur
engan uppsagnarfrest fyrr en eftir að
hann hefur starfað í tvö ár, að því að
ég best veit. Verkafólk til sjós og lands
hefur að jafnaði varla meira en viku
uppsagnarfrest eftir sambærilegan
starfstíma. Við uppsagnir þess fólks
að undanfömu í Vestmannaeyjum
hefur lúðrasveit Sjálfstæðisflokksins
látið sig vanta. Maður spyr því sjálfan
sig hvað réttlæti svo mikið öryggisnet
eins og það sem er í ráðningar-
samningi við fyrrverandi bæjarstjóra í
Vestmannaeyjum? Þá spyr maður
hvers vegna séu ekki til hliðstæðir
samningar annars staðar á landinu? Ef
fólk telur að á sér sé brotið hefur það
alltaf rétt til að bera það undir
dómstóla. Það getur hver og einn gert.
Það tryggir réttaröryggi. Annað hef
ég ekki að segja um það.“_
Hvenœr kom najh Bergs Ágústssonar
upp á borðið hjá ykkur?
„Það er ekki langt síðan.“
Þið segið sjálftr í yfirlýsingunni að
skipting á bœjarstjóra muni ekki hafa
ífór með sér neinfyrirsjáanleg útgjöld
fyrir bœjarsjóð, Ingi á a.m.k. rétt á sex
mánaða launum og því verða tveir
bœjarstjórar á launum í sex mánuði,
hvernig skýrir þú þá að engin
útgjaldaaukning muni eiga sér stað?
„Þeir undarlegu ráðningarsamn-
ingar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur
gert undanfarin misseri við bæjar-
stjóra, yfirleitt hefur íhaldið verið að
semja við sjálft sig, gera ráð fyrir því
að bæjarstjóri fái sex mánaða greiðslur
eftir að hann lýkur störfum. M.ö.o.
hvemig eða hvenær sem starfslok
hans ber að em honum ætlaðar
greiðslur í sex mánuði. Þetta átti sér
t.d. stað við þekkt starfslok Guðjóns
Hjörleifssonar í frægum ráð-
gjafa/biðlaunagreiðslum til hans.
Vegna samningsins verður bærinn
alltaf að inna þessar greiðslur af hendi.
Það breytir því í sjálfu sér engu
hvenær hann leysir þessa kvöð til sín.
Það sem gerist við bæjarstjóraskiptin
er að verðandi bæjarstjóri gengur
einfaldlega inn í kjör þess sem áður
sat, þó ákvæði um biðlaunarétt falli
brott. Hann mun því njóta sömu
launakjara og fyrrverandi bæjarstjóri
að öðm leyti. Samningur hans verður
með uppsagnarfresti. Bæjarsjóður
heldur því áfram að greiða bæjarstjóra
laun sem fyrr, en leysir út kvöðina um
sex mánaða biðlaunagreiðslur í dag.
Hún hefði hvort eð er alltaf komið til
útborgunar. Af þessu leiðir að engin
fyrirsjánleg aukaútgjöld tengjast
þessum bæjarstjóraskiptum frá því
sem ella hefði verið.“
Mótmæli skipulögð af
Fréttum
Mótmœli bœjarbúa, hvað viltu segja
um þau?
„Almennt er ég þeirrar skoðunar að
fólk eigi oftar en það gerir að segja
skoðun sína umbúðalaust. Það sem
gerir á hinn bóginn þessi mótmæli
sérstök er sú staðreynd að allt frá því
að nýr meirihluti tók við hefur íhaldið
ólmast einsog kjánar við að reyna að
sannfæra fólk um að nýr meirihluti
eigi ekki að velja sér sinn bæjarstjóra.
Mótmælin vom skipulögð af þeim
með dyggri aðstoð vikublaðsins
Frétta, Amar Sigurmundsson bæjar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins er stjórn-
arformaður útgáfufélags blaðsins. Af
þessum sökum er erfiðara að fjalla um
mótmælin og dæma þau á hlutlægum
hátt. Vegna þeirrar miklu vinnu sem
flokkurinn lagði á sig við að fá fólk til
að mæta og skipuleggja mótmælin
fannst mér uppskeran rýr, enda
málstaðurinn veikur. Til þess að setja
þetta í samhengi má spyrja, hvemig
hefði fólk brugðist við ef við í V-
listanum hefðum ólmast á þennan hátt
fyrir ári síðan í því skyni að ráðinn
yrði bæjarstjóri sem væri okkur
sérstaklega að skapi. Ég geri ráð fyrir
því að fólk hefði undrast slíka hegðun.
Það á einnig að gera það nú.
Meirihluti bæjarstjómar hverju
sinni ber pólitíska, fjárhagslega og
stjómunarlega ábyrgð á rekstri
bæjarins. Það er afar mikilvægt að
gott samband sé milli hans og bæjar-
stjóra. Það em einfaldlega hagsmunir
bæjarfélagsins að svo sé. Þeir hags-
munir eiga að ganga fyrir. Það er al-
gerlega óþekkt að minnihluti í sveitar-
stjórnum ráði bæjarstjóra, auk þess
sem undantekningalaust hefur nýr
meirihluti, þegar hann hefur tekið við
í bæjarstjóm Vestmannaeyja, ráðið sér
nýjan bæjarstjóra. Við fómm þó aðra
leið, við vildum átta okkur á því hvort
nýr meirihluti og bæjarstjóri gætu náð
saman. Það gekk ekki. Við sambæri-
legar aðstæður hefur íhaldið ætíð sagt
bæjarstjómm upp samdægurs.
Dæmið um Pál Zóphóníasson frá
árinu 1982 er sennilega einna þekkt-
ast. Þá var settur á hann yfirfrakki þar
til hann yfirgaf skrifstofu sína, eftir að
hann hafði starfað mjög vel á erfiðum
tímum. Það er athyglisvert að Amar
Sigurmundsson sat þá í bæjarstjorn
sem nú fyrir íhaldið. í þessu ljósi er
erfitt að skilja undirbúning mótmæl-
anna, nema að baki búi ótti fyrr-
verandi meirihluta við það að nýtt fólk
taki við stjóm ráðhússins. Þar skyldi
þó ekki vera eitthvað sem ekki þolir
dagsbirtuna; spyr sá sem ekki veit.“
Töldum eðlilegt AÐ STOKKA
UPP í BÆJARKERFINU
Þið ráðið fjóra nýja framkvœmda-
stjóra yftr sviðin og þar af eru þrír
sem koma nýir til staifa hjá bœnum,
var eifitt að fá menn til staifa?
„Nei, við fengum það fólk sem við
vildum. Við töldum afar mikilvægt að
stokka upp í bæjarkerfinu. Það hafði
verið lengi á döfinni en það hefur
skort pólitískan kjark til að takast á við
verkefnið. Við töldum þetta rétta tím-
ann til þess.“
Hefði ekki verið eðlilegra að auglýsa
stöðumar lausar til umsókna?
„Við könnuðum það og komumst
að þeirri niðurstöðu að það þyrfti ekki
að auglýsa stöðumar. Því töldum við
það vera óheiðarlegt að auglýsa stöður
sem þegar hafði verið lagt að fólki að
taka. Þá hefðum við verið að hafa fólk
að fíflum. Það gemm við ekki.“
Hafið þiðfengið einhver viðbrögð frá
bœjarstaifsmönnum út afþessu?
„Fyrst og fremst jákvæð viðbrögð.
Þó er rétt að nefna að á síðasta
bæjarstjómarfundi hélt Amar Sigur-
mundsson innblásna ræðu um slæma
framkomu gagnvart einhverjum ótil-
greindum starfsmönnum, sem hann
vitnaði til. Þetta þótti mér afar eftir-
tektarvert. Þessi sami Amar hefur
líklega haft meiri áhrif en nokkur
annar við að gera Vestmannaeyjar að
láglaunasvæði. Þessi sami Amar
hefur staðið í því að reka fólk eins og
ekkert sé. Þessi undarlega orðræða
minnti mig á ágætan frænda minn sem
nefnir það jafnan þegar honum finnst
að tilvemnni hafi verið snúið á haus,
að nú sé moldin farin að fjúka í logn-
inu.“
Endurskipuleggja ÞARF
FJÁRMÁL BÆJARINS
Eitthvað sem þú vilt koma inn á að
lokum?
„Verkefnin framundan em marg-
vísleg. Arfleifð íhaldsins kallar á
margvíslegar aðgerðir. Það hefur
þurft að taka allt stjómskipulagið í
gegn. Það hefur verið gert. Það
verður að endurskipuleggja fjármál
bæjarins. Það verður gert. Það hefur
verið ákveðið að nota næsta vetur í að
ræða það hvort rétt sé að skipta
grunnskólunum upp eftir aldri nem-
enda. Gera þarf Þróunarfélagið upp og
koma á fót Nýsköpunarmiðstöð. A
næsta ári eða svo verður vonandi
hafist handa við byggingu menningar-
húss og nýs Sóla. Þá þarf að styðja
við bakið á þeim sem em í atvinnu-
rekstri og finna ný tækifæri. Vinna
þarf að markaðssetningu eyjanna upp
á nýtt. Verkefnin em mýmörg. Við
höfum fengið með okkur í lið mjög
öfluga sveit til að takast á við þessi
verkefni með okkur. Fyrir var fólk
sem hefur mikið til bmnns að bera.
Það sem mestu skiptir er að nýr
meirihluti fái vinnufrið til að geta farið
að einbeita sér að verkefnum sem
skipta mestu máli fyrir bæjarbúa. Því
verða hagsmunir Sjálfstæðisflokksins
að víkja því þeir fara ekki saman við
hagsmuni Eyjanna. Það sem mestu
skiptir nú í mínum huga er að þessum
bjálfagangi minnihlutans linni, þó
hann muni ekki hafa mikil áhrif á
okkur í okkar störfum. Mikið verk er
að vinna því tækifærin em mörg. Það
verður að vinna upp tíma hinna
glötuðu tækifæra."